Bretland
22 23 24 25 26 27 28 29 30 … 128 ›
Fá ekki að mæta á verðlaunaafhendingu vegna ógnar við almenning Rússneskum fréttamanni og fjölskyldu hans hefur verið meina að mæta á afhendingarathöfn Bafta verðlaunanna. Lögregluyfirvöld í Bretlandi telja að almenningi myndi stafa ógn af mætingu hans þar sem hann er eftirlýstur af yfirvöldum í Rússlandi. Hann hefur unnið til verðlauna fyrir umfjöllun sína um Alexei Navalní. Erlent 19.2.2023 12:22
Öryggisvörður sem njósnaði fyrir Rússa leiddur í gildru Breskur öryggisvörður í sendiráði Breta í Berlín hefur verið dæmdur í rúmlega þrettán ára fangelsi fyrir að njósna fyrir Rússa. David Ballantyne Smith er 58 ára gamall en sagðist ekki hafa ætlað að valda skaða. Erlent 17.2.2023 13:39
Áður óséð myndefni af Titanic Woods Hole Oceanographic Institution (WHOI) birti í gær rúmlega 80 mínútna langt myndband af skipsflaki Titanic. Myndefnið var tekið upp árið 1986, einungis ári eftir að staðsetning skipsflaksins fannst. Meirihluti myndefnisins hefur aldrei áður komið fyrir sjónir almennings. Erlent 16.2.2023 13:10
Sturgeon segir af sér Nicola Sturgeon hyggst segja af sér sem fyrsti ráðherra Skotlands. Hún hefur gegnt embættinu síðan árið 2014 en enginn hefur verið ráðherra landsins svo lengi. Erlent 15.2.2023 10:03
Tvö fimmtán ára grunuð um að hafa myrt sextán ára stúlku Stelpa og strákur, bæði fimmtán ára gömul, hafa verið handtekin af lögreglu grunuð um að hafa stungið sextán ára gamla stúlku til bana í almenningsgarði í Culcheth. Erlent 14.2.2023 13:11
Hvarf sporlaust en síminn og hundataumurinn urðu eftir Lögreglan í Bretlandi leitar enn lifandi ljósi að tveggja barna móður á fimmtugsaldri sem hvarf sporlaust fyrir rúmum tveimur vikum. Síðast sást til hennar þegar hún fór út að ganga með hundinn sinn við Wyre ána 27. janúar. Erlent 13.2.2023 13:31
Sjálfsblekking Arsenal-manna Nokkur hópur stuðningsmanna Arsenal virðist lifa í ákveðinni sjálfsblekkingu varðandi ímynd félagsins. Það endurspeglaðist vel á leik liðsins við Brentford um helgina en þar tapaði liðið stigum aðra helgina í röð. Enski boltinn 13.2.2023 08:00
Þakkaði óvænt fyrrverandi félögum og allt varð vitlaust Óhætt er að segja að tónlistarmaðurinn Harry Styles hafi verið sigurvegari Bresku tónlistarverðlaunanna sem haldin voru í gærkvöldi. Lífið 12.2.2023 11:09
Nýr varaformaður Íhaldsflokksins segir árangur dauðarefsingarinnar 100% „Já. Það hefur enginn framið glæp eftir að hafa verið tekinn af lífi. Þú veist það, er það ekki? Árangurinn er 100%.“ Þetta sagði nýskipaður varaformaður Íhaldsflokksins, Lee Anderson, í viðtali við Spectator sem birt var í gær. Erlent 9.2.2023 12:38
Utanríkismálanefnd ekki rætt mál Gylfa sérstaklega Utanríkismálanefnd hefur ekki rætt mál Gylfa Þórs Sigurðssonar, knattspyrnumanns, sem hefur verið í farbanni á Bretlandi í á annað ár. Fyrsti varaformaður nefndarinnar segir það ráðuneytis að svara hver aðkoma þess er að málinu og hvort aðhafst verði í því. Innlent 9.2.2023 10:38
Órjúfanleg vinátta þjóðanna tveggja Úkraínuforseti kom í óvænta heimsókn til Bretlands í dag og fundaði með forsætisráðherra og konungi landsins. Þá ávarpaði hann breska þingið og þakkaði því stuðning í baráttunni við Rússa. Erlent 8.2.2023 20:00
Selenskí í óvæntri heimsókn til Bretlands í dag Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti mun í dag heimsækja Bretland í fyrsta sinn síðan Rússar réðust inn í heimaland hans fyrir tæpu ári síðan. Heimsóknin er óvænt en við því er búist að Selenskí muni á morgun ferðast til Brussel til fundar við Evrópusambandið. Erlent 8.2.2023 10:40
Grunaður um ítrekuð brot og saksóknari skoðar líkur á sakfellingu Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er grunaður um að hafa framið ítrekuð kynferðisbrot. Saksóknaraembætti bresku krúnunnar í Manchester hefur nú rannsóknargögn lögreglu til skoðunar og þarf að leggja mat á það hvort sönnunargögnin séu líkleg til þess að leiða til sakfellingar. Innlent 8.2.2023 08:01
Harry og Meghan þurfa að bera vitni í ærumeiðingamáli Harry Bretaprins og Meghan Markle munu neyðast til að bera vitni í einkamáli sem systir Meghan hefur höfðað á hendur henni fyrir ærumeiðingar. Dómarinn í málinu hafnaði því í gær að stöðva skýrslutökur í málinu. Lífið 8.2.2023 07:35
Ætla sér að framleiða fleiri þætti af Hótel Tindastóli Til stendur að endurvekja bresku gamanþættina Fawlty Towers, sem báru nafnið Hótel Tindastóll á íslensku, rúmum fjörutíu árum eftir að gömlu þættirnir voru framleiddir. John Cleese mun snúa aftur sem handritshöfundur og í hlutverk hótelstjórans Basil Fawlty. Bíó og sjónvarp 8.2.2023 07:23
Breski raðnauðgarinn hlaut 36 lífstíðardóma Breski lögreglumaðurinn og raðnauðgarinn hefur hlotið 36 lífstíðardóma eftir að hann játaði að hafa gerst sekur um 49 kynferðisbrot, þar af 24 nauðganir, gegn tólf konum á átján ára tímabili. Hann mun þurfa að afplána að lágmarki þrjátíu ár í fangelsi. Erlent 7.2.2023 13:12
Enska úrvalsdeildin sakar Manchester City um svindl Manchester City gerðist brotlegt á rekstrarreglum ensku úrvalsdeildarinnar samkvæmt nýrri rannsókn en enskir fjölmiðlar segja frá þessu í dag. Enski boltinn 6.2.2023 10:54
Rektor fannst látinn á skólalóðinni ásamt fjölskyldu sinni Emma Pattinson, rektor Epsom framhaldsskólans í Surrey á Bretlandi, fannst látin í byggingu á skólalóðinni ásamt eiginmanni sínum og sjö ára dóttur þeirra. Erlent 6.2.2023 00:14
Rannsókn á máli Gylfa Þórs lokið Rannsókn lögreglunnar í Manchester á máli knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar er lokið. Málið er nú komið inn á borð saksóknaraembættis bresku krúnunnar. Það er í höndum þess embættis hvort ákært verði í málinu eða það falli niður. Sport 5.2.2023 09:47
Hundruð þúsunda hafa lagt niður störf í dag Um hundrað þúsund opinberir starfsmenn á Bretlandi hafa lagt niður störf í dag, þar á meðal starfsmenn háskóla, kennarar og lestarstjórar. Þetta er fyrsta verkfallið sem farið er í á Bretlandi síðan 2016. Launafólk fer fram á launahækkanir til að bregðast við hækkandi verðlagi. Erlent 1.2.2023 15:01
Ozzy Osbourne hættur að túra í bili Breski söngvarinn Ozzy Osbourne hefur hætt við tónleikaferðalag sitt til Evrópu. Hann segir líkama sinn ekki geta höndlað ferðalagið en hann er enn að jafna sig eftir slys sem hann lenti í árið 2019. Lífið 1.2.2023 14:34
Ísland keppir á seinna undankvöldinu í Eurovision Ísland mun keppa á seinna undankvöldi Eurovision-keppninnar í ár sem fer fram í Liverpool í maí. Íslenska framlagið mun stíga á svið í fyrri hluta kvöldsins. Lífið 31.1.2023 19:40
Ólafur Kjartan söng í Royal Opera House: „Stór stund fyrir mig“ Ólafur Kjartan Sigurðarson segir ákveðinn draum hafa ræst þegar hann söng í verkinu Tannhäuser á stóra sviði Royal Opera House í Covent Garden, London síðastliðið sunnudagskvöld. Blaðamaður ræddi við hann um viðburðaríkt líf hans. Tónlist 31.1.2023 15:30
Sameinuð með tónlist og himinháum kostnaði Slagorð Eurovision keppninnar sem haldin verður í Liverpool í ár, hefur verið afhjúpað og útlit keppninnar sömuleiðis. Kostnaður Breta við keppnina gæti numið meira en þremur milljörðum íslenskra króna. Tónlist 31.1.2023 11:45
Listir, stjórnmál og atvinnulíf mætast í tökum BBC í Tjarnarbíói Fjölbreytt blanda merkra Íslendinga munu sitja fyrir svörum við upptökur á útvarpsþætti breska ríkisútvarpsins „World Questions“ í Tjarnarbíói þann 7. febrúar næstkomandi. Menning 31.1.2023 09:42
Love Island barn komið í heiminn Breska Love Island parið Tommy Fury og Molly Mae Hague hafa eignast sitt fyrsta barn. Lífið 30.1.2023 18:32
Talsmaður Pútíns segir Boris ljúga um meinta eldflaugarhótun Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútins, forseta Rússlands, segir ekki rétt að Pútín hafi ógnað Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Boris sagði í nýrri heimildarþáttarröð BBC um átökin í Úkraínu og aðdraganda innrásar Rússa í landið að skömmu fyrir innrásina hefði Pútín ógnað sér og Bretlandi. Erlent 30.1.2023 11:52
Pútín sagðist geta skotið eldflaug á Bretland á innan við mínútu Að sögn Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sagðist Vladimir Pútín Rússlandsforseti geta skotið eldflaug í átt að Bretlandi „á innan við mínútu“ í símtali sem átti sér stað skömmu áður en Rússar réðust inn í Úkraínu. Erlent 30.1.2023 07:16
Flybe aftur farið á hausinn Breska flugfélagið Flybe er aftur farið á hausinn. Félagið hefur fellt niður allar flugferðir og strandaglópar eru í öngum sínum. Talið er að hundruð muni missa vinnuna. Viðskipti erlent 28.1.2023 20:00
Lá dáin í íbúð sinni í rúm þrjú ár Bresk kona sem átti við mikil geðræn vandamál að stríða fannst í íbúð hennar rúmum þremur árum eftir að hún dó. Fjölskylda hennar kennir heilbrigðiskerfinu um og segir kerfið hafa brugðist henni. Enginn hafi fylgst með henni þrátt fyrir veikindi hennar. Erlent 27.1.2023 14:20