
Austurríki

Íslendingar í Vín segja ástandið hrikalegt
Skotárás varð í Vínarborg í kvöld og hafa umfangsmiklar lögregluaðgerðir staðið yfir á að minnsta kosti sex stöðum í borginni.

Almenningur beðinn um að halda sig fjarri eftir skotárás í Vínarborg
Lögreglan í borginni Vín í Austurríki greinir frá því að lögregluaðgerð standi nú yfir eftir skotárás við bænahús í borginni.

Yfirvöld í Ischgl hundsuðu viðvaranir íslenskra yfirvalda
Stjórnvöld í austurríska héraðinu Tíról virðast hafa hundsað viðvaranir um útbreiðslu kórónuveirunnar á skíðasvæðinu Ischgl sem bárust þeim frá íslenskum heilbrigðisyfirvöldum.

Stefna austurrísku ríkisstjórninni vegna smitanna í Ischgl
Neytendasamtök í Austurríki hafa stefnt þarlendum stjórnvöldum fyrir að hafa brugðist of hægt við hópsýkingu kórónuveiru sem kom upp í skíðabænum Ischgl í vetur.

Sennilega orðin „gegnsýrð af veirunni“ í lok rútuferðarinnar
Ferðamenn sem dvöldu í skíðabænum Ischgl í Austurríki í mars síðastliðnum bera sóttvarnayfirvöldum á svæðinu afar illa söguna.

Deila um fyrirkomulag stuðningssjóðs vegna veirunnar
Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna hittast í dag í fyrsta sinn augliti til auglitis frá því kórónuveirufaraldurinn fór að láta á sér kræla í Evrópu.

Forsætisráðherrann fékk ekki að hitta móður sína fyrir andlátið
Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, segir að hann hafi ekki fengið að hitta 96 ára gamla móður sína síðustu vikurnar sem hún lifði vegna heimsóknatakmarkana sem eru í gildi á hjúkrunarheimilum vegna kórónuveirufaraldursins.

Forsetinn biðst afsökunar á að hafa verið á veitingastað eftir lokun
Austurríski forsetinn Alexander Van der Bellen hefur beðist afsökunar á því að hafa verið lengur inni á veitingastað en reglur um opnunartíma í landinu kveða á um.

Vonarstjarna í Austurríki fannst látin
Það er ekki auðvelt að vera efnileg íþróttastjarna og þurfa oft að standa undir gríðarlegum væntingum. Það lítur út fyrir að slík pressa sé aðalástæðan fyrir að Johanna Bassani er ekki meðal okkar lengur.

Íslenska viðvörunin gæti spilað lykilhlutverk í hópmálsókn vegna skíðaparadísarinnar Ischgl
Bandaríska fréttaveitan Bloomberg birti í morgun ítarlega grein um fyrirhugaða hópmálsókn skíðaiðkenda gegn yfirvöldum í austurísku skíðaparadísinni Ischgl. Viðvörun frá íslenskum yfirvöldum um kórónuveirusmit á svæðinu er miðpunktur greinarinnar

Ísland í stóru hlutverki í heimildarmynd um Ischgl
Þýskur fréttamaður hefur verið á Íslandi síðustu daga vegna heimildamyndargerðar um kórónuveirusmitin á skíðasvæðinu í Ischgl í Austurríki.

Ætla að breyta ímynd Ischgl
Skíðasvæðið alræmda í austurríska alpabænum Ischgl, sem komst í umræðuna vegna gruns um að staðurinn væri miðpunktur kórónuveirufaraldursins í Evrópu, mun umbreytast að faraldrinum loknum.

Ischgl losnar undan sóttkví fyrr en til stóð
Yfirvöld í Austurríki hafa ákveðið að sóttkví verði aflétt af þremur af vinsælustu skíðasvæðum landsins á fimmtudag, þremur dögum fyrr en til stóð.

Austurríki býr sig undir að slaka á aðgerðum
Leyft verður að opna verslanir í Austurríki í næstu viku þegar byrjað verður að slaka á aðgerðum til að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins. Hægst hefur á útbreiðslunni í Austurríki og telja stjórnvöld nú tímabært að létta á samkomubanni þar.

Tímabilið í Austurríki flautað af og Guðmundur Hólmar líklega á heimleið
Keppni í austurríska handboltanum hefur verið hætt vegna kórónuveirufaraldursins. Guðmundur Hólmar Helgason hefur því leikið sinn síðasta leik fyrir WestWien. Hann segir líklegra en ekki að hann leiki í Olís-deildinni á næsta tímabili.

Djammstaðurinn Ischgl sem sýkti hálfa Evrópu
Þrátt fyrir að viðvörunarbjöllur hafi hljómað víða um Evrópu og austurríska skíðasvæðið Ischgl verið skilgreint sem sérstakt áhættusvæði af heilbrigðisyfirvöldum nokkurra landa, hélt partýið áfram dag eftir dag.

Rannsaka hvort „flautubarinn“ hafi falið tilfelli
Yfirvöld í Austurríki rannsaka nú hvort að eigendur vinsæls bars í skíðabænum Ischgl hafi haldið kórónuveirusmiti starfsmanns þar leyndu. Fjöldi Íslendinga er á meðal hundruð manna sem hafa greinst með veiruna og rakið hefur verið til bæjarins.

Flauta barþjóns sögð ástæða mikillar útbreiðslu veirunnar í Ischgl
Flauta sem gekk manna í millum á vinsælum apres ski bar í austurríska skíðabænum Ischgl er sögð skýra mikinn fjölda kórónuveirusmita sem rakin eru til bæjarins.

Sex látnir eftir snjóflóð í austurrísku Ölpunum
Í það minnsta sex eru látnir eftir að tvö snjóflóð féllu í austurrísku Ölpunum í dag.

Skíðasvæðið Ischgl nú skilgreint sem áhættusvæði
Átta af þeim 26 Íslendingum sem nú hafa greinst með kórónuveiruna voru á skíðum í Ischgl.

Átta hinna smituðu voru á skíðum í Ischgl í Austurríki
Átta af þeim 26 sem nú hafa greinst með kórónuveiruna hér á landi voru á skíðum í Ischgl í Austurríki og komu heim á sunnudaginn með vél Icelandair frá Munchen.

Níundi smitaði Íslendingurinn kom frá Austurríki á sunnudag
Hann hafði dvalið þar ásamt fjölskyldu sinni.

Smituðum fjölgar í Evrópu og víðar
Verið er að grípa til umfangsmikilla aðgerða vegna Covid-19, sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur, víða um heim því á sama tíma og dregið hefur úr fjölgun smitaðra í Kína, fjölgar smituðum hratt annarsstaðar í heiminum.

Kórónaveirusmit í Austurríki og Króatíu
Búið er að staðfesta fyrstu Covid-19 kórónuveirusmitin í Austurríki og Króatíu.

Málverk eftir Klimt sem stolið var fyrir 23 árum fundið
Málverk eftir austurríska listmálarann Gustav Klimt fannst fyrir tilviljun á dögunum en því var stolið fyrir tæpum 23 árum.

Austurrískur bæjarstjóri biðlar til Frozen-aðdáenda að halda sig fjarri
Straumur ferðamanna til austurríska alpabæjarins Hallstatt hefur stóraukist að undanförnu eftir að orðrómur fór á flug um að bærinn sé fyrirmynd Arendelle úr Frozen-myndunum.

Alvarleg tölvuárás á utanríkisráðuneyti Austurríkis
Utanríkisráðuneyti Austurríkis varð í gær fyrir tölvuárás. Grunur leikur á að útsendari annars ríkis standi að baki árásinni.

Kurz og Græningjar náðu saman
Austurríski þjóðarflokkurinn (ÖVP) og Græningjar þar í landi hafa náð saman um myndun nýrrar ríkisstjórnar eftir nokkurra mánaða viðræður.

Urðu „skotnir í dæminu“ og keyptu Íslendingahótelið í Ölpunum
Nýr hópur Íslendinga hefur keypt hið svokallaða Íslendingahótel í austurrísku Ölpunum. Hótelið hefur verið vinsæll áfangastaður Íslendinga í gegnum tíðina en rekstur þess hefur verið í höndum Íslendinga í fimmtán ár.

Fjögur hús eyðilögðust í bruna í miðbæ Hallstatt
Eldurinn kom upp í trjákofa í austurríska bænum Hallstatt en miðbærinn er að finna á heimsminjaskrá UNESCO.