Íþróttir

Fréttamynd

Fylkir minnkar muninn

Sævar Þór Gíslason er búinn að minnka muninn í 2-1 fyrir Fylki gegn Skagamönnum í leik liðanna í Landsbankadeildinni. Sævar Þór kom inná sem varamaður fyrir Christian Christiansen í fyrri hálfleik og hefur náð að setja svip sinn á leikinn. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Við spiluðum eins vel og ég þorði að vona

Jose Mourinho var mjög ánægður með frammistöðu sinna manna í Chelsea í dag eftir að liðið vann nokkuð öruggan 3-0 sigur á Manchester City. Hann segir sína menn hafa spilað eins vel og hann þorði að vona fyrir leikinn.

Sport
Fréttamynd

Skagamenn komnir í 2-0

Skagamenn eru komnir í 2-0 gegn Fylki í Árbænum í leik liðanna í Landsbankadeildinni. Bjarni Eggerts Guðjónsson skoraði annað mark Skagamanna beint úr aukaspyrnu á 32. mínútu með einstaklega glæsilegum hætti og kemur gestunum í góða stöðu. Áður hafði Guðjón Sveinsson komið Skagamönnum í 1-0. Leikurinn er sýndur beint á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Skagamenn komnir yfir

Það tók Skagamenn aðeins um 6 mínútur að ná forystunni gegn Fylki í sjónvarpsleiknum á Sýn, en þar var að verki Guðjón Heiðar Sveinsson sem skoraði eftir snarpa sókn gestanna. Hægt er að fylgjast með gangi mála í leiknum á Boltavaktinni hér á Vísi.

Sport
Fréttamynd

Leikur Fylkis og ÍA að hefjast í beinni á Sýn

Fyrsti leikurinn af fimm í Landsbankadeild karla í knattspyrnu er nú að hefjast, en það er viðureign Fylkis og ÍA í Árbænum. Skagamenn þurfa nauðsynlega á sigri að halda í dag, enda liðið í bullandi fallbaráttu. Leikurinn er sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn.

Sport
Fréttamynd

Auðvelt hjá meisturunum

Englandsmeistarar Chelsea hefja titilvörnina með stæl í ensku úrvalsdeidinni og í dag vann liðið auðveldan sigur á Manchester City 3-0 á Stamford Bridge. John Terry og Frank Lampard komu Chelsea í 2-0 í fyrri hálfleik og Didier Drogba bætti því þriðja við á 78 mínútu með glæsilegum skalla. Bernardo Corradi fékk að líta rauða spjaldið hjá City á 63. mínútu.

Sport
Fréttamynd

Diarra gerir fimm ára samning við Real

Real Madrid hefur gert fimm ára samning við Malímanninn Mahamadou Diarra sem kemur frá frönsku meisturunum Lyon. Diarra verður formlega kynntur til leiks sem nýr leikmaður Real eftir helgina, en á að vísu eftir að standast læknisskoðun hjá spænska félaginu.

Fótbolti
Fréttamynd

Meistararnir í góðum málum

Englandsmeistarar Chelsea byrja titilvörnina með ágætum, en liðið hefur örugga 2-0 forystu þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign þeirra við Manchester City á Stamford Bridge. Það var varnarjaxlinn John Terry sem opnaði markareikninginn á 11. mínútu og félagi hans í enska landsliðinu, Frank Lampard, bætti við öðru marki á 25. mínútu þegar skot hans hrökk af varnarmanni og í netið.

Sport
Fréttamynd

Riise og Carragher verða frá í 2-3 vikur

Forráðamenn Liverpool hafa staðfest að varnarmennirnir Jamie Carragher og John Arne Riise verði báðir frá æfingum í 2-3 vikur eftir að þeir þurftu báðir að yfirgefa völlinn meiddir í leiknum gegn Sheffield United í gær. Þetta þýðir að bikarmeistararnir verða án krafta þeirra í Evrópuleiknum gegn Maccabi Haifa í Kænugarði á þriðjudaginn.

Sport
Fréttamynd

Mótmælir leikbanni sínu harðlega

Wayne Rooney, leikmaður Manchester United, er sagður hafa skrifað enska knattspyrnusambandinu harðort bréf þar sem hann hótar að draga úr kynningarstörfum sínum fyrir sambandið til að mótmæla þriggja leikja banninu sem hann var settur í á dögunum fyrir að fá rautt spjald í æfingaleik.

Sport
Fréttamynd

Leikur Chelsea og Man City að hefjast

Englandsmeistarar Chelsea hefja titilvörnina á heimavelli sínum gegn Manchester City nú klukkan 15. Michael Ballack er ekki í byrjunarliði Chelsea, en hann á við meiðsli að stríða. Úkraínski framherjinn Andriy Shevchenko er í fremstu víglínu hjá Englandsmeisturunum.

Sport
Fréttamynd

Barcelona - Espanyol í beinni í kvöld

Síðari leikur Barcelona og Espanyol í meistarakeppninni á Spáni verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn Extra í kvöld. Þetta er síðari leikur liðanna, en Barcelona vann þann fyrri 1-0 á útivelli. Eiður Smári Guðjohnsen er í leikmannahópi Börsunga í kvöld og fær vonandi að spreyta sig í fyrsta alvöru leik sínum með liðinu. Útsending á Sýn Extra hefst klukkan 19:55.

Fótbolti
Fréttamynd

Frábær byrjun hjá Manchester United

Manchester United byrjar leiktíðina með tilþrifum í ensku úrvalsdeildinni, en í dag vann liðið 5-1 stórsigur á Heiðari Helgusyni og félögum í Fulham á Old Trafford í Manchester. Wayne Rooney skoraði tvö mörk, Cristiano Ronaldo og Louis Saha eitt hvor og eitt markið var sjálfsmark. Það var okkar maður Heiðar sem minnkaði muninn fyrir Fulham eftir að skot hans hrökk af Rio Ferdinand og í netið.

Sport
Fréttamynd

Öruggt hjá Bandaríkjamönnum

Bandaríkjamenn unnu auðveldan sigur á Kínverjum 121-90 í öðrum leik sínum á HM í körfubolta sem fram fer í Japan um þessar mundir. Dwyane Wade skoraði 26 stig fyrir bandaríska liðið og þeir Carmelo Anthony og Dwight Howard skoruðu 16 hvor. Yao Ming skoraði 21 stig fyrir Kínverja, sem hafa tapað báðum leikjum sínum illa á mótinu.

Körfubolti
Fréttamynd

Grönholm sigraði

Heimamaðurinn Marcus Grönholm á Ford vann í dag öruggan sigur í Finnlandsrallinu. Grönholm hefur verið nær ósigrandi í þessari keppni undanfarin ár og kom í mark rúmri mínútu á undan heimsmeistaranum Sebastien Loeb frá Frakklandi sem ekur á Citroen. Mikko Hirvonen á Ford, sem einnig er heimamaður, varð þriðji. Sebastien Loeb hefur þó þægilegt forskot í stigakeppninni til heimsmeistara.

Sport
Fréttamynd

Þarf í aðgerð vegna heilaæxlis

Gamla brýnið Sir Bobby Robson þarf að gangast undir aðgerð á næstunni eftir að lítið æxli fannst við heila hans. Þetta er í þriðja sinn sem Robson þarf í aðger vegna krabbameins, en hann segir þessa aðgerð vera nokkuð saklausa því æxlið sé ekki á hættulegum stað og segir lækna tjá sér að lítil hætta sé á ferðum í aðgerðinni.

Sport
Fréttamynd

Lampard vill ljúka ferlinum hjá Chelsea

Miðjumaðurinn Frank Lampard hjá Chelsea segist vilja ljúka ferlinum hjá félaginu og segist ekki hafa áhuga á að fara til Spánar eins og er. Lampard er 28 ára gamall og á þrjú ár eftir af fimm ára samningi sem hann skrifaði undir hjá Chelsea árið 2004.

Sport
Fréttamynd

Heiðar minnkar muninn fyrir Fulham

Heiðar Helguson hefur minnkað muninn í 4-1 fyrir Fulham gegn Manchester United á Old Trafford. Skot Heiðars hrökk af Rio Ferdinand varnarmanni United og fram hjá Edwin van der Sar í markinu. Þetta er því annað árið í röð sem Heiðar skorar á Old Trafford.

Sport
Fréttamynd

Heiðar í byrjunarliði Fulham

Fyrri leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni er nú hafinn og er þar á ferðinni leikur Manchester United og Fulham. Skemmst er frá því að segja að United liðið er að valta yfir Lundúnaliðið og var staðan orðin 4-0 eftir aðeins 19 mínútur. Louis Saha, Wayne Rooney og Ronaldo hafa skorað mörk United og eitt þeirra var sjálfsmark. Heiðar Helguson er í liði Fulham en fær úr litlu að moða vegna stórsóknar heimamanna.

Sport
Fréttamynd

Kallar Eið Smára "Blondie"

Samuel Eto`o, sóknarmaður Barcelona og Kamerún, hefur tekið upp gælunafnið ¿Blondie¿ (Ljóska) á Eið Smára Guðjohnsen, félaga sinn í framlínu spænska stórliðsins. Eto"o greindi frá þessu í samtali við spænska vefmiðil þegar hann var spurður út í nýjustu liðsmenn félagsins, þá Eið Smára, Lilian Thuram og Gianluca Zambrotta.

Fótbolti
Fréttamynd

Ginobili tryggði heimsmeisturunum sigur

Bakvörðurinn snjalli Manu Ginobili var maðurinn á bak við sigur heimsmeistara Argentínu á Frökkum 80-70 í opnunarleik liðanna á HM sem fram fer í Japan. Ginobili skoraði 25 stig fyrir lið Argentínu og Andres Nocioni skoraði 18 stig, en franska liðið var án Tony Parker sem er fingurbrotinn og tekur ekki þátt í mótinu.

Körfubolti
Fréttamynd

Mourning framlengir við Miami

Miðherjinn Alonzo Mourning hefur skrifað undir eins árs samning um að leika með NBA meisturum Miami Heat á næstu leiktíð, en hann tilkynnti fyrir nokkru að hann ætlaði sér að spila eitt ár í viðbót áður en hann leggði skóna á hilluna. Mourning var lykilmaður hjá liði Miami í fyrra þegar hann var varamaður Shaquille O´Neal.

Körfubolti
Fréttamynd

Ánægður með innkomu Theo Walcott

Arsenal varð að láta sér lynda jafntefli í opnunarleik sínum í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið tók á móti Aston Villa á nýja Emirates-vellinum í London og sagði Arsene Wenger leikinn hafa verið dæmigerðan upphafsleik þar sem leikmenn væru ekki komnir að fullu í gang eftir sumarið. Hann var ánægður með táninginn Theo Walcott sem kom inná sem varamaður og átti stóran þátt í jöfnunarmarki Arsenal.

Sport
Fréttamynd

Allt annað að spila fyrir McClaren

Steven Gerrard hefur viðurkennt að hafa öðlast nýtt líf hjá enska landsliðinu eftir að Steve McClaren tók við liðinu af Sven-Göran Eriksson og segir að sér hafi fundist leiðinlegt að spila eftir höfði þess sænska í tíð hans með landsliðinu.

Sport
Fréttamynd

Luke Donald í forystu

Luke Donald er sem stendur í efsta sæti á PGA mótinu í golfi sem stendur yfir í Illinois-fylki í Bandaríkjunum, en þetta er síðasta risamót sumarsins. Donald er á 12 höggum undir pari í þriðju umferð mótsins en þeir Shaun Micheel og Mike Weir koma fast á hæla hans á 11 undir pari. Tiger Woods er í góðri aðstöðu til að hefja atlögu að efstu mönnum eins og hans er von og vísa, en hann er tveimur höggum á eftir þeim á Medinah-vellinum. Sýn er með beinar útsendingar í gangi frá mótinu.

Golf
Fréttamynd

Chelsea spilar leiðinlegan bolta

Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas hjá Arsenal segir að þó hann beri virðingu fyrir sterku liði Englandsmeistara Chelsea, spili það leiðinlega knattspyrnu. Hann segir Arsenal, Barcelona og AC Milan spila skemmtilegustu knattspyrnu allra Evrópuliðanna.

Sport
Fréttamynd

Vissi að við ættum möguleika

Steve Coppell var að vonum ánægður með sína menn í Reading í dag þegar lið hans innbyrti sigur í fyrsta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni gegn Middlesbrough með ótrúlegum hætti. Hann sagði úrslitin mjög mikilvæg fyrir sig og leikmenn sína.

Sport
Fréttamynd

Piltalandsliðið fallið í B-deild

Íslenska piltalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 16 ára og yngri tapaði sjöunda leik sínum í röð í A-deildinni á Evrópumótinu í dag þegar það lá fyrir Portúgölum 84-70. Þetta var sjöundi tapleikur liðsins í sjö leikjum á mótinu og endaði það í neðsta sæti og er fallið í B-deild. Örn Sigurðarson skoraði 20 stig fyrir íslenska liðið.

Körfubolti
Fréttamynd

Auðvelt hjá Bolton

Lærisveinar Sam Allardyce í Bolton byrja leiktíðina í ensku úrvalsdeildinni með tilþrifum, en liðið vann auðveldan sigur á Tottenham 2-0 í lokaleiknum í dag. Kevin Davies og Ivan Campo skoruðu mörk heimamanna gegn lélegum gestunum frá Lundúnum, sem náðu aldrei að ógna þeirri tveggja marka forystu sem Bolton náði á fyrstu 14 mínútum leiksins.

Sport