Skoðanir

Fréttamynd

Okkar stríð, okkar friður

Reynslan frá öldinni sem leið kennir okkur, að stríð og friður í Evrópu eru einnig okkar stríð og friður. Við eigum ekki að sitja uppi á vegg í sameinaðri Evrópu, allra sízt í vanhugsuðu eiginhagsmunaskyni. Við eigum heima í Evrópu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Philotimo, Economist, undirheimar Garðabæjar

Hér er fjallað um virðinguna sem er mikilvægt atriði í grískri menningu, Sylvíu Nótt, misheppnaðan fund Economist um íslenskt efnahagslíf, undirheimana sem mun vera að finna í Garðabæ og alræmdan plastblómasala sem lögreglan leitar að...

Fastir pennar
Fréttamynd

Skilaboð frá Hrafnagili

Ábyrgð og dyggðir eru ekki fyrirbæri sem stjórnmálamenn geta lofað fólki og leyst með lögum og reglum. Markaðurinn, sem óneitanlega er mesta galdratæki efnahagslegra framfara, skilar heldur ekki einföldum lausnum á siðrænum gildum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Yfir til þín: Brüssel!

Sveiflur í gengi íslenskrar krónu eru heldur ekki innbyggður eiginleiki, sem við verðum að sætta okkur við vegna smæðar íslenska hagkerfisins. Gengi krónunnar er einfaldlega mælikvarði á íslenska hagstjórn. Það er engin lausn á vanda okkar að taka upp annan mælikvarða, styrkan gjaldmiðil eins og evru eða svissneskan franka.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ætti að ganga skrefinu lengra

Í ljósi trúnaðarbrests milli kjósenda og framboðsins þarf að vera ljóst hvort Eyþór er í kjöri eða ekki. Þegar slíkur brestur verður milli stjórnmálamanns og kjósenda verður er einungis ein leið til að endurnýja sambandið. Það er með kosningum. Eyþór þarf að sækja nýtt umboð til kjósenda sinna. Það gerir hann ekki í þessum kosningum, en gæti hugsanlega gert síðar. Hluti af því að axla ábyrgð er að víkja þar til nýtt umboð er fengið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Samræmdu prófin

Vissulega má segja að nemendur með umtalsverða lestrarörðugleika hafi ekki mikinn lesskilning. Það er hinsvegar ekki sanngjarnt að nemandi með ágæta íslenskukunnáttu og gott vald á málinu fái mjög lága íslenskueinkunn vegna þess að hann er ófær um að lesa langa texta. Hvernig ætli blindir nemendur þreyti þetta próf?

Fastir pennar
Fréttamynd

Skallapopp

Með umfjöllun Time um áhrifamesta fólk í heiminum er hræðileg mynd af Paul Simon með yfirgreiddan skalla, hárígræðsluna gömlu og strekkt andlit. Eins og geimvera eða eitthvað úr Nip/Tuck. Hann er 64 ára, nýbúinn að gefa út plötu...

Fastir pennar
Fréttamynd

Að spara símapeningana

Ríkisstjórnin þarf að efla trú manna og traust á því að hún sé þess albúin að gera það sem þarf til þess að varðveita stöðugleikann. Of seint er að gera það í haust. Stundin er núna. Ein er sú ráðstöfun sem auðvelt ætti að vera að verja út frá öllum almennum stjórnmálalegum forsendum. Hún er sú að fresta ráðstöfun á þeim afgangi símapeninganna sem áformað er að renni á næstu árum til margra þarfra framkvæmda.

Fastir pennar
Fréttamynd

Listahátíð til fyrirmyndar

Listahátíð í Reykjavík var sett á föstudag í tuttugusta sinn. Sú fyrsta var haldin árið 1970, fjórum árum eftir að Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar. Það er um margt athyglisvert að bera saman þessar tvær menningarstofnanir sem eiga það sammerkt að vera menningarfyrirtæki sem eru fjármögnuð í bland með skattpeningum og sjálfsaflafé.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vofur R-listans

Gömlu R-lista flokkarnir verða að gefa skýr svör um með hverjum þeir vilja vinna eftir kosningar. Þeir geta ekki gefið hið hefðbundna svar stjórnmálaflokka, sem starfað hafa saman í samsteypustjórnum, að þeir gangi óbundir til kosninga.

Fastir pennar
Fréttamynd

Húrra fyrir Dorrit

Hér er fjallað um Dorrit Moussaieff og rétt hennar til að tjá sig, hina sorglegu ríkisstjórn sem á eftir að lafa í Washington í næstum þrjú ár í viðbót, vangaveltur Styrmis um partner fyrir Sjálfstæðisflokkinn og loks er spurt hvort brandarinn um Sylvíu Nótt sé að súrna...

Fastir pennar
Fréttamynd

Þeim var ég verst, er ég unni mest

Pólitísk umræða er nauðsynleg og æskileg en getum við ekki hafið okkur yfir þá lágkúru að gera lítið úr einstaklingum eða manneskjum, sem okkur fellur ekki við? Ég vek athygli á því að Morgunblaðið er eini fjölmiðillinn sem temur sér þennan málflutning.

Fastir pennar
Fréttamynd

Metnaðarfullt markmið

Háskóli þarf annars vegar að standa undir nafni sem vísindastofnun og hinsvegar að sjá þjóðfélaginu fyrir vel menntuðu fólki til að annast hin margvíslegustu störf, þar sem í síauknum mæli er gerð krafa um háskólamenntun,- ekki síst til að standast alþjóðlega samkeppni. Það er því ekki aðeins varðandi fjölda doktora sem háskólar þurfa að standa sig, heldur ekki síður varðandi gott og vandað hagnýtt nám til þess að hér geti þrifist gott þjóðfélag.

Fastir pennar
Fréttamynd

Gráglettni örlaganna

Sú var tíð að helst var aldrei minnst á Ísland í dönskum blöðum, hvað þá öðrum fjölmiðlum. Almenningur í Danmörku vissi lítið sem ekkert um þessa gömlu hjálendu norður í Atlantshafinu. Fæst ungt fólk í Danmörku þekkir aukheldur til gamalla stjórnskipulegra tengsla við Ísland.

Fastir pennar
Fréttamynd

Galbraith látinn

Hagfræðingurinn heimskunni John Kenneth Galbraith lést á dögunum, 97 ára að aldri. Snemma á áttunda áratug var ég eitt sinn í hópi nokkurra námsmanna í Oxford, sem snæddu kvöldverð með Galbraith í matstofu málfundafélags háskólans, áður en hann flutti þar ræðu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Baugsmál, Mogginn, Sylvía Nótt

Hér er fjallað um deilurnar vegna Kastljóssins og Baugs, furðulega fréttamennsku á Mogganum, ljótleika Reykjavíkur, óþjóðhollt kapítal og svo er spurt hvort sé verra að Sylvía Nótt fari með guðlast eða klám...

Fastir pennar
Fréttamynd

Aldrei sama greiðslan?

Sá þriðjungur sílesku þjóðarinnar, sem studdi Pínóchet og stjórn hans gegnum þykkt og þunnt, þreyttist aldrei á að mæra Pínóchet fyrir heiðarleika. Hann kann að hafa brotið gegn mannréttindum, sagði þetta fólk (130 þúsund handtökur, 30 þúsund fangelsisdómar með pyndingum og öllu tilheyrandi, þrjú þúsund morð), en hann er strangheiðarlegur.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fjölmiðlar á krossgötum

Uppspretta frétta er orðin margfalt fjölbreyttari en sú að fólk sæki eingöngu til blaða, ljósvakamiðla eða fréttasíðna á netinu þar sem atvinnumenn í fréttum vega og meta hvað telst fréttnæmt og deila því síðan út til lesenda sinna, hlustenda eða áhorfenda.

Fastir pennar
Fréttamynd

Það sem skiptir máli

Maður á ekki að segja að þessar kosningar séu leiðinlegar. Það er verið að tala um hluti sem skipta máli. Og það er frábært að frambjóðendur séu tilbúnir að leggja fram konkret, alvöru hugmyndir – ekki bara moð sem stuðar ekki neinn og miðar að því að hafa miðjuna góða.

Fastir pennar
Fréttamynd

Flugvallarmál og Sundabraut

Framtíð Reykjavíkurflugvallar er svo ekki síður hagsmunamál landsbyggðarfólks og sjónarmið þess verður að virða og taka tillit til varðandi málið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að gegnsýra pólitíkina

Háskólamenntun á Íslandi þarf að komast á það stig að hingað sæki erlendir námsmenn og vísindamenn. En á sama hátt er brýnt að íslenskir námsmenn haldi áfram að sækja menntun til útlanda í einhverjum mæli. Það eykur á fjölbreytni þekkingarinnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Um kosningar

Mér finnst rétt að staldra aðeins við þessa óþolinmæði og þreytu, og spyr sjálfa mig, hvenær eiga stjórnmálamenn að láta í sér heyra ef ekki fyrir kosningar? Ætli við mundum muna sérlega vel hvað þau segðust ætla að gera eða beita sér fyrir ef allir frambjóðendur hefðu þagað síðan síðasta sumar?

Fastir pennar
Fréttamynd

Allir sammála

Við erum að fara um landið með kosningafundi á vegum NFS – sem er ákaflega gaman. En það vekur athygli að víðast hver eru menn sammála um flest mál, þ.e. grundvallaratriðin – hvað sveitarfélagið eigi að gera, hver stefnan skuli vera. Stundum er ekki hægt að toga fram skoðanaágreining með töngum...

Fastir pennar
Fréttamynd

Fjarar undan Blair í Bretlandi

Tony Blair virðist hafa verið búinn að gera ráð fyrir hvernig færi í kosningunum nú, því strax á föstudagsmorgun kallaði hann ráðherrana hvern á fætur öðrum á sinn fund og tilkynnti þeim um örlög þeirra. Það mátti lesa á svipbrigðunum í andlitum þeirra þegar þeir komu út af fundi hans í forsætisráðherrabústaðnum, hver þau hefðu verið, að sögn breskra fjölmiðla.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vetur án RÚV

Fræg er sagan af fyrrum yfirmanni RÚV sem kynnti fjárhagsáætlun stofnunarinnar með þessum lokaorðum: Og restin fer síðan í dagskrárhítina.

Fastir pennar
Fréttamynd

Árbæjarsafn, hrepparígur, kosningabrellur, evran

Hér er mælt með því að Árbæjarsafn verði flutt í Hljómskálagarðinn en flugvöllur verði settur niður á Bessastaðanesi, rætt um viðbrögð við hugmyndum um flugvöll á Lönguskerjum, kosningabrellu Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ sem gefur kjósendum peninga og fyrirtæki sem vilja frekar nota evrur en íslensku krónuna...

Fastir pennar
Fréttamynd

Stórar spurningar

Óróleikinn á fjármálamörkuðum síðustu vikur hefur kallað fram mjög svo áhugaverða umræðu um stefnuna í peningamálum og stöðu þjóðarbúskaparins almennt. Í byrjun hentu menn á lofti efasemdarspurningar um snaran vöxt íslensku bankanna og stöðu ríkisbúskaparins.

Fastir pennar
Fréttamynd

Mogginn og verkalýðshreyfingin

Þegar ég var strákur norður á Siglufirði í gamla daga var mér kennt að það væri mikil gæfa ef Morgunblaðið skammaði mann. Það væri trygging fyrir því að sá sem fyrir skömmunum varð hefði rétt fyrir sér. Útsendarar auðvaldsins voru flestir óforbetranlegir heildsalar í Reykjavík sem lært höfðu klæki sína í verslunarskóla Hörmangarafélagsins.

Fastir pennar