Erlendar
207 208 209 210 211 212 213 214 215 … 264 ›
Ballack með eina mark kvöldsins Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu og það er miðjumaðurinn sterki Michael Ballack hjá Bayern Munchen sem á þann vafasama heiður að vera eini leikmaðurinn sem er búinn að skora mark það sem af er. Ballack kom sínum mönnum í Bayern yfir gegn AC Milan á 23. mínútu með stórglæsilegu skoti. Sport 21.2.2006 20:36
Gerrard á varamannabekk Liverpool Steven Gerrard fyrirliði Liverpool er á varamannabekk liðsins í kvöld þegar það sækir Benfica heim í Meistaradeildinni, en hann á við smávægileg meiðsli að stríða. Þeir Alexander Hleb og Jose Antonio Reyes koma hinsvegar inn í lið Arsenal sem sækir Real Madrid heim í sjónvarpsleiknum á Sýn sem hefst nú innan tíðar. Sport 21.2.2006 19:23
Sörenstam efst á styrkleikalistanum Í dag var í fyrsta sinn birtur alþjóðlegur styrkleikalisti kvenna í golfi og ekki kom á óvart að það var sænski kylfingurinn Annika Sörenstam sem var langefst á fyrsta listanum. Paula Creamer er í öðru sæti listans og undrabarnið Michelle Wie situr í þriðja sætinu. Sport 21.2.2006 17:51
Rochemback frá í tvo mánuði Brasilíski miðjumaðurinn Fabio Rochemback hjá Middlesbrough er nýjasti leikmaður liðsins til að meiðast í langan tíma eftir að í ljós kom að hann er meiddur á ökkla og verður frá keppni í amk tvo mánuði. Þetta eru skelfileg tíðindi fyrir Boro, sem er í bullandi vandræðum í deildinni. Sport 21.2.2006 17:00
Owen gæti snúið aftur gegn Chelsea Glenn Roader, stjóri Newcastle, segir að svo gæti farið að Michael Owen yrði búinn að ná sér af meiðslum sínum fyrir leikinn gegn Chelsea í fjórðungsúrslitum enska bikarsins í næsta mánuði, en upphaflega var óttast að Owen kæmi ekki til baka fyrr en í apríl vegna fótbrots sem hann hlaut á gamlársdag. Sport 21.2.2006 16:39
Benitez varar við bjartsýni Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur varað stuðningsmenn félagsins við of mikilli bjartsýni fyrir leikina gegn portúgalska liðinu Benfica í Meistaradeildinni, en liðin mætast í Portúgal í kvöld og verður leikurinn í beinni útsendingu á Sýn Extra klukkan 19:35. Sport 21.2.2006 15:54
Real er betra nú en áður Thomas Gravesen, leikmaður Real Madrid, líkar lífið mun betur á Bernabeu eftir að Wanderlei Luxemburgo hætti sem þjálfari liðsins og segir lið Arsenal ekki eiga von á góðu í viðureign liðanna í kvöld. Sport 21.2.2006 15:41
Neville slapp með sekt Gary Neville, leikmaður Manchester United slapp með skrekkinn í dag þegar hann var dæmdur til að greiða 5000 punda sekt fyrir að hafa fagnað marki sinna manna í sigrinum á Liverpool í deildinni á dögunum fyrir framan stuðningsmenn Liverpool. Talið var að Neville gæti fengið leikbann fyrir uppátækið. Sport 21.2.2006 15:35
Úrslitaleikurinn færður til Cardiff Nú er ljóst að úrslitaleikurinn í enska bikarnum mun fara fram á Þúsaldarvellinum í Cardiff eftir að áströlsku verktakarnir sem bera ábyrgð á uppbyggingu nýja Wembley- leikvangsins gátu ekki lofað því 100% að hann yrði klár fyrir úrslitaleikinn í bikarnum sem verður þann 13. maí. Sport 21.2.2006 05:54
Við erum fullir sjálfstrausts Felix Magath, stjóri Bayern Munchen, segir sína menn fulla sjálfstrausts fyrir leikinn gegn AC Milan í Meistaradeildinni annað kvöld, en Bayern hefur unnið alla 15 leiki sína á nýja heimavellinum sem tekinn var í notkun í sumar. Sport 20.2.2006 20:57
Mourinho er besti leikmaður Chelsea Portúgalski miðjumaðurinn Deco, sem áður lék undir stjórn Mourinho hjá Porto þegar liðið vann Meistaradeildina á sínum tíma, segir að Mourinho sé besti leikmaður Chelsea. Sport 20.2.2006 18:11
Villareal hefur ekki áhyggjur af Rangers Leikmenn Villareal hafa ekki miklar áhyggjur af andstæðingum sínum Glasgow Rangers í Meistaradeildinni og segja varnarmenn liðsins seina og luralega. Leikstjórnandinn knái Juan Roman Riquelme verður til í slaginn eftir rúmlega tveggja vikna fjarveru vegna meiðsla. Sport 20.2.2006 19:26
Bayern Munchen er sigurstranglegast Fabio Capello, stjóri ítölsku meistaranna í Juventus, segir að Bayern Munchen sé sigurstranglegasta liðið í Meistaradeildinni af þeirri einföldu ástæðu að liðið hafi notið þess að fá langt vetrarfrí öfugt við liðin á Ítalíu, Spáni og Englandi. Sport 20.2.2006 19:05
Völlurinn er ekki svo slæmur Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur boðið liði Barcelona að æfa á æfingasvæði Chelsea fyrir leik liðanna í Meistaradeildinni í stað þess að æfa á Stamford Bridge, því eins og áhorfendur Sýnar sáu um helgina, er völlurinn eitt moldarflag eftir miklar rigningar. Sport 20.2.2006 17:57
Fisichella staðráðinn í að verða meistari Ítalski ökuþórinn Giancarlo Fisichella hjá Renault segist staðráðinn í að vera á meðal þeirra bestu í baráttunni um heimsmeistaratitil ökuþóra á komandi tímabili í Formúlu 1. Sport 20.2.2006 17:05
Ósáttur við stuðningsmennina Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid hefur látið í veðri vaka að hann fari frá félaginu í sumar því honum finnist stuðningsmenn liðsins aldrei hafa tekið sér opnum örmum. Sport 20.2.2006 16:39
Beckham hlakkar til að mæta Arsenal David Beckham, leikmaður Real Madrid, segist hlakka mikið til að mæta loks ensku liði í Meistaradeildinni, en lið hans leikur við Arsenal annað kvöld. Hann segist þó heldur hafa viljað mæta sínum gömlu félögum í Manchester United í keppninni. Sport 20.2.2006 15:10
Jón Arnór bikarmeistari með Napoli Landsliðsmaðurinn Jón Arnór Stefánsson varð í gærkvöld ítalskur bikari með liði sínu Napoli þegar það bar sigurorð af Roma í úrslitaleik 85-83. Jón skoraði 9 stig í leiknum. Sport 20.2.2006 15:01
Jafnt hjá KR og Brann KR ingar gerðu í dag jafntefli 1-1 við norska liðið Brann í æfingaleik liðanna á LaManga mótinu sem fram fer á Spáni. Það var Björgólfur Takefusa sem skoraði mark KR úr vítaspyrnu, en KRingar misnotuðu reyndar aðra vítaspyrnu í leiknum. Sport 20.2.2006 14:57
Chelsea mætir Newcastle Nú er ljóst hvaða lið mætast í átta liða úrslitum enska bikarsins. Chelsea mætir Newcastle á heimavelli í næstu umferð, en það var einmitt Newcastle sem sló Englandsmeistarana úr keppninni í fyrra. Birmingham fær Liverpool í heimsókn, Charlton mætir Middlesbrough og Aston Villa eða Manchester City mætir annað hvort Bolton eða West Ham. Leikirnir fara fram 20-23. mars. Sport 20.2.2006 14:46
Bikarmeistari með Bregenz Dagur Sigurðsson, spilandi þjálfari hjá Bregenz í Austurríki, varð í gær bikarmeistari með liði sínu. Bregenz sigraði AON Fivers í úrslitaleiknum í gær, 33-27, eftir mikla törn um helgina en bikarfyrirkomulagið í Austurríki er á þann veg að 8-liða úrslit eru spiluð á föstudegi, undanúrslit á laugardegi og úrslit á sunnudegi. "Þetta var mjög sætt," sagði Dagur skömmu eftir leik, í skýjunum með að hafa unnið sinn fyrsta bikarmeistaratitil í Austurríki. Sport 19.2.2006 19:58
James fór fyrir Austurliðinu LeBron James varð í nótt yngsti leikmaðurinn í sögu NBA til að vera kjörinn besti leikmaður Stjörnuleiksins þegar hann skoraði 29 stig og leiddi lið Austurstrandarinnar til sigurs gegn Vesturliðinu 122-120, eftir að Austurliðið hafði lent 21 stigi undir á tímabili í leiknum. Sport 20.2.2006 06:01
Frá keppni í tvo mánuði Ítalski sóknarmaðurinn Fransesco Totti verður frá keppni í um tvo mánuði eftir meiðsli sem hann hlaut í leiknum gegn Empoli í kvöld en Roma vann leikinn 1-0. Sport 20.2.2006 01:16
City og Villa þurfa að mætast aftur Aston Villa og Manchester City þurfa að mætast aftur í 16-liða úrslitum FA bikarkeppninnar eftir dramatískan leik liðanna í kvöld. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli en leikmenn City jöfnuðu metin þegar komið var langt fram yfir venjulegan leiktíma. Sport 19.2.2006 20:17
Jafnt hjá Minden og Flensburg Fjórir leikir fóru fram í Þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag en íslendingarnir létu frekar lítið að sér kveða í dag, nema þá Snorri Steinn Guðjónsson sem skoraði sex mörk fyrir Minden, þar af fjögur úr vítaköstum. Sport 19.2.2006 19:26
Ég er stoltur af mínum mönnum Phil Parkinsson stjóri Colchester var mjög stoltur af sínum mönnum sem gerðu Englandsmeisturum Chelsea lífið leitt í ensku bikarkeppninni í dag. Chelsea vann leikinn 3-1 en lokatölurnar segja ekki alla sólarsöguna. Sport 19.2.2006 19:08
Dagur bikarmeistari með Bregenz Dagur Sigurðsson stýrði í dag liði sínu Bregenz til sigurs í Austurrísku bikarkeppninni en liðið lagði AON Fivers með eins marka mun í úrslitaleiknum. Sport 19.2.2006 18:11
Chelsea komst áfram Chelsea tókst að landa sigrinum gegn Colchester í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar en Englandsmeisturunum tókst verkið ekki þrautarlaust. Colchester menn geta svo sannarlega borið höfuðið hátt eftir leikinn á Stamford Bridge í dag. Sport 19.2.2006 17:53
Chelsea tókst að jafna Staðan í hálfleik hjá Chelsea og Colchester er 1-1 en neðrideildarliðið hefur verið betri aðilinn í leiknum sem fer fram á Stamford Bridge, heimavelli Chelsea. Sport 19.2.2006 16:45
Skoruðu átta mörk gegn Dunfermline Celtic vann í dag stærsta sigur í sögu Skosku úrvalsdeildarinnar þegar þeir skoruðu átta mörk gegn Dunfermline á útivelli. Yfirburðir Celtic voru ótrúlegir en leikmenn Dunfermline voru heillum horfnir í leiknum. Sport 19.2.2006 16:36
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent