Erlent Vilja háhraðalest á milli Spánar og Marokkó Spænski forsætisráðherrann, Jose Luis Rodriguez Zapatero, sagði í dag að hann mundi beita sér fyrir því að jarðgöng yrðu gerð undir Gíbraltarsund til Marakkó. Göngin myndu vera fyrir háhraðalest og myndi tengja borgina Tangier í Marokkó við borgina Tarifa á Spáni. Erlent 6.3.2007 22:32 Forsetaframbjóðandi þarf erlendis í læknisskoðun Forsetaframbjóðandi stjórnarflokksins í Nígeríu, Umaru Yar'Adua, þurfti í dag að fara erlendis í læknisskoðun. Flokkurinn sagði í yfirlýsingu í dag að þetta væri venjubundið eftirlit og að Yar'Adua myndi snúa aftur fljótlega til þess að taka þátt í kosningabaráttunni af fullum krafti. Erlent 6.3.2007 22:27 Viðræður Norður-Kóreu og Bandaríkjanna ganga vel Viðræðurnar á milli Norður-Kóreu og Bandaríkjanna í dag gengu mjög vel. Þetta sagði aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna Christopher Hill við fréttamenn í dag. Hann sagði miklar líkur á því að samkomulagið sem að var sæst á þann 13. febrúar síðastliðinn myndi halda. „Þetta voru mjög góðar viðræður.“ sagði Hill. Erlent 6.3.2007 21:56 Cheney vonsvikinn Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, lýsti í kvöld yfir miklum vonbrigðum með úrskurðinn í máli fyrrum aðstoðarmanns hans, Lewis „Scooter“ Libby. Libby var í dag fundinn sekur um að hafa logið að alríkislögreglunni og hindra rannsókn þeirra. Erlent 6.3.2007 21:43 115 látnir og að minnsta kosti 200 slasaðir Alls 115 manns hafa nú látið lífið í sprengjuárásunum sem áttu sér stað í borginni Hilla í dag. Þetta kom fram í tilkynningu frá sjúkrahúsinu í borginni. Samkvæmt tölum þeirra slösuðust að minnsta kosti 200 manns í árásunum. Lögregla í borginni hafði áður sagt að 77 hefðu látið lífið. Erlent 6.3.2007 20:44 Ópíumframleiðslan eykst stöðugt Hersveitir Atlantshafsbandalagsins í Afganistan hófu í dag sína hörðustu sókn til þessa gegn uppreisnarmönnum í suðurhluta landsins. Vegna ástandsins í landinu stefnir í að ópíumframleiðsla á árinu verði meiri en dæmi eru um. Erlent 6.3.2007 18:19 Mannskæður jarðskjálfti í Indónesíu Óttast er að í það minnsta sjötíu manns hafi farist í tveimur jarðskjálftum sem riðu yfir Súmötru í Indónesíu í morgun. Engin flóðbylgja myndaðist vegna skjálftanna en miklar skemmdir urðu hins vegar á mannvirkjum. Erlent 6.3.2007 18:16 Á annað hundrað pílagrímar látnir Að minnsta kosti 112 pílagrímar liggja í valnum eftir fjölmörg hryðjuverk í Írak í dag. Versta árásin var framin í borginni Hillah en þar laumuðu tveir menn gyrtir sprengjubeltum sér inn í helgigöngu sjía sem var á leið til hinnar helgu borgar Karbala. Yfir níutíu fórust í því hermdarverki. Erlent 6.3.2007 18:10 Kínverjar auka umsvif sín í geimnum Kínverjar ætla sér að skjóta sinni fyrstu tunglkönnunarflaug á loft seinna á þessu ári. Huang Chunping, háttsettur starfsmaður kínversku geimferðastofnunarinnar, staðfesti þetta í dag. „Við teljum það heldur ekki óraunhæft að koma manni á tunglið á innan við 15 árum.“ sagði hann enn frekar. Erlent 6.3.2007 17:49 Libby sekur Lewis „Scooter“ Libby, fyrrum aðstoðarmaður Dick Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, var rétt í þessu fundinn sekur um að hindra framgang réttlætisins. Hann var sakaður um að hafa lekið nafni útsendara bandarísku leyniþjónustunnar til fjölmiðla. Erlent 6.3.2007 17:00 Latur þjófur Belgiska fornmunasalanum Johan Dumon brá í brún þegar hann kom heim úr sumarfríi og uppgötvaði að verslunin hans hafði verið tæmd. Johan var reyndar sestur í helgan stein og verslunin hafði verið lokuð í þrjú ár, en þar átti þó að vera enn mikið af verðmætum munum. Erlent 6.3.2007 16:52 Fróaði sér yfir farþega Tvítugur starfsmaður bandaríska flugfélagsins Northwest Airlines hefur verið handtekinn fyrir að fróa sér yfir farþega. Kona sem var farþegi í flugi frá Seattle til Minneapolis var að reyna að sofa og í svefnrofunum fann hún sessunaut sinn snúa sér að henni, þar sem hún hafði snúið sér út á hlið. Erlent 6.3.2007 16:27 Flaug á hús tengdamóður Bandarískur maður varð sjálfum sér og átta ára gamalli dóttur sinni að bana í Indíanafylki í gær, þegar hann flaug einshreyfils Cessna flugvél sinni á hús fyrrverandi tengdamóður sinnar. Tengdamóðurina sakaði ekki. Erlent 6.3.2007 15:41 Fjöldamorð á pílagrímum Erlent 6.3.2007 15:26 Elgur stangaði þyrlu til jarðar Þegar líffræðingurinn Dough Larsen skaut deyfingarpílu í stóran elgtarf í Juneau í Alaska, um helgina, átti hann von á því að dýrið hnigi niður. Larsen skaut tarfinn úr þyrlu, sem sveimaði rétt yfir jörðu og beið þess að hann félli. Þess í stað trylltist tarfurinn, réðst á þyrluna og stangaði hana. Erlent 6.3.2007 15:16 Segja Putin reka morðsveitir Vestrænir fjölmiðlar velta fyrir sér hvort einhver tengsl séu á milli þess að vinur rússneska njósnarans Alexanders Litvinenko var særður í skotárás og að rússneskur blaðamaður lést eftir að hafa dottið út um glugga á fjórðu hæð í íbúðarblokk í Moskvu. Íbúð blaðamannsins var á annarri hæð í húsinu. Erlent 6.3.2007 14:37 Jóakim sá brúðkaupið í sjónvarpi Jóakim Danaprins viðurkenndi fyrir fréttamönnum að hann hefði séð brúðkaup Alexöndru, fyrrverandi eiginkonu sinnar, í sjónvarpi. Prinsinn var staddur í Álaborg þar sem hann var að veita ungum vísindamönnum verðlaun fyrir uppgötvanir. Blaðamenn vildu hins vegar ekkert um verðlaunin vita en spurðu prinsinn látlaust um brúðkaupið. Erlent 6.3.2007 14:14 Áttundi hver Íraki á flótta Áttundi hver Íraki er orðinn flóttamaður að sögn yfirmanns Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Hann segir að 40-50 þúsund manns flosni upp af heimilum sínum í hverjum mánuði. Antonio Guterres upplýsti þetta á fundi Arababandalagsins í Kaíró. Erlent 6.3.2007 13:54 Forsætisráðherra brýtur umferðarreglur Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur daglega brotið umferðarreglur undanfarna mánuði með því að aka alltof hratt. Berlingske Tidende upplýsti þetta í dag. Það verður að segja ráðherranum til afsökunar að hann vissi ekki að hann væri að brjóta lög. Erlent 6.3.2007 13:51 Ykkar öskutunnur Erlent 6.3.2007 13:15 Mótmælin breiðast út Niðurrifi á Ungdomshuset á Norðurbrú í Kaupmannahöfn miðar hratt áfram og er búist við að verkinu ljúki síðar í dag. Í gær kom hins vegar til mótmæla fyrir framan danska sendiráðið í Ósló þegar um 150 manns köstuðu grjóti, flöskum og öðru lauslegu í átt að húsinu. Þá hertóku 80 ítalskir róttæklingar dönsku ræðisskrifstofuna í Feneyjum í morgun til að sýna dönskum félögum sínum samstöðu. Erlent 6.3.2007 11:32 Markaðir að rétta sig við Hlutabréfamarkaðir í Asíu og Evrópu hafa tekið kipp upp á við í dag eftir talsverðar lækkanir síðustu daga. Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands steig um fimmtíu stig strax við opnun klukkan tíu í morgun og hefur gengi á bréfum í stærstu fyrirtækjum landsins hækkað í samræmi við það. Erlent 6.3.2007 11:29 Sjötíu látnir í skjálftanum Óttast er að í það minnsta sjötíu manns hafi týnt lífi þegar tveir jarðskjálftar riðu yfir Súmötru í Indónesíu í morgun. Hús hrundu víða til grunna en engra flóðbylgna hefur þó orðið vart. Erlent 6.3.2007 11:26 EMI hafnaði Warner Music Stjórn bresku hljómplötuútgáfunnar EMI hafnaði í gær yfirtökutilboði bandarísku risasamstæðunnar Warner Music Group. Tilboðið hljóðaði upp á 260 pens á hlut, sem þýðir að EMI er metið á 2,1 milljarð punda, jafnvirði um 275 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 5.3.2007 23:23 Þingið í Ekvador gegn forsetanum Þingið í Ekvador lagði fram tillögu hjá stjórnarskrárdómstólum landsins til þess að reyna að koma í veg fyrir að Rafael Correa, hinn vinstri sinnaði forseti landsins, geti haldið þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort hann megi halda stjórnarskrárþing og breyta stjórnarskrá landsins. Talið er líklegt að þetta eigi eftir að auka á spennu í landinu en stuðningsmenn Correa hafa verið duglegir við að mótmæla tilburðum þingsins til þess að setja sig upp á móti Correa. Erlent 5.3.2007 23:34 Bandaríkin og Norður-Kórea í sögulegum viðræðum Viðræður eru hafnar á milli erindreka Bandaríkjanna og Norður-Kóreu um að koma á eðlilegum diplómatískum samskiptum á milli ríkjanna tveggja. Fyrsti fundurinn var í dag og er hann sá fyrsti í 50 ár á milli landanna tveggja. Erlent 5.3.2007 23:19 Enn ekki samkomulag um refsiaðgerðir Sendiherrar hjá Sameinuðu þjóðunum funduðu í dag um væntanlegar refsiaðgerðir gegn Íran en samkomulag hefur enn ekki náðst. „Málið hefur verið fært til öryggisráðsins“ sagði aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, Nicholas Burns, eftir fund með Ban Ki-Moon, aðalritara Sameinuðu þjóðanna. Erlent 5.3.2007 23:02 Ætla að rannsaka möttul jarðarinnar Vísindamenn frá háskólanum í Cardiff í Bretlandi lögðu í dag af stað í leiðangur til þess að kanna hafsbotninn á Atlantshafinu en á staðnum sem þeir ætla að skoða vantar jarðskorpuna. Möttull jarðarinnar er þar óvarður en svæðið, sem er mörg þúsund ferkílómetrar að stærð, uppgötvaðist nýlega. Erlent 5.3.2007 22:40 Reyndu að eyðileggja sönnunargögn Bandarískir hermenn reyndu að uppræta og eyðileggja allar myndir og myndbönd af skotárásinni sem átti sér stað í gær. Í henni létust að minnsta kosti tíu manns. Þetta kom fram á vefsíðu fréttastöðvarinnar Al Jazeera í dag. Erlent 5.3.2007 21:01 Cheney með blóðtappa Læknar í Bandaríkjunum fundu í dag blóðtappa í vinstri fótlegg Dick Cheneys varaforseta Bandaríkjanna. Hann fær lyf til þess að þynna blóðið en verður ekki lagður inn á spítala samkvæmt fregnum frá talsmönnum hans. Erlent 5.3.2007 20:39 « ‹ 151 152 153 154 155 156 157 158 159 … 334 ›
Vilja háhraðalest á milli Spánar og Marokkó Spænski forsætisráðherrann, Jose Luis Rodriguez Zapatero, sagði í dag að hann mundi beita sér fyrir því að jarðgöng yrðu gerð undir Gíbraltarsund til Marakkó. Göngin myndu vera fyrir háhraðalest og myndi tengja borgina Tangier í Marokkó við borgina Tarifa á Spáni. Erlent 6.3.2007 22:32
Forsetaframbjóðandi þarf erlendis í læknisskoðun Forsetaframbjóðandi stjórnarflokksins í Nígeríu, Umaru Yar'Adua, þurfti í dag að fara erlendis í læknisskoðun. Flokkurinn sagði í yfirlýsingu í dag að þetta væri venjubundið eftirlit og að Yar'Adua myndi snúa aftur fljótlega til þess að taka þátt í kosningabaráttunni af fullum krafti. Erlent 6.3.2007 22:27
Viðræður Norður-Kóreu og Bandaríkjanna ganga vel Viðræðurnar á milli Norður-Kóreu og Bandaríkjanna í dag gengu mjög vel. Þetta sagði aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna Christopher Hill við fréttamenn í dag. Hann sagði miklar líkur á því að samkomulagið sem að var sæst á þann 13. febrúar síðastliðinn myndi halda. „Þetta voru mjög góðar viðræður.“ sagði Hill. Erlent 6.3.2007 21:56
Cheney vonsvikinn Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, lýsti í kvöld yfir miklum vonbrigðum með úrskurðinn í máli fyrrum aðstoðarmanns hans, Lewis „Scooter“ Libby. Libby var í dag fundinn sekur um að hafa logið að alríkislögreglunni og hindra rannsókn þeirra. Erlent 6.3.2007 21:43
115 látnir og að minnsta kosti 200 slasaðir Alls 115 manns hafa nú látið lífið í sprengjuárásunum sem áttu sér stað í borginni Hilla í dag. Þetta kom fram í tilkynningu frá sjúkrahúsinu í borginni. Samkvæmt tölum þeirra slösuðust að minnsta kosti 200 manns í árásunum. Lögregla í borginni hafði áður sagt að 77 hefðu látið lífið. Erlent 6.3.2007 20:44
Ópíumframleiðslan eykst stöðugt Hersveitir Atlantshafsbandalagsins í Afganistan hófu í dag sína hörðustu sókn til þessa gegn uppreisnarmönnum í suðurhluta landsins. Vegna ástandsins í landinu stefnir í að ópíumframleiðsla á árinu verði meiri en dæmi eru um. Erlent 6.3.2007 18:19
Mannskæður jarðskjálfti í Indónesíu Óttast er að í það minnsta sjötíu manns hafi farist í tveimur jarðskjálftum sem riðu yfir Súmötru í Indónesíu í morgun. Engin flóðbylgja myndaðist vegna skjálftanna en miklar skemmdir urðu hins vegar á mannvirkjum. Erlent 6.3.2007 18:16
Á annað hundrað pílagrímar látnir Að minnsta kosti 112 pílagrímar liggja í valnum eftir fjölmörg hryðjuverk í Írak í dag. Versta árásin var framin í borginni Hillah en þar laumuðu tveir menn gyrtir sprengjubeltum sér inn í helgigöngu sjía sem var á leið til hinnar helgu borgar Karbala. Yfir níutíu fórust í því hermdarverki. Erlent 6.3.2007 18:10
Kínverjar auka umsvif sín í geimnum Kínverjar ætla sér að skjóta sinni fyrstu tunglkönnunarflaug á loft seinna á þessu ári. Huang Chunping, háttsettur starfsmaður kínversku geimferðastofnunarinnar, staðfesti þetta í dag. „Við teljum það heldur ekki óraunhæft að koma manni á tunglið á innan við 15 árum.“ sagði hann enn frekar. Erlent 6.3.2007 17:49
Libby sekur Lewis „Scooter“ Libby, fyrrum aðstoðarmaður Dick Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, var rétt í þessu fundinn sekur um að hindra framgang réttlætisins. Hann var sakaður um að hafa lekið nafni útsendara bandarísku leyniþjónustunnar til fjölmiðla. Erlent 6.3.2007 17:00
Latur þjófur Belgiska fornmunasalanum Johan Dumon brá í brún þegar hann kom heim úr sumarfríi og uppgötvaði að verslunin hans hafði verið tæmd. Johan var reyndar sestur í helgan stein og verslunin hafði verið lokuð í þrjú ár, en þar átti þó að vera enn mikið af verðmætum munum. Erlent 6.3.2007 16:52
Fróaði sér yfir farþega Tvítugur starfsmaður bandaríska flugfélagsins Northwest Airlines hefur verið handtekinn fyrir að fróa sér yfir farþega. Kona sem var farþegi í flugi frá Seattle til Minneapolis var að reyna að sofa og í svefnrofunum fann hún sessunaut sinn snúa sér að henni, þar sem hún hafði snúið sér út á hlið. Erlent 6.3.2007 16:27
Flaug á hús tengdamóður Bandarískur maður varð sjálfum sér og átta ára gamalli dóttur sinni að bana í Indíanafylki í gær, þegar hann flaug einshreyfils Cessna flugvél sinni á hús fyrrverandi tengdamóður sinnar. Tengdamóðurina sakaði ekki. Erlent 6.3.2007 15:41
Elgur stangaði þyrlu til jarðar Þegar líffræðingurinn Dough Larsen skaut deyfingarpílu í stóran elgtarf í Juneau í Alaska, um helgina, átti hann von á því að dýrið hnigi niður. Larsen skaut tarfinn úr þyrlu, sem sveimaði rétt yfir jörðu og beið þess að hann félli. Þess í stað trylltist tarfurinn, réðst á þyrluna og stangaði hana. Erlent 6.3.2007 15:16
Segja Putin reka morðsveitir Vestrænir fjölmiðlar velta fyrir sér hvort einhver tengsl séu á milli þess að vinur rússneska njósnarans Alexanders Litvinenko var særður í skotárás og að rússneskur blaðamaður lést eftir að hafa dottið út um glugga á fjórðu hæð í íbúðarblokk í Moskvu. Íbúð blaðamannsins var á annarri hæð í húsinu. Erlent 6.3.2007 14:37
Jóakim sá brúðkaupið í sjónvarpi Jóakim Danaprins viðurkenndi fyrir fréttamönnum að hann hefði séð brúðkaup Alexöndru, fyrrverandi eiginkonu sinnar, í sjónvarpi. Prinsinn var staddur í Álaborg þar sem hann var að veita ungum vísindamönnum verðlaun fyrir uppgötvanir. Blaðamenn vildu hins vegar ekkert um verðlaunin vita en spurðu prinsinn látlaust um brúðkaupið. Erlent 6.3.2007 14:14
Áttundi hver Íraki á flótta Áttundi hver Íraki er orðinn flóttamaður að sögn yfirmanns Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Hann segir að 40-50 þúsund manns flosni upp af heimilum sínum í hverjum mánuði. Antonio Guterres upplýsti þetta á fundi Arababandalagsins í Kaíró. Erlent 6.3.2007 13:54
Forsætisráðherra brýtur umferðarreglur Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur daglega brotið umferðarreglur undanfarna mánuði með því að aka alltof hratt. Berlingske Tidende upplýsti þetta í dag. Það verður að segja ráðherranum til afsökunar að hann vissi ekki að hann væri að brjóta lög. Erlent 6.3.2007 13:51
Mótmælin breiðast út Niðurrifi á Ungdomshuset á Norðurbrú í Kaupmannahöfn miðar hratt áfram og er búist við að verkinu ljúki síðar í dag. Í gær kom hins vegar til mótmæla fyrir framan danska sendiráðið í Ósló þegar um 150 manns köstuðu grjóti, flöskum og öðru lauslegu í átt að húsinu. Þá hertóku 80 ítalskir róttæklingar dönsku ræðisskrifstofuna í Feneyjum í morgun til að sýna dönskum félögum sínum samstöðu. Erlent 6.3.2007 11:32
Markaðir að rétta sig við Hlutabréfamarkaðir í Asíu og Evrópu hafa tekið kipp upp á við í dag eftir talsverðar lækkanir síðustu daga. Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands steig um fimmtíu stig strax við opnun klukkan tíu í morgun og hefur gengi á bréfum í stærstu fyrirtækjum landsins hækkað í samræmi við það. Erlent 6.3.2007 11:29
Sjötíu látnir í skjálftanum Óttast er að í það minnsta sjötíu manns hafi týnt lífi þegar tveir jarðskjálftar riðu yfir Súmötru í Indónesíu í morgun. Hús hrundu víða til grunna en engra flóðbylgna hefur þó orðið vart. Erlent 6.3.2007 11:26
EMI hafnaði Warner Music Stjórn bresku hljómplötuútgáfunnar EMI hafnaði í gær yfirtökutilboði bandarísku risasamstæðunnar Warner Music Group. Tilboðið hljóðaði upp á 260 pens á hlut, sem þýðir að EMI er metið á 2,1 milljarð punda, jafnvirði um 275 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 5.3.2007 23:23
Þingið í Ekvador gegn forsetanum Þingið í Ekvador lagði fram tillögu hjá stjórnarskrárdómstólum landsins til þess að reyna að koma í veg fyrir að Rafael Correa, hinn vinstri sinnaði forseti landsins, geti haldið þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort hann megi halda stjórnarskrárþing og breyta stjórnarskrá landsins. Talið er líklegt að þetta eigi eftir að auka á spennu í landinu en stuðningsmenn Correa hafa verið duglegir við að mótmæla tilburðum þingsins til þess að setja sig upp á móti Correa. Erlent 5.3.2007 23:34
Bandaríkin og Norður-Kórea í sögulegum viðræðum Viðræður eru hafnar á milli erindreka Bandaríkjanna og Norður-Kóreu um að koma á eðlilegum diplómatískum samskiptum á milli ríkjanna tveggja. Fyrsti fundurinn var í dag og er hann sá fyrsti í 50 ár á milli landanna tveggja. Erlent 5.3.2007 23:19
Enn ekki samkomulag um refsiaðgerðir Sendiherrar hjá Sameinuðu þjóðunum funduðu í dag um væntanlegar refsiaðgerðir gegn Íran en samkomulag hefur enn ekki náðst. „Málið hefur verið fært til öryggisráðsins“ sagði aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, Nicholas Burns, eftir fund með Ban Ki-Moon, aðalritara Sameinuðu þjóðanna. Erlent 5.3.2007 23:02
Ætla að rannsaka möttul jarðarinnar Vísindamenn frá háskólanum í Cardiff í Bretlandi lögðu í dag af stað í leiðangur til þess að kanna hafsbotninn á Atlantshafinu en á staðnum sem þeir ætla að skoða vantar jarðskorpuna. Möttull jarðarinnar er þar óvarður en svæðið, sem er mörg þúsund ferkílómetrar að stærð, uppgötvaðist nýlega. Erlent 5.3.2007 22:40
Reyndu að eyðileggja sönnunargögn Bandarískir hermenn reyndu að uppræta og eyðileggja allar myndir og myndbönd af skotárásinni sem átti sér stað í gær. Í henni létust að minnsta kosti tíu manns. Þetta kom fram á vefsíðu fréttastöðvarinnar Al Jazeera í dag. Erlent 5.3.2007 21:01
Cheney með blóðtappa Læknar í Bandaríkjunum fundu í dag blóðtappa í vinstri fótlegg Dick Cheneys varaforseta Bandaríkjanna. Hann fær lyf til þess að þynna blóðið en verður ekki lagður inn á spítala samkvæmt fregnum frá talsmönnum hans. Erlent 5.3.2007 20:39