Erlent
135 136 137 138 139 140 141 142 143 … 334 ›
Grjóti og flugeldum kastað að sendiráðinu Vonir standa til að deilan, vegna bresku sjóliðanna sem Íranar hafa í haldi sínu, leysist á næstu dögum eftir að greint var frá því að beinar viðræður á milli ríkjanna standi yfir. Mótmælendur köstuðu grjóti og flugeldum að breska sendiráðinu í Teheran í dag. Erlent 1.4.2007 17:22
Framkoma Írana ófyrirgefanleg George Bush forseti Bandaríkjanna segir Írana hafa hagað sér með óafsakanlegum hætti í deilunni um bresku sjóliðanna fimmtán sem þeir hafa í haldi sínu. Á meðan saka írönsk stjórnvöld Breta um að ganga fram af hroka og eigingirni. Erlent 1.4.2007 11:53
Enn deilt um sjóliðana George Bush Bandaríkjaforseti fordæmdi í gær framgöngu íranskra stjórnvalda í deilunni vegna bresku sjóliðanna fimmtán sem þeir hafa í haldi sínu og sagði hana með öllu óafskanlega. Fyrr í gær fullyrti Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti hið gagnstæða og sagði að bresk stjórnvöld gengju fram af hroka og eigingirni. Erlent 1.4.2007 09:55
Bush styður Gonzales George Bush, forseti Bandaríkjanna, kom í gærkvöld Alberto Gonzales, dómsmálaráðherra landsins, til aðstoðar í þeirri orrahríð sem hann stendur nú. Gonzales er sakaður um að átta saksóknurum úr embætti sínu af pólitískum ástæðum. Erlent 1.4.2007 09:53
Ofbeldið í Írak eykst enn Þrátt fyrir stórhertar öryggisráðstafanir í Írak létu fleiri lífið þar í ofbeldisverkum í marsmánuði en í mánuðinum þar á undan. Samkvæmt upplýsingum írösku ríkisstjórnarinnar dó 1.861 maður í landinu vegna átaka og hryðjuverka en í febrúar biðu 1.645 bana. Erlent 1.4.2007 09:50
Skemmd í skögultönninni Fíllinn Tanni, sem á heima í dýragarðinum í Portland í Oregon í Bandaríkjunum, á óskemmtilegan dag í vændum. Á morgun fer hann í heimsókn til tannlæknisins til að láta gera við aðra skögultönnina en hún hefur beðið viðgerðar í heil fjórtán ár. Erlent 31.3.2007 19:01
Lifði af fall af níundu hæð Það þykir ganga kraftaverki næst að fimm ára gamall drengur komst lífs af þegar hann féll út um glugga af níundu hæð fjölbýlishúss í Hamilton í Ontario-fylki í Kanada. Erlent 31.3.2007 19:00
Refsingum hótað Íranar láta að því liggja að bresku sjóliðarnir fimmtán, sem handteknir voru á dögunum, verði ákærðir og þeim refsað fyrir landhelgisbrot. Margaret Beckett, utanríkisráðherra Bretlands, kveðst áhyggjufull yfir stefnu íranskra stjórnvalda í málinu en hún sendi þeim opinbert svarbréf vegna þess í dag. Erlent 31.3.2007 18:56
Húðflúrsæði hjá landgönguliðum Allir sem vettlingi geta valdið í bandaríska landgönguliðinu þyrpast nú þessa dagana á húðflúrsstofur því frá og með morgundeginum verður þeim bannað að láta tattúvera sig. Erlent 31.3.2007 12:28
Sjóliðanna bíður líklega ákæra Bresku sjóliðarnir fimmtán sem Íranar hafa í haldi sínu verða líklega ákærðir og dregnir fyrir dómara. Undirbúningur að lögsókn gegn þeim er sagður standa yfir. Bandaríkjastjórn ljáir ekki máls á að láta íranska fanga í skiptum fyrir Bretana. Erlent 31.3.2007 12:25
Ólga í Úkraínu Stjórnmálakreppa virðist ríkja í Úkraínu um þessar mundir vegna harðnandi valdabaráttu Viktors Jústjenkó forseta og Viktors Janukovits forsætisráðherra. Fylkingar beggja hyggjast standa fyrir fjölmennum útifundum í höfuðborginni Kænugarði í dag og hefur lögregla talsverðan viðbúnað vegna þess. Erlent 31.3.2007 10:06
Hicks afplánar aðeins níu mánuði Dómarar við herdómstólinn í Guantanamo hafa ákveðið að Ástralíumaðurinn David Hicks þurfi aðeins að afplána níu mánuði af dómi sínum en hann var dæmdur í sjö ára fangelsi í gær. Erlent 31.3.2007 09:53
Sönn ást spyr ekki um útlit Ein fallegasta ástarsaga síðari tíma hélt áfram í vikunni. Svanurinn Petra, sem er sjaldgæfur svartur svanur, yfirgaf vetrardvalarstað sinn ásamt elskhuga sínum og synda þau nú bæði um tjörnina í Muenster í norðvesturhluta Þýskalands. Svanir velja sér maka til lífstíðar og því var það falleg stund þegar Petra synti aftur við hlið ástar sinnar, hjólabáts sem er í laginu eins og svanur. Erlent 30.3.2007 23:42
Maradona á batavegi Argentínska knattspyrnuhetjan Diego Maradona, sem lagður var inn á sjúkrahús í vikunni, er að jafna sig og ástand hans er nú orðið stöðugt. Maradona var lagður inn á sjúkrahús vegna óhófslegs lífernis. Erlent 30.3.2007 23:25
Baðst afsökunar á slælegri umönnun slasaðra hermanna George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur beðist afsökunar á gæðum þeirrar umönnunar sem slasaðir bandarískir hermenn fá eftir að þeir snúa frá Írak. Hermennirnir hafa þurft að dvelja á sjúkrahúsi þar sem kakkalakkar hlaupa um, veggirnir eru myglaðir og rottur leynast í hverju horni. Erlent 30.3.2007 23:13
Einn lést eftir átök á blakleik kvenna Grísk yfirvöld hafa frestað öllum kappleikjum í liðsíþróttum næstu tvær vikur eftir að rúmlega 300 stuðningsmönnum tveggja liða, Panathinaikos og Olympiakos, lenti saman með þeim afleiðingum að einn lést. Liðin voru að fara að eigast við í blaki kvenna. Erlent 30.3.2007 22:36
Eldar geysa í nágrenni Hollywood Miklir eldar geysa nú í nágrenni Hollywood í Los Angeles. Reykur frá eldunum, sem eru í hæðum í kring um borgina, sjást um alla borgina. Ekki er vitað hvernig hann hófst. Um 100 slökkviliðsmenn berjast nú við eldana ásamt slökkviliðsþyrlum. Enn hefur engum íbúum verið sagt að yfirgefa heimili sín þar sem veður er hagstætt og nærri logn. Erlent 30.3.2007 21:36
Væntingavísitala lækkar í Bandaríkjunum Hátt verð á neysluvörum og laun sem hækka hægt eru helsta ástæða þess að væntingavísitala bandarískra neytenda hefur fallið. Hún hefur ekki verið lægri í hálft ár. Verðbólga hækkaði meira en búist var við í febrúar, eða um 0,3%, og er það mesta aukning síðan í ágúst á síðasta ári. Viðskipti erlent 30.3.2007 21:15
Uppreisnarmenn skjóta niður þyrlu Herþyrla var skotin niður í höfuðborg Sómalíu, Mogadishu, í dag á meðan eþíópíski herinn og uppreisnarmenn börðust. Þyrlan var eþíópísk. Hún varð alelda og féll svo til jarðar. Sjónarvottar sögðu að uppreisnarmenn hefðu grandað þyrlunni með flugskeyti. Erlent 30.3.2007 21:06
800 handteknir í óeirðum í Chile Yfir 800 voru handteknir í óeirðum í Chile í dag. Átökin brutust út á milli ungs fólks og lögreglu. Í dag var árleg mótmælaganga stúdenta um land allt. 38 lögreglumenn slösuðust í átökunum. Erlent 30.3.2007 20:54
Hæsti maður heims í hnapphelduna Allsérstakt brúðkaup fór fram Kína í vikunni þegar Bao Xishun, hæsti maður heims, gekk að eiga unnustu sína, Xia Shujuan. Þessi slánalegi geitahirðir er ríflega 2,3 metrar á hæð en eiginkona hans er hins vegar ekki nema 1,68 m, sem þykir raunar ágætt í Kína. Erlent 30.3.2007 19:19
Hicks fékk sjö ára dóm Herdómstóll, í Guantanamo á Kúbu, dæmdi í dag Ástralann David Hicks til sjö ára fangelsisvistar, til viðbótar við þau fimm ár sem hann hefur þegar varið í fangabúðunum, fyrir að aðstoða hryðjuverkamenn. Erlent 30.3.2007 19:21
Stoltenberg segir ESB-aðild úr sögunni Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir afar ólíklegt að Norðmenn sæki um aðild að Evrópusambandinu úr þessu. Leiðtogi Samfylkingarinnar segir þetta engu breyta um Evrópustefnu flokksins. Erlent 30.3.2007 19:13
Þrýstingurinn á Írana vex Evrópusambandið og öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafa skorað á Írana að sleppa fimmtán breskum sjóliðum sem þeir hafa í haldi sínu. Einn þeirra kom fram á íranskri sjónvarpsstöð í dag og baðst afsökunar á að hafa siglt inn í íranska landhelgi. Erlent 30.3.2007 19:08
Misræmi hjá Gonzales og starfsmannastjóra hans Alberto Gonzales, aðalsaksóknari í Bandaríkjunum, sagði í dag að hann minntist þess ekki að hafa tekið þátt í ákvörðunum um hvort að biðja ætti átta saksóknara að segja af sér. Fyrrum starfsmannastjóri Gonzales hafði fyrr sagt, eiðsvarinn, fyrir þingnefnd, að Gonzales hefði tekið þátt í og vitað af ferlinu frá upphafi þess. Brottrekstrarnir hafa leitt til þess að margir krefjast nú afsagnar Gonzales. George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, starfaði með honum í Texas á árum áður og hefur því stutt hann. Erlent 30.3.2007 18:09
Íranar eiga í höggi við Evrópusambandið Utanríkismálaráðherra Evrópusambandsins, Javier Solana, ætlar sér að reyna að tala við Mahmoud Ahmadinejad, forseta Írans, og tryggja að bresku sjóliðarnir 15 verði látnir lausir bráðlega. Solana sagði jafnframt að Íranar yrðu að skilja að þeir ættu ekki í höggi við Breta eina, heldur allar 27 þjóðirnar í Evrópusambandinu. Íranar hafa þrátt fyrir þetta engan bilbug látið á sér finna. Erlent 30.3.2007 18:01
Mugabe býður sig fram 2008 ZANU-PF, stjórnarflokkurinn í Zimbabwe hefur samþykkt að halda forsetakosningar í landinu árið 2008. Robert Mugabe, núverandi forseti landsins, var þá valinn frambjóðandi flokksins. Starfsmaður flokksins skýrði frá þessu í dag. Robert Mugabe er 83 ára gamall og verður kjörtímabilið því stytt úr sex árum í fimm. Mugabe gæti því gegnt embætti, ef heilsan endist, til 88 ára aldurs. Hann hefur átt undir högg að sækja vegna einræðislegra tilburða og samskipta sinna við stjórnarandstöðu landsins. Erlent 30.3.2007 17:56
Hörðustu bardagar í 15 ár Stjórnvöld í Eþíópíu skýrðu frá því í dag að þau hefðu fellt allt að 200 íslamska uppreisnarmenn í bardögum í höfuðborg Sómalíu, Mogadishu. Eþíópíski herinn hóf í dag stærstu sókn sína gegn uppreisnarmönnum síðan að þeir komu íslamska dómstólaráðinu frá völdum. Bardagarnir í Mogadishu eru þeir hörðustu í um 15 ár og vegna þeirra hafa fjölmargir íbúar borgarinnar þurft að flýja hana. Erlent 30.3.2007 17:50
ESB heimtar sjóliða lausa Evrópusambandið hefur krafist þess að Íranar sleppi fimmtán breskum sjóliðum þegar úr haldi. Per Stig Möller, utanríkisráðherra Danmerkur sagði fréttamönnum að Írönum hafi verið gerð grein fyrir því að þetta væri óásættanlegt. Sjóliðarnir hefðu verið í Íraskri landhelgi og ekki væri hægt að koma fram við fanga eins og þeir hafi gert. Erlent 30.3.2007 16:44
Haniyeh fjármagnar hryðjuverk -Olmert Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, kallar forsætisráðherra Palestínumanna hryðjuverkamann, í viðtali við bandaríska vikuritið Time, sem kom út í dag. Hann segir að Ismail Haniyeh hafi persónulega afhent skæruliðum peninga til þess að gera hryðjuverkaárásir á Ísrael. Erlent 30.3.2007 16:17