Níkaragva
Andófsfólk sent úr landi og svipt ríkisborgararétti
Á þriðja hundrað fangelsaðra stjórnarandstæðinga voru send til Bandaríkjanna frá Níkaragva fyrr í þessum mánuði. Daniel Ortega, forseti, lét jafnframt svipta andófsfólkið ríkisborgararétti. Sérfræðingar telja það brot á alþjóðalögum.
Á þriðja tug hafa farist vegna fellibyljar í Mið-Ameríku
Minnst 28 hafa látist í gríðarlegum rigningum í Mið-Ameríku undanfarna daga. Fellibylurinn Júlía sem gekk yfir svæðið hefur misst kraft sinn en enn rignir mikið í bæði Gvatemala og El Salvador.
Stefnir í yfirburðasigur Ortega í „látbragðskosningum“
Fyrstu tölur í forsetakosningunum í Níkaragva benda til stórsigurs Daniels Ortega forseta. Hann lét handtaka flesta mótframbjóðendur sínar fyrir kosningarnar og hefur Bandaríkjastjórn lýst kosningunum sem látbragðsleik.
Kosið í Níkaragva í skugga ofsókna og gerræðis
Kosningar fara fram í Níkaragva í dag þar sem ekkert bendir til annars en að forsetinn Daniel Ortega verði hlutskarpastur og muni sitja í forsetastóli fjórða kjörtímabilið í röð.
Nær öruggt að Ortega ríghaldi í völdin eftir forsetakosningar
Daniel Ortega, forseti Níkaragva, mætir lítilli raunverulegri mótspyrnu í forsetakosningum sem fara fram í landinu um helgina en hann hefur gengið á milli bols og höfuðs á stjórnarandstöðunni og frjálsum fjölmiðlum undanfarin misseri. Búist er við að hann herði enn tökin eftir kosningarnar.
Telur engar líkur á frjálsum kosningum í Níkaragva
Ríkisstjórn Daniels Ortega í Níkaragva hneppti Maríu Fernöndu Lanzas, fyrrverandi forsetafrú landsins, í stofufangelsi í gær. Annar fyrrverandi forseti landsins segir útilokað að forsetakosningar í haust verði frjálsar í ljósi herferðar Ortega gegn stjórnarnandstöðunni.
Blaðamaður bætist í hóp handtekinna í Níkaragva
Herferð Daniels Ortega, forseta Níkaragva, gegn stjórnarandstöðunni í landinu hélt áfram þegar lögregla handtók Miguel Mora, blaðamann og stjórnarandstæðing, í gærkvöldi. Ortega hefur nú látið handtaka á annan tug stjórnarandstæðinga og mögulegra keppinauta í forsetakosningum í haust.
Herferð Ortega gegn stjórnarandstöðunni heldur áfram
Yfirvöld í Níkaragva handtóku fimm þekkta stjórnarandstæðinga á sunnudaginn í því sem gagnrýnendur Daniels Ortega forseta kalla herferð gegn andstæðingum hans. Fyrrverandi bandamenn Ortega eru á meðal þeirra handteknu.
Lýsa Ortega sem einræðisherra eftir handtökur á andstæðingum
Fulltrúi Bandaríkjastjórnar líkti Daniel Ortega, forseta Níkaragva, við einræðisherra eftir að ríkisstjórn hans lét handtaka fjórar framármenn úr stjórnarandstöðu landsins á hálfu sólarhring í gær. Fyrir höfðu tveir líklegir mótframbjóðendur Ortega í forsetakosningum í haust verið hnepptir í varðhald.
Líklegir mótframbjóðendur Ortega fangelsaðir
Tveir líklegir frambjóðendur stjórnarandstöðunnar í Níkaragva til forsetakosninga í haust sitja nú í haldi stjórnvalda í því sem stjórnarandstaðan kallar herferð ríkisstjórnar Daniels Ortega forseta til að skapa ótta á meðal fólks. Þriðji mögulegi frambjóðandinn hefur verið kallaður til skýrslutöku hjá saksóknara.
Jóta skellur á Níkaragva
Fellibylurinn Jóta skall á ströndum Níkaragva í gærkvöldi, aðeins tveimur vikum eftir að annar öflugur fellibylur, Eta, gekk þar á land.
Hamfarasvæði aftur í hættu vegna fellibyljarins Jóta
Fellibylnum Jóta óx afl í Karíbahafi í dag og er nú orðinn að fimmta stigs fellibyl. Hann virðist nú stefna á hamfarasvæði í Mið-Ameríku sem urðu illa úti í fellibylnum Eta fyrr í þessum mánuði.
Telja 150 látna vegna óveðurs í Gvatemala
Talið er að minnst hundrað hafi látist í Quejá héraði í Gvatemala vegna aurskriða sem féllu í kjölfar mikilla rigninga vegna stormsins Etu sem riðið hefur yfir landið undanfarna daga.
Fimmtíu látin eftir aurskriður vegna Eta
Fimmtíu manns hið minnsta eru látnir eftir að hafa orðið undir í aurskriðum í Gvatemala. Aurskriðurnar féllu eftir að óveðrið Eta, sem áður var skilgreint sem fellibylur, gekk yfir landið.
Fellibylurinn Eta herjar á íbúa í Mið-Ameríku
Fellibylurinn Eta gekk á land í Níkaragva í gær þar sem gríðarlegt úrhelli og miklir vindar hafa herjað á íbúa.
Forseti Kólumbíu afneitar landsmönnum vegna mótmæla
Iván Duque, forseti Kólumbíu, tilkynnti það í gærkvöldi að öryggissveitir yrðu áfram á götum landsins til að gæta reglu. Nú er fjórði dagur mótmæla þar í landi.
Fjórir grunaðir ISIS-liðar handteknir í Níkaragva
Tveir Egyptar og tveir Írakar sem lýst hafði verið eftir voru handteknir og sendir úr landi í gær.
Ortega kveðst reiðubúinn til viðræðna
Forseti Níkaragva hefur sagst reiðubúinn til viðræðna við stjórnarandstöðuna í landinu til að ná lausn landvarandi og hatrömmum deilum í landinu.
Byltingarleiðtogi sagður verða að einræðisherranum sem hann steypti
Ortega-fjölskyldan hefur sankað að sér auði og völdum í Níkaragva, ekki ósvipað og Somoza-fjölskylduveldið sem Daniel Ortega steypti af stóli fyrir fjörutíu árum.
Blaðamenn handteknir og aðgerðasinnar á flótta undan stjórnvöldum í Níkaragva
Ríkisstjórn Níkaragva er sögð reyna að koma á stjórn ótta og ógnar sem beinist gegn andstæðingum hennar.
Fulltrúum Níkaragva meinað að sækja innsetningarathöfn Bolsonaro
Verðandi Brasilíu vill með þessu mótmæla ofsóknum stjórnar Daniel Ortega gegn eigin borgurum.
Lögregla barði blaðamenn í Níkaragva
Hundruð manns hafa látist í átökum í landinu síðan í apríl.
Blóðugasti dagur mótmælanna í Níkaragva
Mannréttindasamtök í Níkaragva segja að 38 manns hafi fallið í mótmælum á sunnudag, flestir þeirra mótmælendur.
Særðust í mótmælum í Nikaragva
Tugþúsundir komu saman víðs vegar um landið í dag til að mótmæla stjórn Daniel Ortega forseta.
Ungbarn á meðal látinna í mótmælum í Níkaragva
Mótmælendur segja að fjórir hafi fallið í skothríð lögreglu, þar á meðal 18 mánaða gamalt barn. Ríkisstjórn landsins hafnar því.
Vopnahlé í Níkaragva
Deilur hafa staðið yfir í Mið-Ameríkuríkinu Níkaragva síðan í apríl síðastliðnum. Nú hafa stríðandi fylkingar samið um vopnahlé
Fleiri mótmælendur skotnir til bana í Níkaragva
Að minnsta kosti þrír mótmælendur voru skotnir til bana í nótt í Managva, höfuðborg Níkaragva.
Molnar undan stuðningi við forseta Níkaragva
Herinn, kirkjan og frammámenn í viðskiptalífinu hafa fjarlægt sig ríkisstjórn Daniels Ortega forseta eftir harkaleg viðbrögð hennar við mótmælaöldu sem geisar í Níkaragva.
Nýr forseti NRA hlaut dóm í tengslum við eitt mesta hneyksli bandarískra stjórnmála
Oliver North, sem varð alræmdur á 9. áratugnum vegna Íran-kontra-skandalsins, er nýr forseti Samtaka byssueigenda í Bandaríkjunum, NRA.
Talið að 25 hafi fallið í óeirðunum í Níkaragva
Aukin harka færist í átökin í Níkaragva.