

Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa tekið af allan vafa um áframhaldandi veru Bandaríkjahers í landinu, sama hvernig samningaviðræður milli ríkjanna á Kóreuskaga kunna að þróast.
Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu, fór í gær fram á að Sameinuðu þjóðirnar tækju þátt í því að tryggja að Norður-Kórea stæði við loforð um að afkjarnorkuvæðast, líkt og Moon og Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, lofuðu í yfirlýsingu sem þeir undirrituðu í Panmunjom á dögunum.
Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu, kallaði í gær eftir því að suðurkóreska þingið fullgilti yfirlýsinguna sem hann undirritaði með Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, eftir fund þeirra í landamærabænum Panmunjom á föstudaginn.
Trump, Bandaríkjaforseti, lagði til að fundur hans og Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, yrði haldinn í Kóreu.
Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, sagði Moon Jea-in, forseta Suður-Kóreu, að hann væri tilbúinn til að láta kjarnorkuvopn sín frá sér, gegn friðarsamkomulagi og því að Bandaríkin lofuðu að ráðast aldrei á Norður-Kóreu.
Kim Jong Un ætlar að bjóða bandarískum blaðamönnum og vopnasérfræðingum til landsins í næsta mánuði.
Ríkisfjölmiðill Norður-Kóreu segir fundinn vera vendipunkt fyrir Kóreuskagann.
Allra augu voru á leiðtogum Norður- og Suður-Kóreu er þeir funduðu í gær. Fundurinn þykir vel heppnaður. Kóreustríðið senn á enda eftir 65 ára vopnahlé.
Leiðtogar Norður- og Suður-Kóreu vilja binda formlegan enda á stríðið. Vopnahlé var gert árið 1953 en formlega séð eiga ríkin enn í stríði.
Kim Jong-un gekk yfir landamærin til grannríkisins Suður-Kóreu í nótt. Með því varð hann fyrsti leiðtogi Norður-Kóreu sem stígur fæti á suður-kóreska grundu síðan árið 1953, þegar ríkin tvö undirrituðu vopnahlé í Kóreustríðinu.
Sagður afar "klár gaur“ sem hefur undirbúið sig vel fyrir fundinn með Donald Trump.
Kim Jong-un mun á föstudaginn næstkomandi verða fyrsti leiðtogi Norður-Kóreu sem farið hefur yfir landamæri ríkisins í suðri frá því að Kóreustríðinu lauk óformlega árið 1953.
Ríkissjónvarp Norður-Kóreu segir að Kim Jong-un, leiðtogi ríkisins, sé í sárum vegna rútuslyss sem varð í landinu á sunnudag.
Suður-Kóreumenn slökktu í morgun á hátalarastæðunni sem stendur á landamærum ríkisins við Norður-Kóreu.
Donald Trump og aðrir ráðamenn víða um heim fagna því að Norður-Kórea hyggst hætta tilraunum með kjarnorkuvopn.
Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, tilkynnti í dag að Norður-Kórea mun ekki gera frekari kjarnorkutilraunir.
Skrifstofur leiðtoga Suður- og Norður-Kóreu hafa verið tengdar saman með beinni símalínu sem gerir þeim kleift að ræða saman milliliðalaust og án fyrirvara. Leiðtogar Kóreuríkjanna hafa aldrei áður verið í svo beinu sambandi.
Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa tjáð nágrönnum sínum í suðri vilja sinn til þess að afkjarnorkuvæða Kóreuskaga alfarið.
Verðandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna fundaði með einræðisherra Norður-Kóreu. Styttist í leiðtoga- fund Bandaríkjanna og Norður-Kóreu. Enn styttra í leiðtogafund ríkjanna tveggja á Kóreuskaga. Samið var um beina sjónvarpsútsendindgar frá fundinum.
Mike Pompeo, forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA og verðandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er sagður hafa ferðast til Pjongjang, höfuðborgar Norður-Kóreu, þar sem hann á að hafa fundað með leiðtoga ríkisins, Kim Jong-un.
Donald Trump Bandaríkjaforseti útilokar þó ekki að ekkert verði af fyrirhuguðum fundi hans og Kim Jong-un á endanum.
Embættismenn frá Norður-Kóreu hafa staðfest það við embættismenn ríkisstjórnar Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að ríkið sé til í viðræður um mögulega afkjarnorkuvæðingu Kóreuskagans.
Rannsóknarnefnd breska þingsins í málefnum Norður-Kóreu segir að innan nokkurra mánaða muni landið verða búið að koma sér upp nægilega fullkominni eldflaug til að draga alla leið til Bretlands.
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, var í áhorfendasalnum þegar söngvarar frá Suður-Kóreu stigu á svið í Pyongyang. Þetta er í fyrsta skipti sem leiðtogi norðursins mætir á viðburð sem haldinn er af suður-kóreskum listamönnum.
Kim Jong Un, leiðtogi Norður Kóreu og Xi Jinping áttu árangursríkan fund. Bæði leiðtogi Norður Kóreu og Bandaríkjaforseti hlakka til að funda.
Eftir vangaveltur undanfarna daga fékkst það endanlega staðfest í nótt að Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, er staddur í Kína
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, er sagður vera í leynilegri heimsókn til Kína. Sé það rétt er þetta fyrsta heimsókn hans til erlends ríkis frá því að hann tók við völdum árið 2011.
Fjölmargar suður-kóreskar heimildir herma að stjórnvöld þar í landi reyni nú að fá hinn ofurvinsæla söngvara Psy til að koma fram á sögulegum tónleikum í Norður-Kóreu.
John Bolton hefur talað opinberlega fyrir stríði við Íran og Norður-Kóreu og segir "hnattvæðingarsinna“ vera að ganga frá Bandaríkjunum.
Utanríkisráðherra Suður-Kóreu segir að Kim Jong-un, leiðtogi grannríkis þeirra í norðri, hafi heitið því að hætta kjarnorkuframleiðslu.