Íþróttir

Fréttamynd

Ísland yfir gegn Makedónum í hálfleik

Íslenska kvennalandsliðið er yfir 13-11 gegn Makedóníu í hálfleik í landsleik þjóðanna sem fram fer í Laugardalshöll, en keppt er um sæti á EM. Íslenska liðið var nokkuð ryðgað í upphafi, en er nú komið á góðan skrið. Hrafnhildur Skúladóttir er markahæst í íslenska liðinu með sex mörk og Berglind Hansdóttir er búin að verja 14 skot í markinu.

Sport
Fréttamynd

Íslendingar Norðurlandameistarar

Íslenska U-18 landslið karla varð í dag Norðurlandameistari í körfuknattleik eftir öruggan sigur á Svíum í úrslitaleik í dag 82-69. Hörður Sveinsson var stigahæstur í íslenska liðinu í dag með 22 stig og var kjörinn maður mótsins. U-18 ára kvennaliðið hlaut silfurverðlaun eftir tap fyrir Svíum í úrslitaleik og U-16 ára lið karla fékk bronsverðlaun.

Sport
Fréttamynd

Ferguson tekur rétta ákvörðun

Dwight Yorke, fyrrum leikmaður Manchester United, segir að Alex Ferguson muni taka rétta ákvörðun í máli Ruud van Nistelrooy, en hollenski framherjinn hefur verið í ónáð hjá stjóranum að undanförnu. Yorke fór sjálfur frá United á sínum tíma eftir að hafa lent í hundakofanum hjá Ferguson.

Sport
Fréttamynd

Cisse byrjaður að væla á ný

Franski sóknarmaðurinn Djibril Cisse hjá Liverpool er enn og aftur farinn að væla yfir hlutskipti sínu hjá félaginu undir stjórn Rafa Benitez. Nú segist hann ekki njóta trausts knattspyrnustjóra síns og vill því ganga til liðs við manninn sem fékk hann upprunalega til Liverpool fyrir 14 milljónir punda, landa síns Gerard Houllier hjá Frakklandsmeisturum Lyon.

Sport
Fréttamynd

Venables afþakkar starfið hjá Boro

Terry Venables hefur afþakkað tilboð forráðamanna Middlesbrough um að taka við starfi knattspyrnustjóra félagsins af Steve McClaren. Venables er hokinn af reynslu og hefur áður stýrt liði Boro, en hann sagðist ekki treysta sér til að starfa sem stjóri í fullu starfi kominn hátt á sjötugsaldurinn.

Sport
Fréttamynd

Alonso sigraði í Mónakó

Heimsmeistarinn Fernando Alonso sigraði í Mónakókappakstrinum í Formúlu 1 í dag og náði 21 stigs forystu á Michael Schumacher í keppni ökumanna. Schumacher náði fimmta sætinu eftir að hafa ræst síðastur. Juan Pablo Montoya náði öðru sætinu og David Coulthard varð þriðji, en þeir náðu verðlaunasætunum eftir að Kimi Raikkönen og Marc Webber lentu í vandræðum með bíla sína.

Sport
Fréttamynd

Detroit réði ekkert við Shaq og Wade

Shaquille O´Neal og Dwayne Wade fóru illa með varnarmenn Detroit Pistons í nótt þegar Miami náði 2-1 forskoti í einvígi liðanna í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA. Shaq og Wade hittu úr 75% skota sinna og tryggðu Miami öruggan 98-83 sigur á heimavelli. Næsti leikur liðanna fer fram á mánudagskvöld og verður í beinni á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Schumacher sendur aftast í rásröðina

Michael Schumacher hjá Ferrari þarf að ræsa aftastur í rásröðinni í Mónakókappakstrinum á morgun eftir að hann var fundinn sekur um að hafa viljandi reynt að hindra aðra keppendur á lokahringnum í tímatökum í dag. Það verður því heimsmeistarinn Fernando Alonso sem ræsir fyrstur og á um leið mjög góða möguleika á sínum fyrsta sigri á brautinni á ferlinum.

Sport
Fréttamynd

Messi ekki með í opnunarleiknum

Undrabarnið Lionel Messi verður líklega ekki með í opnunarleik Argentínumanna á HM í næsta mánuði, en hann er enn að jafna sig af meiðslum á læri. Hann spilaði 15 mínútur fyrir Argentínu í æfingaleik í heimalandinu á dögunum, en á ekki von á að koma við sögu þegar Argentína mætir Fílabeinsströndinni í opnunarleik sínum í C-riðli á HM.

Sport
Fréttamynd

Sigfús kvaddi heimavöllinn með stæl

Magdeburg komst í kvöld upp að hlið Lemgo í fjórða sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta þegar liðið lagði nýkrýnda meistara Kiel 37-36 í hörkuleik. Sigfús Sigurðsson átti sinn besta leik fyrir Magdeburg í langan tíma og skoraði 6 mörk í sínum síðasta heimaleik fyrir félagið. Tap Kiel kom í veg fyrir að liðið setti stigamet í úrvalsdeildinni.

Sport
Fréttamynd

Huth meiddur

Varnarmaðurinn Robert Huth hjá Chelsea meiddist á ökkla í leik Þjóðverja og Lúxemburg í dag og óttast menn að meiðslin gætu reynst nokkuð alvarleg. Huth verður skoðaður betur af læknum þýska liðsins og fer í myndatöku á morgun. Þýska liðið er með æfingabúðir í Sviss og þar verður skorið úr því hvort Huth verður lengi frá vegna meiðslanna, en Michael Ballack gat heldur ekki leikið í dag vegna ökklameiðsla.

Sport
Fréttamynd

Haukar lögðu Þór

Tveir leikir fóru fram í 1.deild karla í knattspyrnu í dag. Haukar lögðu Þór 1-0 að Ásvöllum í uppgjöri botnliðanna og þá gerðu Leiknir og Víkingur Ólafsvík 3-3 jafntefli í Breiðholtinu. Fram og Fjölnir deila með sér toppsætinu í deildinni að loknum þremur umferðum.

Sport
Fréttamynd

Carlton Cole á leið til Tottenham

Nú er útlit fyrir að framherjinn ungi Carlton Cole hjá Chelsea gangi í raðir grannliðsins Tottenham á næstu dögum, en hann ræddi við forráðamenn liðsins í gær. Cole er á sölulista hjá Chelsea og talið er að Tottenham muni borga um 2 milljónir punda fyrir hann og bjóða honum fjögurra ára samning.

Sport
Fréttamynd

Auðveldur sigur Þjóðverja

Þjóðverjar burstuðu Luxemburg 7-0 í æfingaleik þjóðanna í knattspyrnu í Freiburg í dag, en leikurinn var sá fyrsti af þremur í lokaundirbúningi gestgjafanna á HM í sumar. Lukas Podolski, Miroslav Klose og Oliver Neuville skoruðu tvö mörk hver og Torsten Frings skoraði eitt mark úr vítaspyrnu.

Sport
Fréttamynd

Drykkfeldar mæður stjörnuleikmanna til vandræða

Mæður stjörnuleikmannanna LeBron James hjá Cleveland og Amare Stoudemire hjá Phoenix eru sonum sínum ekki góðar fyrirmyndir, en þær hlutu báðar dóma fyrir óspektir og ölvunarakstur fyrir helgina. Móðir James slapp með sekt og félagsþjónustu, en móðir Stoudemire þarf að dúsa í fangelsi í þrjú ár eftir ítrekaðan ölvunarakstur.

Sport
Fréttamynd

Birgir Leifur í vandræðum í dag

Birgir Leifur Hafþórsson náði sér alls ekki á strik á þriðja degi áskorendamótsins í Marokkó í dag. Birgir lék á fimm höggum yfir pari í dag og er því á fjórum höggum yfir pari samanlagt á mótinu.

Sport
Fréttamynd

Guðjón Valur fór á kostum

Guðjón Valur Sigurðsson fór á kostum og skoraði 10 mörk fyrir lið sitt Gummersbach í dag þegar liðið gerði jafntefli 31-31 við Flensburg. Róbert Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir Gummersbach í leiknum, en liðið er í öðru sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina.

Sport
Fréttamynd

England mætir heimsliðinu

Góðgerðaleikur til styrktar Barnahjálp Sameinuðuþjóðanna verður sýndur í beinni á Sýn klukkan 18:15 í kvöld. Þar mætast úrvalslið Englands og heimsins og í sviðsljósinu verða menn á borð við Maradona, Lothar Matthaus og popparann Robbie Williams.

Sport
Fréttamynd

Samningur Boateng tilbúinn

Enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough bíður nú aðeins eftir því að miðjumaðurinn sterki George Boateng undirriti nýjan samning sem liggur á borðinu fyrir hann. Talið er víst að hinn þrítugi hollenski leikmaður skrifi undir samninginn á næstunni, en núverandi samningur hans rennur út í sumar. Samningaviðræðurnar hafa gengið erfiðlega fram til þessa, en nú vonast félagið til að landa undirskrift hans innan skamms.

Sport
Fréttamynd

Ráðist inn á æfingasvæði Brassa

Fimm stuðningsmenn brasilíska landsliðsins í knattspyrnu ruddust inn á æfingasvæði liðsins þar sem það er við æfingar í Sviss í gær. Þeir voru fljótlega handsamaðir eftir að hafa fengið faðmlag frá stórstjörnunni Ronaldinho, en landsliðsþjálfarinn Parreira hafði daginn áður hrósað stuðningsmönnunum fyrir prúðmannlega framkomu á meðan á æfingum liðsins stóð.

Sport
Fréttamynd

Ungur Belgi á leið til Tottenham

Forráðamenn Tottenham Hotspur eru nú nálægt því að ganga frá kaupum á hinum 18 ára gamla varnarmanni Sven Verdonck frá Genk í Belgíu. Viðræður félaganna hafa staðið yfir í rúman mánuð, en leikmaðurinn hafnaði tækifæri til að fara til Englands fyrir nokkrum mánuðum. Talið er víst að Verdonck muni ganga í raðir Tottenham innan tíðar, en stefna Tottenham hefur verið að sanka að sér ungum og efnilegum leikmönnum.

Sport
Fréttamynd

Morientes semur við Valencia

Spænski framherjinn Fernando Morientes hefur náð samkomulagi um kaup og kjör við forráðamenn Valencia og er því formlega orðinn leikmaður liðsins. Morientes var keyptur frá Liverpool á dögunum og var kaupverðið sagt vera um 3 milljónir punda.

Sport
Fréttamynd

Chelsea í viðræðum við Feyenoord

Englandsmeistarar Chelsea eru nú í viðræðum við hollenska liðið Feyenoord um hugsanleg kaup á hinum tvítuga sóknarmanni Salomon Kalou frá Fílabeinsströndinni. Forráðamenn hollenska liðsins gáfu Chelsea grænt ljós á að ræða við leikmanninn, en nokkuð ku vera í land með að samningar náist milli félaganna um kaup á Kalou.

Sport
Fréttamynd

Umdeildur ráspóll hjá Schumacher

Michael Schumacher varð hlutskarpastur í tímatökum fyrir Mónakókappaksturinn í Formúlu 1 í dag, en sigur hans var mjög umdeildur. Schumacher er sakaður um að hafa viljandi snúið bíl sínum á brautinni í síðasta hringnum til að hindra Fernando Alonso og fleiri sem voru að reyna að bæta tíma hans og rannsókn er hafin á atvikinu.

Sport
Fréttamynd

Dallas jafnaði gegn Phoenix

Dallas Mavericks náði að rétta sinn hlut í öðrum leik úrslitaeinvígis Vesturdeildarinnar í nótt þegar liðið lagði Phoenix Suns 105-98 á heimavelli sínum og hafa liðin því unnið sitt hvorn leikinn í einvíginu. Dirk Nowitzki fór fyrir sínum mönnum á lokasprettinum í nótt, en það var umfram allt bættur varnarleikur heimamanna sem tryggði þeim sigurinn.

Sport
Fréttamynd

Ákveður sig eftir HM

Hinn magnaði framherji Dirk Kuyt gaf það út í dag að hann tæki ákvörðun um framtíð sína ekki fyrr en eftir HM í sumar. Kuyt er mjög eftirsóttur af liðum í ensku úrvalsdeildinni, en hann segist feginn því að vera kominn úr sviðsljósinu og í æfingabúðir hollenska landsliðsins.

Sport
Fréttamynd

Stoudemire fetar í fótspor Bryant

Framherjinn öflugi Amare Stoudemire hjá Phoenix Suns þarf að sætta sig við að sitja á bekknum spariklæddur þegar félagar hans spila í úrslitum Vesturdeildarinnar þessa dagana, en þessi efnilegi leikmaður hefur verið meiddur á hné í allan vetur.

Sport
Fréttamynd

Kelly framlengir

Írski bakvörðurinn Stephen Kelly hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarliðið Tottenham um eitt ár. Kelly lék sinn fyrsta landsleik fyrir Íra fyrir skömmu, en talið var líklegt að hann færi frá félaginu í sumar eftir að samningi hans lyki. Kelly getur spilað báðar bakvarðarstöðurnar á vellinum og hefur staðið sig vel þegar hann hefur fengið tækifæri með aðalliði félagsins.

Sport
Fréttamynd

Kauptilboð Wigan í Robert Huth samþykkt

Fréttavefur BBC greinir frá því nú síðdegis að Englandsmeistarar Chelsea hafi samþykkt 5,5 milljón punda tilboð Wigan í þýska varnarmainninn Robert Huth. Leikmaðurinn er búinn að fá nóg af því að sitja á varamannabekknum hjá Chelsea og vill sjálfur fara til annars liðs á Englandi eða snúa aftur til heimalandsins. Jose Mourinho segir að framtíð hans komist ekki á hreint fyrr en eftir HM í sumar.

Sport
Fréttamynd

Everton hækkar tilboð sitt í Johnson

Everton hefur nú fetað í fótspor Bolton og Wigan með því að leggja fram 8,5 milljón punda kauptilboð í framherjann Andy Johnson hjá Crystal Palace. Tilboð Everton er þó sagt háð frammistöðu leikmannsins að einhverju leiti og því frábrugðið beinum tilboðum Bolton og Wigan, en ljóst er að baráttan um framherjann er að harðna verulega. Forráðamenn Palace hafa enn ekki samþykkt tilboðið, en hafa þegar samþykkt tilboð hinna tveggja liðanna.

Sport