Skoðanir

Fréttamynd

Sérstakt framsal merkir hræðilegir glæpir

Fólk notar slík orðasambönd til að komast hjá því að nota önnur sem færu vandræðalega nálægt því að lýsa sannleikanum. Þjóðernishreinsun og hin endanlega lausn voru notuð til þess að komast hjá því að nota orðið þjóðarmorð, og að nota orðasambandið sérstakt framsal felur í sér að málnotandinn er of mikil kveif til að segja: stríðsfangar sem pyndaðir eru í öðrum löndum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Of gott fyrir þessa þjóð?

Mér sýnist að Eiríkur Jónsson telji að blaðið hafi hvergi misstigið sig - enda er hann einn helsti hugmyndafræðingur þess. Eiríkur kvartar undan hræsni í umfjöllun um DV og varpar fram þeirri spurningu hvort blaðið sé "of gott" fyrir þessa þjóð?

Fastir pennar
Fréttamynd

Líf á útfjólublárri öld

Langsamlega stærsti þátturinn í útblæstri koltvísýrings á heimsvísu er bílaumferð. Alls mun um fimmtungur hans stafa af notkun fólksbíla. Þetta bætist ofan á alla þá mengun aðra sem stafar af bílaumferð, hið gríðarlega landflæmi sem fer í umferðarmannvirki og öll þau mannslíf sem farast í umferðinni á ári hverju.

Fastir pennar
Fréttamynd

Sannleikurinn og tillitssemin

Sú ritstjórnarstefna sem byggir á því að hafa það sem aðalreglu að birta myndir og nöfn fólks sem fjallað er um er þess vegna ekki byggð á skyldu blaðamannsins til að segja sannleikann. Sú siðferðilega skylda á víða við eins og t.d. ef einhver er vísvitandi að geyma mikilvægar upplýsingar ofan í skúffu til hugsanlegrar birtingar síðar, þegar og ef það muni henta viðkomandi blaði eða blaðamanni.

Fastir pennar
Fréttamynd

DV, sannleikurinn og siðferðið

DV í síðustu birtingarmynd sinni hefur gengið miklu lengra en áður hefur verið gert í íslenskri blaðamennsku - og lengra en flest blöð úti í heimi. Sumt af því myndi varða við lög í nágrannalöndum - án þess að blaðamenn þar telji sig lifa undir áþján ritskoðunar...

Fastir pennar
Fréttamynd

Aðgát skal höfð í nærveru sálar

Blaðamenn DV segjast vera sannleiksleitandi og ekki hlífa neinum, en stundum þurfa menn að athuga sinn gang og fara vandlega yfir hvað skuli birt og hvað ekki. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fréttaflutningur og uppsláttur DV veldur umtali í þjóðfélaginu og háværar raddir fordæma hann, en viðbrögðin hafa líklega aldrei verið meiri en nú, sem hlýtur að vera forráðamönnum blaðsins umhugsunarefni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Menningarpistill

Ídol innsetningaliðsins eru fígúrur eins og Tracy Ermin og Damien Hirst sem sýna rúmið sitt útbíað af gömlum kærustum, dauð dýr í formalíni, hengja upp gamlar nærbuxur – fólk sem telur listrænt að setja túrtappa í nefið á sér ef því er að skipta...

Fastir pennar
Fréttamynd

Frjálst fall og fallhlífar

Fyrir 1000 árum kvað Þorgeir Ljósvetningagoði upp úr með það að íslensku samfélagi færi best að hafa ein lög og einn sið, ella mundum við sundurslíta friðnum. Þau orð eiga áreiðanlega jafnvel við í dag. Eða hvernig þætti mönnum að Flugleiðir hefðu þann hátt á að hafa fallhlífar einungis fyrir farþega á "business class"?

Fastir pennar
Fréttamynd

Það er engin þörf á nýrri nefnd

Sannleikurinn er sá að það er engin þörf á nýrri nefnd til að kanna ástæður fyrir háu matvælaverði á Íslandi í samanburði við grannlöndin. Þær blasa við. Sama er að segja um leiðir til úrbóta. Það þarf að lækka virðisaukaskatt, stokka upp tollakerfið og draga stórlega úr innflutningsvernd landbúnaðar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Augun beinast að eigendum DV

Útgáfa DV í núverandi mynd mun ekki ganga til lengdar, enda gengur blaðið til dæmis mun lengra en hliðstæð blöð á Norðurlöndunum. Nú er tími til að nema staðar, breyta stefnunni eða leggja niður blaðið...

Fastir pennar
Fréttamynd

Á verði gagnvart fuglaflensu

Það er full ástæða til að yfirvöld hér á landi séu vel á verði gagnvart útbreiðslu fuglaflensunnar og að starfsmenn viðkomandi stofnana fylgist vel með þróun mála. Landlæknisembættið hefur ekki séð ástæðu til að mæla með takmörkun ferðalaga til landa þar sem fuglainflúensan -H5N1- hefur komið upp.

Fastir pennar
Fréttamynd

Kannski fáum við betri hugmyndir

Nú hef ég ekki komið í Þjórsárver, því miður, og það sjónarmið hefur stundum heyrst að þeir sem ekki hafi heimsótt náttúruperlur hafi ekki leyfi til að hafa skoðun á nýtingu þeirra. Það sjónarmið er þó á undanhaldi enda algjörlega út í hött.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þjóðaríkon

Íslendingar eru líka eyþjóð sem er sífellt að spá í sjálfri sér. Hver eru okkar þjóðaríkon? Grettir sterki, hákarl, glíma, álfar, lóan? Ætli við myndum ekki reyna að telja túristum trú um það. En þetta virkar ekkert voða sannfærandi....

Gagnrýni
Fréttamynd

Skjaldbökur

Hér er sagt frá risaskjaldböku sem tók flóðhest í fóstur, annarri skjaldböku sem sögð er hafa komið með Darwin frá Galapagoseyjum, fjallað um Túskildingsóperuna og tónleika virkjanaandstæðinga í Laugardalshöll um helgina...

Fastir pennar
Fréttamynd

Græðgi

Græðgi er andfélagsleg hegðun, eins og fyllerí á almannafæri eða annar dónaskapur. Hálaunamaður sem gerir samning um enn hærri laun sem hann þarf ekkert á að halda er eins og alkóhólisti "í neyslu", hann veit að framferði hans er orðið ofboðslegt og veldur almennri andúð og hefur snúist upp í andhverfu þess sem til var stofnað í upphafi - það er að segja að afla viðkomandi meiri virðingar meðal samferðafólks - en samt gerir hann enn fáránlegar kröfur um ofurkjör, hann er búinn að missa alla stjórn á aðstæðunum, ræður ekki við sig, er í einhvers konar vímu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Nýir leiðtogar í Ísrael

Sharon hefur á stjórnmálaferli sínum fyrst og fremst verið þekktur fyrir harðlínustefnu sínu gagnvart Palestínumönnum og sem einn þekktasti hershöfðingi Ísraela hefur hann átt þátt í mörgum mjög umdeildum hernaðaraðgerðum þeirra.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tilfinningar skipta líka máli

Tilfinningar eiga vel heima í stjórnmálum og kannski hefðu fleiri það betra í samfélaginu ef stjórnmálamenn leyfðu tilfinningum að ráða. Þá væru tekjur öryrkja sjálfsagt nógu háar til að þeir geti lifað sómasamlegu lífi, börn sem haldin eru geðröskunum þyrftu ekki að bíða vikum eða mánuðum saman eftir að fá læknisaðstoð og öldruðum væri ekki gert að búa á göngum hjúkrunarheimila.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hlífum Þjórsárverum

Núverandi umhverfisráðherra ætti að taka af skarið við þessar aðstæður og gefa út afdráttarlausa yfirlýsingu um friðun næsta nágrennis Þjórsárvera, þar sem fyrirhugaðar eru framkvæmdir vegna Norðlingaölduveitu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Amstur hálaunafólksins

Það eru bara tvö ár síðan fólk náði ekki upp í nefið á sér vegna þess að ráðafólkið hóf lífeyrisréttindi sín upp í æðra veldi. Þá treystu menn sér til að taka slaginn og treystu því að það fennti í sporin. Þá var ekki við neinn kjaradóm að sakast heldur var jólapakkinn að öllu leyti heimatilbúinn og meira að segja með hjálp frá lykilmönnum í stjórnarandstöðunni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Gunnar snýr aftur

Endurvakinn áhugi á ævi og verkum Gunnars Gunnarssonar, sem birtist í ýmsum myndum um þessar mundir, er til marks um að góð skáld gleymast ekki.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hin gömlu kynni

Rekstur sjálfstæðs ríkis kostar sitt, og sífellt þyngri framfærslubyrði vinnandi fólks vegna mann­fækkunar og öldrunar truflar og tefur sjálfstæðisbaráttuna. Niall Ferguson skefur ekki utan af því: hann segir fullum fetum, að Skotland sé á sömu leið og Prússland og General Motors: í gröfina.

Fastir pennar
Fréttamynd

Sjálfstæður Seðlabanki mikilvægur

Er því spáð að gengi krónunnar muni smám saman lækka eftir því sem á árið líður og verði gengisvísitalan orðin 120 stig í lok ársins, sem merkir um 15 prósenta gengislækkun. Hvort þetta gengur eftir leiðir reynslan ein í ljós, en hitt er mikilvægt að á þeirri vegferð sem er fram undan sýni ráðherrar og aðrir stjórnmálaforingjar í orðum og verki að þeir virði og meti sjálfstæði Seðlabankans.

Fastir pennar
Fréttamynd

Minnkandi munur og vaxandi

Umbun stjórnenda KB banka fyrir að margfalda hagnað bankans þætti til dæmis ekki umtalsverð vestan hafs eða austan enda greinilega um að ræða eftirtektarverða snilld við að nýta nýjar aðstæður í alþjóðlegum viðskiptum. Annað sem athygli hefur vakið á Íslandi að undanförnu virðist hins vegar frekar eiga rætur í ábyrgðarleysi en lögmálum markaðarins.

Fastir pennar
Fréttamynd

Með sverði eða verði

Þótt þessar skáldsögur væru ef til vill ekki merkilegar, var þar hreyft gamalkunnri mótbáru við frjálshyggju: Hún sé köld og hörð kenning, ef til vill raunhæf um margt í efnahagsmálum, en mannúðarlaus. Frjálshyggjumenn skilji ekki hugtök eins og hjálpsemi og fórnarlund.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að þekkja og virða takmörkin

Hefðin, fámennið og návígið á Íslandi setur viðskiptalífi okkar ennfremur ákveðin takmörk og skapar því ákveðna sérstöðu sem jafnvel útrásin margumrædda fær ekki breytt. Mikilvægt er að leiðtogar atvinnulífsins skilji þessi takmörk og hafi sömu tilfinningu fyrir þeim og fólkið í landinu. Skeytingarleysi í þessu efni gæti orðið hinu tiltölulega unga markaðsfrelsi á Íslandi skeinuhætt.

Fastir pennar
Fréttamynd

Kjör aldraðra og matarverð

Það var kannski engin tilviljun að bæði forsætisráðherra og forseti Íslands töluðu um kjör og aðbúnað aldraðra í ávörpum sínum nú um áramótin, enda hafa þau mikið verið til umræðu á almennum vettvangi undanfarin misseri, ekki síst vegna þess að þessi hópur hefur ekki setið hljóður hjá eins og áður fyrr, heldur hafa forvígismenn aldraðra haldið málefnum þeirra hátt á lofti og opnað augu margra fyrir þeim kjörum sem aldraðir búa við.

Fastir pennar