Skoðanir

Fréttamynd

Önnur pólitísk viðfangsefni

Flestir stjórnmálamenn eyða mestum hluta tíma síns í að tala um efnahagsmál. Ráðherrar og forseti Íslands leggja sig í framkróka við að fara í sendiferðir heimshorna á milli með atvinnufyrirtækjum sem leita fyrir sér á erlendum mörkuðum. Í sjálfu sér góðra gjalda vert. En eru þetta rétt viðbrögð við nýjum aðstæðum?

Fastir pennar
Fréttamynd

Persónur, peningar og félagsleg yfirboð í kosningunum

Fyrir þessar kosningar sér maður engan áherslumun milli flokkanna sem má skýra út frá hefðbundnum vinstri-hægri ási. Þetta held ég að eigi við um allt út um allt land. Það væri hægt að skáka frambjóðendum milli lista eða nefna framboðin allt öðrum nöfnum án þess að það breyti í raun neinu....

Fastir pennar
Fréttamynd

Hver á rökleysuna?

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur verið í hópi efnilegustu framtíðarleiðtoga í íslenskum stjórnmálum. Í forystugreinum þessa blaðs hefur verið gerður ágreiningur um frumvarp ráðherrans um að breyta Ríkisútvarpinu í hlutafélag.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hlutverk og sjálfstæði

Framtíð Ríkisútvarpsins er nú til umræðu á Alþingi og setti Ögmundur Jónasson þingmaður nýtt ræðumet þegar hann talaði í málinu samfleytt í sex klukkustundir frá þriðjudagskvöldi til miðvikudagsmorguns. Ögmundur sagði í viðtali að hann liti á Ríkisútvarpið sem heilaga kú, kjölfestu menningar og fjölmiðlunar á Íslandi sem ekki mætti hrinda inn á markaðstorg afþreyingarinnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ameríkaníseraðasta þjóð í Evrópu

Afa minn dreymdi um að flytja til Ameríku eins og sumir sveitungar hans gerðu, móðir mín horfði á Kanann koma – mótmælti á Austurvelli 1949. Þegar ég var lítill strákur var ekkert íslenskt sjónvarp, ég fékk stundum að fara í heimsókn til vinar míns að sjá Bonanza.

Fastir pennar
Fréttamynd

Smjörþefur orðaglímunnar

Þegar út í sjálfa málefnabaráttu kosninganna er komið vilja menn heyra hvernig flokkarnir ætla að ráðstafa tekjum borgarsjóðs, ekki ríkissjóðs. Þess er að vænta að umræðan falli í þann farveg þegar til kastanna kemur.

Fastir pennar
Fréttamynd

Áhöld um arðsemi

Landsvirkjun er almenningseign. Stjórn fyrirtækisins er skipuð fulltrúum stjórnmálaflokkanna; jafnvel framkvæmdastjórinn er fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Ákvarðanir Landsvirkjunar eru því öðrum þræði pólitískar, ekki aðeins ákvarðanir um val milli ólíkra virkjunarkosta og önnur álitamál, sem eðlilegt er, að séu til lykta leidd á stjórnmálavettvangi, heldur einnig ýmis önnur mál, sem betur færi á að halda í hæfilegri fjarlægð frá stjórnmálamönnum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að hafa ekki taumhald á tungu sinni

Hér er fjallað um Silvio Berlusconi, hinn kjaftfora forsætisráðherra Ítalíu, og ýmis skrautleg ummæli sem hann hefur látið falla, David Cameron sem kallar breska sjálfstæðissinna "laumurasista" og bisnessmann sem móðgaði Frakka með því að uppnefna þá "lazy frogs"...

Fastir pennar
Fréttamynd

Menning og markaður

Kunnara er en frá þurfi að segja að ríkisrekstur á útvarpi er ekki sjálfgefinn. En um það hefur þrátt fyrir allt verið allgóð sátt að starfrækja útvarp á vegum ríkisins til þess fyrst og fremst að sýna menningarlegan metnað umfram það sem markaðurinn sýnist vera viljugur til eða fær um. Það eru fullgild rök.

Fastir pennar
Fréttamynd

Enn eru tímamót í Mið-Austurlöndum

Ljóst er að ærin verkefni blasa við leiðtogum Ísraels og Palestínumanna á næstunni. Mikil tortryggni ríkir víða í garð leiðtoga Hamas-samtakanna og hinnar nýju stjórnar Palestínumanna og hefur það ekki síst komið fram í afstöðu margra voldugra ríkja á Vesturlöndum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tvö sjónarhorn á Reykjavík

Hér er vitnað í tvær bráðskemmtilegar greinar sem fjalla um byggðina í Reykjavík frá gjörólíkum sjónarhornum, hinn nýja stjóra 365 miðla í Danmörku sem þykir mikið hörkutól og loks er spurt hvort ekki sé hægt að leggja fram nýtt fjölmiðlafrumvarp strax í vor?

Fastir pennar
Fréttamynd

Fjárfesting en ekki góðgerð

Brýnt er að vaxandi tilfinning atvinnulífsins fyrir mikilvægi þessarar fjárfestingar dragi ekki úr skilningi stjórnmálamanna á þeim grundvallarskyldum sem á þeim hvíla í þessum efnum. Og það er lofsvert að útgjöld til menntamála hafa aukist umfram flest önnur svið. En þau segja þó ekki alla söguna.

Fastir pennar
Fréttamynd

Svona pistlar

Ég hylli ekki skoðanaleysið - en ég vil biðja fólk um að vara sig á skoðanafestunni. Hún jafngildir nefnilega óbreyttu ástandi. Maður bara spólar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Staðan í borginni – vaxtafár – skrítin króna

Hér er fjallað um veika stöðu "litlu" flokkanna, Framsóknar, Frjálslyndra og VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar, spurt hvernig þetta nýtist Sjálfstæðisflokknum, fáránlega háa vexti, einstæð efnahagslögmál sem ríkja á Íslandi og "einokunarverslun" íslensku krónunnar...

Fastir pennar
Fréttamynd

Skýrari línur

Tilgangur veru Bandaríkjahers hér var ekki að halda uppi atvinnu. Síst af öllu eiga slík sjónarnmið við nú. Það er verkefni sem við leysum upp á eigin spýtur. Í gegnum tíðina hefur stundum gætt nokkurs tvískinnungs af okkar hálfu um þetta efni. Og ef til vill voru hugmyndirnar um fjórar vopnlausar þotur ekki með öllu lausar við hann.

Fastir pennar
Fréttamynd

Lukkunnar pamfílar

Velgengni er sjálfsagt oftast mæld í veraldlegum efnum, efnahag og eignum. Enda oftast erfitt að láta gott af sér leiða, ef viðkomandi á ekki til hnífs og skeiðar og getur ekki um frjálst höfuð strokið. En ég hef hins vegar mætt fólki á minni lífsleið, sem lætur sér fátt um finnast hvort það á fínan bíl sem það getur stært sig af eða að það mæli velgengni sína og lífshamingju í stöðutáknum. Þvert á móti má fullyrða að stundum sé þessi hamingja og þessi velgengni í öfugu hlutfalli við ríkidæmið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vaktstaða Seðlabankans mikilvæg

Davíð Oddsson seðlabankastjóri hefur nú gegnt því starfi í um hálft ár og skilað því hlutverki vel við einhverjar mest krefjandi aðstæður sem seðlabanki getur verið í. Yfirlýsingar hans hafa verið ígrundaðar og yfirvegaðar og til þess fallnar að taka af tvímæli um að Seðlabankinn ætli að standa þá vakt sem honum er skylt að standa samkvæmt lögum. Markmið bankans um að halda verðbólgu sem næst 2,5 prósentum til lengri tíma er ófrávíkjanlegt og ekki samningsatriði.

Fastir pennar
Fréttamynd

Slúðurblaðamennskan breiðist út

Gróa býr ekki lengur á Leiti, fer á milli bæja og ber út sögur. Hún nýtur lífsins í hinu nútímalega fjölmiðlaumhverfi. Hún framleiðir slúður sem er ópíum fyrir fólkið. Þetta endalausa kjaftæði um fræga fólkið. Eða þá sem okkur er sagt að séu frægir...

Fastir pennar
Fréttamynd

Rauðkuhugmyndafræði

Nú ætlar ríkisstjórnin að víkja til hliðar öllum almennum reglum sem gilda um meðferð skattpeninga að því er varðar rekstur Ríkisútvarpsins. Þar á meðferð skattpeninga að lúta reglum einkaeignarréttarins án þess að skilyrði hans um sjálfsaflafé sé fyrir hendi. Auka má skilvirkni hvarvetna í ríkiskerfinu með því að afnema þessar reglur að fullu og öllu. Eru menn reiðubúnir að taka afleiðingunum af því? Svarið er nei. Hvaða önnur sjónarmið geta gilt um meðferð skattpeninga í stærstu menningarstofnun ríkisins?

Fastir pennar
Fréttamynd

Vinátta og hagsmunir

Auðvitað hljóta Bandaríkin að miða við eigin hagsmuni, þegar þau marka utanríkisstefnu sína. Ríki eiga ekki vini, heldur hafa þau hagsmuni. Og ríki eru bandamenn, þegar hagsmunir fara saman. En hagsmunir Bandaríkjanna til langs tíma eru þeir að eiga öfluga bandamenn á Norður-Atlantshafi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Óttinn við erlent fjármagn

Erlendri fjárfestingu fylgja hins vegar ítök erlendra fjárfesta með miklar kröfur um arðsemi, og einmitt þess vegna hafa Íslendingar eins og margar aðrar fyrrum nýlenduþjóðir reynt að bægja frá sér erlendri fjárfestingu og taka heldur lán til að mæta viðskiptahallanum. Þess vegna er enn lagt blátt bann í lögum við erlendri fjárfestingu í íslenzkri útgerð, og þess vegna hafa virkjunarframkvæmdir okkar verið fjármagnaðar með erlendu lánsfé frekar en hlutafé.

Fastir pennar
Fréttamynd

Gagnrýni og gífuryrði

Málefnaleg viðbrögð við álitum umboðsmanns Alþingis, bæði af hálfu stjórnvalda og þeirra sem um þau fjalla á Alþingi og utan, eru einkar þýðingarmikil. Gífuryrðaumræða dregur hins vegar úr líkum á því að álit hans hafi tilætluð áhrif til stöðugra betrumbóta í stjórnsýslunni. Umræðan um síðasta álit umboðsmanns hefur verið of gífuryrt þó að það hafi vissulega gefið tilefni til gagnrýni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ástin á gömlum skoðunum

Nú þegar ekki er lengur hægt að umgangast þessi grundvallaratriði í stjórnmálum sjálfstæðs ríkis með sama hætti og kappræður í skóla kemur í ljós hvaða þekkingu íslenska stjórnmálakerfið býr yfir í þessum málum. Líti menn í kringum sig verður samanburðurinn nöturlegur því að í nálægum löndum er upplýsingum stofnana og niðurstöðum rannsókna með kerfisbundnum hætti veitt inn í stilltar og alvörugefnar umræður stjórnmálamanna um þessi grunnatriði í tilvist sjálfstæðra ríkja.

Fastir pennar
Fréttamynd

Nýtt afl í þágu aldraðra

Þótt málaflokkur vegna húsnæðismála aldraðra verði færður yfir til sveitarfélaganna er ekki þar með sagt að frjáls félagasamtök eigi að hætta því uppbyggingarstarfi sem þau hafa staðið að í þessum efnum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fjölmiðlapistill

Hér er fjallað um dularfullar mannaráðningar á Fréttablaðinu, óvissuna sem ríkir á Morgunblaðinu nú þegar Styrmir tekur að reskjast, væntanleg fjölmiðlalög, sættir Símans og Orkuveitunnar, nauðsyn þess að hafa frjálsan aðgang að fjölmiðlaveitum og sendiherradjobbið í Washington...

Fastir pennar
Fréttamynd

Um "skaðlega" umræðu

Sjálfstæðisflokkurinn klikkaði í utanríkismálunum eftir 1990 og þess vegna erum við ekki í Evrópusambandinu og viðskiptaráðherrann hefur því tækifæri til að gera sig að hálfgerðu viðundri með því að stinga upp á því að taka upp evruna án þess að vera í þeim klúbbi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Mikilvægi Bandaríkjanna

Óvild í garð Bandaríkjanna er áberandi víða um Evrópu og auðvelt er að sjá ýmis merki um hana hér á landi. Væntanlegur viðskilnaður Varnarliðins verður örugglega olía á þann eld.

Fastir pennar
Fréttamynd

Kjarnorka er góð

Hér er fjallað um breska vísindamanninn James Lovelock sem varar við skelfilegum afleiðingum hlýnunar jarðar og telur að kjarnorka sé eina ráðið gegn henni, en einnig er minnst á skringilegan orðróm um sendiherrastöðu og stráka sem vilja ekki lesa sögur um stelpur...

Fastir pennar