
Finnland

Norðurlönd dýpka samvinnu í varnarmálum
Norðurlöndin hafa tekið upp nánara samstarf á sviði varnarmála. Eftir inngöngu Finnlands og Svíþjóðar í Atlantshafsbandalagið eru öll Norðurlöndin í bandalaginu og gerir það ríkjunum kleift að efla samvinnuna frekar.

Íslendingum ekki boðið á sjónvarpsumræðu um öryggi á Norðurlöndum
Ríkisreknar sjónvarpsstöðvar Norðurlanda, að RÚV undanskildu, héldu í síðustu viku sérstakan sjónvarpsviðburð sem sýndur var á öllum stöðvunum. Þátturinn bar titilinn „Svar Norðurlanda við stríði Pútíns“ og sátu utanríkisráðherrar landanna fyrir svörum, auk sérfræðinga og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins.

Hlustar á íslenskt útvarp í finnskri sveit
Finnskum útvarpsáhugamanni tókst á dögunum að bæta íslenskum útvarpsstöðvum í safn þeirra erlendu útvarpsstöðva sem hann nær að hlusta á í sumarbústaði sínum í finnskri sveit í norðurhluta Finnlands í Lapplandi. FM 957, Gullið og fleiri útvarpsstöðvar hljóma því í eyrum Finnans.

Berjaforkólfar fyrir dóm vegna mansals
Réttarhöld yfir forstjóra stærsta berjafyrirtækis Finnlands og taílenskum viðskiptafélaga hans vegna mansals á berjatínslufólki hófust í Lapplandi í dag. Slæmur aðbúnaður farandverkamanna í finnska berjaiðnaðinum hefur verið í brennidepli síðustu ár.

Lýstu sálarkvöl og gráti finnska íþróttafólksins í Ólympíuþorpinu
Finnar fóru heim af Ólympíuleikunum í París án þess að vinna til verðlauna og þessi slaki árangur hefur kallað á hörð viðbrögð heima fyrir.

Nekt bönnuð í sánunni og sundlaugargestir ósáttir
Fastagestir Breiðholtslaugar eru óánægðir með breytingar á reglum tengdum sánunni við laugina sem nýlega tóku gildi. Finnska sendiráðið útnefndi sánuna þá bestu í Reykjavík fyrir tveimur árum, en nú vilja einhverjir svipta sánuna þeim titli.

100 ára afmæli lýðveldisins Íslands
Nýlega var ég í Helsinki og heimsótti þar nýja bókasafnið Oodi í miðborginni. Þangað hef ég reyndar komið áður en nú var ég í hópi sem fékk formlega leiðsögn frá safninu. Þar kom fram að safnið hafði verið afmælisgjöf til finnsku þjóðarinnar á 100 ára afmæli lýðveldisins árið 2017.

Þrettán ára stelpa tryggði sér sæti á Ólympíuleikunum í París
Heili Sirviö verður meðal keppenda á Ólympíuleikunum í París í sumar og skrifar þar með nýjan kafla í sögu finnskra íþrótta.

Félagi í Norðurvígi grunaður um stunguárás á tólf ára dreng
Á tæpri viku hafa tvær stunguárásir verið gerðar i sömu verslunarmiðstöð í borginni Oulu í Finnlandi. Karlmaður var handtekinn í vikunni í tengslum við aðra þeirra, grunaður um að hafa stungið tólf ára dreng. Árásirnar eru rannsakaðar sem hatursglæpir.

Bein útsending: Þórhildur kynnir skýrslu um stöðu pólitískra fanga
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata og aðalframsögumaður Evrópuráðsþingsins flytur skýrslu fyrir Helsinki-nefnd Bandaríkjaþings um öryggi og samvinnu í Evrópu og stöðu pólitískra fanga í Evrópu.

Saka Rússa um að skapa ótta á Eystrasalti
Ráðherrar ríkja við Eystrasalt segja tilburði Rússa til að breyta mörkum hafsvæða þar hluta af óhefðbundnum hernaði þeirra gegn Evrópu og NATO sem sé ætlað að valda ótta og óvissu. Rússar segja ekkert „pólitískt“ við breytingarnar.

Vornanen kastað úr þingflokknum
Finnski stjórnarflokkurinn Sannir Finnar hefur vísað þingmanninum Timo Vornanen úr þingflokknum. Ástæðan er að lögregla rannsakar nú atvik þar sem Vornanen skaut úr byssu eftir heimsókn á næturklúbb síðastliðinn föstudag.

Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað
Timo Vornanen, þingmaður Sannra Finna, var handtekinn og er grunaður um að hafa hleypt af skoti í götuslagsmálum sem brutust út í miðborg Helsinki aðfaranótt föstudags.

Kennari fékk piltinn til að fara úr skólastofunni eftir skotárásina
Finnska lögreglan segir að kennari hafi fengið tólf ára dreng sem skaut þrjú skólasystkini sín, þar af eitt til bana, í Vantaa í síðustu viku til þess að yfirgefa skólastofuna. Pilturinn er sagður hafa notað byssu sem hann tók frá ættingja sínum í leyfisleysi.

Play hefur flug til „heimkynna jólasveinsins“
Flugfélagið Play hefur sett í sölu flug til þorpsins Rovaniemi í norðurhluta Finnlands.

Tólf ára árásarmaðurinn segist sjá eftir gjörðum sínum
Tólf ára árásarmaðurinn sem hóf skothríð í grunnskóla í Vantaa í Finnlandi á þriðjudaginn segist sjá eftir gjörðum sínum. Lögregla yfirheyrði hann í gær og mun yfirheyrsla halda áfram ótímabundið.

Finnar framlengja lokun landamæranna ótímabundið
Ríkisstjórn Finnlands ákvað að halda landamærum landsins að Rússlandi áfram lokuðum ótímabundið í dag. Finnar saka rússnesk stjórnvöld um að senda hælisleitendur frá öðrum ríkjum að landamærunum til þess að baka þeim vandræði.

Einelti sagt ástæða árásarinnar
Tólf ára barnið sem grunað er um skotárásina í grunnskóla í Vantaa í Finnlandi í gær hafði einungis verið nemandi í skólanum í ellefu vikur. Ástæða árásarinnar er sögð vera einelti sem nemandinn hafði sætt.

Flaggað í hálfa stöng eftir skotárásina
Flaggað verður í hálfa stöng við allar opinberar byggingar og stofnanir í Finnlandi í dag vegna skotárásarinnar í grunnskóla í Vantaa í gær. Tólf ára drengur lét lífið og tvær stúlkur særðust þar í árás tólf ára barns.

Árásin í Vantaa: Tólf ára barn lést og tvö alvarlega særð
Tólf ára barn lést og tvö eru alvarlega særð eftir skotárás tólf ára barns í grunnskóla í finnska bænum Vantaa í morgun.

Tólf ára barn grunað um árásina
Tólf ára barn er nú í haldi finnsku lögreglunnar vegna skotárásarinnar í Vantaa í morgun. Þrjú börn eru sögð hafa særst í árásinni, en ekki liggur fyrir hvort einhver hafi látið lífið.

Skotárás í finnskum grunnskóla
Lögregla í Finnlandi hefur handtekið einn eftir að tilkynnt var um skotárás í grunnskóla í finnska bænum Vantaa í morgun. Einhverjir hafa særst í árásinni þó að enn hafi ekki verið gefið upp um nákvæman fjölda.

Unnur og Brynjar keyptu 200 fermetra einbýli á 4,5 milljónir
„Af hverju við fluttum? Það var sett á sölu húsið sem við bjuggum í og leigumarkaðurinn var algjörlega glataður. Ég varð svo pirruð yfir þessu að ég sagði bara: Af hverju prófum við ekki eitthvað nýtt?“ segir Unnur Eygló Bjarnadóttir en þau Brynjar Ingimarsson eiginmaður hennar ákváðu fyrir nokkrum árum að freista gæfunnar í finnskri sveit.

Finnar eyða óvissunni og staðfesta þátttöku í Eurovision
Finnska ríkisútvarpið hefur staðfest þátttöku í Eurovision í Malmö í maí. Líkt og á Íslandi hefur verið talað við sniðgöngu keppninnar vegna þátttöku Ísraels. Þeirri óvissu hefur verið eytt í Finnlandi.

Kaupa gagnaver í Finnlandi
Borealis Data Center, sem rekur þrjú gagnaver hér á landi, hefur fest kaup á á gagnaveri í Kajaani í Norður-Finnlandi sem verður fyrsta starfsstöð félagsins erlendis.

Brókarlalli kenndur við Windows fær traust Finna
Finnski tónlistarmaðurinn Windows95man flytur framlag þjóðar sinnar í Eurovision í Malmö í ár. Hann byrjar atriðið inni í eggi og neitar að vera í buxum þar til undir lok atriðisins, enda engar reglur hjá honum.

Stubb bar nauman sigur úr býtum
Önnur umferð forsetakosninga Finnlands fór fram í dag. Kosningabaráttan stóð milli Alexanders Stubb fyrrverandi forsætisráðherra og Pekka Haavisto fyrrverandi utanríkisráðherra en sá fyrrnefndi sigraði.

Engir rauðir límmiðar lengur á Iittala
Nýr listrænn stjórnandi Iittala hefur nú svipt hulunni af nýjum lit og merkingum fyrir merkið. Í stað rauða litarins sem hefur einkennt merkið í áratugi, og auðvitað rauðu límmiðana, er nú tekinn við gulur ferskari litur.

Stubb sigraði fyrri umferð finnsku forsetakosninganna
Finnsku forsetaframbjóðendurnir Alexander Stubb og Pekka Haavisto voru atkvæðamestir í forsetakosningunum sem fram fóru í landinu í gær.

Finnar kjósa sér forseta í dag
Forsetakosningar Finna fara fram í dag. Baráttan um embættið stendur milli níu frambjóðenda. Ef enginn þeirra hlýtur yfir fimmtíu prósent atkvæða fer fram önnur umferð eftir tvær vikur.