Íþróttir

Fréttamynd

Frakkar sigruðu Þjóðverja

Frakkar lögðu Þjóðverja 27-25 í B-riðlinum á EM í Sviss í dag. Frakkar fara því með tvö stig með sér í milliriðil, en Þjóðverjar eitt. Fyrr í dag sigruðu Slóvenar svo Pólverja 33-29 í A-riðlinum og fara með með fjögur stig í milliriðil.

Sport
Fréttamynd

Ivan Campo fótbrotinn

Miðjumaðurinn Ivan Campo hjá Bolton verður líklega frá í nokkrar vikur eftir að kappinn fótbrotnaði í annað skiptið á stuttum tíma í bikarleiknum gegn Arsenal í gær. Campo var ný kominn til leiks á ný eftir fótbrot, en fer nú aftur á meiðslalista félagsins ásamt þeim Gary Speed, Khaliou Fadiga og Henrik Pedersen.

Sport
Fréttamynd

Khan rotaði Martynov á 75 sekúndum

Vonarstjarna Breta í boxinu, unglingurinn Amir Khan, rotaði andstæðing sinn Vitali Martynov eftir aðeins 75 sekúndur í fimmta bardaga sínum sem atvinnumaður í Nottingham í gærkvöld. Þetta var fyrsti sex lotu bardagi Khan á ferlinum, en hann þurfti ekki nema eina til að ganga frá Hvít-Rússanum.

Sport
Fréttamynd

Gatti sigraði Damgaard

Hnefaleikarinn Arturo Gatti þurfti að hafa mikið fyrir því að leggja hinn danska Thomas Damgaard í Atlantic City í nótt, en Gatty var dæmdur sigur í tíundu lotu í bardaga sem á tíðum var hrein og klár slagsmál. Damgaard sýndi mikla keppnishörku og tók við miklum barsmíðum, en þurfti að lokum að játa sig sigraðan í bardaganum, sem var í beinni útsendingu á Sýn í nótt.

Sport
Fréttamynd

Tveir leikir í beinni í dag

Tveir leikir verða á dagskrá í enska bikarnum í dag og verða þeir báðir sýndir í beinni útsendingu á Sýn. Fyrri leikurinn er viðureign Wolves og Manchester United og hefst útsending núna klukkan 15:55. Að þeim leik loknum er svo viðureign Portsmouth og Liverpool á dagskrá eða klukkan 17:55.

Sport
Fréttamynd

Abramovich hefur ekki áhyggjur af tapinu

Auðjöfurinn Roman Abramovich hefur ekki áhyggjur af 140 milljón punda tapi félagsins á síðasta ári að mati Peter Kenyon, stjórnarformanns Chelsea, en í vikunni var tilkynnt að félagið hefði verið rekið með mesta halla sem sögur fara af í knattspyrnunni.

Sport
Fréttamynd

Áttundi sigur Dallas í röð

Lið Dallas Mavericks vann í nótt sinn áttunda leik í röð í NBA deildinni þegar liðið skellti Utah fyrirhafnarlítið á heimavelli sínum, 103-89. Josh Howard skoraði 24 stig í jöfnu liði Dallas, en Devin Brown skoraði 18 stig fyrir Utah.

Sport
Fréttamynd

Federer grét eftir sigurinn

Stigahæsti tennisleikari heims, Roger Federer, vatnaði músum þegar hann tryggði sér sigur á opna ástralska meistaramótinu í tennis í dag eftir erfiðan úrslitaleik við hinn lítt þekkta Marcos Baghdatis 5-7, 7-5, 6-0 og 6-2. Um tíma leit út fyrir að Baghdatis ætlaði að takast hið óvænta, en Federer vann á eftir því sem leið á leikinn og tryggði sér sigurinn.

Sport
Fréttamynd

Atletico Madrid - Deportivo í beinni

Leikur Atletico Madrid og Deportivo verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn nú klukkan 21 í kvöld, en síðar um nóttina verður bardagi Arturo Gatti og hins danska Thomas Damgaard í beinni útsendingu á stöðinni.

Sport
Fréttamynd

Fjögur Íslandsmet féllu

Íslandsmótið í bekkpressu var haldið í Laugardalshöllinni í dag og féllu alls fjögur Íslandsmet á mótinu þar sem mikil og góð stemming myndaðist eins og alltaf þegar þessi keppni fer fram. Það var Jakob Baldursson sem varð stigahæsti maður mótsins þegar hann lyfti 260 kílóum í 110 kg flokki, sem er nýtt Íslandsmet.

Sport
Fréttamynd

Arsenal úr leik

Arsenal féll úr bikarkeppni í annað skipti á nokkrum dögum í kvöld þegar liðið lá 1-0 fyrir Bolton á Reebok-Stadium í enska bikarnum. Það var Stelios Giannakopoulos sem skoraði sigurmark heimamanna á 83. mínútu. Arsene Wenger tefldi ekki fram sínu sterkasta liði í leiknum og virðist vera með hugann við eitthvað annað en að vinna enska bikarinn í ár.

Sport
Fréttamynd

Egyptar unnu A-riðilinn

Egyptar tryggðu sér í dag sigur í A-riðli Afríkukeppninnar í knattspyrnu þegar liðið vann góðan sigur á Fílabeinsströndinni 3-1. Marokkó gerði markalaust jafntefli við Líbíu og því eru Marokkómenn fallnir úr keppni. Þetta þýðir að Egyptaland og Fílabeinsströndin komast áfram upp úr riðlinum.

Sport
Fréttamynd

Við vörðumst eins og skólastrákar

Mick McCarthy, stjóri Sunderland, var ekki kátur með frammistöðu sinna manna í dag þegar liðið féll úr enska bikarnum eftir 2-1 tap fyrir 1. deildarliði Brentford. "Við vörðumst eins og skólastrákar og leyfðum þeim að stríða okkur allt of mikið. Ef við höldum áfram að spila eins og við gerðum í dag, eigum við ekki von á góðu það sem eftir lifir tímabils," sagði McCarthy fúll.

Sport
Fréttamynd

Manchester City að kaupa Samaras

Enska úrvalsdeildarliðið Manchester City er nú við það að ganga frá kaupum á gríska sóknarmanninum Georgios Samaras frá hollenska liðinu Heerenveen fyrir um 6 milljónir punda og á leikmaðurinn aðeins eftir að standast læknisskoðun hjá félaginu á morgun svo hægt sé að ganga frá málinu.

Sport
Fréttamynd

Hentar okkur illa að spila við Íslendinga

Ulrik Wibek, landsliðsþjálfari Dana í handbolta, sagði í samtali við danska blaðið BT í gær að hann væri ekki alveg viss hvort hann ætti að vera svekktur eða ánægður með jafnteflið við íslenska liðið á EM í Sviss í gær.

Sport
Fréttamynd

Juventus hefur áhuga á Gallas

Luciano Moggi, yfirmaður Juventus, fer ekki leynt með það að ítalska félagið hafi áhuga á að fá William Gallas hjá Chelsea í sínar raðir í sumar, ekki síst í ljósi þess að Jonathan Zebina hefur gefið út að hann vilji fara frá félaginu. "Gallas er leikmaður sem við höfum lengi haft augastað á og Juventus hefur aðeins áhuga á frábærum leikmönnum," sagði Moggi í samtali við bresk blöð.

Sport
Fréttamynd

Bolton - Arsenal í beinni á Sýn

Lokaleikur dagsins í enska bikarnum er viðureign Bolton og Arsenal, en útsending frá honum hefst nú klukkan 17:20 á Sýn. Á morgun verða svo leikir Wolves - Manchester United og Portsmouth - Liverpool í beinni útsendingu.

Sport
Fréttamynd

Jafnt hjá Everton og Chelsea

Everton og Chelsea skildu jöfn í enska bikarnum í dag 1-1 á Upton Park. James McFadden kom Everton yfir í fyrri hálfleik, en Frank Lampard jafnaði með laglegu marki í þeim síðari. Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í liði Chelsea í dag.

Sport
Fréttamynd

Spánverjar sigruðu Frakka

Spánverjar sigruðu Frakka 29-26 í B-riðli EM í Sviss í dag og eru því komnir áfram í milliriðla. Sigur heimsmeistraranna var í raun öruggari en lokatölurnar gefa til kynna, því liðið náði mest 11 marka forystu í leiknum og hafði undirtökin allan tíman.

Sport
Fréttamynd

Everton yfir gegn Chelsea

Everton hefur 1-0 forystu gegn Chelsea þegar flautað hefur verið til hálfleiks í leikjunum sem hófust klukkan 15 í enska bikarnum. Það var James McFadden sem skoraði mark Everton í leiknum. Þá hafa Ívar Ingimarsson og félagar í Reading yfir 1-0 gegn úrvalsdeildarliði Birmingham.

Sport
Fréttamynd

Liverpool að landa Victor?

Úrvalsdeildarlið Liverpool er nú sagt vera nálægt því að landa vængmanninum Victor frá spænska liðinu Deportivo La Curuna. Victor er ekki í hóp liðsins gegn Atletico Madrid um helgina og talið er að hann muni hitta forráðamenn enska liðsins til að ganga frá læknisskoðun og samningi á morgun.

Sport
Fréttamynd

Þjóðverjar áfram

Landslið Þjóðverja hefur tryggt sér sæti í milliriðlum á Evrópumótinu í Sviss eftir að liðið lagði Slóvakíu 31-26 í fyrsta leik dagsins, en þjóðirnar leika í B-riðli. Nú standa yfir leikir Sviss og Póllands og Spánverja og Frakka.

Sport
Fréttamynd

Newcastle lagði Cheltenham

Newcastle United er komið áfram í enska bikarnum eftir góðan sigur á Cheltenham 2-0 í enska bikarnum. Þetta var fyrsti leikur dagsins í keppninni, en nú er leikur Everton og Chelsea hafinn í beinni útsendingu á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Mauresmo sigraði

Amelie Mauresmo sigraði í kvennaflokki á opna ástralska meistaramótinu í tennis í dag, eftir að andstæðingur hennar Justine Henin-Hardenne þurfti að hætta keppni í öðru setti úrslitaleiksins vegna veikinda. Þetta var þriðji andstæðingur Mauresmo sem hætti keppni vegna veikinda eða meiðsla á mótinu.

Sport
Fréttamynd

Viggó mjög ánægður

Hann var misjafn tóninn í mönnum hjá íslenska landsliðinu í handbolta í kvöld eftir að liðið gerði jafntefli við Dani 28-28 í C-riðli. Stigið þýðir að Ísland er komið áfram í milliriðla og Viggó Sigurðsson var afar kátur með niðurstöðuna, en Snorri Steinn Guðjónsson var ekki jafn sáttur.

Sport
Fréttamynd

Hvað gerir Kobe Bryant?

Leikur Los Angeles Lakers og Golden State Warriors verður sýndur beint á NBA TV á Digital Ísland klukkan 03:30 í nótt, en þetta er fyrsti leikur Lakers síðan Kobe Bryant skoraði 81 stig gegn Toronto fyrir fimm dögum síðan og því aldrei að vita nema kappinn verði í góðu stuði í nótt.

Sport
Fréttamynd

Ræð mér ekki af hamingju

Framherjinn Robbie Fowler, sem í dag gekk aftur í raðir Liverpool eftir fimm ára fjarveru, segist ekki enn vera búinn að átta sig á því að draumur hans um að spila aftur á Anfield væri nú að rætast.

Sport
Fréttamynd

John Mikel Obi fór á kostum hjá Nígeríu

Unglingurinn Jan Mikel Obi stal senunni þegar hann kom inná sem varamaður í liði Nígeríu í kvöld og skoraði eitt mark og lagði upp annað í sigri liðsins á Zimbabwe 2-0 og því nægir liðinu jafntefli gegn Senegal til að komast í átta liða úrslit keppninnar. Þá vann Gana sigur á Senegal í dag 1-0 með marki frá Matthew Amoah.

Sport
Fréttamynd

Jafnt hjá Íslendingum og Dönum

Íslendingar og Danir gerðu jafntefli 28-28 í leik sínum í C-riðli EM í Sviss í kvöld. Íslenska liðið fékk tækifæri til að gera út um leikinn í síðustu sókn leiksins en það tókst ekki og niðurstaðan því jafntefli. Íslenska liðið hafði frumkvæðið lengst af leik, en getur ef til vill vel við unað með jafnteflið þar sem liðið var án Ólafs Stefánssonar og fékk aðeins eitt mark frá Guðjóni Val Sigurðssyni í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Ísland yfir í hálfleik

Íslendingar hafa yfir 15-14 gegn Dönum í leik þjóðanna sem nú stendur yfir í C-riðli EM í Sviss. Snorri Steinn Guðjónsson hefur skorað fimm mörk fyrir íslenska liðið, Arnór Atlason er með fjögur og Sigfús Sigurðsson hefur skorað þrjú. Þá hefur Birkir Ívar varið vel í markinu og er kominn með yfir tíu varin skot í hálfleiknum.

Sport