Rússland
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 98 ›
Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Eldflaug sem lenti á borginni Karkív í norðausturhluta Úkraínu þann 2. janúar var af gerðinni Hwasong-11 og kemur frá Norður-Kóreu. Kaup Rússa á skotflaugunum frá Norður-Kóreu eru í trássi við samþykktir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um bann við vopnakaupum frá einræðisríkinu. Erlent 30.4.2024 13:24
Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, skrifaði seinni partinn í dag undir ný lög um hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum. Eftir það sagði hann að hergögn myndu byrja að berast til Úkraínu „á næstu klukkustundum“ sem gæti þýtt strax í kvöld. Erlent 24.4.2024 18:43
Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Rússnesk yfirvöld handtóku Timur Ivanov, aðstoðarvarnarmálaráðherra, og sökuðu um stórfellda mútuþægni í gær. Ivanov neitar sök en var úrskurðaður í tveggja mánaða gæsluvarðhald. Erlent 24.4.2024 12:11
Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Rússneska rétttrúnaðarkirkjan hefur sett prest sem stýrði minningarathöfn um Alexei Navalní, stjórnarandstöðuleiðtogann, í þriggja ára bann. Hann þarf að láta sér nægja að lesa sálma þar til ákvörðun verður tekin um hvort hann fær aftur að starfa sem prestur. Erlent 24.4.2024 10:24
Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna undirbýr nú umfangsmikla sendingu hergagna til Úkraínu. Pakkinn mun meðal annars innihalda bryndreka, annarskonar farartæki, skotfæri fyrir stórskotalið og loftvarnarkerfi og langdrægar eldflaugar. Erlent 22.4.2024 22:31
Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Rússneskur herdómstóll dæmdi samskiptastjóra samfélagsmiðlarisans Meta í sex ára fangelsi að honum fjarstöddum í dag. Hann var sakaður um að birta ummæli á netinu til stuðnings Úkraínumönnum í innrás Rússa í nágrannaland sitt. Erlent 22.4.2024 14:08
Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Pólland er reiðubúið til að leyfa bandamönnum að koma fyrir kjarnorkuvopnum í landinu ef Atlantshafsbandalagið ákveður að koma vopnunum fyrir víðar til að bregðast við auknum viðbúnaði Rússa í Belarús og Kalíningrad. Erlent 22.4.2024 09:10
Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Úkraínskir hermenn segjast hafa skotið niður verðmæta rússneska sprengjuflugvél. Flugvélin er af gerðinni Tu-22M3 en þær eru meðal annars notaðar til að skjóta eld- og stýriflaugum að Úkraínu. Erlent 19.4.2024 09:44
Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Pólskur maður hefur verið handtekinn í tengslum við áform rússneskra yfirvalda um að ráða Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta af dögum. Þetta segja saksóknarar í Póllandi og Úkraínu. Erlent 19.4.2024 06:32
Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Lögregluþjónar í Bæjarlandi í Þýskalandi hafa handtekið tvo menn sem grunaðir eru um njósnir fyrir yfirvöld í Rússlandi. Þeir eru meðal annars sakaðir um að skipuleggja skemmdarverk og fyrir að ætla að framleiða sprengiefni, með því markmiði að skaða hernaðaraðstoð Þjóðverja til Úkraínu. Erlent 18.4.2024 14:27
Boða til fundar til að ræða framtíð MÍR eftir dómsmál Áhugafólk um starfsemi íslensk-rússneska menningarfélagsins MÍR hefur boðað til opins fundar um framtíð þess í kjölfar dóms sem ógilti aðalfund félagsins og ákvarðanir sem voru teknar á honum. Fyrrum stjórn hefur sagst undirbúa nýjan aðalfund. Innlent 18.4.2024 07:01
Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Yulia Navalnaya, ekkja pólitíska andófsmannsins Alexei Navalní, réði sér lífvörð eftir að ráðist var á bandamann hans til margra ára með hamri í Vilníus, höfuðborg Litháen, í síðasta mánuði. Erlent 17.4.2024 23:44
Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Þrettán eru sagðir fallir í það minnsta og rúmlega sextíu særðir eftir að þrjú rússnesk flugskeyti hæfðu íbúðarblokk nærri miðborg Tsjérnihiv í norðanverðri Úkraínu í morgun. Enn er leitað að fórnarlömbum í húsarústum. Erlent 17.4.2024 11:18
Áætla að yfir 50.000 rússneskir hermenn hafi fallið í átökunum Fleiri en 50.000 rússneskir hermenn hafa nú fallið í átökunum í Úkraínu, samkvæmt BBC. Mannfallið var 25 prósent meira á öðru ári átakanna, ef talið er í mánuðum frá því að innrásin hófst, heldur en fyrstu tólf mánuðina. Erlent 17.4.2024 06:49
Sjálfsævisaga Navalní væntanleg í haust Bók með æviminningum Alexei Navalní heitins, rússneska stjórnarandstöðuleiðtogans, verður gefin út í haust. Útgefandi hennar segir bókina „lokabréf“ Navalní til heimsbyggðarinnar og að hann hafi byrjað að skrifa hana eftir að eitrað var fyrir honum. Erlent 11.4.2024 22:21
Samþykktu loks frumvarp um herkvaðningu Úkraínska þingið samþykkti í morgun nýtt frumvarp um það hvernig haldið er utan herkvaðningu. Frumvarpið hefur verið til umræðu í þinginu í marga mánuði og tekið umfangsmiklum breytingum. Lögin þykja óvinsæla en fela meðal annars í sér að lækka lágmarksaldur herkvaðningar úr 27 árum í 25 ár og auðvelda yfirvöldum að kveðja menn í herinn. Erlent 11.4.2024 11:52
Ólígarkar unnu mál vegna refsiaðgerða fyrir Evrópudómstól Evrópskur dómstóll komst að þeirri niðurstöðu að rangt hafi verið að beita tvo rússneska ólígarka refsiaðgerðum vegna innrásar Rússlands í Úkraínu í dag. Sannanir fyrir því að þeir hafi stutt stríðsreksturinn skorti. Viðskipti erlent 10.4.2024 12:21
Friðrik Þór fer fyrir dómnefnd á kvikmyndahátíð í Moskvu Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri og framleiðandi mun fara fyrir dómnefnd á Alþjóðlegu Kvikmyndahátíðinni í Moskvu. Vestræni kvikmyndaiðnaðurinn hefur ákveðið að sniðganga keppnina að mestu leyti vegna innrásar Rússlands inn í Úkraínu. Innlent 9.4.2024 23:04
Saka formann fyrrverandi stjórnar um að eyðileggja MÍR Þrír félagar í íslensk-rússneska menningarfélaginu MÍR sem stefndu því fyrir dómi saka formann fyrrverandi stjórnar félagsins um að vinna að því að eyðileggja félagið og sóa fjármunum þess. Þeir sækjast eftir því að blása nýju lífi í starfsemina. Innlent 9.4.2024 07:00
Njósnaskandall skekur Austurríki Yfirvöld í Austurríki standa frammi fyrir umfangsmiklum njósnaskandal sem bendir til þess að leyniþjónustur Rússlands séu umsvifamiklar í ríkinu og varpar ljósi á slæmt eftirlit hins opinbera. Háttsettur fyrrverandi njósnari í Austurríki var handtekinn á dögunum. Erlent 8.4.2024 16:59
Grossi varar við drónaárásum á Zaporizhzhia-kjarnorkuverið Rafael Grossi, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, hefur fordæmt drónaárásir á einn af sex kjarnakljúfum Zaporizhzhia-kjarnorkuversins í Úkraínu Erlent 8.4.2024 06:44
Dæmd í þrælkunarvinnu fyrir að þykjast pota í brjóst Móðurlandsins Rússnesk kona hefur verið dæmd til tíu mánaða þrælkunarvinnu fyrir að þykjast snerta brjóst styttu í myndbandi sem hún birti á samfélagsmiðlum. Konan er frá borginni Samara en í júlí í fyrra birti hún myndband á Instagram þar sem hún otar fingri að styttu sem kallast „Móðurlandið kallar“. Erlent 5.4.2024 16:21
Halda áformum um framtíð MÍR til streitu eftir dóm Stjórn menningarfélagsins MÍR stefnir enn á að selja húsnæði félagsins og leggja niður starfsemi þess í núverandi mynd. Unnið er að undirbúningi nýs aðalfundar eftir að dómstóll ógilti ákvarðanir sem voru samþykktar á fundi sem hann taldi ekki löglega boðaðan. Innlent 5.4.2024 07:02
„Rússland getur ekki verið skotmark íslamista“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hélt því fram í dag að íslamskir öfgamenn hefðu ekki tilefni til að fremja hryðjuverkaárás í Rússlandi. Eining rússnesku þjóðarinnar á sviðum trúarbragða og þjóðernis og samheldni þjóðarinnar væri svo mikil að ómögulegt væri að öfgamenn fremdu hryðjuverkaárás í landinu. Erlent 4.4.2024 17:11
Felldu þrjá slökkviliðsmenn með drónum í Karkív Að minnsta kosti fjórir létu lífið í nótt þegar sjálfsprengidrónum var flogið á tvö fjölbýlishús og orkuver í Karkív, næst stærstu borg Úkraínu. Rússar hafa látið sprengjum rigna yfir borgina á undanförnum vikum og valdið þar miklum skemmdum og mannfalli. Erlent 4.4.2024 15:14
Finnar framlengja lokun landamæranna ótímabundið Ríkisstjórn Finnlands ákvað að halda landamærum landsins að Rússlandi áfram lokuðum ótímabundið í dag. Finnar saka rússnesk stjórnvöld um að senda hælisleitendur frá öðrum ríkjum að landamærunum til þess að baka þeim vandræði. Erlent 4.4.2024 13:46
Í basli með viðhald og viðgerðir á olíuvinnslum Viðskiptaþvinganir og refsiaðgerðir hafa gert Rússum erfitt um vik með viðhald í olíuvinnslustöðvum og viðgerðir eftir drónaárásir Úkraínumanna. Skortur er á varahlutum og fyrirtæki sem geta framleitt og selt varahluti eru ekki rússnesk. Viðskipti erlent 4.4.2024 10:34
Tónleikahöllin var nefnd sem mögulegt skotmark ISKP Bandarískir embættismenn vöruðu rússneska kollega sína við því að tónleikahöllin í Crocus væri mögulegt skotmark vígamann Íslamska ríkisins í Khorasan, eða ISKP, rúmum tveimur vikum áður en fjórir menn myrtu þar minnst 144. Ráðamenn í Rússlandi hunsuðu viðvörunina og Vladimír Pútín, forseti, sagði nokkrum dögum fyrir árásina að Vesturlönd væru að reyna að kúga Rússland. Erlent 3.4.2024 13:00
Bendla umdeilda rússneska sveit við Havana-heilkennið Á undanförnum árum hafa nokkrum sinnum átt sér stað atvik þar sem bandarískir og kanadískir embættismenn og erindrekar verða fyrir óútskýrðum heilbrigðisvandamálum. Heyrnartap, ógleði, svimi og miklir höfuðverkir eru meðal þess sem fólk hefur fundið fyrir en fyrstu tilfellin greindust í sendiráði Bandaríkjanna í Havana á Kúbu. Erlent 3.4.2024 08:01
Herkvaðningaraldurinn lækkaður úr 27 árum í 25 ár Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur undirritað lög sem kveða á um að herkvaðningaraldurinn verði lækkaður úr 27 ára í 25 ára. Erlent 3.4.2024 06:32