Sveitarstjórnarmál
32 33 34 35 36 37 38 39 40 … 40 ›
Fékk 250 þúsund króna hækkun á mánuði Launakostnaður vegna bæjarstjóra Árborgar er 250 þúsund krónum meiri en á síðasta kjörtímabili, auk ótakmarkaðs aðgangs að bíl á vegum sveitarfélagsins. Samfylkingin segir þetta ganga í berhögg við kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins um sparnað í fjármálum sveitarfélagsins. Innlent 24.8.2006 12:02
Bergur Elías Ágústsson ráðinn sveitarstjóri Byggðaráð sveitarfélagsins Norðurþings samþykkti á fundi sínum í dag að ráða Berg Elías Ágústsson í starf sveitarstjóra til næstu fjögurra ára. Auglýst var eftir sveitarstjóra og bárust 13 umsóknir en tvær voru dregnar til baka. Eftir umsögn utanaðkomandi ráðningarþjónstu var einn umsækjendanna metinn hæfur en niðurstaða meirihluta byggðaráðs var að hafna öllum umsóknum. Í framhaldi af því var ákveðið að ráða Berg Elías í starfið. Innlent 3.8.2006 17:53
Allur úrgangur endurunninn Moltugerð á Sauðárkróki í tilraunaskyni gaf það góða raun að innan tíðar verður farið að vinna 18 rúmmetra af úrgangi á dag í þremur stórum tromlum. Hlutafélagið Jarðgerð stendur fyrir því að nýta með þessum hætti allan lífrænan úrgang sem til fellur hjá sveitarfélaginu og nágrenni, sem ekki er hægt að nýta í fóðurgerð. Innlent 30.7.2006 20:21
Hefur strax misst sætið sitt Einn sveitarstjórnarmanna N-listans í Djúpavogshreppi hefur misst nýfengið sæti sitt. Í sveitarstjórnarkosningunum í lok maí voru fjórði maður N-lista og annar maður L-lista jafnir. Hlutkesti var kastað um sætið og fékk þá N-listinn sætið. L-listinn kærði úrslitin og komst kærunefnd að þeirri niðurstöðu í fyrradag, að eitt ógilt atkvæði hefði í raun og veru verið gilt og það atkvæði tilheyrði L-listanum. Sem þýðir að L-listinn fékk sinn annan mann inn. Innlent 16.6.2006 15:02
Sjálfstæðisflokkurinn og Samherjar áfram við völd Sjálfstæðisflokkurinn og Samherjar hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra kjörtímabilið 2006-2010. Á kjörtímabilinu verður lögð áhersla á menntamál, málefni eldri borgara, umhverfismál, fjölskylduvænt samfélag, markaðssetningu sveitarfélagsins, atvinnumál, ábyrga fjármálastjórn, ferða- og samgöngumál. Innlent 5.6.2006 12:23
Sjálfstæðismenn og Samherjar mynda meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn og samherjar hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi um sjtórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra kjörtímabiliið 2006 til 2010. Unnur Brá Konráðsdóttir í Sjálfstæðisflokki verður bæjarstjóri, Ólafur Eggertsson, Samherjum verður oddviti og Elvar Eyvindsson, Sjálfstæðisflokki verður formaður Byggðaráðs. Á kjörtímabilinu verður meðal annars lögð áhersla á menntamál, málefni eldri borgara og umhverfismál. Innlent 3.6.2006 11:56
Nýr bæjarstjóri á Hornafirði Hjalti Þór Vignisson hefur verið ráðinn í starf bæjarstjóra í sveitafélaginu Hornafirði. Á fréttavefnum Horn.is kemur fram að það hafi verið samdóma álit nýs meirihluta framsóknarmanna og Samfylkingar að ráða Hjalta í starfið. Innlent 31.5.2006 16:11
Sjálfstæðismenn og frjálslyndir mynda meirihluta á Akranesi Sjálfstæðisflokkur og Frjálslyndir og óháðir mynduðu meirihluta í bæjarstjórn á fundi í gærkvöldi. Fréttavefurinn Skessuhorn punktur is greinir frá því að samkvæmt áreiðanlegum heimildum þá verði Gísli S. Einarsson fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar næsti bæjarstjóri. Innlent 30.5.2006 08:24
Meirihlutaviðræður halda áfram í dag Fulltrúar Fjarðarlistans og Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð hafa ákveðið að halda meirihlutasamstarfi sínu áfram, en nú stækkar sveitarfélagið um Austurbyggð, Mjóafjarðarhrepp og Fáskrúðsfjörð. Innlent 30.5.2006 06:53
Sjálftæðismenn og Frjálslyndir funda á Akranesi í dag Sjálfstæðisflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn funda í dag um myndun nýs meirihluta á Akranesi. Á Akranesi féll meirihluti Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn fékk fjóra menn í kosningunum. Framsóknarflokkurinn, Frjálslyndi flokkurinn og Vinstri-grænir einn hver og Samfylkingin tvo menn. Innlent 29.5.2006 10:26
Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn áfram í meirihluta í Kópavogi Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn í Kópavogi náðu undir miðnætti samkomulegi um að halda meirihluta samstarfi sínu áfram í bæjarstjórn. Innlent 29.5.2006 07:01
Segir slit R-listans hafa verið mistök Vel kemur til greina að endurvekja Reykjavíkurlistann fyrir borgarstjórnarkosningarnar árið 2010, að mati Katrínar Jakobsdóttur, varaformanns Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs. Þetta kom fram í umræðum forystumanna stjórnmálaflokkanna á NFS og Stöð 2 í gærkvöldi. Innlent 29.5.2006 06:42
Gunnar Birgisson áfram bæjarstjóri Oddvitar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Kópavogi náðu nú í kvöld samkomulagi um meirihlutasamstarf á komandi kjörtímabili. Samkomulag er um að Gunnar I. Birgisson verði bæjarstjóri og að Ómar Stefánsson, oddviti Framsóknarflokks verði formaður bæjarráðs. Málefnasamningur liggur fyrir og veðrur hann lagður fyrir fulltrúaráð flokkanna á miðvikudag. Innlent 28.5.2006 23:36
Tekur aftur við oddvitahlutverkinu Eyþór Arnalds segist líta á það sem traustsyfirlýsingu við sig hversu margir kusu Sjálfstæðisflokkinn í Árborg. Hann ætlar að taka strax til starfa með bæjarstjórnarflokki sjálfstæðismanna í Árborg. Innlent 28.5.2006 19:45
Sigur Á-listans staðfestur Kjörstjórn á Álftanesi lauk fyrir skemmstu endurtalningu á atkvæðum sem greidd voru í sveitarstjórnarkosningunum í gær. Endurtalningin staðfesti sigur Álftaneslistans. Sjálfstæðismenn fóru fram á endurtalningu vegna þess hversu mjótt var á munum en aðeins munaði þremur atkvæðum þegar talningu lauk í gærkvöldi. Innlent 28.5.2006 18:20
Meirihlutinn hélt óvænt velli Meirihlutinn hélt á Ísafirði, þvert á það sem skoðanakannanir höfðu gefið ástæðu til að ætla. Bæjarstjórinn og oddviti Sjálfstæðismanna vill halda áfram samstarfinu við Framsóknarflokkinn undir sinni forystu. Innlent 28.5.2006 08:44
Straumurinn lá til vinstri Straumur kjósenda lá til vinstri í nótt í stærstu sveitarfélögum landsins þar sem Vinstri-grænir og Samfylkingin bættu við sig fjölda sveitarstjórnarmanna. Sjálfstæðismenn bættu lítillega við sig en Framsóknarmenn töpuðu miklu. Innlent 28.5.2006 08:30
Atvinnumál og velferðarmál í öndvegi Samfylkingin býður fram í fyrsta sinn á Hornafirði í komandi sveitastjórnakosningnum. Bæði Framóknarmenn og Sjálfstæðismenn spá því að Samfylkingin muni ná tveimur mönnum inn í sveitastjórn. Innlent 24.5.2006 20:15
Sjálfstæðismenn til valda í Kópavogi Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs ef kosið yrði nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir NFS. Sjálfstæðismenn fengju 46,8 prósent atkvæða og það dygði þeim til að fá sex bæjarfulltrúa af ellefu í Kópavogi. Innlent 23.5.2006 19:25
Deila um styrkveitingu til Fram Samstaða Sjálfstæðismanna og Alfreðs Þorsteinssonar um styrkveitingu til Fram sýnir að fyrirgreiðslupólitíkin ræður völdum í Reykjavík ef Sjálfstæðismenn komast til valda segir borgarfulltrúi Samfylkingar. Ómerkilegur málflutningur segja hvort tveggja oddviti Sjálfstæðisflokks og formaður Fram. Innlent 19.5.2006 17:03
Elsti frambjóðandinn 92 ára Elsti frambjóðandinn í sveitarstjórnarkosningunum í vor er 92 ára. Sá er Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrverandi menntamálaráðherra frá Brekku í Mjóafirði. Hann er í framboði fyrir Framsóknarflokkinn í Fjarðabyggð. Innlent 19.5.2006 08:33
Segist iðrast gjörða sinna Eyþór Arnalds segir áhugann á stjórnmálum sinn óbreyttann en framtíðin muni skera út um pólistískan frama hans. Hann segist iðrast gjörða sinna sem hann segir óafsakanlegar. Innlent 16.5.2006 12:05
Vilja ekki stækkun álversins Vinstri-grænir í Hafnarfirði eru andvígir stækkun álversins í Straumsvík og hyggjast beita sér gegn henni í bæjarstjórn nái þeir til þess kjöri. Þeir vilja auk þess auka vægi íbúa Hafnarfjarðar í ákvarðanatöku um mál sem snerta þá. Innlent 15.5.2006 16:47
Eyþór dregur sig út úr kosningabaráttu Eyþór Arnalds oddviti Sjálfstæðismanna í Árborg hættir kosningabaráttu og tekur ekki sæti í bæjarstjórn fyrr en hann hefur tekið út þá refsingu sem hann hlýtur fyrir ölvunarakstur í nótt. Þá hyggst Eyþór fara í áfengismeðferð. Þetta er niðurstaða fundahalda Eyþórs með forystu Sjálfstæðisflokksins og samstarfsmönnum í Sjálfstæðisflokknum í Árborg. Innlent 14.5.2006 22:59
Á þriðja þúsund manns í framboði Einn af hverjum áttatíu landsmönnum á kosningaaldri getur kosið sjálfan sig í sveitarstjórnarkosningunum sem fara fram undir lok mánaðarins. Svo margir eru frambjóðendurnir. Heildarfjöldi þeira jafngildir því að nær allir Grindvíkingar væru í framboði. Innlent 12.5.2006 21:11
Yfir eitt prósent atkvæðabærra manna í framboði Einn af hverjum áttatíu einstaklingum á kosningaaldri er í framboði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Sjálfkjörið er í sveitarstjórn í Breiðdalshreppi og Tjörneshreppi en listakosning fer fram í 58 sveitarfélögum. Þar eru tæplega 2.600 manns í framboði á 170 listum. Innlent 12.5.2006 17:32
Gagnrýna kaupin á svæði Gusts harðlega Samfylkingarmenn í bæjarstjórn Kópavogs gagnrýna meirihlutann harðlega fyrir ákvörðun um að kaupa Gustssvæðið á rúma þrjá milljarða króna, þó svæðið sé þegar í eigu bæjarins en félagið með afnotarétt til rúmra 30 ára. Bæjarstjórinn í Kópavogi hringsnúast í málinu trekk í trekk. Innlent 10.5.2006 17:34
Brosi allan hringinn "Ég brosi auðvitað allan hringinn," sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, þegar kynntar voru niðurstöður könnunar fyrir NFS um fylgi flokkanna sem eru þar í framboði. Tveir af hverjum þremur kjósendum í Reykjanesbæ myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú. Innlent 9.5.2006 21:14
Sjálfstæðismenn fengju 67 prósent atkvæða Sjálfstæðismenn fengju atkvæði tveggja af hverjum þremur kjósendum í Reykjanesbæ ef kosið væri nú. Þetta eru niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir NFS. Innlent 9.5.2006 19:15
Borgarafundur í Reykjanesbæ Oddvitar framboðanna í Reykjanesbæ verða fyrir svörum á borgarafundi NFS í kvöld. Á borgarafundinum verður farið yfir stefnumál framboðanna, litið á aðstæður í Reykjanesbæ og niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar birtar. Innlent 9.5.2006 15:09