Innlent

Fréttamynd

Rólegt um land allt í nótt

Í gærkvöldi og í nótt voru þrír ökumenn kærðir fyrir hraðakstur á Suðurnesjum og einn fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Annars var nóttin róleg um land allt í gærkvöldi. Á Selfossi var ein minni háttar líkamsárás tilkynnt til lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Sýknaður af morðákæru

Herdómsstóll í Washington sýknaði í gær bandarískan hermann, Calvin Hill ákærum um að hafa myrt félaga sinn á varnarsvæðinu, hina tvítugu Ashley Turner, á Miðnesheiði 14. ágúst 2005. Morðið var framið átta dögum áður en Turner átti að bera vitni gegn Hill í þjófnaðarmáli, en honum var þar gefið að sök að hafa stolið af henni bankakorti og tekið út peninga.

Erlent
Fréttamynd

Velta dagvöruverslunar jókst um 11,2% í apríl

Velta í dagvöruverslun jókst um 11,2% í apríl síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra, á föstu verðlagi, samkvæmt niðurstöðum rannsóknarseturs verslunarinnar á Bifröst. Á breytilegu verðlagi nam hækkunin 8,3%. Lítil aukning varð á veltu dagvöruverslunar milli mánaðanna mars og apríl, eða 0,6%, þrátt fyrir páska í apríl.

Innlent
Fréttamynd

Kveikt í listaverki í nótt

Kveikt var í listaverki sem var fyrir utan gömlu Kartöflugeymslurnar í Ártúnsbrekku í nótt. Slökkvilið kom á staðinn og náði fljótt stjórn á eldinum, enda var hann takmarkaður við listaverkið. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða. Ekki er vitað hver var þar að verki. Listaháskóli Íslands er sem stendur með útskriftarsýningu í kartöflugeymslunum.

Innlent
Fréttamynd

Pólsku farandsalarnir farnir frá Ísafirði

Þrír Pólverjar sem lögreglan á Ísafirði hafði afskipti af í gær vegna ólöglegrar farandsölu hafa nú greitt sekt og eru farnir frá bænum. Mennirnir voru á sendiferðabíl með erlendum númerum og gengu í heimahús í bænum og reyndu að selja blýantsteikningar og eftirprentanir. Mennirnir höfðu ekki verslunarleyfi og hafði lögreglan þá í haldi þar til rétt undir kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Vissi ekki að hann var á 155 km

Karlmaður á þrítugsaldri var tekinn á 155 km hraða á Akureyri þar sem hámarkshraði er 90. Lögregla stöðvaði manninn á Hringvegi við Skógarbakka. Ökumaðurinn keyrði venjulegan fólksbíl og sagði lögreglu að hann hefði ekki gert sér grein fyrir hraðanum.

Innlent
Fréttamynd

Framtíðarlandið hvetur til bóta á kosningafyrirkomulagi

Stjórn Framtíðarlandsins telur misbresti á kosningafyrirkomulagi hafa orðið til þess að sitjandi stjorn fékk minnihluta atkvæða en haldi samt meirihluta á þingi. Samtökin hvetja nýkjörið Alþingi að bæta úr “þessum ágöllum.” Stjórnmálamönnum beri að virða vilja kjósenda. Minnihluti þeirra hafi greitt sitjandi stjórn atkvæði. Talsmenn umhverfisverndar hafi hins vegar fengið byr undir báða vængi.

Innlent
Fréttamynd

Vesturbyggð fagnar hugmyndum um Olíuhreinsistöð

Bæjarstjórn Vesturbyggðar fagnar hugmynd um olíuhreinsistöð á Vestfjörðum. Bæjarstjórinn bendir á að stefnan um stóriðjulausa og umhverfisvæna Vestfirði hefði verið mótuð þegar menn hafi átt von á aðstoð ríkisvaldsins við fjórðunginn - aðstoð sem aldrei hafi komið.

Innlent
Fréttamynd

Jóhannes stóð ekki yfir kjósendum

Hreinn Loftsson formaður stjórnar Baugs Group segir afstöðu Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra lýsa hroka í garð lýðræðislegra ákvarðana sem teknar eru af einstaklingum þegar þeir nýti sér kosningarétt sinn. Jóhannes Jónsson hafi ekki staðið yfir kjósendum þegar þeir gengu til kosninga síðastliðinn laugardag.

Innlent
Fréttamynd

55 geðsjúkir heimilislausir

Þriðjungur þeirra sem voru í Byrginu undir það síðasta eru aftur komnir á götuna í neyslu, segir Sveinn Magnússon framkvæmdastjóri Geðjálpar. Hann telur húsnæðislausa miklu fleiri en yfirvöld viðurkenna og segir athvarf við Njálsgötu einungis veita gálgafrest.

Innlent
Fréttamynd

Varmársamtökin fordæma skemmdarverk

Varmársmtökin harma þá eyðileggingu sem unnin var á sjö vinnuvélum ofanvið Álafosskvos í Mosfellsbæ í nótt. Samtökin telja yfirlýsingar verktaka um að þau hafi hvatt til skemmdarverkanna vera ærumeiðandi. Í yfirlýsingu sem samtökin sendu frá sér vegna málsins segir að ofbeldisverk samrýmist ekki markmiðum þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Gætið ykkar á Aquanetworld

Samtök verslunar og þjónustu hafa sent frá sér viðvörun vegna fyrirtækisins Aquanetworld sem er skráð með aðsetur að Suðurlandsbraut 4 í Reykjavík. Er fólki ráðlagt að eiga ekki viðskipti við þetta fyrirtæki.

Innlent
Fréttamynd

Varmársamtök fordæma skemmdarverk

Skemmdarverk voru unnin á sjö vinnuvélum fyrir ofan Álafosskvosina í Mosfellsbæ í nótt, rúður voru brotnar og rándýr stýribúnaður í sumum þeirra gjöreyðilagður. Talið er að tjónið skipti milljónum en ekki er vitað hverjir standa að verki. Varmársamtökin fordæma skemmdarverkin og segjast á engan hátt hafa komið nálægt þeim. Þau hafa nú kært framkvæmdirnar á svæðinu til lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Úrvalsvísitalan aldrei hærri

Úrvalsvísitalan fór yfir átta þúsund stig í gær og hefur aldrei verið jafn há. Hún hefur hækkað um liðlega 25 prósent frá áramótum og næstum tvöfaldast á tveimur árum. Mörg fyrirtæki hækkuðu í gær en Eimskip mest, um rúm fjögur prósent. Íslenska krónan styrktist um leið og hefur ekki verið jafn há gagnvart erlendum gjaldmiðlum síðan í mars í fyrra. Bandaríkjadollar er til dæmis kominn niður í rúmar 63 krónur.

Innlent
Fréttamynd

Erlendir farandsalar í haldi lögreglu

Þrír útlendingar eru í haldi lögreglunnar á Ísafirði síðan í gærkvöldi, grunaðir um að stunda ólöglega farandsölu. Þeir eru á sendiferðabíl á erlendum númerum og hafa gengið í hús og reynt að selja myndir. Það eru einkum blýantsteikningar af köttum, fuglum og öðrum skepnum og mun gangverðið vera um tvö þúsund og fimm hundruð krónur á mynd. Mennirnir verða yfirheyrðir í dag og góssið í sendibílnum kannað til hlítar.

Innlent
Fréttamynd

35% vilja stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar

Flestir landsmenn, eða tæp 35 prósent vilja helst ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Næst flestir, eða rösklega 32 prósent vilja óbreytt stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, mun færri, eða átján og hálft prósent, vilja vinstri stjórn Samfylkingar, Framsóknarflokks og Vinstri grænna og fæstir vilja ríkisstjórn Vinstri grænna og sjálfstæðisflokks, eða rösk 14 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Vínþjófur undir áhrifum

Lögreglan á Akureyri greip þjóf á vettvangi eftir að hann hafði brotist inn á veitingastað í miðbænum í nótt, í þeim tilgangi að verða sér út um vínföng. Hann reyndist undir áhrifum vímuefna og er vistaður í fangageymslum uns hann verður yfirheyrður í dag.

Innlent
Fréttamynd

Sex slösuðust í bílslysi

Sex manns slösuðust og voru fluttir á Slysadeild Landsspítalans, í hörðum árekstri tveggja bíla á mótum Kalkofnsvegar og Geirsgötu í miðborginni um ellefuleytið í gærkvöldi. Ökumenn voru tvær sautján ára stúlkur og voru þær fluttar á Barnaspítala Hringsins, samkvæmt bókun lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Grunur um aðsvif undir stýri

Umferðaróhapp varð undir Ingólfsfjalli á Suðurlandsvegi undir kvöld þegar bíll fór út af við Þóroddsstaðanámur. Grunur er á að ökumaðurinn sem er áttræður hafi fengið aðsvif og ekið út af í kjölfarið. Sjúkralið kom á staðinn og var maðurinn fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Ofhlaðnar kerrur valda umferðarslysum

Tvö umferðaróhöpp urðu í dag þar sem ofhlaðnar kerrur toguðu til bíla sem lentu í umferðaróhöppum í kjölfarið. Í fyrra skiptið missti ökumaður jeppa stjórn á bílnum þegar kerra með miklu timbri orsakaði slynk á bílinn þannig að hann keyrði utan í vegrið á Borgarfjarðarbrú. Í seinna tilfellinu fór jeppi út af á Biskupstungnabraut af sömu ástæðum.

Innlent
Fréttamynd

Aukið umferðareftirlit á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur hafið aukið umferðareftirlit í samvinnu við ríkislögreglustjóra. Næstu mánuði verður lögreglan því mjög sýnileg víða á höfuðborgarsvæðinu. Helst er fylgst með hraðakstri og ógætilegum framúrakstri. Ástand ökumanna verður einnig kannað og fylgst með bílbeltanotkun auk notkunar annars öryggisbúnaðar, t.d. varðandi eftirvagna.

Innlent
Fréttamynd

Árni Þór Sigmundsson settur aðstoðaryfirlögregluþjónn

Árni Þór Sigmundsson hefur verið settur aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Árni hefur verið aðalvarðstjóri fyrir B-vakt frá árinu 2004. Áður gegndi hann ýmsum störfum á vegum lögreglunnar meðal annars í auðgunarbrotadeild, ávana- og fíkniefnadeild og almennri rannsóknardeild.

Innlent
Fréttamynd

Úrvalsvísitalan setur nýtt met

Úrvalsvísitalan fór yfir 8.000 stiga múrinn stuttu eftir klukkan ellefu í dag og hefur aldrei verið hærri. Vísitalan hefur hækkað jafnt og þétt og hefur slegið hvert metið á fætur öðru síðastliðna tvö viðskiptadaga í Kauphöll Íslands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sea Shepherd senda skip til Íslands

Sea Shepherd, samtök hvalaverndunarsinna, ætla sér að senda skipið Farley Mowat hingað til lands til þess að berjast gegn hvalveiðum Íslendinga. Skipið er sem stendur í Ástralíu og leggur af stað þaðan klukkan 13:00 að staðartíma í dag. Ekki er vitað hvort að Paul Watson, formaður þeirra, ætli sér að vera með í för. Þetta kemur fram á vefsíðu samtakanna.

Innlent
Fréttamynd

Engar ákvarðanir teknar um stjórnarsamstarf

Engar ákvarðanir voru teknar um stjórnarsamstarf, á tveggja klukkustunda löngum þingflokksfundi Framsóknarmanna í gærkvöldi og verjast fundarmenn fregna af fundinum. Þó mun það liggja fyrir eftir fundinn að Jón Sigurðsson njóti fulls trausts þingflokksins til að fara með samningamál flokksins við aðra flokka.

Innlent
Fréttamynd

Rafmagnslaust á Keflavíkurflugvelli

Rafmagnslaust varð í um það bil hálftíma upp úr klukkan fjögur á Keflavíkurflugvelli og víða á Suðurnesjum. Varaaflsstöðvar fóru í gang þannig að aðflugs-og öryggisbúnaður vallarins virkaði með eðlilegum hætti og flugstöðin fékk líka vararafmagn, þannig að litlar sem engar tafir urðu.

Innlent
Fréttamynd

Lentu vegna veikinda farþega

Boeing 777 breiðþota frá Air France þurfti að hafa viðkomu á Keflavíkurflugvelli á leið sinni yfir Atlantshafið síðdegis í gær, þar sem einn farþeganna hafði veikst og þurfti að komast undir læknishendur. Þetta var á háannatíma í Leifsstöð þannig að þotunni var ekið að gömlu flugstöðinni.

Innlent
Fréttamynd

Hrasaði í Surtshelli og skarst á höfði

Erlendur ferðamaður skarst á höfði þegar hann hrasaði í Surtshelli síðdegis í gær og blæddi honum talsvert. Honum til happs var að sjúkraflutningamenn voru á æfingu þar skammt frá og komu honum von bráðar til hjálpar. Hann var fluttur á Heilsugæslustöðina á Akranesi og gat farið ferða sinna eftir aðstoð þar.

Innlent
Fréttamynd

Hjólaði fyrir bíl

Tíu ára drengur varð fyrir bíl á Kaplaskjólsvegi í gærkvöldi, en meiddist ekki alvarlega. Hann var fluttur á Slysadeild til aðhlynningar og skoðunar. Hann mun hafa hjólað óvænt í veg fyrir bílinn. Akstursskilyrði voru ekki með besta móti á þessu svæði í gærkvöldi þar sem bílum var lagt ólöglega út um allt, vegna kappleiks á KR vellinum.

Innlent
Fréttamynd

DHL harmar misbrest í afgreiðslu utankjörfundaratkvæða

Flutningafyrirtækið DHL hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem mistök við afgreiðslu utankjörfundaratkvæða sem send voru frá Boston eru hörmuð. Starfsmenn sem sinna öryggiseftirliti í borginni ákváðu að kanna innihald umslagsins nánar. Vanalega er það ekki gert hafi umslaginu verið lokað í viðurvist starfsmanna DHL. Fyrirtækið lítur málið mjög alvarlegum augum segir í tilkynningunni.

Innlent