Viðreisn
1 2 3 4 5 6 … 38 ›
Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra segjast spenntar takast á við verkefnum nýrrar ráðuneyta. Áherslumál þeirra eru til dæmis að efla læsi, íslenskukennslu fyrir innflytjendur og löggæslu. Þær segja það hafa verið rætt sérstaklega í ríkisstjórn að efla samvinnu og finna sameiginlega snertifleti. Innlent 23.12.2024 09:02
Ný ríkisstjórn fundar í dag Ný ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur mun í dag eiga sinn fyrsta formlega fund sem ríkisstjórn. Fundurinn hefst klukkan 9.30 og verður á Hverfisgötu þar sem ríkisstjórnin hefur átt sína reglulegu fundi síðustu vikur. Innlent 23.12.2024 07:39
Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Ellefu ráðherrar tóku við lyklum að ráðuneytum sínum í dag. Það var gert ýmist með handaböndum eða faðmlögum. Í dag tók daginn að lengja á nýjan leik sem segja má að sé merki um nýtt upphaf þegar ráðherrar tóku við lyklum. Innlent 23.12.2024 00:30
Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn Það kemur á óvart að stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar sé ekki meira afgerandi um aðgerðir í velferðarmálum miðað við þær áherslur sem flokkarnir héldu á lofti fyrir kosningar. Tvö risavaxin mál er hins vegar að finna í sáttmálanum, annars vegar um auðlindir og hins vegar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Innlent 22.12.2024 21:47
Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður Flokks fólksins, segir fyrirhugaðar breytingar á lögum og reglum um strandveiðar fela í sér margt annað en að auka kvóta. Hún átti í snörpum orðaskiptum við þáttarstjórnanda á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun varðandi áform ríkisstjórnarinnar í strandveiðum. Forsætisráðherra viðurkennir að margt sé ekki að fullu útfært í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og gefur ekki upp hversu mikil boðuð hækkun auðlindagjalda eigi að vera. Innlent 22.12.2024 19:08
„Þannig að jólin komu snemma hjá mér“ Ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar fengu lyklana að ráðuneytum sínum afhenta í dag frá forverum sínum. Mikið var um blendnar tilfinningar og velfarnaðaróskir. Jólin komu snemma hjá Þorbjörgu Sigríði dómsmálaráðherra, Hanna Katrín finnur fyrir mikilli ábyrgð og Ásthildur Lóa ætlar að kenna börnum að lesa. Innlent 22.12.2024 17:00
Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar Það voru upp til hópa auðmjúkir og þakklátir ráðherrar sem formlega tóku sæti í ríkisstjórn á Bessastöðum á vetrarsólstöðum, þremur dögum fyrir jól. Þannig lýsa ráðherrarnir tilfinningunni sjálfir. Tíu af ellefu ráðherrum ríkisstjórnarinnar hafa aldrei setið í ríkisstjórn áður og í fyrsta sinn í lýðveldissögunni eru konur í meirihluta í ríkisstjórn. Kristrún Frostadóttir er jafnframt sú yngsta í sögunni til að gegna embætti forsætisráðherra. Innlent 22.12.2024 00:24
Ný ríkisstjórn Íslands: „Við erum orðnar vinkonur“ Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og Inga Sæland, félagsmálaráðherra komu syngjandi út af ríkisráðsfundi á Bessastöðum sem lauk á sjötta tímanum í dag. Líkt og kunnugt er var ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins skipuð á fundi ríkisráðs Íslands á Bessastöðum í dag. Þess má geta að Kristrún verður yngsti forsætisráðherra Íslandssögunnar en í stjórninni eru konur einnig í miklum meirihluta en stjórnina skipa sjö konur og fjórir karlar. Innlent 21.12.2024 18:48
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB eigi síðar en 2027 Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins stendur að þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu fari fram eigi síðar en árið 2027. Innlent 21.12.2024 15:53
Ætla að fjölga lögreglumönnum verulega Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins ætlar að fjölga lögreglumönnum og það verulega. Þannig á að auka öryggi almennings, samkvæmt stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Innlent 21.12.2024 14:53
Þetta eru ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar Formenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins kynntu stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar sinnar og ráðherraskipan á blaðamannafundi í Hafnarborg eftir hádegi. Innlent 21.12.2024 14:00
Allir punktar stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar var kynnt á blaðamannafundi í Hafnarhúsinu í Hafnarfirði í dag. Hún inniheldur helstu áhersluatriði ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, sem talin eru fram í 23 punktum. Innlent 21.12.2024 13:42
Full tilhlökkunar að taka við nýju ráðuneyti Hanna Katrín Friðriksson mun taka við nýju atvinnuvegaráðuneyti, sem verður nýtt og sameinað ráðuneyti um landbúnað, sjávarútveg, iðnað og fleira. Hanna segir ljóst að ráðuneytið sé risastórt og mikilvægið gríðarlegt. Innlent 21.12.2024 12:12
„Það verður unnið fyrir heimilin í landinu“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir að dagurinn verði góður og farsæll fyrir íslensku þjóðina. Djúpt og ríkt traust ríkti milli hennar Kristrúnar Frostadóttur og Ingu Sæland. Innlent 21.12.2024 11:58
„Ég held að þetta sé góður dagur fyrir þjóðina“ Daði Már Kristófersson varaformaður Viðreisnar verður fjármála- og efnahagsráðherra utanþings í nýrri ríkisstjórn Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins. Daði Már er prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Innlent 21.12.2024 10:27
Vaktin: Ný ríkisstjórn kynnt fyrir landanum Ný ríkisstjórn Flokks fólksins, Samfylkingarinnar og Viðreisnar var kynnt Íslendingum í dag. Þá kynntu valkyrjurnar svokölluðu; Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir stjórnarsáttmála þeirra og ráðherra. Innlent 21.12.2024 08:29
Ríkisstjórn sem þarfnist mikillar samhæfingar milli formannanna Prófessor í stjórnmálafræði segir líklegt að helstu áherslumál nýrrar ríkisstjórnar verði tiltekt í ríkisfjármálum og staða þeirra sem höllum fæti standa. Mönnun í einstaka ráðherrastóla skipti minna máli. Innlent 20.12.2024 18:46
„Nokkuð þægilegt samtal um hver fái hvað“ Almannatengill telur víst að Kristrún Frostadóttir verði næsti forsætisráðherra landins og Viðreisn fái fjármálaráðuneyti og utanríkisráðuneyti. Boðað hefur verið til blaðamannafundar í Hafnarborg í Hafnarfirði klukkan eitt á morgun þar sem stjórnarsáttmáli og ráðherraskipan verður tilkynnt. Innlent 20.12.2024 12:32
Kynna ráðherraskipan í Hafnarborg Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hafa boðað til fréttamannafundar klukkan eitt á á morgun, laugardaginn 21. desember, í Hafnarborg í Hafnarfirði. Innlent 20.12.2024 11:42
Viðreisn fær utanríkis- og fjármálaráðuneytið Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar verður forsætisráðherra í þeirri ríkisstjórn sem brátt verður kynnt til sögunnar. Innlent 20.12.2024 09:45
Kristrún sögð verða forsætisráðherra í nýrri stjórn Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, er sögð verða forsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Innlent 20.12.2024 06:29
Þjóðin fær nýja ríkisstjórn í jólagjöf Formenn Flokks fólksins, Samfylkingarinnar og Viðreisnar stefna að því að kynna stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar um helgina. Þá hefur skipting ráðuneyta sömuleiðis verið rædd. Innlent 19.12.2024 17:50
Bein útsending: Nýjustu tíðindi af viðræðunum Formenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins munu kynna nýjan stjórnarsáttmála um helgina. Hann verður kynntur þingflokkum á morgun. Formennirnir þrír áætla að ein þeirra fari svo á fund forseta í kjölfarið til að staðfesta skipan ráðuneyta og þannig verði búið að mynda nýja ríkisstjórn um helgina. Innlent 19.12.2024 16:23
Mögulega tíðindi fyrir jól Stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins halda áfram í dag. Mögulega er búist við að formenn flokkanna kynni stjórnarsáttmála fyrir jól, jafnvel strax á laugardag. Innlent 19.12.2024 09:59
Langflestir vilja ríkisstjórnina sem samið er um Ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er það sem langflestir svarendur í þjóðarpúlsi Gallups segjast vilja sjá. Meirihluti svarenda er sáttur við úrslit alþingiskosninganna í síðasta mánuði. Innlent 19.12.2024 09:42
Sterkt samband formanna gott veganesti Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins halda eftir hádegi áfram vinnu við að skrifa stjórnarsáttmála flokkanna. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segist enn bjartsýn á að það takist að mynda nýja ríkisstjórn fyrir áramótin. Innlent 18.12.2024 11:40
Vinna við skrif stjórnarsáttmála hafin Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins vinna nú að því að skrifa nýjan stjórnarsáttmála ríkisstjórnar. Innlent 17.12.2024 10:31
Funduðu ekki um helgina eins og til stóð Formenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins funduðu ekki um helginu um stjórnarmyndun eins og til stóð. Þess í stað fóru þeir yfir stöðu mála hver í sínu lagi. Áfram verður fundað í dag. Innlent 16.12.2024 06:33
Virðast hafa leyst úr ágreiningi Viðreisnar og Flokks fólksins Stjórnmálafræðingur segir ljóst að valkyrjurnar svokölluðu hafi leyst stór ágreiningsmál á síðustu dögum. Þær séu staðráðnar í að mynda ríkisstjórn og aðrir flokkar hafi sætt sig við það. Innlent 14.12.2024 12:07
Svara Bjarna fullum hálsi: „Hann myndi vita það best hvernig hann er að skilja við ríkissjóð“ „Ég myndi vísa þessu á Bjarna Benediktsson, hann myndi vita það best hvernig hann er að skilja við ríkissjóð og félagar hans.“ Innlent 13.12.2024 19:13