Innlent

Fréttamynd

Sprungur á virkjanasvæðinu

Sprungubeltið við Kárahnjúka liggur nær framkvæmdasvæðinu en áður var talið, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar á framkvæmdasvæðinu. Fyrir framkvæmdirnar var það talið liggja tólf kílómetrum vestan við Kárahnjúkastíflu. Stíflan þolir jarðskjálfta upp á 6,2 á Richter-kvarða samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun, en ekki var talin ástæða til þess að bregðast sérstaklega við niðurstöðum rannsóknanna.

Innlent
Fréttamynd

Slasaðist þegar bíll lenti á tré

Stúlka um tvítugt var flutt slösuð á Landspítalann í Fossvogi á öðrum tímanum í fyrrinótt eftir að bíl var ekið upp á hringtorg á gatnamótum Hringbrautar og Suðurgötu með þeim afleiðingum að hann hafnaði á tré.

Innlent
Fréttamynd

Ferðamenn fari varlega

Mikill straumur ferðamanna í friðlandinu Kringilsárrana og á Eyjabökkum gæti ógnað viðkvæmu dýralífi sem þar er. Ferðamenn sem þarna eiga leið um verða að sýna ítrustu varkárni í umgengni sinni um friðlöndin.

Innlent
Fréttamynd

Hlægilegar ásakanir

Osta og Smjörsalan segir Mjólku brjóta lög með því að setja á markað eftirlíkingar af hinum vinsæla Feta osti -- Osta og Smjörsölunnar. Ólafur Magnússon forstjóri Mjólku segir ásakanirnar hlægilegar.

Innlent
Fréttamynd

Finnur leiguhúsnæði um allan heim

Íslenski leitarvefurinn www.evesta.is var nýlega opnaður. Vefurinn finnur skammtíma húsnæði um allan heim. Hægt er að tryggja sér gististað í fríinu áður en haldið er á vit ævintýranna.

Innlent
Fréttamynd

Úrvalsvísitalan hríðlækkar

Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni hefur hrunið síðustu fimm mánuði, eftir stöðuga hækkun undanfarin misseri. Eftir meira en helmingshækkun undanfarin tvö ár og snarpa uppsveiflu í byrjun ársins hefur hún lækkað um fjórðung síðan í febrúar.

Innlent
Fréttamynd

Segjast ekki eiga í deilum

Formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra segir félagið ekki eiga í deilum við Flugmálastjórn, deilum hafi lokið með dómi félagsdóms. Hann segir félagsmenn vinna eftir vaktatöflu sem neytt var upp á þá og þannig hafi velvilji flugumferðastjóra minnkað.

Innlent
Fréttamynd

Ungir sjálfstæðismenn verja skattaupplýsingar

Ungir Sjálfstæðismenn reyndu að koma í veg fyrir að fólk skoðaði skattskrána á skrifstofu Skattstjórans í Reykjavík í dag, þegar álagning skatta á landsmenn var gerð opinber. Í ályktun sem stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna sendi frá sér í dag er talað um opinberun gagnanna sem ósóma.

Innlent
Fréttamynd

Íslensk stjórnvöld vilja tafarlaust vopnahlé í Líbanon

Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur í dag ritað Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, bréf þar sem hún lýsir yfir áhyggjum af ástandinu í Líbanon. Hún segir það viðhorf íslenskra stjórnvalda að gerð verði tafarlaus krafa um vopnahlé og eyðileggingu Líbanons hætt.

Innlent
Fréttamynd

Tveir bifhjólamenn teknir á yfir 140 km hraða

Tuttugu og einn ökumaður var tekinn fyrir hraðakstur í Reykjavík á síðasta sólarhring. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að í þeim hópi hafi verið tveir bifhjólamenn sem óku á yfir 140 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 60 km. Ekki þurfi að hafa mörg orð um svona akstursmáta sem sé stórhættulegur. Bifhjólamenn héldu baráttufund í Laugardalshöll í gærkvöldi en þrír úr þeirra röðum hafa dáið í umferðarslysum á árinu. Lögreglan segir það því kaldhæðni örlaganna að lögreglan skuli stöðva för tveggja bifhjólamanna fyrir ofsaakstur, nokkru eftir að fyrrnefndum fundi lauk. Lögreglan tekur þó fram að meginþorri bifhjólamanna sé til fyrirmyndar og virði umferðarlög. En eins og oft vilji vera sé misjafn sauður í mörgu fé og þeir setji blett á allan hópinn.

Innlent
Fréttamynd

Hæsta íbúðarhús á Íslandi mun rísa í vetur

Framkvæmdir eru hafnar við hæsta íbúðarhús landsins við Skúlagötu í Reykjavík. Jarðvegsvinna er hafin við annan áfanga Skuggahverfisins, en fimm fjölbýlishús verða byggð í þessum áfanga. Það hæsta verður 62 metrar á hæð og 20 hæðir. Húsin verða svipuð þeim sem þegar hafa risið í Skuggahverfinu. Á hverri hæð verða um tvær stórar íbúðir með mikilli lofthæð. Útsýni úr íbúðunum verður með því besta sem gerist hér á landi. Sala á íbúðum þessa áfanga hefst ekki fyrr en á næsta ári en þegar hefur orðið vart við mikinn áhuga á þeim. Félagið 101 Skuggahverfi áætlar einnig að hefjast handa við þriðja áfanga Skuggahverfisins innan næstu tveggja ára.

Innlent
Fréttamynd

Samgönguráðherra mun skoða nýja skýrslu um jarðgöng til Eyja

Samgönguráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna nýrrar skýrslu um jarðgöng til Vestmannaeyja sem unnin var fyrir Ægisdyr, félag áhugamanna um jarðgöng milli lands og Eyja, og var birt í gær. Samgönguráðuneytið vill taka fram að unnið sé að framtíðarlausnum í samgöngumálum Vestmannaeyja o skýrsla Ægisdyra verði skoðuð.

Innlent
Fréttamynd

Vinstri grænir skora á stjórnvöld

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs skorar á íslensk stjórnvöld að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stöðva frekari manndráp og eyðileggingu í Líbanon.

Innlent
Fréttamynd

Fundu skreyttan kamb frá sturlungaöld

Skreyttur kambur frá sturlungaöld fannst við fornleifauppgröft í Kolkuósi í Skagafirði í gær. Kamburinn er afar heillegur, tvöfaldur og settur saman með bronsnöglum en að öðru leyti gerður úr beini. Á honum er hringlaga skreyting sem er dæmigerð fyrir skreytilist 13. aldar.

Innlent
Fréttamynd

Meira selt en keypt

Innlendir fjárfestar seldu erlend verðbréf fyrir 6,5 milljarða krónur meira en þeir keyptu í júní. Þetta er 15 milljarða krónu viðsnúningur á þessu fjármagnsflæði frá sama tíma í fyrra, samkvæmt greiningardeild Glitnis banka.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Aldrei meiri vöruskiptahalli

Vörur voru fluttar út fyrir 22,3 milljarða króna í júní en vörur voru fluttar inn fyrir 38,1 milljarð króna. Vöruskipti vöru því óhagstæð um 15,7 milljarða króna og er það mest vöruskiptahalli í einum mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hreindýrshaus fannst í ruslatunnu

Hreindýrshaus, skinn og lappir fundust í ruslatunnu við Freysnes í Öræfum á miðvikudagsmorgun. Fréttavefurinn Horn.is greinir frá því að reglur Umhverfisstofnunar banni stranglega að farið sé með úrgang hreindýra yfir í Öræfin, en Jökulsá á Breiðamerkursandi myndar sauðfjárveikivarnarlínu og skal fella þau dýr sem yfir ána fara.

Innlent
Fréttamynd

Falsaðar Evrur

Lögreglan í Reykjavík varar við útlendingi sem virðist reyna að koma fölsuðum evrum í umferð. Þetta er lágvaxinn karlmaður sem talar bjagaða ensku. Hann er dökkur yfirlitum og er líklega með gleraugu.

Innlent
Fréttamynd

Ók á tré

Ökumaður og farþegi hans slösuðust þegar bíll þeirra hafnaði á tré á mótum Suðurgötu og Hringbrautar, við hornið á gamla kirkjugarðinum í nótt. Hvorugur er alvarlega slasaður, en ökumaðurinn, sem var á vestuleið eftir Hringbraut, ók fyrst upp á miðju hringtorgsins, þaðan sem bíllinn kastaðist á tréð.

Innlent
Fréttamynd

Gengi lækkar hjá Landsbankanum og KB banka

Þrátt fyrir mjög góð hálfsársuppgjör KB banka og Landsbankans, hafa báðir bankarnir lækkað í verði síðan tölurnar voru birtar. Gengi á bréfum í KB banka hefur lækkað um 3% og um 1% í Landsbankanum.

Innlent
Fréttamynd

Tíu þúsund fá engar bætur

Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu fá tíu þúsund færri einstaklingar vaxtabætur þetta árið. Greiðslur vaxtabóta lækka jafnframt um sjö hundruð milljónir vegna tekna árið 2005. Þessa skerðingu má meðal annars rekja til hækkunar á fasteignamati um 35 prósent á milli ára.

Innlent
Fréttamynd

Mældist á 165 km hraða

Vélhjólamaður mældist á 165 kílómetra hraða á Reykjanesbraut á móts við Smáralind í gærkvöldi, þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar á klukkustund. Hann virti stöðvunarmerki Kópavogslögreglunnar að vettugi, sem reyndi ekki einu sinni að veita honum eftirför, heldur hafði samband við lögregluna í Hanfarfirði um að gera honum fyrirsát.

Innlent
Fréttamynd

Geðfatlaðir sagðir sviknir um sambýli

Árið 2004 var gert ráð fyrir opnun tveggja nýrra heimila fyrir geðfatlaða í Reykjavík og tveimur á Reykjanesi. Þessi heimili voru aldrei opnuð og segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir tíð skipti á ráðherrum tefja framkvæmdir.

Innlent
Fréttamynd

Íhugar þingframboð

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík, sest á skólabekk í Háskóla Íslands í haust.

Innlent
Fréttamynd

Mannskaði ef eldur brýst út

Gríðarlega erfitt yrði að forða fólki úr Hvalfjarðargöngum ef kviknaði í olíuflutningabíl inni í þeim, að sögn slökkviliðsstjóra í Borgarnesi.

Innlent