Innlent
311 312 313 314 315 316 317 318 319 … 334 ›
Neyðarkall barst frá olíulausum bát Vaktstöð siglinga barst neyðarkall frá erlendum bát, Sylvia Dawn, um sjöleitið í morgun en báturinn varð olíulaus skammt undan Dyrhólaey í Vík í Mýrdal. Björgunarsveitin Víkverji fór á björgunarbát áleiðis að bátnum með olíu og var kominn að honum laustyrir klukkan tíu. Engin hætta var á ferðum en rólegt og gott veður er á þessu slóðum. Innlent 24.7.2006 10:48
Um 20.000 ferðamenn hafa siglt á Jökulsárlóni í sumar Um 20.000 manns hafa farið í bátsferðir um Jökulsárlón á Breiðamerkursandi það sem af er sumri en það er svipaður fjöldi og á sama tíma í fyrra. Á laugardaginn sigldu 815 ferðamenn og er það metdagur sumarsins. Þar af voru um hundrað manns á vegum starfsmannafélags Skinneyjar-Þinganes. Fjórir hjólabátar eru nú nýttir í ferðir út á Jökulsárlónið. Innlent 24.7.2006 10:33
Uppgjörin að renna í hlað Nokkur af stærstu fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands birta uppgjör sín fyrir annan ársfjórðung í vikunni. Greiningardeild Glitnis banka spáir því að hagnaður Kaupþings banka muni nema 10 milljörðum króna, hagnaður Landsbanka Íslands muni nema 3 milljörðum króna en hagnaður Bakkavarar muni verða rúmir 1,6 milljarðar króna. Viðskipti innlent 24.7.2006 10:24
Tæplega 2.000 gestir á Þórbergssetur Hátt á annað þúsund gestir hafa komið á Þórbergssetur á bænum Hala í Hornafirði í þær tæpu þjár vikur sem safnið hefur verið opið. Safnið var opnað í byrjun þessa mánaðar en það er tileinkað Þórbergi Þórðarsyni rithöfundi. Innlent 24.7.2006 09:18
Húsavíkurhátíðin sett í dag Meistarakokkur sænska sendiráðsins mun gleðja Húsvíkinga og gesti með eldamennsku sinni á Húsavíkurhátíðinni sem verður sett í dag með pompi og prakt. Fréttavefurinn Skarpur.is greinir frá því að kokkurinn muni reiða fram sænska rétti á veitingastaðnum Gamla Bauk á morgun og fram á fimmtudag. Mærudögum og Sænskum dögum hafi nú verið steypt saman og munu hátíðarhöldin standa út vikuna. Líkt og nærri má geta verða fjölmargar uppákomur, sænskar sem og íslenskar. Innlent 24.7.2006 09:38
Ölvaðir ökumenn gerðu óskunda í Grafarvogi Tveir ölvaðir ökumenn óku aftan á tvo bíla í Grafarvogi með nokkurra klukkusutnda millibili í gærkvöldi. Báðir stungu af frá vettvangi, en náðust báðir heima hjá sér, samkvæmt ábendingum ökumanna bílanna, sem þeir óku á. Hvorugur þeirra meiddist og hvorugur ölvuðu ökumanna heldur, en þeir voru báðir handteknir á heimilum sínum og gista báðir fangageymslur þar til yfirheyrslur yfir þeim hefjast. Innlent 24.7.2006 08:45
Húsnæðisvelta fer minnkandi Húsnæðisveltan á höfuðborgarsvæðinu í þar síðustu viku var rúmlega 3,1 milljarður, sem er hátt í milljarði minni velta en að meðaltali síðustu tólf vikurnar þar á undan. Meðaltal þeirra vikna er líka orðið talsvert undir meðaltali jafnlengdar á fyrstu mánuðum ársins. Aðeins 116 kaupsamningum var þingslýst á höfuðborgarsvæðinu í vikunni, sem er 44 samningum undir meðaltali síðustu tólf vikna. Innlent 24.7.2006 08:38
Norskt fiskiskip hrekst undan hafís Hafís er norðvestur af landinu og hefur norskt fiskiskip, sem hefur verið að veiðum við Grænland, hrakist undan honum inn í íslenska lögsögu. Ekkert er þó að um borð. Vitað er um hafís um 65 sjómílur norðvestur af Barðaq, á milli Önundarfjarðar og Dýrafjaðrar á Vestfjörðum, en skipum á venjulegum siglingaleiðum umhverfis landið stafar engin hætta af honum. Ísinn hefur ekki verið kannaður úr lofti. Innlent 24.7.2006 08:09
Karlmaður lést í bifhjólaslysi Karlmaður á þrítugsaldri lést þegar hann missti stjórn á vélhjóli sínu við brú yfir Eystri Rangá á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Hjólið hafnaði í ánni en maðurinn á árbakkanum, og var hann látinn þegar bjrögunarmenn komu á vettvang. Tildrög slyssins eru óljós og segir lögregla ekkert benda til að maðurinn hafi ekið ógætilega. Þetta er ellefta banaslysið í ár en það tíunda varð þegar karlmaður á níræðisaldri varð fyrir bíl skammt frá Hólmavík í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að hann lést í fyrrinótt. Innlent 24.7.2006 08:03
Fjárfesting félagsins stórkostleg mistök Forstjóri Byggðastofnunar segir stórkostleg mistök hjá Eignarhaldsfélagi Vestmannaeyja að eyða öllu sínu fé í eitt fyrirtæki. Fyrrverandi stjórnarformaður félagsins segir auðvelt að vera vitur eftir á, kaupin hafi þótt góð á sínum tíma. Innlent 23.7.2006 22:54
Reynir annað „Ég óskaði sjálfur eftir að hætta og geri það í góðu en ég vil ekki tjá mig um hvað við tekur að sinni,“ segir Reynir Traustason blaðamaður, en hann er hættur störfum sem ritstjóri Mannlífs. Innlent 23.7.2006 22:55
Atvinnuveiðar á hrefnu hefjast hugsanlega á næsta ári Meginmarkmið rannsóknaráætlunarinnar, sem felur í sér veiðar á 200 hrefnum, er að afla grunnþekkingar á fæðuvistfræði hrefnu hér við land en auk rannsókna á fæðusamsetningu með greiningu magainnihalds verður aflað annarra gagna sem nauðsynleg eru til að meta afrán tegundarinnar á hinum ýmsu fæðutegundum. Innlent 23.7.2006 22:55
Tólf sækja um embættið Tólf umsóknir bárust um embætti sveitarstjóra í Norðurþingi. Norðurþing varð til við sameiningu Raufarhafnarhrepps, Öxarfjarðarhrepps, Kelduneshrepps og Húsavíkurbæjar. Innlent 23.7.2006 22:54
Leit á keflavíkurflugvelli einungis á sviði lögreglu Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar réði inn starfsmenn frá öryggisþjónustum til að aðstoða við öryggisleit á vellinum þegar bregðast þurfti skjótt við athugasemdum eftirlitsstofnunar Evrópska efnahagssvæðisins um skort á flugvernd. Þykir mörgum þetta skref í átt að einkavæðingu öryggisgæslu á vellinum. Innlent 23.7.2006 22:55
Látinn vinna launalaust Veitingahús í Reykjavík auglýsti eftir starfskröftum á dögunum. Maður sem sótti um starf var beðinn að vinna einn vinnudag til reynslu og fá ekkert greitt fyrir. Kolólöglegt athæfi, segja stéttarfélögin. Innlent 23.7.2006 22:55
Flutu 30 metra niður Krossá Fimm sluppu óslösuð þegar pallbíll þeirra festist í Krossá í Þórsmörk í gær. Bíllinn lenti ofan í hyl, flaut upp og með straumnum um þrjátíu metra niður ána. Þar skorðaðist hann fastur og vatn braut yfir. Fólkinu tókst að klifra upp á þak bílsins og var þaðan bjargað, af björgunarsveit Landsbjargar. Skálaverðir í Húsadal drógu bílinn upp. Innlent 23.7.2006 22:54
Banaslys við Eystri-Rangá Banaslys varð síðdegis í gær á Suðurlandsvegi við Eystri-Rangá. Karlmaður á þrítugsaldri sem var á leið austur á mótorhjóli missti stjórn á hjólinu vestan megin við brúna yfir ána og lenti á rörstokki. Talið er að maðurinn hafi látist samstundis, en hann lenti við bakka árinnar og hjólið kastaðist út í ána. Lögregla telur ekki að um hraðakstur hafi verið að ræða. Innlent 23.7.2006 22:55
Aukin samvinna við Norðmenn Siglingastofnun Íslands og Kystverket, systurstofnun hennar í Noregi, hafa ákveðið að taka upp aukna samvinnu við vöktun skipaumferðar á hafsvæðinu milli Noregs og Íslands. Þá munu stofnanirnar skiptast á upplýsingum um veðurfar og sjólag á hafsvæðinu. Innlent 23.7.2006 22:55
Segir farið með hálfsannleik Félag íslenskra flugumferðastjóra sýnir af sér ótrúlega óbilgirni að láta í veðri vaka að Flugmálastjórn hafi skellt á nýju vaktakerfi án samráðs við starfsmenn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri flugumferðarsviðs Flugmálastjórnar Íslands, hefur sent frá sér vegna ummæla stjórnar Félags íslenskra flugumferðarstjóra um vaktakerfisbreytingu sem gerð var 16. mars síðastliðinn. Innlent 23.7.2006 22:54
Það geta allir tekið þátt í þróunarhjálp Þær Margrét Þóra Einarsdóttir og Guðrún Blöndal hafa hleypt af stokkunum fjáröflun fyrir munaðarlaus og fötluð börn í Mapútó í Mósambík undir yfirskriftinni Gerum eitthvað gott - gerum það saman. Í Mapúto er rekin Mutanyana Weru miðstöðin fyrir þessi börn og mun ágóði verkefnisins renna til kaupa á húsgögnum og öðrum nauðsynjum inn í nýtt húsnæði hennar. Innlent 23.7.2006 22:54
Rýmt verði fyrir íbúðabyggð Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi síðastliðinn fimmtudag að stofna verkefnisstjórn, sem skal láta athuga framtíðarstaðsetningu olíubirgðastöðvarinnar í Örfirisey. Í kjölfarið verði svo athugað hvort betra væri að hafa stöðina í Hvalfirði eða á Grundartanga. Einnig verður skoðað hvort henti að flytja olíu svo langa leið frá nýrri stöð inn í höfuðborgina. Innlent 23.7.2006 22:54
Huglægt hver er hryðjuverkamaður Þó að margir stjórnmálamenn telji það auðvelt hafa fræðimenn ekki náð samstöðu um hver getur talist hryðjuverkamaður. Vandinn felst aðallega í því að erfitt er að skilgreina hver sé munurinn á hermanni, skæruliða og hryðjuverkamanni. Slíkt mat getur farið eftir pólitískum tilgangi þess sem skilgreinir eða hugsunargangi á hverjum tíma, að sögn Vísindavefs Háskóla Íslands. Innlent 23.7.2006 22:55
Stakk af undir áhrifjum lyfja Maður um þrítugt var handtekinn í gær á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar fyrir ofsaakstur og grun um að aka undir áhrifjum lyfja. Innlent 23.7.2006 22:55
Er afskaplega mikill bóhem „Efst á baugi er nýliðin helgi, við vorum að spila á föstudag og laugardag, það var afskaplega gaman. Ég var að spila á Players í Kópavogi og á Traffic í Keflavík í gær,“ segir Tómas Tómasson, bassaleikari Stuðmanna. „Við erum að spila núna alveg hverja helgi, fram til 26. ágúst, þá eru Stuðmenn komnir í frí og enginn veit hvað gerist.“ Spurður hvað hann ætli að gera í fríinu segist Tómas búast við því að fara til Grikklands. „Ég hef komið þangað áður en ég ætla að reyna að fara til Krítar núna“. Innlent 23.7.2006 22:55
Meðferðarúrræði úr takt við tímann Endurskipuleggja þarf meðferð fyrir geðsjúka, að mati Elínar Ebbu Ásmundsdóttur, meðlims Hugarafls. Hún er þeirrar skoðunar að skerða eigi þá starfsemi sem nú er í höndum geðdeildar LSH og byggja upp önnur úrræði fyrir geðsjúka. Innlent 23.7.2006 22:55
Töldu lögreglumenn vera farsímaþjófa Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru í Héraðsdómi Reykjaness dæmdir í sektir og fangelsi fyrir líkamsárás, eignaspjöll og þjófnaði. Innlent 23.7.2006 22:55
Vill einfalda skattlagningu Forstjóri Haga vill að skattlagning matvæla sé aðeins í formi virðisaukaskatts og að vörugjald verði fellt niður. „Ég tel að það sé eðlilegt að skatturinn sé tekinn bara á einum stað og það sé virðisaukaskattur,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga. Nýlega kom út skýrsla nefndar á vegum forsætisráðherra um orsök hás matvælaverðs. Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að matarreikningur meðalfjölskyldu geti lækkað um allt að 130.000 krónur ef farið verði að öllum tillögum hennar. Innlent 23.7.2006 22:55
Mávavandinn Mávar eru farnir að gera mörgum íbúuum höfuðborgarsvæðisins lífið leitt og hafa sumir borgarfulltrúar skorið upp herör gegn mávunum. Guðmundur Björnsson er rekstrarstjóri meindýravarna hjá Reykjavíkurborg. Innlent 23.7.2006 22:55
Kristilegu kærleiksblómin spretta Nokkur umræða er nú sprottin upp um hugsanlegt samstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar og sýnist sitt hverjum um ágæti þeirra hugmynda. Í öllu falli sýna skeytasendingar milli forystumanna þessara flokka ekki mikinn samstarfshug; þannig andar greinilega heldur köldu milli þeirra Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra og Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingar Innlent 23.7.2006 22:55
Þunglyndislyf hækkaði mest Verð á algengum lyfjum Actavis í Danmörku hefur hækkað. Flest þeirra lyfja sem hafa hækkað í verði kosta nú um fjörutíu til fimmtíu prósentum meira en þau kostuðu um miðjan maímánuð. Innlent 23.7.2006 22:54