Íþróttir

Fréttamynd

Ívar, Brynjar og Hermann í byrjunarliðinu

Ívar Ingimarsson er fyrirliði Reading sem mætir Liverpool á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Brynjar Björn Gunnarsson er sömuleiðis í byrjunarliðinu, sem hægri bakvörður, og þá er Hermann Hreiðarsson í vörn Charlton sem tekur á móti Man. City.

Enski boltinn
Fréttamynd

Allir þjálfarar vildu hafa Carragher í sínu liði

Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að Jamie Carragher sé leikmaður sem allir þjálfarar vildu hafa í sínu liði. Benitez hrósar leikmanninum í hástert en hann leikur sinn 300. leik fyrir Liverpool þegar það tekur á móti Reading í dag.

Enski boltinn
Fréttamynd

Hefur rætt við stjórnarformann West Ham

Eggert Magnússon, formaður KSÍ, ræddi við Terry Brown, stjórnarformann West Ham, í gær um hugsanlega yfirtöku fjárfestingarhóps undir hans stjórn á Lundúnarfélaginu. Fundurinn þykir gefa sterkar vísbendingar um að Eggert sé ennþá með í baráttunni um yfirtöku á félaginu.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Er ekki fúll yfir því að sitja á bekknum

Portúgalski markvörðurinn Hilario hjá Chelsea segist reiðubúinn að gefa sæti sitt í byrjunarliði liðsins til Ítalans Carlo Cudicini, sem er orðinn heill heilsu eftir að hafa fengið heilahristing í leik gegn Reading fyrir nokkrum vikum. Chelsea tekur á móti Tottenham á morgun.

Enski boltinn
Fréttamynd

Cassano á að biðjast afsökunar

Predrag Mijatovic, yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid og fyrrum fyrirliði liðsins, telur að Antonio Cassano skuldi þjálfara sínum og samherjum afsökunarbeiðni fyrir hegðan sína eftir að hafa verið skilinn eftir utan leikmannahópsins um síðustu helgi.

Fótbolti
Fréttamynd

Puyol ekki með vegna andláts föður

Carlos Puyol, fyrirliði Barcelona, hefur dregið sig út úr leikmannahópi Barcelona fyrir leikinn gegn Deportivo La Coruna í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld, eftir að faðir hans lést í gær.

Fótbolti
Fréttamynd

Logi og Ásgeir heitir

Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson, landsliðsmenn hjá þýska liðinu Lemgo, fóru fyrir sínu liði í Evrópuleik gegn Maccabi Rishon Le Zion í gærkvöldi og skoruðu báðir sex mörk.

Handbolti
Fréttamynd

Bryant með 23 stig í fyrsta leik

Kobe Bryant skoraði 23 stig í sínum fyrsta leik fyrir LA Lakers á tímabilinu þegar liðið bar sigurorð af Seattle, 118-112. LA Lakers hefur unnið alla þrjá leiki sína það sem af er leiktíð.

Körfubolti
Fréttamynd

Ætlar að taka vel á móti Wenger

Alan Pardew segist ekki hafa neitt á móti Arsene Wenger knattspyrnustjóra Arsenal og segist ætla að taka vel á móti honum þegar Arsenal mætir West Ham á Upton Park um helgina. Pardew gagnrýndi lið Arsenal fyrir að vera með eintóma útlendinga í liðinu á síðustu leiktíð og féllu þessi ummæli í mjög grýttan jarðveg.

Enski boltinn
Fréttamynd

Skallagrímur lagði Fjölni

Skallagrímsmenn úr Borgarnesi gerðu góða ferð í Grafarvoginn í kvöld og unnu 94-80 sigur á Fjölni í úrvalsdeild karla í körfubolta. Hamar/Selfoss lagði Tindastól 82-78 í Hveragerði og nældi þar með í sinn fyrsta sigur í deildinni. Einn leikur var í efstu deild kvenna og þar vann Grindavík auðveldan 80-60 sigur á Breiðablik í Kópavogi.

Körfubolti
Fréttamynd

Redknapp ætlar að versla í janúar

Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, ætlar sér að versla sér varnarmenn til að styrkja hóp sinn í janúar til að koma í veg fyrir meiðslakrísu eins og þá sem hann stendur frammi fyrir skömmu fyrir mikilvægan leik gegn Manchester United um helgina.

Enski boltinn
Fréttamynd

Þór/KA áfrýjar til ÍSÍ

Enn liggur ekki fyrir hvort það verður Þór/KA eða ÍR sem tekur sæti í Landsbankadeild kvenna á næsta tímabili eftir að forráðamenn kvennaliðs Þórs/KA áfrýjuðu í dag niðurstöðu áfrýjunardómstóls KSÍ til áfrýjunardómstóls ÍSÍ, þar sem endanlegrar niðurstöðu er að vænta eftir um það bil 10 daga.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Drogba framlengir við Chelsea

Framherjinn sterki Didier Drogba hefur framlengt samning sinn við Englandsmeistara Chelsea um fjögur ár og er því samningsbundinn félaginu til ársins 2010. Drogba er 28 ára gamall og var keyptur til Chelsea fyrir 24 milljónir punda árið 2004. Hann hefur skorað 10 mörk í 15 leikjum á leiktíðinni.

Enski boltinn
Fréttamynd

San Antonio - Cleveland í beinni á Sýn í kvöld

Leikur San Antonio Spurs og Cleveland Cavaliers verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan eitt eftir miðnætti. Bæði lið hafa spilað einn leik til þessa í deildinni og höfðu þau bæði sigur.

Körfubolti
Fréttamynd

Sigur gegn Portúgal

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik vann í kvöld þriðja leik sinn á æfingamótinu sem haldið er í Hollandi þegar liðið skellti Portúgal 33-26 eftir að hafa verið yfir 16-13 í hálfleik. Þetta var annar sigur íslenska liðsins á mótinu og annar sigur þess í röð eftir tap gegn heimamönnum í fyrsta leiknum.

Handbolti
Fréttamynd

Það er mitt mál hvenær ég hætti

Sir Alex Ferguson lét fjölmiðlamenn heyra það á blaðamannafundi í dag þegar hann var spurður hvort hann ætlaði ekki að fara að hætta störfum í tilefni þess að á mánudag eru 20 ár liðin frá því hann tók við Manchester United.

Enski boltinn
Fréttamynd

"Rasheed reglan" farin að taka sinn toll

Dómurum í NBA deildinni hefur verið gert að vera duglegri við að gefa leikmönnum tæknivillur fyrir að mótmæla dómum með væli eða ýktu látbragði í vetur og eru þessar áherslur strax farnar að setja svip sinn á deildarkeppnina.

Körfubolti
Fréttamynd

Hrósar Alex Ferguson

Roy Keane, fyrrum fyrirliði gullaldarliðs Manchester United og núverandi stjóri Sunderland, segir það ótrúlegt afrek hjá Alex Ferguson að hafa nú verið 20 ár í starfi hjá einu stærsta knattspyrnufélagi heims.

Enski boltinn
Fréttamynd

Savage verður frá í allt að mánuð

Miðjumaðurinn Robbie Savage hjá Blackburn gæti orðið frá keppni í allt að einn mánuð eftir að meiðsli hans á læri tóku sig upp á ný í Evrópuleiknum við Basel í gærkvöld. Savage varð upprunalega fyrir meiðslunum í deildarleik gegn Bolton um daginn.

Enski boltinn
Fréttamynd

Argur yfir að þurfa að sitja á bekknum

Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid segist undrast það að þurfa að húka á varamannabekknum hjá Fabio Capello þjálfara og segist ekki skilja til hvers þjálfarinn ætlist af sér.

Fótbolti
Fréttamynd

Þrír leikir í kvöld

Tveir leikir fara fram í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld. Hamar tekur á móti Tindastóli í Hveragerði og Fjölnir tekur á móti Skallagrími í Grafarvogi. Í kvennaflokki mætast Breiðablik og ÍR í Kópavogi og verður sá leikur sýndur beint á netinu á heimasíðu Blika. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15 í kvöld.

Körfubolti
Fréttamynd

Valur semur við fjóra leikmenn

Valsmenn héldu blaðamannafund í hádeginu þar sem kynntir voru fjórir nýjir leikmenn sem spila munu með liðinu í Landsbankadeildinni næsta sumar. Þetta eru þeir Hafþór Ægir Vilhjálmsson úr ÍA, Daníel Hjaltason úr Víkingi, Jóhann Helgason frá Grindavík og Gunnar Einarsson sem áður lék með KR.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Leikjaálagið er brjálæði

Glenn Roeder og félagar í Newcastle standa nú frammi fyrir því erfiða verkefni að spila þrjá leiki á sex dögum. Roeder segir það brjálæði að leggja þetta á leikmenn sína, en nýtti sér ekki réttinn til að fresta deildarleik við Sheffield United vegna sjónvarpstekna sem félagið fær af leiknum.

Enski boltinn
Fréttamynd

San Antonio lagði Dallas

Tveir leikir voru á dagskrá í NBA deildinni liðna nótt og voru þeir báðir sýndir beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Digital Ísland. San Antonio vann baráttusigur á Dallas í uppgjöri Texasrisanna og LA Clippers vann sigur á Denver þar sem Carmelo Anthony var hent út úr húsi.

Körfubolti
Fréttamynd

Ágætt að það sé skap í mönnum

Tveir leikmenn danska stórliðsins Bröndby lentu í slagsmálum á æfingu liðsins á miðvikudaginn. Með liðinu leikur íslenski framherjinn Hannes Þorsteinn Sigurðsson en gengi liðsins á þessu tímabili hefur ekki verið sem skyldi. Liðið er sem stendur í sjöunda sæti dönsku deildarinnar.

Fótbolti
Fréttamynd

Kia neitaði tilboði Barcelona

Breska blaðið Daily Mail heldur því fram í dag að milljónamæringurinn Kia Joorabchian sem á kaupréttinn á Argentínumanninum Carlos Tevez, hafi hafnað kauptilboði Barcelona í kappann í dag.

Fótbolti