Íþróttir

Fréttamynd

Tekst Boro að vinna upp forskot Basel

Enska úrvalsdeildarliðið Middlesbrough fær það erfiða verkefni í kvöld að vinna upp tveggja marka forskot svissneska liðsis Basel úr fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Steve McClaren er bjartsýnn á að Boro nái að stríða andstæðingum sínum á heimavelli, enda sé pressan öll á gestunum.

Sport
Fréttamynd

Ekki á leið til Villareal

Franski miðjumaðurinn Robert Pires hjá Arsenal hefur alfarið neitað sögusögnum um að hann sé búinn að skrifa undir samning við spænska liðið Villareal, sem einmitt mætir Arsenal í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Pires hefur enn ekki náð samkomulagi við Arsenal um framlengingu á samningi sínum.

Sport
Fréttamynd

United nær okkur ekki

Eiður Smári Guðjohnsen hefur engar áhyggjur af þeirri ógn sem Englandsmeisturum Chelsea stafar af Manchester United í úrvalsdeildinni um þessar mundir, en sigurganga Manchester undanfarið hefur þýtt að bilið milli liðanna hefur minnkað mikið.

Sport
Fréttamynd

Stóri-Sam sektaður

Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton Wanderers, hefur verið sektaður um 2000 pund og ávítaður harðlega af enska knattspyrnusambandinu fyrir ummæli sín í garð Mike Riley dómara eftir leik við Blackburn um miðjan janúar. Riley rak Hidetoshi Nakata af velli með rautt spjald í leiknum og Allardyce fór ekki leynt með skoðanir sínar á dómaranum eftir leikinn. Hann ætlar þó ekki að áfrýja dómi sambandsins.

Sport
Fréttamynd

Reynsluleysi Arsenal segir til sín í undanúrslitunum

Varnarmaðurinnn Rodolfo Arruabarrena hjá Villareal sem skoraði sigurmark liðsins gegn Inter í vikunni, segir að þó Arsenal sé vissulega með hörkulið, muni reynsluleysi ungra leikmanna þess koma til með að segja til sín þegar pressan eykst í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Sport
Fréttamynd

Chicago upp fyrir Philadelphia

Lið Chicago Bulls vann í nótt afar mikilvægan sigur á Philadelphia 76ers 99-92 í NBA deildinni og höfðu liðin því sætaskipti í Austurdeildinni. Chicago hefur verið á góðu róli undanfarið á meðan illa hefur gengið hjá Philadelphia og nú er útlit fyrir að Chicago nái inn í úrslitakeppnina. Allen Iverson skoraði 26 stig fyrir Philadelphia, en Andres Nocioni og Ben Gordon skoruðu 21 stig hvor fyrir Chicago.

Sport
Fréttamynd

Landar 56 milljón punda samningi við AIG

Manchester United hefur undirritað auglýsingasamning við tryggingafélagið AIG (American International Group) og mun félagið bera auglýsingu fyrirtækisins á treyjum sínum á næsta tímabili. Samningurinn hljóðar upp á 56,5 milljónir punda fyrir næstu fjögur ár.

Sport
Fréttamynd

Gummersbach lagði Lubbecke

Fjórir leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Íslendingalið Gummersbach lagði Lubbecke 27-21. Guðjón Valur Sigurðsson og Róbert Gunnarsson skoruðu 5 mörk hvor fyrir heimamenn, en Þórir Ólafsson komst ekki á blað hjá Lubbecke.

Sport
Fréttamynd

Celtic skoskur meistari

Glasgow Celtic tryggði sér í kvöld skoska meistaratitilinn þegar liðið lagði Hearts frá Edinborg 1-0. Afmælisbarnið John Hartson hélt upp á daginn með því að skora eina mark leiksins eftir aðeins þrjár mínútur og því hafa lærisveinar Gordon Strachan endurheimt meistaratitilinn þó enn séu sex umferðir eftir af deildarkeppninni.

Sport
Fréttamynd

Arsenal áfram

Arsenal er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir markalaust jafntefli við Juventus í Tórínó í kvöld. Arsenal vann fyrri leikinn 2-0 á heimavelli sínum og hélt vel aftur af ítalska liðinu í kvöld. Pavel Nedved fékk að líta rauða spjaldið hjá Juventus undir lokin, en heimamenn virkuðu frekar daufir í leiknum og virtust lítinn áhuga hafa á því að komast áfram í keppninni. Arsenal mætir spænska liðinu Villareal í undanúrslitunum.

Sport
Fréttamynd

Barcelona í undanúrslit

Barcelona er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 2-0 sigur á portúgalska liðinu Benfica á heimavelli sínum Nývangi í kvöld. Ronaldinho kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik og það var svo Samuel Eto´o sem tryggði Barcelona sigurinn með marki úr skyndisókn skömmu fyrir leikslok. Barcelona mætir AC Milan í undanúrslitunum.

Sport
Fréttamynd

Stoudemire úr leik

Framherjinn Amare Stoudemire spilar ekki meira með liði Phoenix Suns í vetur eftir að í ljós kom að hann þarf að fara í enn einn hnéuppskurðinn. Í þetta sinn er það þó hægra hnéð og uppskurðurinn minniháttar, en þetta þýðir engu að síður að hann getur ekki spilað með liði sínu í úrslitakeppninni eins og bjartsýnustu menn í herbúðum Phoenix höfðu vonast eftir. Þetta eru skelfileg tíðindi fyrir hinn gríðarlega efnilega Stoudemire, sem nú þarf að bíða fram á næsta haust með að sýna listir sínar á ný í NBA.

Sport
Fréttamynd

Barcelona leiðir í hálfleik

Nú er kominn hálfleikur í leikjunum tveimur sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu. Barcelona hefur enn forystu gegn Benfica 1-0 með marki Ronaldinho, en markalaust er í Tórínó í leik Juventus og Arsenal. Leikirnir eru í beinni útsendingu á Sýn og Sýn Extra.

Sport
Fréttamynd

Barcelona komið yfir

Barcelona er komið yfir gegn Benfica á heimavelli sínum í síðari leik liðanna í Meistaradeild Evrópu. Það var brasilíski snillingurinn Ronaldinho sem skoraði mark Barca á 19. mínútu eftir frábæran undirbúning Samuel Eto´o , en hann misnotaði vítaspyrnu í upphafi leiks.

Sport
Fréttamynd

Þetta var töfrum líkast

Framherjinn Filippo Inzaghi hjá AC Milan segir að sigurinn á Lyon í Meistaradeildinni í gærkvöldi hafi verið töfrum líkastur fyrir sig, en líklega hefur enginn fagnað eins mikið og Inzaghi í gær. Hann skoraði tvö marka Milan í leiknum og markaði þar með endanlega endurkomu sína eftir að hafa barist við erfið meiðsli í tvö ár.

Sport
Fréttamynd

United mun setja mikla pressu á Chelsea

David Beckham, leikmaður Real Madrid og fyrrum leikmaður Manchester United, segir að fyrrum félagar sínir í United muni setja mikla pressu á Chelsea á lokasprettinum í ensku úrvalsdeildinni í vor.

Sport
Fréttamynd

Toyota rekur tæknistjórann

Lið Toyota í Formúlu 1 rak í dag tæknistjóra sinn Mike Gascoyne úr starfi eftir að árangur hans þótti ekki viðeigandi, en eins hafa borist fréttir af stormasömu samstarfi hans við forráðamenn liðsins. Gascoyne var áður hjá liðum Jordan og Renault.

Sport
Fréttamynd

Örn setti Íslandsmet

Sundkappinn Örn Arnarson úr SH setti Íslandsmet í 100 metra flugsundi í nótt á HM í sundi sem fram fer í Kína um þessar mundir, en keppt er í 25 metra laug. Örn synti 100 metrana á 53,17 sekúndum og bætti eigið Íslandsmet um 38/100 úr sekúndu. Tímanum náði hann í undanrásum, en það nægði honum þó ekki til að komast í undanúrslitin.

Sport
Fréttamynd

Federer er í algjörum sérflokki

Fyrrum tennisstjarnan Pete Sampras segist ekki sjá að nokkur tennisleikari í heiminum eigi möguleika á að velta Roger Federer af stalli á næstunni. Federer hefur verið einráður á toppnum síðan Sampras lagði spaðann á hilluna fyrir fjórum árum. "Ég sé engann þarna úti með vopn til að slá honum við og þeir geta ekki annað en reynt að verjast honum, hann stýrir öllum leikjum sem hann tekur þátt í," sagði Sampras.

Sport
Fréttamynd

Verðum að vera óhræddir í Tórínó

Arsene Wenger segist hafa brýnt fyrir sínum mönnum að vera óhræddir við að spila sinn leik í Tórínó í kvöld þegar liðið sækir Juventus heim í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Arsenal vann fyrri leikinn 2-0 og er því í lykilstöðu til að komast í undanúrslitin.

Sport
Fréttamynd

Kvennalandsliðið tapaði fyrir Slóvökum

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði 25-21 fyrir Slóvökum í fyrsta leik sínum á æfingamóti sem fram fer í Tékklandi næstu daga. Auk þess leika Hollendingar og Tyrkir á mótinu, en íslenska liðið mætir Hollendingum á morgun.

Sport
Fréttamynd

Ákvörðun liggur fyrir á næstu tveimur vikum

Umboðsmaður franska miðjumannsins Robert Pires hjá Arsenal segir að það komi væntanlega í ljós á næstu tveimur vikum hvort leikmaðurinn verði áfram í London, en hann er með lausa samninga í sumar. Pires vill vera áfram hjá Arsenal, en heimtar tveggja ára samning á meðan Arsenal býður aðeins eins árs samning fyrir leikmenn á hans aldri.

Sport
Fréttamynd

Nýr samningur í sjónmáli fyrir Andy Cole

Sóknarmaðurinn Andy Cole segir að styttist óðum í að hann undirriti framlengingu á samningi sínum við félagið. Cole er 34 ára gamall og mun ekki leika meira með liði City á þessu tímabili vegna hnéuppskurðar sem hann fór í á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Samningurinn var aldrei einhliða

David Gill segir að Manchester United hafi aldrei samþykkt að ræða einvörðungu við netfyrirtækið Mansion um styrktarsamning með auglýsingum á treyjum félagsins. Forráðamenn Mansion slitu viðræðunum á dögunum þegar í ljós kom að United hafði átt í viðræðum við fleiri styrktaraðila, en Gill segir alltaf hafa legið fyrir að United leitaði til fleiri en eins aðila með það fyrir augum að fá sem bestan samning.

Sport
Fréttamynd

Martin O´Neill á ekki að taka við Englendingum

Bryan Robson er mótfallinn því að Martin O´Neill verði ráðinn landsliðsþjálfari Englands í knattspyrnu, því hann sé ekki enskur. Robson vill að heimamaður fái starfið og bendir á að enskir þjálfarar hafi náð ágætum árangri með liðið í gegn um tíðina.

Sport
Fréttamynd

Samningur Redknapp væntanlega framlengdur

Milan Mandaric stjórnarformaður úrvalsdeildarliðs Portsmouth segir að nýr samningur handa knattspyrnustjóranum Harry Redknapp sé í smíðum, hvort sem liðið falli í fyrstu deild eða haldi sér uppi í vor.

Sport
Fréttamynd

Detroit vann 60. leikinn

Detroit Pistons varð í nótt fyrsta liðið í NBA til að vinna 60 leiki í vetur þegar liðið skellti New Orleans 101-93. Detroit var án Rasheed Wallace í leiknum en hann tók út leikbann fyrir tæknivillur. Detroit hafði fyrir leikinn notað sama byrjunarliðið í 73 fyrstu leikjum vetrarins, sem er met. Antonio McDyess lék vel í fjarveru Wallace og skoraði 26 stig og hirti 14 fráköst, en Chris Paul og David West skoruðu 24 stig hvor fyrir New Orleans.

Sport
Fréttamynd

Töltmót á Hornafirði

Opið töltmót verður haldið á Höfn í Hornafirði þann 22. apríl nk. Það er hestamannafélagið Hornfirðingur sem stendur fyrir mótinu í samstarfi við Sparisjóð Hornafjarðar og nágrennis.

Sport
Fréttamynd

Þór í úrvalsdeild

Körfuknattleikslið Þórs frá Þorlákshöfn vann sér í gærkvöldi sæti í Iceland-Express deildinni á næstu leiktíð þegar liðið bar öðru sinni sigurorð af Breiðablik í umspili um laust sæti á meðal þeirra bestu. Lokatölur í gær urðu 65-60 fyrir gestina úr Þorlákshöfn sem fögnuðu gríðarlega í leikslok.

Sport
Fréttamynd

Utah - San Antonio í beinni

Klukkan tvö í nótt verður leikur Utah Jazz og San Antonio Spurs sýndur í beinni útsendingu á NBA TV-rásinni á Digital Ísland. Lið þessi eru á gjörólíkum stað í töflunni, því meistarar San Antonio eru í efsta sæti Vesturdeildarinnar en Utah á litla möguleika á að komast í úrslitakeppnina.

Sport