
Landbúnaður

Skerpa þurfi á fyrirbyggjandi aðgerðum í sláturhúsum og kjötvinnslum
Formaður Bændasamtaka Íslands segir niðurstöður Matvælastofnunar um sjúkdómsvaldandi bakteríur í íslensku lamba- og nautakjöti koma á óvart. Rannsaka þurfi málin betur og skerpa á fyrirbyggjandi aðgerðum í sláturhúsum og kjötvinnslum. Skoðunin hafi hins vegar leitt í ljós sterka stöðu svína- og kjúklingakjöts.

Garðyrkjubóndi vill færa golfvöll Mosfellinga vegna golfkúlnahríðar
Hafberg Þórisson, framkvæmdastjóri Laufskála fasteignafélags og eigandi Lambhaga, segir starfsmenn sína orðna langþreytta á þeirri hættu sem stafi af fljúgandi golfkúlum yfir á jörð félagsins í Lundi í Mosfellsdal.

Ljóst að sjúkdómsvaldandi bakteríur finnist ekki bara í útlenda kjötinu
Eiturmyndandi E. Coli-baktería fannst í fjölmörgum sýnum af íslensku kjöti í fyrra. Sóttvarnalæknir segir nú ljóst að sjúkdómsmyndandi bakteríur finnist í íslenskri kjötframleiðslu líkt og þeirri erlendu.

Fyrirtæki úti á landi bjartsýnni
Fyrirtæki á landsbyggðinni eru almennt bjartsýnni en fyrirtæki af höfuðborgarsvæðinu.

Sveitarstjóri liggur á bæn og biður um rigningu
Íbúar á Suðurlandi eru beðnir að fara sparlega með vatn því sökum mikilla þurrka undanfarið er mikið álag á veitukerfum sveitarfélaga. Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra segist liggja á bæn og biðja um rigningu.

Dúxinn sem dreymir um sauðfjárrækt
Elíza Lífdís útskrifaðist sem búfræðingur og hlaut verðlaun fyrir góða frammistöðu í fjórum greinum. Hana dreymir um að verða bóndi og leitar sér að búi til að taka við.

Sjö hross felld vegna nýs taugasjúkdóms á Íslandi
Frá þessu er greint á vef Matvælastofnunar en þar segir að ekki sé um smitsjúkdóm að ræða og ekkert bendi til að hann sé arfgengur.

Landnotkun bænda stærsti sökudólgurinn í kolefnislosun
Landnotkun á Norðurlandi vestra losar 90 prósent alls kolefnis sem losnar í landsfjórðungnum. Langstærstur hluti þess er framræsing votlendis. "Sláandi niðurstöður,“ segir Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur. Upplýsingafull

Kjötfrumvarp úr nefnd
Frumvarp landbúnaðarráðherra um innflutning á fersku kjöti var afgreitt út úr atvinnuveganefnd í gærkvöldi.

Byrjar heyskap óvenju snemma og segir bændur eiga inni gott sumar
Heyskapur er hafinn á Suðurlandi en bændur í Hreppum og Fljótshlíð slógu fyrstu tún sín á laugardag. Sunnanlands er þetta þremur vikum fyrr en í fyrra.

Sundriðið á nærbuxunum
Hestamenn sundriðu í sjónum við Stokkseyri um helgina en þá var árlegur baðtúr Hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi farin. Þeir hörðustu riðu berbakt á nærbuxunum þegar þeir fóru í sjóinn.

Langflestir sem keyra á dýr stinga af
Aðeins um 15% þeirra sem aka á búfé á vegum á Suðurlandi tilkynna það til lögreglu.

Tvíburafolöld á Búðarhóli í Landeyjum
Tvíburafolöld komu nýlega í heiminn á bænum Búðarhóli í Austur Landeyjum, fallegir hestar, sem munu fá nöfnin Sæli og Hafliði.

Repjuolía á íslenska skipaflotann
Fyrsta tilraunaræktun á repju til olíuframleiðslu á Íslandi hófst 2009 á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum og hefur sú tilraun gefist vel.

Segir sjómenn miklu kynþokkafyllri en bændur
Jonni Þorvaldar skorar á aðra sjómenn að stíga ölduna og fækka fötum.

Blesótt lamb með stóra og breiða blesu
Lamb með risa blesu á nefinu kom nýlega í heiminn í fjárhúsinu á bænum Neðri - Hundadal í Suðurdölum í Dalasýslu.

Hafnar ásökunum um tvískinnung vegna innflutnings á kjöti
Forstjóri Sláturfélags Suðurlands hafnar alfarið málflutningi Félags atvinnurekenda um að það felist tvískinnungur í að flytja inn kjöt og vara við innflutningi.

Sauðfjárbændur létta lundina með nektarmyndum
Tilgangurinn var að skemmta á álagstímum.

Félag atvinnurekenda sakar kjötframleiðendur um tvískinnung
Félag atvinnurekenda (FA) gagnrýnir málflutning „Hóps um örugg matvæli“ en hópurinn hefur í auglýsingum varað við innflutningi á kjöti til landsins.

Hagsmunaaðilar kaupa samfélagsmiðlaauglýsingar gegn innflutningi á kjöti
Tuttugu og þrjú fyrirtæki og samtök í landbúnaði og búvöruframleiðslu kaupa nú auglýsingar á samfélagsmiðlum eins og Facebook og Youtube. Þeim er beint gegn innflutningi á kjöti til Íslands.

Salka bar fimm hressum og heilbrigðum lömbum
"Þetta eru fínustu lömb, hress og heilbrigð. Burðurinn gekk ágætlega hjá henni, það komu reyndar tvö á afturfótunum, það var eitthvað sem við leystum auðveldlega. Þetta eru sæðingalömb undan sæðingahrúti, þannig að eitthvað af þeim verður líklega í ásetningshópnum í haust, segir Tómas Jensson,“ bóndi á Teigi í Fljótshlíð.

Eini sveppabóndi landsins segist vera í tísku í dag
"Já, þetta er hollustu bylgjan, við hentum vel inn í vegan og keto líka, þannig að við erum í tísku í dag, það er gaman að vera í tísku því að þetta er undirstaðan fyrir því að framleiða góða vöru að hún seljist vel, við erum í þeirri stöðu núna“, segir Georg Ottósson, eini sveppabóndi landsins og eigandi Flúðasveppa á Flúðum.

Ísey Skyr verði fáanlegt í tugþúsundum japanskra verslana
Forstjóri hins japanska Nippon Luna og forstjóri Mjólkursamsölunnar hafa undirritað viljayfirlýsingu um frekara samstarf í Asíu.

Færeyskir fjárbændur sporna gegn átroðningi ferðamanna
Bændur á einu vinsælasta göngusvæði Færeyja eru búnir að fá sig fullsadda af gróðurskemmdum sem fylgja átroðningi ferðamanna. Þeir hafa ákveðið að innheimta hátt göngugjald.

Kostar 8.000 krónur að ganga á Þrælanípuna
Landeigendur einnar vinsælustu gönguleiðar Færeyja hafa ákveðið að hefja gjaldtöku af göngufólki í sumar. Athygli vekur hve gjaldið verður hátt, eða 450 danskar krónur.

Rúmur fjórðungur vill flytja inn kjöt frá Evrópu
Eldra fólk er líklegra til að vera andvígt innflutningi á kjöti en yngra og konur eru mótfallnari honum en karlar.

Segir afrétti ónýta og vill banna lausagöngu búfjár
Íslenskur jarðvegur losaði frá sér kolefni sem væri óásættanlegt í baráttu okkar gegn hlýnun jarðar af völdum gróðurhúsalofttegunda.

Fjárhæð skaðabóta engin takmörk sett segir landbúnaðarráðherra
Fjárhæð skaðabóta sem ríkið gæti þurft að greiða vegna ólögmætra innflutningshindrana á búvörum er engin takmörk sett að sögn sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Ferðamenn notuðu salernið á meðan bóndinn brá sér í sturtu
Vilborg Alda Jónsdóttir, bóndi á bænum Hvítanesi í Vestur Landeyjum hefur fengið sig fullsadda af ágangi ferðamanna á jörð sinni því þeir gefa hrossum hennar og nota dróna til að taka myndir af þeim, sem fælir hestana og gerir þá hrædda. Steininn tók nýlega úr þegar ferðamenn fóru inn í húsið hennar til að nota salernið á meðan hún var í sturtu.

Náttúrulegt ónæmi
Bakteríur eru hinir raunverulegu húsbændur á þessari plánetu.