
Bandaríski háskólakörfuboltinn

Kansas háskólameistari eftir sögulega endurkomu
Kansas Jayhawks varð í nótt sigurvegari í bandaríska háskólakörfuboltanum eftir þriggja stiga sigur á Norður Karólínu háskóla í úrslitaleiknum, 72-69.

Coach K tapaði sínum síðasta leik
Undanúrslit í háskóla körfuboltanum í Bandaríkjunum, NCAA, fóru fram í New Orleans í nótt. Allra augu beindust að nágranaslaginum, viðureign North Carolina Tar Heels og Duke Blue Devils. North Carolina Tar Heels vann leikinn 81-77 í síðasta leik þjálfara Duke, Mike Krzyzewski.

Mæðgin komin bæði í sextán liða úrslit Marsfársins
Úrslitakeppni bandaríska háskólakörfuboltans er í fullum gangi og nú er komið að sextán liða úrslitum karla og kvenna.

Tvítug körfuboltastelpa átti troðslu helgarinnar í Marsfárinu
Fran Belibi átti mögulega og mjög líklega tilþrif helgarinnar í bandaríska háskólakörfuboltanum þegar Stanford skólinn vann 78-37 stórsigur á Montana State í 64 liða úrslitunum úrslitakeppninnar.

Styrmir og félagar úr leik í Marsfárinu eftir naumt tap
Styrmir Snær Þrastarson og félagar hans í Davidson háskólaliðinu í körfubolta féllu úr leik í fyrstu umferð Marsfársins eftir tap með minnsta mun gegn Michigan State í nótt, 74-73.

Bandaríkjamenn gætu veðjað 411 milljörðum á Marsfárið í háskólakörfuboltanum
Úrslitakeppni bandaríska háskólakörfuboltans er fram undan og þar er á ferðinni eitt vinsælasta íþróttaefni í bandarísku sjónvarpi. Það eru líka ófáir sem setja pening á lið eða leiki þessar vikur sem úrslitin ráðast í háskólaboltanum.

Dóttirin með stórleik og pabbinn setti niður 875 þúsund króna skot í hálfleik
NaLyssa Smith átti stórleik með Baylor í bandaríska háskólakörfuboltanum um helgina en faðir hennar náði líka að koma sér í sviðsljósið í hálfleik á leiknum.

Körfuboltastelpan sem NBA-stjörnurnar eru að tala um
Caitlin Clark er að eiga magnað tímabil í bandaríska háskólaboltanum og frammistaða hennar er svo eftirtektarverð að NBA-stjörnurnar eru farnir að taka eftir henni.

Dæmdur í bann út tímabilið fyrir að slá annan þjálfara
Juwan Howard, þjálfari körfuboltaliðs Michigan háskólans, hefur verið dæmdur í bann út tímabilið fyrir að kýla aðstoðarþjálfara Wisconsin í leik liðanna um helgina.

Gömul NBA-stjarna sló til annars þjálfara í háskólaboltanum
Mikil læti brutust út í bandaríska háskólakörfuboltanum eftir leik í gær, leik sem vannst þó örugglega með fjórtán stiga mun. Ástæðan var að gömul stjarna úr NBA-boltanum var ekki par sáttur með leikhlé þjálfara hins liðsins undir blálok leiksins.

John Stockton neitar að vera með grímu og gamli skólinn ógildir ársmiðana hans
John Stockton, stoðsendingahæsti leikmaður í sögu NBA-deildarinnar, má ekki lengur mæta á leiki gamla háskólans síns því hann neitar að bera grímu.

Ein efnilegasta körfuboltakona heims meiddist illa á hné
Paige Bueckers, leikmaður UConn háskólans var borin af velli í sigri skólans á Note Dame í gærkvöld. Bueckers er talin með efnilegustu leikmönnum heims.

Sögulegur samningur fyrir kvennaþjálfara
Dawn Staley gerði á dögum mjög merkilegan samning um að halda áfram að þjálfa lið University of South Carolina í bandaríska körfuboltanum.

Íslenski fáninn á besta stað í höllinni hjá Davidson háskólanum
Íslenskur körfubolti á flottan fulltrúa hjá liði Davidson í bandaríska háskólakörfuboltanum því Íslandsmeistarinn Styrmir Snær Þrastarson hóf nám í skólanum í sumar.

Einhentur körfuboltamaður fékk boð um að spila í bandaríska háskólaboltanum
Þegar viljinn og metnaðurinn er fyrir hendi er allt hægt. Dóminískur körfuboltastrákur lætur ekkert stoppa sig og fagnaði stórum tímamótum á dögunum.

Miklar væntingar gerðar til Styrmis hjá Davidson og hann á von á góðu
Jón Axel Guðmundsson segir að miklar væntingar séu gerðar til Styrmis Snæs Þrastarsonar hjá Davidson háskólanum.

Coach K rifar seglin hjá Duke á næsta ári eftir rúma fjóra áratugi í starfi
Mike Krzyzewski, sem hefur stýrt körfuboltaliði Duke háskólans í 41 ár, hættir eftir næsta tímabil.

Háskólatreyja Jordans seldist á tæplega tvö hundruð milljónir
Treyja frá háskólaárum Michaels Jordan seldist um helgina á 1,38 milljónir Bandaríkjadala sem samsvarar tæplega 172 milljónum íslenskra króna.

Kentucky-strákur sem ætlaði í nýliðaval NBA lést aðeins nítján ára
Terrence Clarke, fyrrverandi leikmaður Kentucky háskólans sem ætlaði í nýliðaval NBA-deildarinnar í körfubolta, lést í bílslysi í Los Angeles í gær. Hann var nítján ára.

Baylor vann úrslitaleikinn og kom þar með í veg fyrir fullkomið tímabil Gonzaga
Baylor Bears báru sigur úr býtum í Marsfárinu í bandaríska háskólakörfuboltanum er þeir unnu Gonzaga Bulldogs 86-70 í úrslitaleiknum. Gonzaga hafði ekki tapað leik á tímabilinu fyrir leikinn í nótt.

Sjáðu ótrúlega sigurkörfu Gonzaga sem á enn möguleika á hinu fullkomna tímabili
Gonzaga Bulldogs er komið í úrslitaleik marsfársins í körfubolta. Flautukarfa Jalen Suggs sem tryggði Gonzaga sigur gegn UCLA í framlengdum leik var ekkert annað en stórkostleg, hana má sjá hér að neðan ásamt öllu því helsta úr leiknum.

Dómari hrundi í gólfið í marsfárinu
Dómari í viðureign Gonzaga og USC í átta liða úrslitum bandaríska háskólakörfuboltans hrundi í gólfið upphafi leiks og var í kjölfarið borinn af velli.

Dagný Lísa með að minnsta kosti eitt af öllu en Kúrekastelpurnar eru úr leik
Það var bara einn dans hjá fulltrúa Íslands í Marsfárinu í bandaríska háskólakörfuboltanum í ár.

101 árs nunna í sviðsljósinu þegar Marsfárið byrjaði með óvæntum sigri
Marsfárið er byrjað í Bandaríkjunum og eins og vanalega verða oft mjög óvænt úrslit í úrslitakeppni bandaríska háskólakörfuboltans. Nú stefnir í annað ævintýri hjá litla Loyola skólanum.

Þjálfari og liðsfélagar „dissuðu“ ákvörðun Ástu um að fara heim
Körfuboltakonan Ásta Júlía Grímsdóttir kveðst afar þakklát mömmu sinni fyrir að hafa ýtt á eftir því að hún legði af stað frá Bandaríkjunum til Íslands áður en samgöngur fóru enn meira úr skorðum vegna kórónuveirunnar.

Sportið í dag: Þetta er gæi með alvöru drauma
Jón Axel Guðmundsson var algjör lykilmaður í liði Davidson í bandaríska háskólakörfuboltanum. Lokatímabili hans með liðinu lauk fyrr en áætlað var vegna kórónuveirunnar.

Jón Axel fékk boð á mót fyrir þá bestu sem eykur möguleikana á að komast að í NBA
Jón Axel Guðmundsson fékk boð um að taka þátt á móti fyrir 64 bestu leikmenn á elsta ári í bandaríska háskólakörfuboltanum. Afar ólíklegt er að hann leiki með Grindavík í úrslitakeppni Domino's deildar karla.

Þórir og félagar steinlágu í Minnesota
Þórir Þorbjarnarson var í eldlínunni í bandaríska háskólakörfuboltanum í kvöld.

Thelma Dís og stöllur hennar unnu í framlengingu
Thelma Dís Ágústsdóttir er lykilmaður í liði Ball State háskólans.

Jón Axel kvaddi með viðeigandi hætti
Jón Axel Guðmundsson var kvaddur með virktum eftir að hafa átt enn einn góða leikinn fyrir Davidson Wildcats í bandaríska háskólakörfuboltanum í gær.