Erlendar
233 234 235 236 237 238 239 240 241 … 264 ›
Á höttunum eftir Kelly Úrvalsdeildarlið West Ham er sagt vera að undirbúa tilboð í írska bakvörðinn Stephen Kelly hjá Tottenham nú í janúar, en samningur hans við Tottenham rennur út í sumar. Talið er víst að Tomas Repka muni fara frá félaginu fljótlega og þá er ljóst að West Ham mun vanta varnarmann til að fylla skarð hans. Sport 6.1.2006 11:40
Langt komið með að landa Evra David Gill, yfirmaður Manchester United er nú staddur í Mónakó þar sem hann að sögn félagsins hefur að mestu gengið frá kaupum á franska landsliðsmanninum Patrice Evra. Leikmaður þessi er 24 ára gamall og vill ólmur fara frá Mónakó. Hann hefur verið orðaður mest við Manchester United og Inter á Ítalíu, en nú virðist sem enska liðið sé komið langt með að ganga frá kaupunum. Sport 5.1.2006 20:13
Yfirburðir Chelsea endast ekki lengi Gary Neville segir að þó vissulega líti út fyrir að Chelsea muni rúlla upp ensku úrvalsdeildinni í ár eins og í fyrra, muni yfirburðir liðsins ekki vara lengi og bendir á önnur lið sem hafi náð að verða meistarar en hrunið í kjölfarið. Sport 5.1.2006 18:49
Andy Johnson er ekki til sölu Forráðamenn Crystal Palace hafa enn eina ferðina séð ástæðu til að gefa út yfirlýsingu þess efnis að fyrrum landsliðsframherjinn Andy Johnson sé alls ekki til sölu. Johnson, sem fór á kostum með Palace í úrvalsdeildinni í fyrra þó liðið félli aftur í fyrstu deild, hefur verið mjög eftirsóttur af liðum í úrvalsdeildinni allar götur síðan Palace féll. Sport 5.1.2006 19:09
Riera klár í slaginn Manchester City hefur staðfest að spænski leikmaðurinn Albert Riera sé nú formlega genginn í raðir félagsins að láni frá Espanyol og verður hjá enska liðinu út leiktíðina. Riera gæti orðið klár í slaginn fyrir bikarleik City við Scounthorpe um helgina. Stuart Pearce, stjóri City, er mjög ánægður að vera loks búinn að landa leikmanninum, en hann hefur lengið verið aðdáandi hans. Sport 5.1.2006 20:22
Mourinho og Ferguson sleppa vel Enska knattspyrnusambandið hefur afráðið að refsa þeim Jose Mourinho og Alex Ferguson ekki fyrir ummæli sín í garð leikmanna og dómara í byrjun desember. Ferguson dró heilindi Rob Styles dómara í efa eftir leik við Everton, en Mourinho kallaði einn leikmanna Wigan svindlara. Þeim félögum verður þó gert að útskýra mál sitt fyrir sambandinu og hafa verið beðnir að gæta tungu sinnar í framtíðinni. Sport 5.1.2006 18:38
Lampard verður aldrei seldur Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segir að miðjumaðurinn Frank Lampard verði aldrei seldur frá ensku meisturunum og segist efast um að hann vilji taka gylliboðum Barcelona og Real Madrid á Spáni, sem vitað er að hafa augastað á landsliðsmanninum enska. Sport 5.1.2006 17:13
Leikur við Jamaica og Úrugvæ Enska knattspyrnusambandið hefur staðfest að enska landsliðið í knattspyrnu muni leika æfingaleiki við Jamaica og Úrúgvæ í undirbúningi sínum fyrir HM í Þýskalandi í sumar. England leikur við Úrúgvæ á Anfield þann 1. mars í vor og mætir svo Jamaica þann 3. júní á nýja Wembley-leikvangnum, en það verður síðasti leikur liðsins áður en HM hefst. Sport 5.1.2006 17:05
Á höttunum eftir Meite Enska úrvalsdeildarliðið Newcastle er á höttunum eftir varnarmanninum Abdoulaye Meite hjá Marseille, en hann er landsliðsmaður frá Fílabeinsströndinni í Afríku. Vefur Sky Sports fullyrðir að Newcastle sé í viðræðum við franska félagið um að fá hann til reynslu á næstunni og hafi kaup í huga, en þó gæti hugsanleg þáttaka hans í Evrópukeppninni orðið til að tefja nokkuð fyrir í viðræðunum. Sport 5.1.2006 16:57
Hafa áhuga á Marek Suchy Forráðamenn Tottenham eru nú í viðræðum við Slavia Prag með það fyrir augum að fá hinn unga miðjumann Marek Suchy til liðs við sig. Suchy þessi er aðeins 17 ára gamall og hefur vakið hrifningu útsendara enska liðsins, sem reyna nú að fá hann til reynslu. Tottenham á gott samstarf við Slavia Prag og er einn leikmanna liðsins í láni hjá tékkneska liðinu sem stendur. Sport 5.1.2006 16:47
De Villiers í forystu Suður-Afríkumaðurinn Giniel de Villiers hefur náð forystu í Paris-Dakar rallinu eftir að eknar hafa verið 6 dagleiðir. Villiers hafnaði í þriðja sæti á sjöttu leiðinni og hefur því náð 22 sekúndna forskoti á félaga sinn Carlos Sainz hjá Volkswagen-liðinu. Thierry Magnaldi sigraði á 6. leiðinni, en er engu að síður ekki á meðal fimm efstu manna í heildarkeppninni. Sport 5.1.2006 16:34
Kaupin á Vidic komin í gegn Manchester United hefur nú formlega gengið frá kaupum á serbneska varnarmanninum Nemanja Vidic frá Spartak Moskvu fyrir sjö milljónir punda. Vidic er 24 ára gamall landsliðsmaður og hefur nú fengið atvinnuleyfi á Englandi, en hann mun væntanlega koma til liðsins á morgun. Sport 5.1.2006 15:42
Iverson vill vinna gull Allen Iverson hefur lýst yfir áhuga sínum á að vera valinn í bandaríska landsliðið í körfubolta fyrir heimsmeistaramótið í ár og Ólympíuleikana árið 2008. Hann lýsti þessu yfir við Jerry Colangelo, framkvæmdastjóra liðsins á dögunum. Sport 5.1.2006 14:53
Tæklingin verður skoðuð af aganefnd Fulltrúar aganefndar enska knattspyrnusambandsins hafa nú sett sig í samband við Alan Wiley dómara og beðið hann um skýrslu vegna ljótrar tæklingar David Sommeil, leikmanns Manchester City, á bakvörðinn Lee hjá Tottenham í leik liðanna í gærkvöldi. Sport 5.1.2006 14:36
Allardyce reiður Sam Allardyce, stjóri Bolton, brást reiður við þegar hann var spurður út í þrálátan orðróm sem enn er kominn á kreik um að hann verði næsti stjóri Newcastle. Mikið hefur verið rætt um framtíð Graeme Souness í stjórastól Newcastle og vilja margir meina að hann verði rekinn fljótlega, þar sem gengi liðsins hefur verið langt undir væntingum. Sport 5.1.2006 14:24
Alfreð látinn fara Alfreð Gíslasyni hefur verið vikið úr starfi sem þjálfara úrvalsdeildarliðsins Magdeburg, þar sem hann hefur verið við störf síðan 1999. Alfreð hefur náð góðum árangri á þessum tíma með liðið, en gengi liðsins hefur þó verið upp og niður í vetur. Alfreð hefur þegar gert samning um að taka við liði Gummersbach árið 2007. Sport 5.1.2006 14:10
Kominn til Birmingham Sóknarmaðurinn Chris Sutton hefur gengið í raðir Birmingham í ensku úrvalsdeildinni á frjálsri sölu. Hann komst að niðurstöðu um að fá að fara eftir nokkrar viðræður við forráðamenn Glasgow Celtic og er því kominn á kunnuglegar slóðir á ný, því hann spilaði lengi á Englandi áður en hann fór til Skotlands. Hann skoraði 86 mörk í 199 leikjum fyrir Celtic á ferlinum. Sport 5.1.2006 13:58
LeBron James með stórleik LeBron James átti stjörnuleik þegar lið hans Cleveland Cavaliers bar sigurorð af Milwaukee Bucks í NBA deildinni í nótt 91-84. James skoraði 32 stig, þar af 17 í fjórða leikhluta, hirti 11 fráköst, gaf 11 stoðsendingar og stal 5 boltum. Liðið varð þó fyrir áfalli í leiknum, því Larry Hughes fingurbrotnaði og verður frá í 6-8 vikur. Michael Redd var atkvæðamestur hjá Milwaukee með 28 stig. Sport 5.1.2006 04:18
Tottenham sigraði Manchester City Tottenham styrkti stöðu sína í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið vann góðan útisigur á Manchester City 2-0. Mido og Robbie Keane gerðu mörk Tottenham, sem var betri aðilinn í leiknum og vann sanngjarnan sigur. Sport 4.1.2006 22:32
Olisadebe kominn til Portsmouth Enska úrvalsdeildarliðið Portsmouth hefur náð samkomulagi við pólska landsliðsmanninn Emmanuel Olisadebe og mun hann verða með liðinu út leiktíðina. Þetta kemur nokkuð á óvart, því enska liðið hafði sent leikmanninn aftur til Pananthiakos á dögunum eftir að hafa verið með hann til reynslu í nokkra daga og talið var að ekkert yrði af viðskiptunum. Sport 4.1.2006 18:47
Eftirsóttur í ensku úrvalsdeildinni Umboðsmaður framherjans Chris Sutton hjá Glasgow Celtic segir að nokkur lið í ensku úrvalsdeildinni séu búin að hafa samband við sig varðandi kaup á leikmanninum. Samningur Sutton við Celtic rennur út í sumar og sagt er að Everton og Portsmouth séu á meðal þeirra liða sem eru í viðræðum um að fá hann til liðs við sig. Sport 4.1.2006 18:42
Kromkamp kominn, Agger á leiðinni Enska úrvalsdeildarliðið Liverpool hefur nú gengið frá samningi við hollenska bakvörðinn Jan Kromkamp frá Villareal, en liðið fékk hann í skiptum fyrir Josemi á dögunum. Þá er félagið við það að ganga frá samningi við danska landsliðsmanninn Daniel Agger, en það hefur þó enn ekki verið staðfest. Sport 4.1.2006 18:52
Hættur fasistakveðjum Ítalinn Paolo Di Canio hjá Lazio segist vera hættur fasistakveðjum sínum á knattspyrnuvellinum, en hann var á dögunum sektaður og settur í leikbann vegna þessa. "Ég hugsaði málið yfir jólin og hef ákveðið að setja hagsmuni Lazio framar mínum eigin," sagði Di Canio, en benti á að hann stæði þó fast á pólitískum skoðunum sínum engu að síður. Sport 4.1.2006 18:17
Manchester City - Tottenham í kvöld Einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Manchester City tekur á móti Tottenham á City of Manchester Stadium. City er sem stendur um miðja deild, en Tottenham situr nokkuð óvænt í fjórða sæti deildarinnar og getur minnkað forskot Liverpool í þriðja sætinu niður í eitt stig með sigri í kvöld. Sport 4.1.2006 16:08
Hefur augastað á Ugo Ehiogu Bryan Robson, stjóri West Brom í ensku úrvalsdeildinni, hefur fullan hug á að reyna að lokka fyrrum landsliðsmanninn Ugo Ehiogu frá Middlesbrough á næstu dögum. Robson keypti Ehiogu til Boro á sínum tíma fyrir metfé þegar hann var stjóri liðsins, en Ehiogu hefur lítið fengið að spreyta sig með liði sínu í vetur. Sport 4.1.2006 15:59
Schalke ræður nýjan þjálfara Þýska úrvalsdeildarliðið Schalke tilkynnti í dag að aðstoðarþjálfari liðsins, Mirko Slomka, hefði verið gerður að nýjum aðalþjálfara liðsins eftir að Ralf Rangnick var rekinn á dögunum. Schalke er í fjórða sæti í þýsku úrvalsdeildinni, en þar á bæ eru kröfurnar miklar um árangur. Sport 4.1.2006 15:52
Sainz enn í forystu Spánverjinn Carlos Sainz heldur enn forskoti sínu í París-Dakar rallinu eftir að hann hafnaði í níunda sæti á fimmtu sérleiðinni í Marokkó í dag. Sainz ekur Volkswagen Touareg bifreið og hefur verið í nokkrum sérflokki það sem af er. Frakkinn Stephane Peterhansel sigraði á fimmtu sérleiðinni í dag og er í áttunda sæti í heildarkeppninni. Sport 4.1.2006 15:40
Honda er betra en Ferrari Brasilíski ökuþórinn Rubens Barrichello sem nýverið gekk í raðir Honda-liðsins í Formúlu 1, segir að lið Honda sé sterkara en Ferrari í dag og það hafi orðið til þess að hann ákvað að skipta um lið í sumar. Sport 4.1.2006 15:23
Queudrue frá í tvo mánuði Varnarmaðurinn Franch Queudrue hjá Middlesbrough er meiddur á hné og verður frá í sex til átta vikur. Steve McClaren, stjóri Middlesbrough segir að enn eigi eftir að koma í ljós hvort leikmaðurinn þarf í aðgerð, en ljóst sé að hann verði lengi frá engu að síður. Queudrue hefur verið fastamaður í liði Middlesbrough í vetur og verður hans því sárt saknað að sögn McClaren. Sport 4.1.2006 15:15
Wenger og Ferguson játa sig sigraða Arsene Wenger og Alex Ferguson, stjórar Arsenal og Manchester United, hafa kastað inn hvíta handklæðinu í baráttunni um enska meistaratitilinn og viðurkenna báðir að lið þeirra eigi ekki möguleika á að ná Chelsea í vetur. Sport 4.1.2006 14:44
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent