Innlent

Fréttamynd

Spá enn meiri verðbólgulækkun

Greiningardeild Glitnis segir flest benda til að enn muni draga úr verðbólgu á næstu mánuðum, ekki síst þegar sterk staða krónunnar og kólnandi íbúðamarkaður er tekinn með í reikninginn. Deildin býst við að Seðlabankinn ákveði að halda stýrivöxtum óbreyttum á næsta vaxtaákvörðunardegi 2. nóvember.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gefur kost á sér í 2. sætið

Birkir Jón Jónsson, alþingismaður, gefur kost á sér í 2. sæti Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Birkir hefur verið þingmaður Framsóknarflokksins síðan árið 2003. Áður var hann aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, 2000-2003.

Innlent
Fréttamynd

Flugfélag Íslands hefur flug til Eyja á mánudag

Flugfélag Íslands hefur áætlunarflug til Vestmannaeyja næsta mánudag eftir að samkomulag tókst við Vegagerðina um tíu mánaða samning. Hann verður undirritaður í dag að viðstöddum samgönguráðherra og í honum er gert ráð fyrir þrettán flugferðum milli Reykjavíkur og Eyja í viku.

Innlent
Fréttamynd

Barr með rúm 70 prósent í Pliva

Bandaríska samheitalyfjafyrirtækið Barr er komið með 72,67 prósent hlutbréfa í króatíska samheitalyfjafyrirtækinu Pliva. Barr hefur att kappi við Actavis um yfirtöku á Pliva síðan fyrr á þessu ári en áhugi lyfjafyrirtækja á króatíska fyrirtækinu vaknaði ekki fyrr en Actavis gerði tilboð í fyrirtækið í mars.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Endurvekja námskeið fyrir unga ökumenn

Umferðarstofa og Sjóvá Forvarnahúsið hafa ákveðið að endurvekja námskeið fyrir unga ökumenn sem Sjóvá hefur staðið fyrir síðastliðinu níu ár. Samstarfssamningur þar að lútandi var undirritaður í gær.

Innlent
Fréttamynd

Búist við mikilli umferð vegna landsleiks

Búist er við mikilli umferð vegna landsleiks Íslendinga og Svía á Laugardalsvelli í kvöld. Lögreglan í Reykjavík beinir því til knattspyrnuáhugamanna að þeir leggi tímanlega af stað og sýni þolinmæði, ekki síst eftir leikinn en þá verður umferðin væntanlega enn þyngri.

Innlent
Fréttamynd

Aukin útlán hjá Íbúðalánasjóði

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 3,4 milljörðum króna í september. Þetta er 7,5 prósenta aukning frá mánuðinum á undan en samtals hefur Íbúðalánsjóður lánað 33,7 milljarða krónur á árinu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fyrsti snjór vetrarins á Norðurlandi

Fyrsti snjór vetrarins féll í byggð víða á Norðurlandi í gærkvöldi og gerði meðal annars fljúgandi hálka á götum Akureyrar og er hún enn. Hálka er líka á fjallvegum fyrir norðan. Þrátt fyrir að margir aki enn á sumardekkjum er ekki vitað um óhöpp eða slys vegna þessarar óvæntu hálku.

Innlent
Fréttamynd

Auðlindanefnd skilar niðurstöðum í dag

Auðlindanefnd, sem skipuð var fyrr árinu til þess að gera tillögur um nýtingu auðlinda í jörðu, hefur skilað af sér skýrslu og verður hún kynnt á blaðamannafundi klukkan ellefu í dag.

Innlent
Fréttamynd

Enn dregur úr verðbólgu

Vísitala neysluverð í október hækkaði um 0,23 prósent á milli mánaða og jafngildir þetta 7,2 prósenta verðbólgu síðastliðna 12 mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Þetta er 0,2 prósentustigum undir spám greiningardeild þriggja stærstu viðskiptabankanna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ráðherra vill þyngri refsingar fyrir brot gegn valdstjórninni

Maður sem skaut af haglabyssu í efri byggðum Reykjavíkur fyrir skömmu mundaði byssuna skammt frá lögreglumönnum sem náðu að yfirbuga hann. Þá var fíkniefnasali handtekinn á föstudag með fullhlaðna skammbyssu. Dómsmálaráðherra vill þyngja refsingar fyrir brot gegn lögreglumönnum.

Innlent
Fréttamynd

Íslenskar bringur fjórfalt dýrari en danskar

Gríðarlegur verðmunur er á innkaupakörfu keyptri í Danmörku og á Íslandi í dag. Þar vega þyngst kjúklingabringur sem eru rösklega fjórfalt dýrari í íslensku körfunni. Sextán prósenta lækkun ríkisstjórnarinnar á matarverði hrekkur skammt til að draga úr þeim mun.

Innlent
Fréttamynd

KfW gefur út 9 milljarða krónubréf

Þýski þróunarsjóðurinn KfW tilkynnti í dag um útgáfu á krónubréfum í þremur hlutum fyrir samtals 9 milljarða króna. Hver útgáfa er 3 milljarðar króna og er gjalddögunum dreift í október á árunum 2008, 2009 og 2010. Heildarútgáfa áKfW nemur 87 milljörðum króna en til samanburðar eru allir ríkisbréfaflokkarnir tæpir 86 milljarðar króna að markaðsvirði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tímasetning orkar tvímælis

Tímasetning á aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að lækka matarverð orkar tvímælis segir Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ. Hann er ekki bjartsýnn á að nógu hratt dragi úr þenslu.

Innlent
Fréttamynd

Bandarískt flugmóðurskip til Reykjavíkur

Fjörutíuþúsund tonna bandarískt flugmóðurskip kemur til Reykjavíkur í þessari viku, og segir í tilkynningu frá Bandaríska sendiráðinu að það sé í samræmi við samkomulag landanna um að viðhalda og styrkja samstarf í öryggismálum, í kjölfar þess að herstöðinni á Keflavíkurflugvelli var lokað.

Innlent
Fréttamynd

TM hækkar hlutafé

Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) hefur ákveðið að hækka hlutafé félagsins um 157,8 milljónir króna að nafnverði sem selt verður á genginu 38 til að styrkja eiginfjárstöðu félagsins vegna kaupa á hlutum í norska tryggingafélaginu NEMI Forsikring. Glitnir hefur umsjón með útboðinu og hefur sölutryggt sölu allra hluta.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vegagerðin hóf útboð á ný

Vegagerðin bauð í dag út þrjú verk. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, tilkynnti í síðustu viku að myndast hefði svigrúm til að hefja samgöngubætur á ný en í júní voru öll útboð vegna Vegagerðar stöðvuð.

Innlent