HM 2018 í Rússlandi

500 auka miðar á Finnland - Ísland
KSÍ fær fleiri miða í sölu á þennan mikilvæga leik í undankeppni HM 2018

Strákarnir okkar ná nýjum hæðum á styrkleikalista FIFA
Íslenska karlalandsliðið stekkur upp um þrjú sæti og í það nítjánda á nýjum styrkleikalista FIFA sem verður gefinn út á fimmtudaginn. Ísland hefur aldrei verið ofar á styrkleikalistanum.

Portúgalar tóku bronsið
Portúgal bar sigurorð af Mexíkó, 2-1, í leiknum um bronsið í Álfukeppninni í fótbolta í dag.

Forseti FIFA: Myndbandsdómarar eru framtíð fótboltans
Gianni Infantino, forseti FIFA, er ánægður með hvernig tilraunin með myndbandsdómara í Álfukeppninni í Rússlandi hefur tekist.

Buðu vináttulandsleik í skiptum fyrir atkvæði
Englendingar viðurkenna að hafa komið óheiðarlega fram í kosningabaráttunni fyrir HM 2018.

Tíu ára dóttir fulltrúa FIFA fékk 212 milljónir
Þýska blaðið Bild hefur komist yfir skýrslu FIFA sem var grafin fyrir þrem árum síðan en hún fjallar um hvernig forráðamenn frá Katar mútuðu forráðamönnum FIFA í von um að fá HM árið 2022. Það gekk upp.

Sjáðu hryllileg mistök Akinfeev | Myndband
Igor Akinfeev markvörður Rússlands gerði skelfileg mistök í dag.

Sánchez með sögulegt mark í jafntefli gegn heimsmeisturunum
Evrópumeistarar Þýskalands og Suður-Ameríkumeistarar Síle gerðu 1-1 jafntefli í B-riðli Álfukeppninnar í Rússlandi í kvöld. Leikið var í Kazan.

Myndbandstæknin kom enn og aftur við sögu í Álfukeppninni
Kamerún og Ástralía skildu jöfn, 1-1, í B-riðli Álfukeppninnar í fótbolta í dag. Leikið var í St. Pétursborg.

Mexíkóar komnir í góða stöðu eftir sigur á Ný-Sjálendingum
Mexíkó kom til baka og vann 2-1 sigur á Nýja-Sjálandi í A-riðli Álfukeppninnar í fótbolta í kvöld. Leikið var í Sochi.

Ronaldo gerði gæfumuninn
Cristiano Ronaldo tryggði Evrópumeisturum Portúgals sigur á Rússlandi, 0-1, í A-riðli Álfukeppninnar í fótbolta í dag. Leikið var á Otkrytiye Arena í Moskvu.

Heimsmeistararnir fara vel af stað
Heimsmeistarar Þýskalands báru sigurorð af Ástralíu, 2-3, í fyrsta leik sínum í Álfukeppninni í Rússlandi í dag.

Góð byrjun hjá Suður-Ameríkumeisturunum
Suður-Ameríkumeistarar Síle fara vel af stað í Álfukeppninni í Rússlandi en í kvöld unnu þeir 0-2 sigur á Afríkumeisturum Kamerún.

Myndbandstækni kom við sögu í dramatísku jafntefli Portúgal og Mexíkó
Portúgal og Mexíkó mættust í hörkuleik Álfukeppninni í Rússlandi í dag.

Rússar unnu upphafsleikinn | Sjáðu mörkin
Rússland vann 2-0 sigur á Nýja-Sjálandi í fyrsta leik Álfukeppninnar 2017. Þetta var leikur í A-riðli.

Þrír Frakkar skoruðu sín fyrstu landsliðsmörk í sigri á Englendingum
Frakkland vann 3-2 sigur á Englandi í vináttulandsleik á Stade de France í París í kvöld.

Lars bíður enn eftir fyrsta sigrinum
Lars Lagerbäck bíður enn eftir sínum fyrsta sigri sem þjálfari norska karlalandsliðsins í fótbolta.

Gleði og stress hjá Magnússonum
Hörður Björgvin Magnússon var hetja íslenska fótboltalandsliðsins gegn því króatíska í undankeppni HM 2018 á Laugardalsvelli á sunnudaginn. Hörður skoraði eina mark leiksins á lokamínútunni og tryggði Íslandi afar mikilvægan sigur í baráttunni um að komast á HM í Rússlandi.

Þessi tölfræði gerir sigur strákanna okkar á móti Króatíu enn magnaðari
Sex leikmenn liðsins ná ekki fimm leikjum saman að meðtali með félagsliðum sínum og Birkir Bjarna beið næstum 100 daga á milli leikja.

Íran komið með farseðil til Rússlands
Íran verður á HM í Rússlandi næsta sumar en Íran er frekar óvænt aðeins önnur þjóðin sem fær farseðil til Rússlands.

Stones gæti spilað á miðjunni með enska landsliðinu
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, skoðar nú þann möguleika að stilla miðverðinum John Stones upp á miðjunni hjá landsliðinu.

Hetjan Hörður fékk skilaboð frá stjóra Bristol City eftir Króatíuleikinn
Hörður Björgvin Magnússon, hetja Íslands í sigrinum á Króatíu, fékk skilaboð frá Lee Johnson, knattspyrnustjóra Bristol City, eftir leikinn í gær.

Rikki G spangólaði er Hörður skoraði sigurmarkið
Það var ekki til sá Íslendingur sem ekki brjálaðist úr gleði er Hörður Björgvin Magnússon tryggði Íslandi sigur á Króatíu í gær. Rikki G var þar engin undantekning.

Fánýtur fróðleikur um yndislega sigurinn á Króötum
Hannes labbaði heim eftir leik, vallarstjórinn svaf á vellinum og landsliðsfyrirliðinn kominn með risastórt húðflúr á bakið.

Lars kveikti í norska landsliðinu með myndbandi af íslenska liðinu
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Noregs, var óánægður með skort á grimmd hjá leikmönnum norska landsliðsins og fór sérstaka leið til þess að kveikja í þeim fyrir leikinn gegn Tékkum á laugardag.

Eiður Smári hefur áhuga á því að vera yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ
Eiður Smári Guðjohnsen var sérfræðingur hjá RÚV í gær á landsleik Íslands og Króatíu. Þar var rætt um meira en leikinn.

Jón Þór gjörsamlega sturlaðist þegar Hörður Björgvin skoraði
Rétt eins og alþjóð veit vann Ísland ótrúlegan sigur á Króötum, 1-0, í undankeppni HM á laugardalsvelli í gærkvöldi.

Heimir við Tólfuna: Þið voruð frábær | Myndband
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari hefur átt í frábæru sambandi við Tólfuna síðustu ár og hann klikkaði ekki á því að þakka fyrir sig eftir leikinn gegn Króatíu í gær.

Leiðin til Rússlands er ennþá greið
Ísland komst upp að hlið Króatíu á toppi síns riðils í undankeppni HM með sigri í leik liðanna í gær. Hörður Björgvin Magnússon skoraði markið sem tryggði Íslendingum fyrsta sigurinn á Króötum frá upphafi.

Myndir frá ógleymanlegu kvöldi í Laugardalnum
Fyrr í kvöld áttust við Ísland og Króatía í Laugardalnum. Ísland vann leikinn 1-0 með marki frá Herði Björgvini Magnússyni. Hér má sjá nokkrar vel valdar myndir úr leiknum.