
Birtist í Fréttablaðinu

Öllum sakamálum hafnað í Hæstarétti
Aðeins eitt sakamál hefur verið tekið til meðferðar í Hæstarétti á grundvelli breytts hlutverks dómsins sem tók gildi í ársbyrjun 2018.

Fannst vanta valkost í íslensku spilaflóruna
Hin tékkneska Monika Brzkova og Svavar Halldórsson stofnuðu í fyrra borðspilaútgáfu. Svavar hefur hannað spil í tíu ár en Monika er ný í bransanum. Nýlega gáfu þau út spil byggt á norrænni goðafræði og íslenskum þjóðsögum.


Lokað fyrir netið í Íran
Mikil mótmæli hafa staðið yfir í Íran frá því á fimmtudag þegar verð á olíu var hækkað um allt að 300 prósent.

Karlar losni við karlmennskuna
„Margir karlmenn og drengir glíma við óraunhæfar staðalmyndir karlmennskunnar sem krefur þá um tiltekna hegðun, viðhorf og útlit“

Miðflokkur einn á móti bótamálinu
Anna Kolbrún Árnadóttir, fulltrúi Miðflokksins í allsherjar- og menntamálanefnd, leggst einn nefndarmanna gegn samþykkt frumvarps forsætisráðherra um heimild til að greiða bætur vegna sýknudóms Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálum.

Litrík fjölskyldusaga í mörgum lögum
Skáldsagan Svínshöfuð segir átakanlega sögu fjölskyldu og teygir anga sína frá lítilli eyju í Breiðafirði til suðurhluta Kína.

Spöruðu 20 prósent eftir útboð á þvagleggjum
Útgjöld Sjúkratrygginga vegna niðurgreiddra þvagleggja til nær fimm hundruð notenda hafa lækkað um fimmtung eftir útboð. Heilbrigðisráðherra segir samráð við notendur leggjanna koma til greina við útboð í framtíðinni.

Minnihlutinn vill kosningu um gróðurhvelfingarnar
Minnihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur leggur til að farið verði í íbúakosningu um gróðurhvelfingar sem reisa á við Elliðaárdalinn. Oddviti Pírata segir tillöguna ódýrt áróðurstrikk af hálfu minnihlutans og misnotkun á hugmyndum um íbúalýðræði. Að auki standist tillagan ekki formkröfur slíkra mála.

Grófu fyrir laxahrognum í tíu stiga gaddi
Einn umfangsmesti gröftur hrogna Norður-Atlantshafslaxins sem um getur fór fram nýverið í Selá. Veiðiklúbburinn Strengur gróf milljónir hrogna í tíu stiga gaddi undir handleiðslu Hafrannsóknastofnunar.

Enn flæðir vatn um allt í Feneyjum
Slíkur er elgurinn að búist var við því í gær að vatnsborð myndi hækka um meira en einn og hálfan metra og færa yfirborð hins kunna Markúsartorgs í kaf.

Nauðsynlegt skref til að hleypa fjárfestum að Keflavíkurflugvelli
Stjórn Isavia samþykkti fyrir helgi að skipta fyrirtækinu í þrennt. Sérfræðingur hjá hagfræðideild Landsbankans segir það nauðsynlegt skref í einkavæðingu Keflavíkurflugvallar.

Margir fastir í skyndilausnum
Ásta Kristjánsdóttirljósmyndari þróaði nýjar snyrtivörur og bætiefni úr lýsi. Sjálf glímdi hún við erfitt exem og ofnæmi frá unga aldri. Ásta segir frá uppvextinum, ferðalögunum og jafnvæginu sem hún fann eftir skilnað.

Hún á það besta skilið
Ása Ottesen missti ungan bróður sinni í slysi fyrir rúmum tuttugu árum og í sumar slasaðist systir hennar alvarlega í slysi í Langadal. Slysin hafa haft margvísleg áhrif á líf Ásu og fjölskyldunnar allrar.

Þörf á gagnsæi
Flestum var brugðið við frétt vikunnar um Samherjamálið. Málið hverfist um viðamikinn gagnaleka og uppljóstrun fyrrverandi starfsmanns félagsins um greiðslur hundraða milljóna í mútur til erlendra ráðamanna fyrir aðgang að þarlendum fiskveiðikvótum.

Mállausir innflytjendur ódýrt vinnuafl
Við þurfum skýra stefnu, hvort innflytjendur eigi að tala íslensku eða ekki, segir Aneta Matuszewska. Hún segir niðurskurð til íslenskukennslu innflytjenda stuðla að dauða íslenskrar tungu. Stjórnvöld hafi skorið niður fjármagn til íslenskukennslu um helming á áratug.

Fjármagnar áhættumat á Reynisfjöru
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, mun fjármagna og fylgja eftir verkefni um áhættumat fyrir Reynisfjöru ásamt skilgreiningu verkferla.

Gleðiefni að samtalið um bækur lifi góðu lífi
Niðurstöður lestrarkönnunar sýna að lestur Íslendinga er að aukast. Konur og barnafjölskyldur lesa mest og ungt fólk les mikið á erlendum tungumálum. Val á lesefni virðist byggjast á samtali um bækur og ábendingum annarra.

Heimila að Ægir og Týr verði seldir
Meðal breytingartillagna sem samþykktar voru við aðra umræðu fjárlaga er heimild til handa fjármálaráðherra að selja varðskipin Ægi og Tý og kaupa eða leigja hagkvæmari skip í staðinn. Í skriflegu svari við fyrirspurn Fréttablaðsins fagnar Landhelgisgæslan umræddri heimild.

Hafnar áhrifum Rússa á kosningar
Forsætisráðherra Bretlands mætti í útvarpið og svaraði innhringjendum í beinni. Sagði hann engar sannanir fyrir áhrifum Rússa á kosningar.

Samkeppni skilin frá öðrum þáttum
Stofnuð verða dótturfélög um ólíka starfsemi Isavia og samkeppni skilin frá öðrum þáttum fyrirtækisins. Domavia verður félag um innanlandsflugvelli.

Hvíta-Rússland mögnuð upplifun
"Okkar hlutverk hér er að heimsækja kjörstaði og fylgjast með kosningunum, að allt sé eins og það eigi að vera,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, sem er staddur við kosningaeftirlit í Hvíta-Rússlandi.

Telur dóm Landsréttar brot á jafnræðisreglu
Landsréttur breytti dómi fyrir kennitölusvindl úr skilorði í fjögurra mánaða fangelsi. Verjandi segir dóminn í hróplegu ósamræmi við sambærileg mál og telur markmið með áfrýjun að bera í bætifláka fyrir óhóflegt gæsluvarðhal

Veggjöld nýtt til framkvæmda
Sex samgönguverkefni eru tilgreind í frumvarpsdrögum um vegaframkvæmdir. Sundabraut og tvöföldun Hvalfjarðarganga eru þar á meðal en ráðgert er að gjaldtakan standi ekki lengur en í 30 ár.

Báðu Samherja um ráð til að blekkja veiðiheimildir út úr Grænlendingum
Framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar bað félaga sína í Samherja um ráðleggingar varðandi það hvernig beita mætti blekkingum á Grænlandi til að komast mætti yfir veiðiheimildir og afla velvildar heimamanna.

Hvetja fólk til minni sóunar
Evrópsk nýtnivika hefst næstkomandi laugardag.

Launþegum í landinu fækkar nú í fyrsta sinn í nærri áratug
Samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar fækkar launþegum í landinu og miðað við sveiflu undanfarinna ára mun fækkunin halda áfram. Fækkunin kemur fyrst og fremst fram í einkageiranum á meðan opinberum starfsmönnum fjölgar.

Rannsóknir séu sem flestum aðgengilegar
Verkefnastjóri hjá Landsbókasafni segir Ísland á eftir hinum Norðurlöndunum þegar komi að opnum aðgangi að niðurstöðum vísindarannsókna. Málefnið verður rætt á málþingi Vísindafélagsins í Þjóðminjasafninu í dag.

NPA-mál komin á rekspöl í bæjarstjórnum
Málefni NPA-löggjafarinnar hafa verið rædd víða í bæjarstjórnum landsins undanfarna daga.

Eftirlegukindur draga áfram dilk á eftir sér
Matvælastofnun vill enn að Seyðfirðingar borgi reikning vegna björgunar kinda úr Bjólfi í fyrra. Heimamenn töldu sjálfir aðgerðina hættulega og vísa ábyrgð á hendur Matvælastofnun sem réð björgunarsveit af Héraði í verkið.