Innlent

Fréttamynd

Kaupir fyrir 400 milljónir

Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Dagsbrúnar, keypti í gær hlutabréf í Dagsbrún fyrir fjögur hundruð milljónir króna.

Innlent
Fréttamynd

Aðgreining akstursstefna að leiðarljósi

Stefnt er að miklum úrbótum á vegum í nágrenni Reykjavíkur. Undirbúningur að stórfelldum framkvæmdum við Vesturlandsveg og Suðurlandsveg hefur staðið yfir um nokkurt skeið. Eykur öryggi, segir Gísli Marteinn Baldursson.

Innlent
Fréttamynd

Trúnaði um öryggismál aflétt

Alþingi samþykkti í gærkvöldi lög sem aflétta þagnarskyldu opinberra starfsmanna á málum er varða öryggi Íslands á árunum 1945-1991. Lögin ná einnig til opinberra starfsmanna sem látið hafa af störfum.

Innlent
Fréttamynd

Skrifa undir styrktarsamning

Kópavogsdeild Rauða krossins og BYKO undirrituðu í gær styrktarsamning vegna átaksins Byggjum betra samfélag. Samstarfið miðar að því að tryggja fjármagn fyrir nýtt verkefni sem ætlað er að stuðla að betra samfélagi án mismununar.

Innlent
Fréttamynd

Vilja kaupa sjúkrastöð

Fimm þingmenn úr fjórum flokkum vilja að Íslendingar kaupi og reki færanlega sjúkrastöð í Palestínu og hafa flutt um það þingsályktunartillögu.

Innlent
Fréttamynd

Gefur kost á sér í 2. til 3. sæti

Sigríður Ingvarsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, býður sig fram í 2. til 3. sæti á lista flokksins í Norðausturkjördæmi. Sigríður var þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Norðvesturkjördæmi á árunum 2001 til 2003. Hún starfar sem verkefnisstjóri Impru Nýsköpunarmiðstöð.

Innlent
Fréttamynd

Maður fastur í þvottahúsi

Karlmaður í Vesturbænum þurfti að kalla á lögreglu seint gærkvöld eftir að hafa lent í hremmingum við þvott. Maðurinn greindi lögreglu frá því að hann hefði sett óhreint tau í vélina en það hafi ekki tekist betur til en svo að vélin fór að skoppa um með miklum látum og á endanum hafi hún skorðast við þvottahúsdyrnar.

Innlent
Fréttamynd

Brutust inn í tíu sumarhús

Drengirnir tveir sem fóru ránshendi um landið fyrir nokkru síðan eru grunaðir um innbrot í allt að tíu bústaði í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi. Þeir eru einnig grunaðir um ýmis afbrot á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu, á Húsavík og á Selfossi.

Innlent
Fréttamynd

Bíllinn skilinn eftir

Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri hvetur nemendur og starfsfólk skólans til að nota aðra fararkosti en bílinn til að komast leiða sinna í dag. Þetta er gert í þeim tilgangi að benda á kosti þess að stunda nám á Akureyri þar sem samgöngur eru góðar og vegalengdirnar innanbæjar stuttar.

Innlent
Fréttamynd

Braust tvívegis inn um helgina

Maður á tvítugsaldri var úrskurðaður í síbrotagæslu í eina viku af Héraðsdómi Reykjaness á mánudag. Hann hafði verið gripinn tvívegis við innbrot í Hafnarfirði um helgina og að sögn lögreglunnar þar á hann mörg önnur óafgreidd mál í þeirra umdæmi sem og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Flest málanna gegn manninum eru auðgunarbrot en hann á að baki langan afbrotaferil þrátt fyrir ungan aldur.

Innlent
Fréttamynd

Starfsfólk Icelandair áhugasamt fyrir skráningu.

Skráning Icelandair Group í Kauphöll Íslands og hlutafjársala til fjárfesta og starfsmanna leggst vel í Jón Karl Ólafsson, forstjóra félagsins. Jón Karl finnur fyrir miklum áhuga starfsmanna og telur að stór hluti þeirra muni taka þátt í verkefninu. „Það verður einnig jákvætt að fá inn breiðan hóp hluthafa sem stendur þá við bakið á fyrirtækinu og tekur það áfram inn í framtíðina.“

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Færast nær yfirtöku á House of Fraser

Fjárfestahópurinn Highland Acquisitions náði mikilvægum áfanga á leið sinni til yfirtöku á House of Fraser á þriðjudaginn. Þá lagði stór hluti eigenda HoF blessun sína yfir tillögu stjórnar um að samþykkja yfirtökutilboð frá Highland.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ákærðir fyrir fíkniefnabrot

Fíkniefnamál gegn tveimur mönnum var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Öðrum manninum er gefið að sök að hafa haft í fórum sínum um 48 grömm af kannabisefnum, tæp 4 grömm af kókaíni og lítilræði af tóbaksblönduðu hassi.

Innlent
Fréttamynd

Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar veitt í dag

Ingunn Snædal, grunnskólakennari, hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í ár en þau voru veitt við hátíðlega athöfn í Höfða í dag í sjöunda sinn. Verðlaunin hafa verið veitt annað hvert ár frá árinu 1994. Þau verða nú framvegis veitt árlega. Alls bárust tæplega 50 handrit í keppnina þetta árið.

Innlent
Fréttamynd

Sigríður Anna ætlar að hætta

Sigríður Anna Þórðardóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi umhverfisráðherra, ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu í Alþingiskosningunum næsta vor. Þetta tilkynnti hún á aðalfundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi í kvöld. Sigríður Anna hefur setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá árinu 1991.

Innlent
Fréttamynd

Jón fram í Reykjavík

Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins og iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ætlar að bjóða sig fram í öðru hvoru Reykjavíkur kjördæmanna í Alþingiskosningunum í vor. Þetta tilkynnti hann á fundi á Grand hóteli í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Atlantsolía lækkar bensínverð

Atlantsolía lækkaði í dag verð á bensíni um eina krónu og fimmtíu aura. Eftir lækkun kostar bensínlítrinn 115 krónur og 90 aura og 114 krónur og 90 aura fyrir dælulyklahafa. Skipagasola lækkar einnig um 1 krónu og verð því 57 krónur og 50 aurar.

Innlent
Fréttamynd

Aðför að þróun atvinnulífs á landsbyggðinni

Byggðaráð Langanesbyggðar mótmælir þeirri harkalegu því sem það kallar aðför stjórnvalda að þróun atvinnulífs á landsbyggðinni sem felst meðal annars í áformum stjórnar Ratsjárstofnunar um að segja upp 5 af 8 starfsmönnum fyrirtækisins á Gunnólfsvíkurfjalli og bjóða hluta þeirra að starfa áfram hjá því í viðhaldsdeild þess á Miðnesheiði.

Innlent
Fréttamynd

Sýndamennska eða skýr skilaboð

Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, segir frestun ríkisstjórnarinnar á vegaframkvæmdum í sumar hafa verið sýndarmennsku. Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar, segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu strax í sumar með því að senda skýr skilaboð út í samfélagið.

Innlent
Fréttamynd

Fær ekki að koma til Íslands í áratug

Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í dag úrskurð dómsmálaráðuneytis frá í apríl í fyrra um að Víetnömskum manni, sem nú er staddur í heimalandi sínu, verði vísað úr landi og bannað koma aftur til Íslands næstu 10 árin.

Innlent
Fréttamynd

Fær frjálsan aðgang að gögnum

Nefnd sem forsætisráðherra skipaði í vor til að setja reglur um aðgang að opinberum gögnum um öryggismál, fær frjálsan aðgang að öllum gögnum í vörslu stjórnvalda sem snerta öryggismál landsins á árunum 1945 til 1991, samkvæmt frumvarpi sem kynnt var á Alþingi í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Alþjóðadagur kennara á morgun

Alþjóðadagur kennara verður haldinn hátíðlegur í yfir 100 löndum á morgun. Yfirskrift dagsina að þessu sinni er: Hæfir kennarar tryggja gæði menntunar.

Innlent
Fréttamynd

75 milljónir næstu 3 árin til rannsókna

Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, kynnti í dag skipulagsbreytingar á Verkefnasjóði sjávarútvegsins. Stofnuð verður ný deild innan hans um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði sem mun veita styrki til einstaklingsverkefna og fyrirtækja sem og rannsóknar-, þróunar- og háskólastofnana.

Innlent
Fréttamynd

Eftirlitsnefnd sökuð um að hylma yfir með óvönduðum fasteignasölum

Hátt í tugur mála, þar sem grunur leikur á að fasteignasalar hafi brotið gróflega á viðskiptavinum sínum, liggur óbættur hjá eftirlitsnefnd fasteignasala. Framkvæmdastjóri Félags fasteignasala sakar nefndina um að hylma yfir með óvönduðum fasteignasölum. Formaður nefndarinnar vísar gagnrýninni til föðurhúsanna.

Innlent
Fréttamynd

Þinghúsið verður bleikt

Alþingishúsið verður baðað bleiku ljósi í kvöld og næstu daga sem táknrænn stuðningur Alþingis og alþingismanna við baráttuna gegn brjóstakrabbameini. Kveikt verður á ljósunum kl. 20 í kvöld og verða forseti Alþingis og varaforsetar viðstaddir af því tilefni.

Innlent