Frakkland

Evrópurisar setja forseta Venesúela afarkosti
Enn þrengir að Nicolás Maduro og stjórn hans í landinu.

„Gulu vestin“ hyggjast bjóða fram til Evrópuþingsins
Hreyfingin hefur tilkynnt um tíu frambjóðendur og að vonir standi til að 79 verði á framboðslistanum þegar upp er staðið.

Hætta leit að vél Emiliano Sala
Leit hefur verið hætt að flugvélinni sem hvarf yfir Ermarsundi á mánudaginn með tvo innanborðs.

Frakkar reiðir vegna efna í norskum þorski
Vatni og efnum er sprautað í norskan þorsk í Kína áður en hann er sendur aftur til Evrópu.

Sala sendi skilaboð úr flugvélinni og sagðist hræddur
Sala er tuttugu og átta ára gamall Argentínumaður og miðlar í Argentínu segja að hann hafi sent fjölskyldu sinni skilaboð í gegnum Whatsapp forritið skömmu áður en vélin hvarf.

Flugvél Sala enn ófundin
Leit að flugvél sem átti að ferja knattspyrnumanninn Emiliano Sala til velsku borgarinnar Cardiff og hvarf yfir Ermarsundi á mánudagskvöld bar engan árangur í gær og var hlé gert á sjöunda tímanum.

Chris Brown handtekinn fyrir nauðgun
24 ára gömul kona hefur sakað hann um að hafa nauðgað sér á hóteli í borginni þann 15. janúar.

Leikmaður Cardiff í flugvél sem hrapaði í Ermarsund
Lítil farþegaflugvél sem verið var að fljúga frá Nantes í Frakklandi til Cardiff í Bretlandi er sögð hafa hrapað yfir Ermarsundi í gærkvöldi. Emiliano Sala, nýr leikmaður Cardiff City, var um borð í flugvélinni.

Mannskæður bruni í frönskum skíðabæ
Tveir eru látnir og 22 slasaðir eftir að eldur kom upp í íbúðahúsi í franska skíðabænum Courchevel í frönsku Ölpunum.

Ísland í þriðja sæti yfir draumastaði netverja
Ef þið haldið að líklegt sé að erlendum ferðamönnum fækki á Íslandi á næstunni, þá ættuð þið að sjá hvert jarðarbúa dreymir helst um að ferðast.

Fjórir létust í gassprengingunni í París
Þrír létust í gær og þar af tveir slökkviliðsmenn og spænskur ferðamaður og á fimmta tug slasaðist.

Sprenging í bakaríi í París: Þrír látnir
Slökkviliðsmenn hafa unnið hörðum höndum að því að koma slösuðu fólki út um glugga húsnæðisins og bílum sem höfðu oltið á hliðina vegna sprengingarinnar.

Franskur þýðandi Hugleiks virðist telja hann of grófan
Háðfuglinn Hugleikur Dagsson er nokkuð hissa á þýðandanum sem þýddi frönsku útgáfuna af skopmyndabók hans Elskið okkur. Í einni myndasögunni í frönsku útgáfunni má sjá að texta hennar hefur verið breitt á ansi þýðingarmikinn hátt. Hugleikur veltir því fyrir sér hvort að breytingar hafi verið gerðar á fleiri myndasögum hans í frönsku útgáfunni.

Dramatísk þyrlubjörgun náðist á myndband
Segja má að flugmaður björgunarþyrlu í frönsku Ölpunum hafi staðið sig afar vel í erfiðum aðstæðum er bjarga þurfti skíðamanni sem slasaðist í um 2.200 metra hæð yfir sjávarmáli. Aðstæður í fjallshlíðinni gerði það að verkum að ekki var hægt að lenda þyrlunni.

Segir ómögulegt að elska konur yfir fimmtugu
Franski rithöfundurinn og þáttastjórnandinn Yann Moix hefur valdið usla í heimalandi sínu eftir að hann sagðist eiga ómögulegt að elska konur sem væru fimmtugar eða eldri, þrátt fyrir að hann sjálfur sé fimmtugur.

Erkibiskupinn í Lyon svarar til saka fyrir meinta yfirhylmingu
Á yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi.

Bretar senda herskip til að stöðva förufólk á Ermarsundi
Innanríkisráðuneyti Bretlands óskaði eftir aðstoð sjóhersins vegna fjölgunar fólks sem reynir að komast yfir sundið á litlum bátum undanfarnar vikur.

Formúa í ferjur náist ekki að semja um Brexit
Bresk stjórnvöld munu verja yfir hundrað milljónum punda í ferjukaup til að liðka á samgöngum um Ermarsund komi til þess að ekki yrði samið um Brexit.

Telja tímaspursmál hvenær farandfólk ferst á Ermarsundi
Fjöldi fólks hefur reynt að komast með smábátum yfir Ermarsund til Bretlands undanfarnar vikur og mánuði.

Stefnir að því að komast yfir Atlantshaf í tunnu
Frakkinn Jean-Jacques Savin hefur haldið af stað frá Kanaríeyjum í appelsínugulu tunnulaga hylki og stefnir hann að því að komast yfir Atlantshaf, einungis með aðstoð hafstrauma.

Macron um Trump: „Bandamaður á að vera áreiðanlegur“
Emmanuel Macron Frakklandsforseti kveðst harma mjög ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta að kalla herlið Bandaríkjanna heim frá Sýrlandi.

Einn til viðbótar lést í mótmælunum í Frakklandi
Mótmælendur komu sér fyrir í tröppunum fyrir neðan Sacré-Cæur kirkjuna í Montmartre hverfinu í dag.

Sýrlenskir Kúrdar líta til Frakklands
Frakkland er meðlimur í bandalagi Bandaríkjanna gegn ISIS og er með sérsveitarmenn í norðurhluta Sýrlands þar sem þeir berjast með sýrlenskum Kúrdum og öðrum meðlimum samtakanna Syrian Democratic Forces gegn ISIS-liðum.

Kúrdar í Sýrlandi telja ákvörðun Trump svik
Mikil óvissa ríkir um framhald stríðsins gegn Ríki íslams í Sýrlandi eftir að Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að hann ætlaði að draga 2.000 manna herlið þaðan.

Níu látnir í mótmælunum í Frakklandi
Karlmaður á sjötugsaldri lét lífið þar sem hann mótmælti á götum úti í suðvesturhluta Frakklands í morgun.

„Gulu vestin“ kveikja í tollahliðum
Loka þurfti hraðbrautum sums staðar eftir að mótmælendur klæddir í gul vesti tóku yfir tollahlið eða kveiktu í þeim.

Gulvestungum bolað í burtu frá Champs-Elysees breiðgötunni
Lögreglan notaði táragas og þrýstivatnsbyssur til að bola mótmælendum í burtu.

Gulvestungar hundsa tilmæli stjórnvalda
Franskir mótmælendur, kenndir við gul vesti, söfnuðust í dag saman á Champs-Elysées, helstu breiðgötu Parísar, fimmtu helgina í röð þrátt fyrir tilmæli stjórnvalda til þeirra um að halda sig heima.

Fjórða fórnarlambið látið
Fjórða fórnarlamb skotárásarinnar á jólamarkaði í frönsku borginni Strassborg lést í gær.

Jólamarkaðurinn í Strassborg opnaður að nýju
Markaðnum var lokað eftir árás sem gerð var á þriðjudagskvöld.