Innlent

Gefur kost á sér í 2. til 3. sæti

Sigríður 
Ingvarsdóttir
Sigríður Ingvarsdóttir

Sigríður Ingvarsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, býður sig fram í 2. til 3. sæti á lista flokksins í Norðausturkjördæmi.

Sigríður var þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Norðvesturkjördæmi á árunum 2001 til 2003. Hún starfar sem verkefnisstjóri Impru Nýsköpunarmiðstöð.

Samhliða vinnu stundar hún MBA nám við Háskóla Íslands sem hún lýkur í vor. Sigríður hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og á sæti í stjórn Landssambands Sjálfstæðiskvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×