Íþróttir

Fréttamynd

Shearer vill ekki taka við af Souness

Framherjinn Alan Shearer hjá Newcastle, sem nú gegnir stöðu aðstoðarstjóra hjá félaginu tímabundið, segir að hann hafi ekki áhuga á að verða næsti knattspyrnustjóri Newcastle.

Sport
Fréttamynd

Miami burstaði Cleveland

Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Miami vann auðveldan sigur á Cleveland 101-73. Dwayne Wade skoraði 24 stig fyrir Miami og Shaquille O´Neal skoraði 21, en LeBron James skoraði 29 stig fyrir Cleveland sem skoraði aðeins 9 stig í fjórða leikhlutanum.

Sport
Fréttamynd

Danir lögðu Rússa og mæta Spánverjum

Danir tryggðu sér sæti í undanúrslitunum á EM í Sviss í kvöld þegar liðið lagði Rússa sannfærandi 35-28. Danska liðið mætir því Spánverjum í undanúrslitum mótsins og í hinum undanúrslitaleiknum eigast við Frakkar og Króatar. Þjóðverjar og Rússar keppa um 5. sætið, en íslenska liðið hafnaði í 7. sæti á mótinu.

Sport
Fréttamynd

Dómararnir jörðuðu okkur

Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari var hundfúll eftir tapið gegn Norðmönnum í lokaleik íslenska liðsins í milliriðli á EM í Sviss í kvöld. Viggó sagði að vissulega hefði þreytan verið farin að segja til sín hjá sínum mönnum vegna þeirra skarða sem höggvin hafa verið í hópinn, en vandaði dómurum leiksins ekki kveðjurnar.

Sport
Fréttamynd

Jafnt í hálfleik hjá Rússum og Dönum

Staðan í leik Dana og Rússa er jöfn 13-13 í hálfleik, en þetta er lokaleikurinn í milliriðli okkar Íslendinga. Íslenska liðið þarf að treysta á að Rússar vinni leikinn með 4-5 mörkum til að eiga möguleika á að fá að spila um fimmta sætið í keppninni.

Sport
Fréttamynd

Gæti fengið tvöfalt bann

Framherjinn skapmikli hjá Everton, Duncan Ferguson, gæti nú átt yfir höfði sér lengra bann en það sem hann fær fyrir rauða spjaldið sem hann fékk að líta í leik Everton og Wigan á þriðjdagskvöldið.

Sport
Fréttamynd

Frakkar í undanúrslitin

Frakkar tryggðu sér í kvöld farseðilinn í undanúrslitin á EM í Sviss með öruggum sigri á Úkraínu 30-20 og lyftu sér í efsta sæti riðlis síns. Spánverjar geta endurheimt efsta sætið með sigri á Slóvenum í kvöld, en leikur liðanna er ný hafinn.

Sport
Fréttamynd

Campbell út úr hópnum

Varnarmaðurinn Sol Campbell verður ekki í leikmannahópi Arsenal þegar liðið mætir Birmingham um helgina og segir Arsene Wenger, stjóri liðsins, að hann sé ekki í andlegu ástandi til þess. Campbell æfði ekki með Arsenal í dag, eftir að hafa verið skipt útaf fyrir slaka frammistöðu með liðinu í gærkvöldi.

Sport
Fréttamynd

Tap fyrir Norðmönnum

Íslenska landsliðið brotlenti í síðari hálfleik gegn Norðmönnum í kvöld og tapaði 36-32 og því er sæti í undanúrslitum mótsins úr sögunni. Ef úrslit í leik Dana og Rússa í kvöld verða okkur í hag, er þó enn möguleiki á að liðið spili leik um fimmta sætið. Ólafur Stefánsson var markahæstur með 9 mörk, Guðjón Valur Sigurðsson 6 og Róbert Gunnarsson og Snorri Steinn 5.

Sport
Fréttamynd

Ísland yfir gegn Norðmönnum

Íslendingar hafa forystu 16-14 í hálfleik gegn Norðmönnum í lokaleik sínum í milliriðli á EM í Sviss. Ólafur Stefánsson hefur skorað 4 mörk fyrir íslenska liðið, Róbert Gunnarsson 3, og þeir Guðjón Valur, Snorri Steinn og Ásgeir Örn 2 hver. Kjetil Strand hefur farið á kostum hjá norska liðinu og er kominn með 9 mörk í hálfleiknum.

Sport
Fréttamynd

Óhress með gamla stjórann sinn

Mark Hughes segist óhress með ummæli fyrrum knattspyrnustjóra síns hjá Manchester United eftir leik liðanna í gær, en Sir Alex Ferguson fór þar mikinn í að gagnrýna grófan leik Blackburn.

Sport
Fréttamynd

Króatar í undanúrslit

Króatar tryggðu sér sæti í undanúrslitum EM í Sviss í dag þegar liðið lagði Serba og Svartfellinga 34-30. Góður lokakafli tryggði Króötum sigurinn í dag eftir að jafnræði hafði verið með liðunum framan af og því er spennan í milliriðli okkar Íslendinga mikil fyrir leikinn gegn Norðmönnum í dag.

Sport
Fréttamynd

Shearer er rétti maðurinn fyrir Newcastle

Gamla kempan Chris Waddle vill meina að Alan Shearer sé einmitt maðurinn til að koma á jafnvægi í herbúðum Newcastle eftir að Graeme Souness var rekinn í dag, en Shearer hefur verið skipaður aðstoðarmaður Glenn Roader sem mun taka við liðinu tímabundið.

Sport
Fréttamynd

Sol Campbell í vandræðum

Varnarmaðurinn Sol Campbell hjá Arsenal á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir og í gærkvöld yfirgaf hann völlinn þegar honum var skipt útaf í hálfleik fyrir að eiga sök á tveimur mörkum West Ham í hálfleiknum. Arsenal tapaði leiknum á heimavelli sínum og menn rekja það mikið til þess að Campbell sé hreinlega ekki í formi.

Sport
Fréttamynd

Souness rekinn frá Newcastle

Úrvalsdeildarfélagið Newcastle rak í dag knattspyrnustjóra sinn Graeme Souness úr starfi og hefur Glenn Roeder verið skipaður eftirmaður hans tímabundið og Alan Shearer mun verða honum til aðstoðar. Lið Newcastle hefur verið í bullandi vandræðum lengst af í vetur og 3-0 tap liðsins fyrir Manchester City í gær gerði útslagið fyrir Souness.

Sport
Fréttamynd

Guðjón Valur ekki sáttur

"Við töpum þessu á eigin klaufaskap því ég get ekki séð að þeir hafi verið neitt betri en við," sagði hornamaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson hundsvekktur í leikslok, eftir að Íslendingar töpuðu fyrir Króötum í dag.

Sport
Fréttamynd

Haukar áfram á toppnum

Haukastúlkur eru enn á toppnum í Iceland Express deild kvenna í körfubolta, en þrír leikir voru á dagskrá í kvöld. Haukar lögðu Breiðablik auðveldlega á útivelli 87-63, ÍS lagði KR 88-67 og þá vann Keflavík sigur á grönnum sínum í Grindavík í toppslag liðanna 83-71.

Sport
Fréttamynd

Afleitt kvöld fyrir stórliðin

Stóru liðin í ensku úrvalsdeildinni áttu öll erfitt uppdráttar í leikjum sínum í kvöld. Á meðan Chelsea gerði jafntefli við Aston Villa, náði Liverpool aðeins í annað stigið gegn Birmingham á heimavelli þrátt fyrir að vera manni fleiri, Arsenal tapaði fyrir West Ham á heimavelli og Manchester United tapaði fyrir Blackburn í ævintýralegum leik á Ewoood Park.

Sport
Fréttamynd

Chelsea tapaði stigum á Villa Park

Chelsea tapaði dýrmætum stigum á Villa Park í kvöld þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Aston Villa. Arjen Robben kom gestunum yfir í fyrri hálfleik, en Luke Moore jafnaði í þeim síðari fyrir Villa. Manchester City burstaði Newcastle 3-0 með mörkum frá Riera, Cole og Vassell. Portmouth og Bolton skildu jöfn 1-1.

Sport
Fréttamynd

Einar ekki með gegn Norðmönnum

Skyttan Einar Hólmgeirsson verður ekki með íslenska landsliðinu í lokaleik liðsins í milliriðlum á morgun eftir að hafa fengið heilahristing í leiknum gegn Króatíu í dag. Einar var að sögn nafna hans Þorvarðarsonar langt fram í síðari hálfleikinn að ná áttum þar sem læknar stumruðu yfir honum við hliðarlínuna.

Sport
Fréttamynd

Jol sáttur við kaup Tottenham

Martin Jol, stjóri Tottenham, er hæstánægður með kaup félagsins fyrir lokun félagaskiptagluggans og segist búast við miklu af þeim Danny Murphy og Hossam Ghaly.

Sport
Fréttamynd

Spánn aftur á toppinn

Spánverjar eru komnir aftur á toppinn í 1. milliriðlinum á EM í Sviss eftir sigur á Úkraínu í lokaleik kvöldsins í riðlinum, 31-29. Spánverjar hafa því hlotið 7 stig í riðlinum, Frakkar 6 og Þjóðverjar 5. Spánn mætir Slóveníu á morgun og nægir eitt stig til að tryggja sér sæti í undanúrslitunum.

Sport
Fréttamynd

Danir lögðu Norðmenn

Danir lögðu Norðmenn 35-31 í lokaleik 2. milliriðilsins í kvöld og skutust með sigrinum upp fyrir okkur Íslendinga á markamun. Danska liðið hefur einu marki betri markatölu en íslenska liðið og því er ljóst að allt verður í járnum í lokaumferðinni á morgun.

Sport
Fréttamynd

Stóru liðin undir í hálfleik

Manchester United er undir 3-1 í hálfleik á Ewood Park gegn Blackburn í hálfleik, en þar hefur David Bentley skoraði tvö mörk og Lucas Neill bætti við þriðja markinu úr vítaspyrnu á síðustu augnablikum hálfleiksins. Louis Saha minnkaði muninn fyrir United. Þá er Arsenal að tapa 2-1 á heimavelli fyrir West Ham.

Sport
Fréttamynd

Frakkar burstuðu Póverja

Frakkar áttu ekki í erfiðleikum með Pólverja í 1. milliriðlinum á EM í Sviss í dag og unnu stórsigur 31-21. Frakkar eru þar með á toppi riðilsins með 6 stig, en Spánverjar geta komist í efsta sætið með sigri í Úkraínu í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Verðum að klára Norðmenn

Hreiðar Guðmundsson, markvörður íslenska landsliðsins, var ekki kátur eftir tapið gegn Króötum í kvöld. "Þetta er ömurlegt. Við fengum tækifæri til að ná í stig undir lokin, en því miður gekk það ekki eftir, það vantaði herslumuninn. Það var slæmt að missa þá Alex og Einar, en við verðum bara að safna liði og klára Norðmennina á morgun," sagði Hreiðar, sem náði sér ekki á strik í leiknum í dag.

Sport
Fréttamynd

Chelsea yfir gegn Aston Villa

Nú er kominn hálfleikur í leikjunum þremur sem hófust fyrr í ensku úrvalsdeildinni. Chelsea hefur yfir 1-0 gegn Aston Villa á útivelli, þar sem Arjen Robben skoraði mark Chelsea. Manchester City er 2-0 yfir gegn Newcastle með mörkum frá Cole og Riera og þá er jafnt hjá Portsmouth og Bolton, 0-0.

Sport
Fréttamynd

Eiður Smári í byrjunarliði Chelsea

Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Chelsea sem sækir Aston Villa heim á Villa Park í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Eiður gat ekki leikið með liðinu í síðasta leik vegna veikinda, en er ný mættur aftur í slaginn.

Sport
Fréttamynd

Fullyrðir að Hiddink verði næsti þjálfari Englendinga

Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að heyrst hafi til Sven Göran Eriksson fullyrða við fólk á matsölustað í Svíþjóð að Guus Hiddink verði næsti þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, en Eriksson lætur sem kunnugt er af störfum eftir HM í sumar.

Sport
Fréttamynd

Balic of stór biti fyrir íslenska liðið

Króatar höfðu nauman sigur á íslenska landsliðinu í handbolta á EM í Sviss nú rétt í þessu 29-28 í hörkuleik. Það var ekki síst fyrir stórleik Ivano Balic sem lið Króatíu náði að tryggja sér sigurinn, en hann skoraði 8 mörk í leiknum, mörg þeirra á ótrúlegan hátt og var gríðarlega mikilvægur í varnarleiknum. Ólafur Stefánsson var markahæstur í íslenska liðinu með 8 mörk og Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 7.

Sport