Innlent

Fréttamynd

Væntingar um stýrivaxtalækkun óraunsæjar

Davíð Odddsson seðlabankastjóri segir ekki raunhæft að stýrivextir verði lækkaðir í byrjun næsta árs eins og greiningardeildir bankanna hafa spáð og segir ekki útilokað að stýrivextir verði hækkaðir við næsta vaxtaákvörðunardag sem er 21. desember. Seðlabankinn segir matarskattslækkunina draga úr aðhaldi og tefja fyrir aðlögun í þjóðarbúskapnum.

Innlent
Fréttamynd

Greiðsluafkoma ríkissjóðs batnar

Greiðsluafkoma ríkissjóðs hefur batnað frá síðasta ári. Handbært fé ríkissjóðs frá rekstri á fyrstu níu mánuðum ársins nam 43,9 milljörðum króna sem er 29,3 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Að undanskildum tekjum ríkissjóðs vegna sölunnar á Landssímanum hf. hækkuðu tekjurnar um 28,6 milljarða krónur á milli ára. Gjöld ríkissjóðs stóðu hins vegar í stað á milli ára.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vilja að breytingar á vali á rektor á Bifröst og í HR

Stjórn Bandalags íslenskra námsmanna (BÍSN) hvetur stjórn Háskólans á Bifröst til að endurskoða nýlegar breytingar á reglum um val rektors. Jafnfram hvetur stjórnin háskólaráð Háskólans í Reykjavík til þess að huga að breytingum á reglum sínum við val á rektor nú þegar núverandi rektor hverfur til annarra starfa.

Innlent
Fréttamynd

Eins árs fangelsi fyrir hnífstungur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann á þrítugsaldri í eins árs fangelsi, þar sem níu mánuðir eru skilorðsbundnir, fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur fyrr árinu.

Innlent
Fréttamynd

Eggert boðaður á fund mannréttindanefndar

Mannréttindanefnd Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að óska eftir því við Eggert Magnússon, formann Knattspyrnusambands Íslands, að hann mæti á næsta fund nefndarinnar til að ræða launamun kynjanna hjá karla- og kvennalandsliðum Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Sex fíkniefnamál í nótt

Sex fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Reykjavík og í Kópavogi í nótt. Það stærsta kom upp við húsleilt Kópavogslögreglunnar þar sem hún fann nokkurt magn af hassi, E-töflum og marijuana, sem búið var að pakka í smásöluumbúðir.

Innlent
Fréttamynd

Lítið um eftirskjálfta

Engar umtalsverðar jarðhræringar hafa verið út af Skjálfanda síðan að þar varð skjálfti upp á 4,5 á Richter laust fyrir klukkan tvö í gærdag.

Innlent
Fréttamynd

Skattalækkanir draga úr aðhaldi, tefja fyrir aðlögun í þjóðarbúskap

Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Þeir standa nú í 14 prósentum. Seðlabankinn segir í rökstuðningi sínum að verðbólguhorfur hafi batnað verulega en þær séu þó enn óviðunandi og kalli á aðgát og aðhald. Væntingar um hraða lækkun stýrivaxta á næstunni séu því ekki raunsæjar. Bankinn segir matarskattslækkunina draga úr aðhaldi tefja fyrir aðlögun í þjóðarbúskapnum.

Innlent
Fréttamynd

Látinn laus úr gæsluvarðhaldi

Maður, sem er grunaður um að hafa nauðgað tvítugri erlendri námsstúlku eftir að hafa boðið henni far, var látinn laus úr gæsluvarðhaldi síðdegis í gær.

Innlent
Fréttamynd

Ólíklegt að reyni á ríkisábyrgð

Ólíklegt er að eiginfjárhlutfall Íbúðalánasjóðs stefni niður fyrir þær kröfur sem fjármálaeftirlitið setur á stofnunina og skilgreindar eru í reglugerð, í fyrirsjáanlegri framtíð og þar af leiðandi ólíklegt að reyna muni á ríkisábyrgð á skuldbindingum sjóðsins. Þetta kemur fram í hluta stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoðunar á sjóðnum sem félagsmálanefnd Alþingis óskaði eftir í júlí árið 2005 í ljósi mjög breyttra aðstæðna á fjármálamarkaði.

Innlent
Fréttamynd

Klámvæðing er ein orsök nauðgananna

Bæta þarf lagaumhverfi og herða refsingar vegna nauðgana. Berjast þarf gegn klámvæðingu samfélagsins. Þetta kom fram á málþingi um hvað sé til ráða gegn nauðgunum. Þingmenn allra stjórnmálaflokka mættu til fundar.

Innlent
Fréttamynd

Almenn lögregla á ekki að bera byssur

Dómsmálaráðherra telur ekki ástæðu til að lögreglumenn við almenna löggæslu beri vopn. Betri kostur sé að byggja áfram upp sérsveit lögreglunnar. Refsingar við hótunum og ofbeldi gegn lögreglumönnum verða hertar.

Innlent
Fréttamynd

Götuvirðið nemur á milli 355 og 480 milljónum króna

Lögregla og tollgæsla lögðu hald á mun meira af amfetamíni fyrstu níu mánuði ársins heldur en samanlagt magn síðustu þriggja ára. Á tímabilinu janúar til september var hald lagt á rúm 45 kíló af efninu. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Fimmtíu starfsmönnum sagt upp

28 starfsmönnum ÍE á Íslandi, og 20 starfsmönnum í Bandaríkjunum, var sagt upp störfum í fyrradag. Búið var að ákveða uppsagnirnar fyrir nokkru að sögn Eiríks Sigurðssonar, upplýsingafulltrúa ÍE: ,,Uppsagnirnar eru liður í hagræðingu í rekstri fyrirtækisins. Við höfum lokið við ýmis verkefni og erum að endurskipuleggja önnur verkefni hjá okkur. Meðal annars vorum við að taka upp nýja tækni, sem með aukinni sjálfvirkni, eykur afköst í erfðarannsóknum,“ segir Eiríkur.

Innlent
Fréttamynd

Einkavæðing ekki á dagskrá

Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins, kvað á Alþingi í gær skýrt að orði um að ekki standi til að einkavæða Landsvirkjun. Helgi Hjörvar, Samfylkingunni, tók málið upp við upphaf þingfundar og krafði Jón svara um nokkur atriði er lúta að samningnum um kaup ríkisins á hlut Reykjavíkur og Akureyrar í fyrirtækinu.

Innlent
Fréttamynd

Launavernd verði afnumin

Stjórnarandstaðan vill að launavernd verði afnumin, lagaskyldu um jöfn laun karla og kvenna verði framfylgt og að úrskurði kærunefndar jafnréttismála verði bindandi.

Innlent
Fréttamynd

Breytt umhverfi kallaði á breytingar

Fjármálaráðherra segir breytt samkeppnisumhverfi á raforkumarkaði hafa kallað á breytingar á eignarhaldi Landsvirkjunar. Óeðlilegt að borgin eigi 45 prósent í Landsvirkjun og 95 prósent í Orkuveitu Reykjavíkur segir borgarstjóri.

Innlent
Fréttamynd

Hjónin kærðu salernisárásina

Hjónin sem lentu í útistöðum við hóp manna á Café Victor í Hafnarstræti hafa lagt fram kæru hjá lögreglu. Maðurinn kærði líkamsárás en konan kynferðislega áreitni.

Innlent
Fréttamynd

Hús á Skólavörðustíg verður lækkað

„Komið hefur verið til móts við athugasemdir sem fram komu við grenndarkynningu með því að lækka efra húsið og bakhúsið um eina hæð, sem telst nú nokkur nýlunda í byggingamálum borgarinnar,“ segir Stefán Örn Stefánsson arkitekt sem hannað hefur breytingar og viðbyggingu við húsin á Skólavörðustíg 13 og 13a.

Innlent
Fréttamynd

Uppteknir af Gamla testamentinu

„Margir Færeyingar eru mjög uppteknir af því sem stendur í Gamla testamentinu,“ segir Jens Kr. Guð, sem hefur oft haldið skrautskriftarnámskeið í Eyjunum auk þess að hafa mikinn áhuga á færeyskri tónlist.

Innlent
Fréttamynd

Fjölgun nema á fyrsta ári

Gert er ráð fyrir að nemendum á fyrsta ári í hjúkrunarfræði við HÍ fjölgi um 25 á næsta ári. Þá munu menntamála- og fjármálaráðuneytin leggja til að fjölgunin skiptist þannig að fjölgað verði um tíu nema á ári í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri og um fimmtán nemendur við HÍ.

Innlent
Fréttamynd

Vilja bjarga Henglinum

Borgarfulltrúarnir Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir eru á meðal þeirra sem ætla að þiggja gönguferð með Íslenskum fjallaleiðsögumönnum um Hengilssvæðið.

Innlent
Fréttamynd

Kosovo-Serbi leitar hælis

52 ára gamall Kosovo-Serbi gaf sig fram við landamæraverði á Seyðisfirði í gærmorgun og óskaði eftir hæli á Íslandi. Hann hafði komið til landsins með farþegaferjunni Norrænu frá Noregi þá um nóttina. Lögreglan tók af manninum hælisskýrslu og hafði samband við Útlendingastofnun sem mun fjalla um umsókn mannsins. Hann var fluttur suður eftir skýrslutöku og dvelur á Fitjum á meðan mál hans er tekið til meðferðar.

Innlent