Innlent

Fréttamynd

Hagvöxtur í Evrópu meiri en í Bandaríkjunum

Hagvöxtur á evrusvæðinu og innan ESB mældist 0,6 prósent á fyrsta fjórðungi ársins. Þetta er jafn mikill hagvöxtur og mældist í Bandaríkjunum á ársgrundvelli á sama tímabili. Gangi spár eftir mun hagvöxtur í Evrópu verða meiri en í Bandaríkjunum á árinu. Slíkt hefur ekki sést síðan árið 2001.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Flytja opnun sýningar í Nauthólsvík vegna veðurs

Háskólinn í Reykjavík stendur fyrir ljós- og tölvumyndasýningu í Nauthólsvík í sumar. Áætlað hafði verið að opna sýninguna í Nauthólsvík í dag en vegna veðurs verður sýningin opnuð á lóð skólans við Ofanleiti. Hún verður síðan færð í Nauthólsvík og stendur þar í allt sumar. Myndir af framtíðarhúsnæði HR munu skreyta sýninguna sem verður staðsett við rætur Öskjuhlíðar.

Innlent
Fréttamynd

Viðsnúningur í afkomu Spalar

Spölur, sem er í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf. og rekur Hvalfjarðargöng, skilaði hagnaði upp á 89 milljónir króna á fyrri helmingi síðasta rekstrarárs, sem stóð frá 1. október í fyrra til 31. mars í ár. Til samanburðar nam tap fyrirtækisins árið á undan 83 milljónum króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Frístundakortin bylting fyrir börnin

Frístundakortin verða bylting fyrir börnin í borginni, segir formaður Björn Ingi Hrafnsson, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs. Fyrstu kortin verða send út í haust.

Innlent
Fréttamynd

Markvissar aðgerðir í þágu barna og kröftugt efnahagslíf

Eitt mikilvægasta verkefni ríkisstjórnarinnar snýr að markvissum aðgerðum í þágu barna, aldraðra og kröftugs efnahagslífs sagði forsætisráðherra í stefnuræðu sinni á Alþingi í gær. Utanríkisráðherra sagði vandasama siglingu framundan, ekki síst í efnahagsmálum. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna gagnrýndu stefnu ríkisstjórnarinnar í umhverfis og efnahagsmálum.

Innlent
Fréttamynd

Kínverjar fjalla um sæti Íslands í Öryggisráðinu

Kínverskir fjölmiðlar fjalla í dag um kosningabaráttu Íslendinga fyrir sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna árin 2009 og 2010. Í vefútgáfu dagblaðsins People Daily segir að Íslendingar þurfi stuðning 28 þjóða til viðbótar þeim 100 sem þegar hafa heitið stuðningi, til að fá öruggt sæti í ráðinu. Aðildarlöndin eru 192 og Ísland þarf stuðning 66 prósenta þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Novator gerir formlegt tilboð í Actavis

Novator, félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur gert yfirtökutilboð í gegnum nýstofnað eignarhaldsfélag, Novator eignarhaldsfélag ehf. í allt hlutafé Actavis Group hf. í A-flokki sem ekki var þegar í eigu félaga tengdum tilboðsgjafa eða í eigu Actavis Group hf. Tilboðið hljóðar upp á 0,98 evrur á hlut.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stærsta rannsóknarsvæði Orkuveitunnar í Djíbútí

Orkuveita Reykjavíkur hefur fengið einkaleyfi til jarðhitarannsókna og forgang á hugsanlegri nýtingu um 750 ferkílómetra lands í afríkuríkinu Djíbútí. Það er stærsta rannsóknarsvæði OR til þessa. Staða Djíbútíbúa í raforkumálum er svipuð og hjá Íslendingum fram til ársins 1960. Þeir fá rafmagn með brennslu innflutts jarðefnaeldsneytis.

Innlent
Fréttamynd

Novator eykur við sig í Netia

Novator, félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur aukið við hlut sinn í Netia, næststærsta símafélagi Póllands og fer nú með 27 prósent hlutabréfa í félaginu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tryggja sýningarrétt á verðlaunamyndum Cannes

Græna ljósið hefur tryggt sér sýningarrétt á langstærstum hluta þeirra mynda sem unnu til verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Meðal þeirra er rúmanska sigurmyndin “4 months, 3 weeks and 2 days”, en aðrar athyglisverðar myndir eru meðal annars heimildarmynd um dauða rússneska njósnarans Alexanders Litvinenko og tengs Putin forseta við mál hans.

Lífið
Fréttamynd

Síðasta opnunarhelgi skiðasvæðisins á Siglufirði

Á morgun verður skíðasvæði Siglfirðinga opið frá klukkan tíu til fjögur. Opið er í Skarðinu og hefur verið útbúin þar Skicross braut. Þá er braut á Súlur og nægur snjór á bungusvæðinu. Þetta er síðasta opnunarhelgi skíðatímabilsins, en stefnt verður að því að opna aftur snemma í haust.

Innlent
Fréttamynd

Bifhjólamenn mótmæla slysa- og dauðagildru

Bifhjólafólk mótmælir vegriði sem sett hefur verið upp á Suðurlandsvegi við afleggjarann að Hellisheiðarvirkjun. Bifhjólasamtök lýðveldisins telja að vegriðið sé slysa- og dauðagildra; “Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hvað gerist ef bifhjólamaður dettur á vegriðið sem sker sig í gegnum bifreiðar sem á því skella,” segir í tilkynningu frá samtökunum.

Innlent
Fréttamynd

Verður að ríkja sátt um Byggðastofnun

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, segir að skapa þurfi ró og starfsfrið um Byggðastofnun Hann segir ríkisstjórnina ekki geta horft framhjá vanda landsbyggðarinnar og því verði hún að geta gripið inn í aðstæður sem þar kunna skapast.

Innlent
Fréttamynd

Þriggja ára fangelsi fyrir manndráp

Hæstiréttur þyngdi dóm Hérðasdóms yfir Lofti Jens Magnússyni fyrir að vera valdur að dauða Ragnars Björnssonar á veitingastaðnum Áslaki í Mosfellsbæ. Loftur sló Ragnar hnefahögg í hálsinn með þeim afleiðingum að slagæð við hálshrygg rofnaði og Ragnar lést. Héraðsdómur hafði dæmt Loft Jens í tveggja ára fangelsi en Hæstiréttur koms að þeirri niðurstöðu að hæfileg refsins væri þriggja ára fangelsi. Þá var hann dæmdur til að greiða ekkju Ragnars og börnum, tólf milljónir króna í skaðabætur.

Innlent
Fréttamynd

Minna tap hjá Flögu

Flaga skilaði tapi upp á 605 þúsund bandaríkjadali, 37,4 milljónum króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Til samanburðar nam tapið á sama tíma í fyrra 877 þúsundum dala, 54,1 milljón króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stilla býður metverð fyrir Vinnslustöðina

Stilla ehf., félag í eigu Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra Brims, og Hjálmars Kristjánssonar, hefur ákveðið að leggja fram tilboð í allt hlutafé Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Tilboðið er til höfuðs yfirtökutilboði Eyjamanna í byrjun maí og 85 prósentum hærra. Þetta er hæsta verð sem boðið hefur verið í hlutabréf Vinnslustöðvarinnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tesco heimsótti Bakkavör óvænt

Bakkavör mótmælir einhliða fréttaflutningi Guardian og sakar fulltrúa verkalýðsfélaga um ófrægingarherferð. Bresku verkalýðssamtökin GMB saka Bakkavör, einn helsta birgja Tesco, um að taka framleiðslu fyrir stórmarkaði fram yfir velferð verkafólks.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þrjár unglingsstúlkur misþyrmdu tólf ára stúlkum

Lögreglan í Reykjanesbæ rannsakar nú kærur tveggja tólf ára stúlkna, sem þrjár eldri stúlkur rændu og misþyrmdu á sunnudagskvöldið. Að sögn Fréttablaðsins voru tvær árásarstúlknanna fimmtán ára og ein sautján. Litlu stúlkurnar voru þvingaðar inn í bíl og ekið með þær að yfirgefnu húsi í Njarðvík þar sem þeim var misþyrmt og þær niðurlægðar.

Innlent
Fréttamynd

Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna ráns í 10-11

Hæstiréttur féllst í gær á kröfu lögreglu um gæsluvarðhaldsúrskurð yfir ungum manni sem framdi rán í 10-11 verslun við Dalveg í Kópavogi á sunnudagsmorgun. Héraðsdómur hafði ekki fallist á kröfuna en eftir synjun hans braut maðurinn enn af sér og byggir ákvörðun Hæstaréttar á því.

Innlent
Fréttamynd

Síminn og Anza sameinast

Stjórnir Símans og Anza hafa samþykkt að sameina fyrirtækin. Samruninn tekur gildi í júlí. Hreinn Jakobsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Anza, mun setja á fót skrifstofu í Kaupmannahöfn til að byggja upp starfsemi Skipta hf, móðurfélags Símans, í Skandinavíu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Síminn kynnir þriðju kynslóðina

Síminn kynnir í verslunum sínum á morgun nýjungar í farsímaþjónustu, sem grundvallast á þriðju kynslóð farsímakerfa (3G). Gestum gefst kostur á að kynna sér þá byltingu sem í vændum er þegar þriðja kynslóð farsímakerfa verður tekin í notkun í fyrsta sinn á Íslandi í haust.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sinueldar á bökkum Elliðaánna -varpsvæði í hættu

Slökkviliðið berst nú við sinuelda í Víðidal. Eldarnir loga rétt ofan við vatnsveitubrúna, neðan við hesthúsahverfið. Reyk leggur yfir íbúðarhús í Seláshverfi. Talið er nokkuð víst þarna hafi verið kveikt í. Það getur verið hættulegur leikur svona nálægt mannabyggð. Þarna er til dæmis leiksvæði barna.

Innlent
Fréttamynd

Tveggja ára hætt komin í sundlaug

Tveggja ára stúlkubarn var hætt komið í sundlaug Íþróttamiðstöðvarinnar að Lágafelli í Mosfellsbæ, í gærkvöldi. Stúlkan var þar ásamt móður sinni og eldri systur. Hún var að leika sér í vatnsrennibraut laugarinnar og kom ekki úr kafi eftir eina ferðina.

Innlent
Fréttamynd

FL Group selur í Bang & Olufsen

FL Group hefur selt allan hlut sinn í danska fyrirtækinu Bang & Olufsen A/S, sem svaraði til 10,76 prósenta af hlutafé fyrirtækisins. Kaupverð nemur 10,2 milljörðum króna en kaupendur eru hópur danskra og alþjóðlegra stofnanafjárfesta.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Væntingavísitala aldrei mælst hærri

Engar horfur eru á að landsmenn dragi úr einkaneyslu á næstunni, nema síður sé. Væntingavísitala hefur aldrei mælst hærri, samkvæmt mælingum Gallups, en jafnan er fylgni með hárri væntingavísitölu og mikilli einkaneyslu. Sérfræðingar bankanna rekja þessa bjartsýni meðal annars til kosningaloforða stjórnmálaflokkanna.

Innlent
Fréttamynd

19 teknir fyrir ölvunarakstur um helgina

Nítján ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um Hvítasunnuhelgina og tveir grunaðir um lyfjaakstur eða akstur undir áhrifum fíkniefna. Þetta kemur fram í samantekt lögreglunnar og einnig að sjö hafi verið stöðvaðir og reynst ökuréttindalausir, eftir að hafa verið sviptir réttindum. Þar af tveir ítrekað.

Innlent
Fréttamynd

Impregilo hafnar ásökunum verkamanna

Verktakafyrirtækið Impregilo, sem er að byggja Kárahnjúkavirkjun, vísar á bug ásökunum portúgalskra verkamanna um afleitar vinnuaðstæður, mengun í jarðgöngunum, launamismunun, of langan vinnutíma og slæman mat.

Innlent
Fréttamynd

Hilton Reykjavik Nordica

Hótel Nordica í Reykjavík verður framvegis Hilton Hotel og mun heita Hilton Reykjavík Nordica. Samningur þessa efnis var undirritaður í gær á milli Hilton keðjunnar og Icelandair Hotels. Á næstu vikum verður merkingum og ýmsu varðandi starfssemi hótelsins breytt í samræmi við staðla Hiltons. Þetta er sérleyfissamningur og mun Icelandair Hótels áfram reka hótelið, en kemst inn í bókunarkerfi Hilton keðjunnar.

Innlent