Íþróttir

Fréttamynd

Ronaldo á leið til AC Milan?

Forráðamenn spænska félagsins Real Madrid munu í dag hitta kollega sína hjá AC Milan þar sem rætt verður um hugsanleg kaup ítalska félagsins á brasilíska framherjanum Ronaldo. AC Milan tryggði sér í gærkvöld sæti í riðlakeppni meistaradeildarinnar og eru forráðamenn félagsins nú að leitast við að styrkja leikmannahóp sinn.

Fótbolti
Fréttamynd

Gunnar Heiðar minnir á sig

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði þrennu fyrir þýska úrvalsdeildarliðið Hannover í gærkvöldi þegar það burstaði lið Luneburg 7-0 í æfingaleik. Gunnar Heiðar hefur enn ekki fengið tækifæri með liðinu í úrvalsdeildinni, en Hannover er í neðsta sæti deildarinnar eftir tvær umferðir.

Fótbolti
Fréttamynd

Vona að FH misstígi sig enn frekar

Baldur Sigurðsson er leikmaður 14. umferðar landsbankadeildar karla að mati Fréttablaðsins. Hann skoraði bæði mörk Keflavíkur í 2-1 sigri á Íslandsmeisturum FH og verið öflugur með liðinu í allt sumar.

Sport
Fréttamynd

Malbranque til West Ham?

Breska sjónvarpið telur sig hafa heimildir fyrir því að enska úrvalsdeildarfélagið West Ham muni reyna að fá til sín franska miðjumanninn Steed Malbranque frá Fulham áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðarmótin. Malbranque hefur verið settur út í kuldann hjá Fulham og hefur Chris Coleman knattspyrnustjóri þegar lýsti því yfir að hann muni aldrei aftur spila leik fyrir félagið.

Sport
Fréttamynd

Gatlin í átta ára keppnisbann

Ferill bandaríska spretthlauparans Justin Gatlin er líklega á enda runninn eftir að hinn 24 ára gamli heims- og Ólympíumeistari og heimsmethafi í 100 metra hlaupi var í kvöld dæmdur í 8 ára keppnisbann fyrir að hafa í apríl fallið á lyfjaprófi í annað sinn á ferlinum. Hann hefur verið sviptur heimsmeti sínu í 100 metra hlaupi sem hann átti ásamt Asafa Powell.

Sport
Fréttamynd

Maccabi er hörkulið

Peter Crouch, hinn leggjalangi markaskorari Liverpool, sagði að leikmenn Maccabi Haifa hefðu ekki verið nein lömb að leika sér við eftir að liðin skildu jöfn í síðari leik sínum í forkeppni meistaradeildar Evrópu.

Fótbolti
Fréttamynd

Phillips farinn til West Brom

Enska 1. deildarfélagið West Brom fékk liðsstyrk í dag þegar það keypti fyrrum landsliðsframherjann Kevin Phillips frá Aston Villa á 700 þúsund pund. Villa samþykkti einnig kauptilboð fyrrum félaga Phillips í Sunderland í leikmanninn, en hann kaus að ganga heldur til liðs við West Brom. Phillips er 33 ára gamall og hefur skrifað undir tveggja ára samning.

Sport
Fréttamynd

Auðvelt hjá Tottenham

Tottenham vann í kvöld góðan 2-0 sigur á nýliðum Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Dimitar Berbatov opnaði markareikning sinn fyrir Lundúnaliðið á 7. mínútu og Jermaine Jenas bætti við öðru markinu 10 mínútum síðar. Tottenham réði ferðinni lengst af en náði ekki að bæta við mörkum. Watford og West Ham skildu jöfn 1-1 með mörkum frá Marlon King og Bobby Zamora.

Sport
Fréttamynd

Naumt hjá Liverpool

Liverpool er komið í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu eftir 1-1 jafntefli við ísraelska liðið Maccabi Haifa á hlutlausum velli í Kænugarði í kvöld. Liverpool vann því samanlagt 3-2. Peter Crouch kom enska liðinu yfir á 54 mínútu með góðum skalla en ísraelska liðið svaraði aðeins örfáum mínútum síðar. Lengra komust Maccabi-menn þó ekki og Liverpool slapp með skrekkinn.

Fótbolti
Fréttamynd

Tottenham yfir gegn Sheffield United

Leikmenn Tottenham Hotspur eru að eiga nokkuð náðugan dag gegn Sheffield United í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni og hafa yfir 2-0 í leikhléi. Dimitar Berbatov skoraði sitt fyrsta mark fyrir Tottenham á 7. mínútu og Jermaine Jenas bætti öðru við aðeins 10 mínútum síðar. Robbie Keane átti stóran þátt í báðum mörkunum og nýliðarnir frá Sheffield virðast fá svör eiga við leik Lundúnaliðsins.

Sport
Fréttamynd

Crouch kemur Liverpool yfir

Peter Crouch hefur komið Liverpool yfir 1-0 gegn Maccabi Haifa í leik liðanna í Kænugarði, en hann skoraði með skalla á 54. mínútu eftir laglegan undirbúning frá Jermain Pennant. Liverpool er því komið í 3-1 samanlagt í einvígi liðanna og ætti að vera komið með annan fótinn áfram. Hægt er að fylgjast vel með stöðu mála í leikjum kvöldsins á úrslitaþjónustunni hér á Vísi.

Fótbolti
Fréttamynd

Jafnt í hálfleik í Kænugarði

Staðan í leik Maccabi Haifa og Liverpool er 0-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í forkeppni meistaradeildarinnar í Kænugarði. Þá hefur spænska liðið Osasuna yfir 1-0 gegn þýska liðinu Hamburger SV í sömu keppni og AC Milan náði forystunni snemma á útivelli gegn Rauðu Stjörnunni frá Belgrad.

Fótbolti
Fréttamynd

Reyes fer ekki til Real Madrid

Arsene Wenger segir að ekkert verði af því fyrir lokun félagaskiptagluggans að Jose Antonio Reyes fari til Real Madrid eins og mikið hefur verið rætt um í fjölmiðlum undanfarnar vikur. Wenger segir að engin tilboð hafi borist frá spænska félaginu og því sé leikmaðurinn ekki að fara neitt.

Fótbolti
Fréttamynd

Breiðablik mætir Val í úrslitum

Það verða bikarmeistarar Breiðabliks sem mæta Val í úrslitum Visabikarsins í knattspyrnu eftir að liðið vann 2-0 sigur á Fjölni á heimavelli sínum í Kópavogi í kvöld. Áður höfðu Valsstúlkur lagt Stjörnuna 2-1 og það verður því sannkallaður draumaúrslitaleikur í kvennaflokki í ár. Erna B. Sigurðardóttir og Edda Garðarsdóttir skoruðu mörk Blika í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Valur í úrslitaleikinn

Valsstúlkur tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleik Visabikarsins í knattspyrnu þegar þær lögðu Stjörnuna 2-1 í undanúrslitaleik á Valbjarnarvelli. Björk Gunnarsdóttir kom gestunum yfir í upphafi síðari hálfleiks, en þær Katrín Jónsdóttir og Rakel Logadóttur tryggðu Val sigurinn með mörkum um miðjan hálfleikinn.

Sport
Fréttamynd

Gerrard á bekknum hjá Liverpool

Leikur Maccabi Haifa og Liverpool í forkeppni meistaradeildar Evrópu hefst nú klukkan 18:30 og verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Steven Gerrard er á varamannabekknum hjá Liverpool í Kænugarði.

Fótbolti
Fréttamynd

PSV samþykkir tilboð Blackburn í Ooijer

Hollenska knattspyrnufélagið PSV Eindhoven hefur samþykkt kauptilboð enska úrvalsdeildarfélagsins Blackburn í hollenska landsliðsmanninn Andre Ooijer. Hann er 32 ára gamall og kaupverðið er sagt í kring um 2,1 milljón punda. Ooijer mun væntanlega skrifa undir tveggja ára samning við enska félagið fljótlega.

Sport
Fréttamynd

Boumsong til Juventus

Franski landsliðsmaðurinn Jean Alain Boumsong hefur gengið frá samningi við ítalska liðið Juventus. Newcastle er talið hafa fengið um 3,3 milljónir punda fyrir hinn 26 ára gamla miðvörð, sem aldrei náði sér á strik í ensku úrvalsdeildinni.

Fótbolti
Fréttamynd

Leikur Vals og Stjörnunnar að hefjast

Leikur Vals og Stjörnunnar í undanúrslitum Visa-bikarsins í kvennaflokki er nú hafinn á Valbjarnarvelli og klukkan 17:30 hefst hin undanúrslitaviðureignin, en þar eigast við Breiðablik og toppliðið í fyrstu deild, Fjölnir.

Sport
Fréttamynd

Stjarnan fer til Króatíu

Í dag var dregið íum hvaða lið mætast í fyrstu umferðum Evrópukeppni félagsliða og bikarhafa í handbolta. Bikarmeistarar Stjörnunnar mæta Agram Medvescak frá Zagreb í annari umferð Evrópukeppni bikarhafa og Haukar úr Hafnarfirði mæta annað hvort rúmenska liðinu HCM Constanta eða ítalska liðinu Conversano. Fyrri leikir íslensku liðanna fara fram ytra um mánaðarmótin september/október.

Sport
Fréttamynd

Enska knattspyrnusambandið kærir Fulham

Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham hefur fengið á sig kæru frá enska knattspyrnusambandinu fyrir að hafa ekki hemil á stuðningsmönnum sínum í sigurleiknum gegn Chelsea á Craven Cottage þann 19. mars síðastliðinn. Mikill hiti var í leikmönnum í viðureign liðanna og sömu sögu var að segja eftir að flautað var af, því þá ruddust stuðningsmenn beggja liða inn á völlinn. Fulham fær frest til 5. september til að svara fyrir sig í málinu.

Sport
Fréttamynd

Smith í góðu formi í gær

Framherjinn Alan Smith spilaði 66 mínútur með varaliði Manchester United í gær þegar það burstaði Preston 7-2. Smith sagðist allur vera koma til eftir leikinn og ætlar að spila einn eða tvo varaliðsleiki í viðbót áður en hann snýr aftur í aðalliðiði. Talið er að Smith gæti jafnvel komið inn í leikmannahóp United fyrir leikinn gegn Tottenham þann 9. september, en aðeins 185 dagar eru síðan hann fótbrotnaði mjög illa í leik gegn Liverpool.

Sport
Fréttamynd

Ítalir, Grikkir og Tyrkir áfram

Ítalir, Grikkir og Tyrkir tryggðu sér í dag sæti í 16-liða úrslitunum á HM í körfubolta sem fram fer í Japan. Áður höfðu Bandaríkjamenn tryggt sæti sitt þar, en öll fjögur liðin hafa unnið sigra í þremur fyrstu leikjum sínum á mótinu.

Körfubolti
Fréttamynd

Phillips á förum frá Villa

Fyrrum landsliðsmaðurinn Kevin Phillips er á förum frá enska úrvalsdeildarfélaginu Aston Villa, en félagið hefur samþykkti kauptilboð frá 1. deildarfélögunum Sunderland og West Brom í framherjann. Phillips lék á sínum tíma með Sunderland, en Bryan Robson segist viss um að hann geti sannfært hann um að ganga í raðir West Brom.

Sport
Fréttamynd

Maccabi - Liverpool í beinni á Sýn í kvöld

Síðari leikur Maccabi Haifa og Liverpool í forkeppni meistaradeildar Evrópu verður sýndur beint á Sýn í kvöld klukkan 18:25. Leikurinn verður spilaður í Kænugarði í Úkraínu vegna eldfims ástands sem ríkir í Ísrael þessa dagana, en enska liðið hefur nauma 2-1 forystu eftir fyrri leikinn og þarf því að halda vel á spöðunum í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Todd fer ekki í leikbann

Varnarmaðurinn Andy Todd fer ekki í leikbann með liði sínu Blackburn í ensku úrvalsdeildinni eftir að hann fékk rauða spjaldið sem hann fékk gegn Portsmouth um helgina dregið til baka eftir áfrýjun. Todd var sendur af velli fyrir að hafa brotið á framherjanum Kanu hjá Portsmouth, en dómurinn þótti afar strangur. Ástralski landsliðsmaðurinn Lucas Neill fékk einnig að líta rauða spjaldið fyrir brot á Kanu í sama leik.

Sport
Fréttamynd

Bayern hótar að kæra Man Utd

Forráðamenn Þýskalandsmeistara Bayern Munchen hafa nú fengið sig fullsadda af sápuóperunni í kring um enska landsliðsmanninn Owen Hargreaves og hafa nú hótað að kæra Manchester United til FIFA ef félagið hættir ekki að lýsa yfir áhuga sínum á að kaupa leikmanninn. Hargreaves er samningsbundinn Bayern til ársins 2010.

Sport
Fréttamynd

Wenger hefur gert tilboð í Gallas

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að hann sé búinn að gera tilboð í franska varnarmanninn William Gallas hjá Chelsea, en segir engan botn vera kominn í mál Ashley Cole. Wenger segir jafn líklegt að hann verði áfram í herbúðum Arsenal eins og hann fari til Chelsea.

Sport
Fréttamynd

Inter samþykkir tilboð Newcastle

Ítölsku meistararnir Inter Milano hafa samþykkt 10 milljón punda tilboð enska úrvalsdeildarfélagsins Newcastle í sóknarmanninn Obafemi Martins og að sögn stjórnarformanns Newcastle er það nú alfarið í höndum hins 21 árs gamla framherja að klára að semja um kaup og kjör svo af félagaskiptum hans geti orðið.

Sport
Fréttamynd

Auðvelt hjá Bandaríkjamönnum

Bandaríkjamenn tryggðu sér í dag sæti í 16-liða úrslitunum á HM í körfubolta þegar þeir lögðu Slóvena nokkuð örugglega í Sapporo 114-95. Sigur Bandaríkjamanna var aldrei í hættu í dag en á morgun mætir liðið sterku liði Ítala sem er taplaust í keppninni til þessa. Dwyane Wade var stigahæstur Bandaríkjamanna með 20 stig, LeBron James skoraði 19 stig og Elton Brand skoraði 16 stig.

Körfubolti