Fréttir

Fréttamynd

Prótein sem veldur skalla

Bandarískir vísindamenn við háskólann í Pennsylvaníu hafa uppgötvað prótein sem getur valdið hármissi. Þeir rannsökuðu sköllótta karlmenn og tilraunamýs og komu þá auga á þessi prótein.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Obama vill láta rannsaka málið til hlítar

„Ef ég ætti son, þá myndi hann líta út eins og Trayvon,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti í gær. Þar með blandaði hann sér í umræðu um mikil hitamál í Bandaríkjunum, sem snýst um dráp á þeldökkum unglingspilti í bænum Sanford í Flórída í síðasta mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Lögreglan efast um tengsl við al Kaída

Franska lögreglan segist ekki hafa neina ástæðu til að halda að Mohammed Merah hafi verið í sambandi við hryðjuverkasamtökin al Kaída, hvað þá fengið skipanir frá þeim, jafnvel þótt hann hafi fullyrt það sjálfur.

Erlent
Fréttamynd

Telur fordæmisgildi dóms mikið

Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, þarf að fá undanþágu frá Hæstarétti til að fá að áfrýja dómi héraðsdóms í meiðyrðamáli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á hendur Birni. Sótt verður um leyfið eftir helgi segir Jón Magnússon, verjandi Björns.

Innlent
Fréttamynd

Kona fái bætur fyrir fall á eigin heimili

Umboðsmaður Alþingis gagnrýnir úrskurðarnefnd almannatrygginga fyrir að túlka reglugerð of þröngt þegar nefndin neitaði eldri konu, sem handleggsbrotnaði á heimili sínu, um bætur úr slysatryggingu.

Innlent
Fréttamynd

Sívirkni á Facebook merki um sjálfhverfu

Þeir Facebook-notendur sem uppfæra stöðu sína reglulega og merkja sjálfa sig með nafni inn á myndir eru sjálfhverfari en aðrir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum rannsóknar Chris Carpenter, prófessors við Western Illinois-háskólann í Bandaríkjunum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Geta beygt út af lögreglustöð

Gerð hefur verið sú breyting á fyrirhuguðum framkvæmdum við umferðareyjar og hringtorg á Dalvegi að lögreglan mun fá undanþágu til að beygja til vinstri þegar ekið er frá lögreglustöðinni þar við götuna.

Innlent
Fréttamynd

Tónlistarmenn í haldi án dóms

Tónlistarmenn sem staðið hafa fyrir friðsömum mótmælum í Aserbaídsjan undanfarið hafa verið barðir og fangelsaðir. Tveir tónlistarmenn hafa verið í haldi frá 17. mars án aðkomu dómstóla fyrir móðgandi ummæli um látna móður forseta landsins.

Erlent
Fréttamynd

Nýr iPad rokseldist áður en hann lenti á landinu

"Þetta er ekki bara leikjatölva," segir Hörður Ágústsson, framkvæmdastjóri Maclands. Sala á þriðju kynslóð iPad-spjaldtölvunnar frá Apple hefst í dag. Hundruðir Íslendinga höfðu forpantað tölvuna samkvæmt verslunum Maclands og Epli.is, sem sérhæfa sig í sölu á vörum frá Apple.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Þjórsá í biðflokk og Reykjanes í nýtingu

Unnið er að því að tryggja þingmeirihluta fyrir Rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúrusvæða. Áætlunin hefur verið afgreidd úr ríkisstjórn og er nú í þingflokkum stjórnarflokkanna. Tillögu verkefnisstjórnar er breytt og virkjanakostir færðir úr nýtingarflokki yfir í biðflokk. Unnið er að því að tryggja meirihluta málsins.

Innlent
Fréttamynd

Seðlabankinn fylgdi ekki verklagsreglum

Verklagsreglum Seðlabanka Íslands var ekki fylgt þegar bankinn lánaði Kaupþingi 500 milljónir evra 6. nóvember 2008. Þá var ekki kannað hver staða Seðlabankans væri varðandi fullnustu á veðinu, en Kaupþing setti fram veð í danska FIH-bankanum. Þetta kemur fram í svari Seðlabankans við fyrirspurn Helga Hjörvar, formanns efnahags- og viðskiptanefndar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

FME hefur lokið rannsókn 149 mála

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lokið rannsóknum á 149 málum tengdum bankahruninu en alls hefur FME tekið 191 mál til rannsóknar. Stefnt er að því að rannsóknum á öllum málunum verði lokið í árslok. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fyrsta eintaki Fjármála, nýs vefrits FME.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tryggja meirihluta Rammaáætlunar

Unnið er að því að tryggja þingmeirihluta fyrir Rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúrusvæða. Áætlunin hefur verið afgreidd úr ríkisstjórn og er nú í þingflokkum stjórnarflokkanna. Tillögu verkefnisstjórnar er breytt og virkjanakostir færðir úr nýtingarflokki yfir í biðflokk. Unnið er að því að tryggja meirihluta málsins.

Innlent
Fréttamynd

Kvöð um 50 ára aldursmark óbreytt

Félagið FM-hús ehf. sem á íbúðablokkina Skipalón 10 til 14 fær ekki fellda niður kvöð sem er á húsinu og öðrum fjölbýlishúsum í næsta nágrenni í Skipalóni um að íbúar á svæðinu séu fimmtíu ára eða eldri. Erindi FM-húsa var tekið fyrir í skipulags- og byggingaráði Hafnarfjarðar á þriðjudag. Fjöldi athugasemda barst frá íbúum til beggja handa við Skipalón 10.

Innlent
Fréttamynd

SÍ segist líklega munu tapa á FIH

Vegna tímaskorts var verklagsreglum ekki fylgt þegar ákvörðun var tekin um lán upp á 500 milljónir evra, 6. október 2008. Af sömu ástæðu var ekki kannað hver staða Seðlabankans væri varðandi fullnustu á veðinu sem Kaupþing lagði fram, sem var hlutur í danska bankanum FIH.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Olweus er samofinn skólastarfinu

Ingibjörg Jósefsdóttir, skólastjóri Hagaskóla, segir nauðsynlegt að allir skólar séu með einhvers konar eineltisáætlun. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu í gær, hefur einelti í þeim skólum sem fylgja Olweusar-áætluninni dregist saman um þriðjung.

Innlent
Fréttamynd

300 milljóna greiðsla lögleg

Þrjú hundruð milljóna króna greiðsla Þreks ehf., fyrrverandi rekstrarfélags World Class, til Lauga ehf., núverandi rekstrarfélags, stendur óhögguð samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær. Björn Leifsson í World Class stofnaði bæði félögin en Þrek er farið í þrot og taldi skiptastjóri þess að greiðslan hefði verið gjafagerningur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Romney þokast nær sigrinum

Mitt Romney er kominn langleiðina að því að tryggja sér útnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember næstkomandi. Forvali er nú lokið í helmingi ríkjanna. Slagur repúblikana hefur verið afar langur og óvæginn, en Romney hefur smátt og smátt verið að bæta við sig kjörmönnum á flokksþingið í ágúst. Þar verður frambjóðandi flokksins útnefndur til að takast á við Barack Obama forseta.

Erlent
Fréttamynd

Herinn vildi fá öflugri vopn

Amadou Toumani Toure, forseti Malí, komst heilu og höldnu undan þegar herinn í landinu gerði þar valdarán í fyrrinótt. Herinn tók á sitt vald helstu valdastofnanir landsins.

Erlent
Fréttamynd

Áhrif á kosningabaráttuna

Mánuður er til forsetakosninga í Frakklandi og margt bendir til þess að voðaverk Mohammeds Merah séu strax farin að hafa áhrif á þær.

Erlent
Fréttamynd

Selja húsmuni úr dánarbúi

„Við fengum dánarbú í hús og hugsuðum með okkur að við þyrftum einhvern veginn að koma því í pening,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Komst undan með klinkhaug

Grímuklæddur ræningi komst undan á hjóli eftir að hafa rænt kjörbúð í Vissenberg á Fjóni í fyrrakvöld. Hann bar þungar klyfjar á flóttanum enda var meginþorri ránsfengsins, 30 þúsund danskra króna, í smámynt.

Erlent
Fréttamynd

Vilja lækkun vatnsskatts

Sóknarnefndir Kársness-, Digraness, Hjalla-, og Lindasóknar óska eftir því að bæjarráðið í Kópavogi lækki verulega vatnsskatt og holræsagjald á kirkjur bæjarins.

Innlent
Fréttamynd

Eignarhald á orku verði óskert

Íslensk stjórnvöld munu fara fram á sérlausnir í aðildarviðræðum við ESB um orkumál til að tryggt verði að eignarhald Íslands á orkuauðlindum verði ekki skert á nokkurn hátt, né heldur rétturinn til þess að þess að stjórna auðlindum.

Innlent
Fréttamynd

Hafði verið látinn í 3 mánuði

62 ára enskur maður sem bjó á Írlandi fannst látinn í íbúð sinni í gær. Hann hafði verið látinn frá því um jól án þess að nokkur gerði sér grein fyrir því.

Erlent
Fréttamynd

Verðlaun afhent í HÍ í kvöld

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs verða afhent við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands klukkan 19 í dag. Þetta er í 50. skipti sem verðlaunin verða veitt, og í fyrsta skipti sem ekki er tilkynnt um verðlaunahafana fyrir verðlaunaathöfnina.

Innlent
Fréttamynd

Nauðgari fékk tveggja ára dóm

Tuttugu og sjö ára maður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun sem átti sér stað í samkvæmi í heimahúsi í júnílok í fyrra. Dómurinn yfir manninum, Jóhanni Inga Gunnarssyni, var kveðinn upp á þriðjudag í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Að auki er manninum gert að greiða konunni með vöxtum 800 þúsund krónur í miskabætur og tæpar 977 þúsund krónur í sakarkostnað.

Innlent
Fréttamynd

Fjársjóð fornminja að finna á hafsbotni

„Fyrir fornleifafræðina gefa þessi skipsflök ekki aðeins upplýsingar um ákveðið augnablik í tíma heldur eru þau heimild um samfélagið í heild. Í sokknu skipi er að finna fjársjóð upplýsinga um það sem við Íslendingar vorum að flytja hér inn. Þessar rannsóknir geta gefið okkur vitneskju um eitt og annað sem vantar inn í verslunarsögu okkar,“ segir Ragnar Edvardsson, fornleifafræðingur hjá rannsóknasetri Háskóla Íslands á Vestfjörðum.

Innlent