Íþróttir

Fréttamynd

San Antonio vann toppslaginn

Meistarar San Antonio Spurs sýndu að þeir eru ekki dauðir úr öllum æðum í nótt þegar liðið skellti heitasta liði deildarinnar Dallas Mavericks í uppgjöri tveggja efstu liða Vesturdeildarinnar 98-89 á heimavelli sínum. Liðin eru nú hnífjöfn á toppi deildarinnar með 45 sigra og 12 töp.

Sport
Fréttamynd

Chicago - Cleveland í beinni

Það má sannarlega búast við skemmtilegum körfubolta í beinni útsendingu á NBA TV í kvöld þegar Chicago Bulls og Cleveland Cavaliers leiða saman hesta sína. Leikmenn Cleveland mæta væntanlega eins og öskrandi ljón til leiks í kvöld, því liðið hefur tapað fimm leikjum í röð. Leikurinn er á besta tíma og hefst klukkan tólf á miðnætti.

Sport
Fréttamynd

Auðveldur sigur Hauka

Haukastúlkur unnu auðveldan sigur á liði KR í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld 102-51 á Ásvöllum. Helena Sverrisdóttir skoraði 23 stig, gaf 8 stoðsendingar og stal 6 boltum fyrir Hauka á aðeins 23 mínútum. Vanja Pericin skoraði 16 stig, hirti 8 fráköst og stal 8 boltum hjá KR.

Sport
Fréttamynd

Grindavík lagði Njarðvík í framlengingu

Grindvíkingar lögðu granna sína úr Njarðvík í rafmögnuðum spennuleik í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld, þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengingu. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var jöfn 100-100, en Grindvíkingar höfðu betur á lokasprettinum og sigruðu 116-112.

Sport
Fréttamynd

Bruce stendur enn með Pennant

Steve Bruce, stjóri Birmingham, segir að þó hann kjósi enn að styðja við bakið á Jermaine Pennant, hafi hann ekki endalausa þolinmæði í garð leikmannsins sem hefur verið duglegur við að koma sér í vandræði.

Sport
Fréttamynd

Neitar ásökunum um kynþáttafordóma

Steve Finnan hjá Liverpool vísar á bug ásökunum á hendur honum eftir leik Liverpool og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á dögunum, þar sem áhorfendur sögðustu hafa heyrt hann hrópa ókvæðisorð af Patrice Evra, leikmanni Manchester United.

Sport
Fréttamynd

Heiðar úr leik á Spáni

Kylfingurinn Heiðar Davíð Bragason komst ekki áfram á Opna spænska áhugamannameistaramótinu í golfi sem nú stendur yfir. Heiðar lék annan hringinn í dag á 74 höggum, en þann fyrri á 79 höggum í gær og lauk því keppni á 9 yfir pari. Heiðar bar sigur úr býtum á þessu móti fyrir tveimur árum, en var ekki jafn heppinn að þessu sinni.

Sport
Fréttamynd

Tiltekt í vændum hjá Real

Fernando Martin, sem á dögunum tók við embætti forseta Real Madrid í kjölfar afsagnar Florentino Perez, segist ekki kæra sig um að vera með lið fullt af milljónamæringum sem ekki leggi sig fram á knattspyrnuvellinum.

Sport
Fréttamynd

Hiddink næsti þjálfari Rússa?

Rússneskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Guus Hiddink, þjálfari PSV Eindhoven og ástralska landsliðsins, muni taka við rússneska landsliðinu eftir HM í sumar. Hiddink hefur meðal annars verið orðaður við stöðu landsliðsþjálfara Englands.

Sport
Fréttamynd

Varar við of mikilli bjartsýni

Steve Staunton byrjaði sannarlega glæsilega með írska landsliðið í gær þegar hans menn burstuðu Svía 3-0 í æfingaleik á Lansdowne Road í gærkvöld. Staunton hvetur alla til að hafa báðar fætur á jörðinni þrátt fyrir sannfærandi sigur sinna manna, en segir leikinn þó gefa fyrirheit um það sem koma skal hjá landsliðinu sem tókst ekki að vinna sér sæti á HM í sumar.

Sport
Fréttamynd

Mamma mía, við erum lélegir

Jurgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Þjóðverja, fær það óþvegið í þýsku pressunni í dag eftir að Þjóðverjar voru teknir í bakaríið á Ítalíu í æfingaleik þjóðanna í gær 4-1. Þýska blaðið Bild birti stóra mynd af Klinsmann undir fyrirsögninni "Mamma, mía, við erum lélegir."

Sport
Fréttamynd

Bridge verður ekki með gegn Arsenal

Forráðamenn Fulham hafa staðfest að varnarmaðurinn Wayne Bridge verði ekki með í næsta leik liðsins gegn Arsenal vegna ökklameiðslanna sem hann hlaut í landsleiknum í gærkvöldi, en þetta á þó ekkert skilt við þau ökklameiðsli sem hann var nýbúinn að jafna sig af þegar hann gekk í raðir liðsins frá Chelsea.

Sport
Fréttamynd

Cole verður frá í minnst þrjár vikur

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að bakvörðurinn Ashley Cole verði frá keppni í að minnsta kosti þrjár vikur vegna ökklameiðslanna sem hann hlaut í leik með varaliði félagsins á dögunum. Þá á hann ekki von á að Sol Campbell snúi aftur til keppni fyrr en í fyrsta lagi í enda mánaðarins, en segir að þeim gangi báðum vel í endurhæfingu sinni.

Sport
Fréttamynd

Logi með stórleik

Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson átti sannkallaðan stórleik í gærkvöldi þegar lið hans Bayreuth bar sigurorð af TSV Tröster 111-105 í framlengdum leik í þýsku 2. deildinni. Logi skoraði 43 stig í leiknum, sem er það mesta sem hann hefur skorað í allan vetur. Hann er nú í hópi stigahæstu manna í deildinni með rúm 18 stig að meðaltali í leik.

Sport
Fréttamynd

Stórleikur í Grindavík

Heil umferð er á dagskrá í Iceland Express deild karla í kvöld og stórleikur kvöldsins er án efa viðureign grannliðanna Grindavíkur og Njarðvíkur í Grindavík. Keflavík og Fjölnir mætast í Keflavík, Snæfell tekur á móti KR, Höttur mætir Skallagrími, ÍR tekur á móti Haukum og Hamar/Selfoss mætir Þór frá Akureyri. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15.

Sport
Fréttamynd

Sheringham nálægt samkomulagi

Alan Pardew, stjóri West Ham, segir að samkomulag sé í sjónmáli um að framlengja samning framherjans Teddy Sheringham hjá félaginu um eitt ár. Sheringham verður fertugur í næsta mánuði, en er enn í fantaformi.

Sport
Fréttamynd

Vonast eftir HM sæti

Miðjumaðurinn Michael Carrick hjá Tottenham segir að galdurinn við frammistöðu sína með enska landsliðinu í gær, þegar hann fékk að spreyta sig í byrjunarliðinu gegn Úrúgvæ, hafi verið að vera eins afslappaður og mögulegt væri. Carrick var nokkuð sáttur við sitt í leiknum og segist vonast til að vinna sér sæti í liði Englendinga á HM.

Sport
Fréttamynd

Iverson skoraði 40 stig

Allen Iverson verður ekki boðið að taka þátt í æfingabúðum þar sem valið verður í landslið Bandaríkjanna fyrir HM og Ólympíuleikana í körfubolta og í gær svaraði hann því á sinn hátt þegar hann skoraði 40 stig og gaf 10 stoðsendingar í sigri Philadelphia á Houston, þrátt fyrir að vera með flensu.

Sport
Fréttamynd

Keane á eftir að verða frábær stjóri

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist viss um að Roy Keane eigi eftir að verða frábær knattspyrnustjóri þegar hann lýkur ferlinum sem leikmaður og segir hann minna sig á sjálfan sig á sama tíma á ferlinum.

Sport
Fréttamynd

Fordæmir kynþáttafordóma

Sepp Blatter, forseti FIFA, segir að 9000 evru sektin sem Real Zaragoza fékk eftir framkomu áhorfenda liðsins í garð Samuel Eto´o um síðustu helgi sé eins og lélegur brandari og vill að mikið þyngri refsing verði tekin upp gegn kynþáttafordómum.

Sport
Fréttamynd

Alfreð laus frá Magdeburg

Alfreð Gíslason, fyrrum þjálfari Magdeburg í Þýskalandi hefur nú fengið sig alfarið lausan undan samningi sínum við félagið og er því frjálst að taka við öðru liði þangað til hann tekur við þjálfun Gummersbach á næsta ári. Því má reikna með að Alfreð gangi til viðræðnaa við forráðamenn íslenska landsliðsins, en vitað er að Alfreð er þar efsti maður á óskalistanum..

Sport
Fréttamynd

Líklega á leið til Chelsea

Umboðsmaður Michael Ballack hjá Bayern Munchen hefur nú viðurkennt að Chelsea sé lang efst á óskalista leikmannsins og líklegasta liðið til að landa honum í sumar. "Við höfum ekki skrifað undir neitt ennþá, en Chelsea er lang líklegast í stöðunni," sagði umboðsmaður Ballack í samtali við BBC í dag.

Sport
Fréttamynd

Ánægður með framlag Cole

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga var yfir sig ánægður með Joe Cole í sigrinum á Úrúgvæ í kvöld og sagði hann hafa borið af öðrum leikmönnum í leiknum. Cole lagði upp jöfnunarmark enska liðsins og skoraði sigurmarkið sjálfur.

Sport
Fréttamynd

Ítalir burstuðu Þjóðverja

Fjöldi æfinga- og vináttulandsleikja fór fram í kvöld og þar bar hæst að Ítalir burstuðu Þjóðverja 4-1, Brasilíumenn unnu Rússa 1-0, Danir lögðu Ísraela 2-0, Króatar lögðu Argentínumenn 3-2, Írar burstuðu Svía 3-0, Portúgalir sigruðu Sáda 3-0, Holland lagði Ekvador 1-0, Slóvakar lögðu Frakka 2-1 og Senegalar lögðu Norðmenn 2-1.

Sport
Fréttamynd

Joe Cole tryggði Englendingum sigur

Joe Cole, leikmaður Chelsea, var maðurinn á bak við sigur Englendinga á Úrúgvæ í æfingaleik þjóðanna á Anfield í kvöld. Eftir að gestirnir höfðu komist yfir með sannkölluðu draumamarki í fyrri hálfleiknum, lagði Cole upp jöfnunarmarkið fyrir Peter Crouch og skoraði svo sigurmarkið sjálfur í uppbótartíma.

Sport
Fréttamynd

Crouch jafnaði fyrir Englendinga

Framherjinn Peter Crouch hefur náð að jafna leikinn fyrir Englendinga í vináttuleik gegn Úrúgvæ sem fram fer á Anfield í Liverpool og er staðan því orðin 1-1. Crouch skoraði sitt fyrsta mark fyrir enska landsliðið með laglegum skalla eftir fyrirgjöf frá Joe Cole. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Sigur hjá toppliðunum

Haukar og Fram unnu leiki sína í kvöld í DHL-deild karla í handbolta og halda því fyrsta og öðru sætinu í deildinni. Haukar unnu auðveldan sigur á KA 39-28 og Valsmenn unnu nauman sigur á Fram 30-29.

Sport
Fréttamynd

Guðjón Valur skoraði 7 mörk

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 7 mörk fyrir lið sitt Gummersbach í kvöld og Róbert Gunnarsson 4, þegar liðið vann auðveldan útisigur á Wetzlar á útivelli 38-30. Róbert Sighvatsson skoraði 1 mark fyrir Wetzlar. Einar Hólmgeirsson skoraði 6 mörk fyrir Grosswallstadt sem tapaði 27-26 fyrir Delitzsch á útivelli.

Sport
Fréttamynd

Englendingar undir í hálfleik

Englendingar eru undir 1-0 undir í vináttuleik sínum gegn Úrúgvæ á Anfield í Liverpool, en leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Það var miðjumaðurinn Omar Pouso sem skoraði mark gestanna með þrumufleyg af 30 metra færi.

Sport
Fréttamynd

England getur náð langt á HM

Diego Forlan, fyrrum leikmaður Manchester United og framherji Úrúgvæ, segir að enska landsliðið hafi alla burði til að ná langt á HM í sumar, en telur að Brasilíumenn muni verja titil sinn frá því árið 2002.

Sport