Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)
122 123 124 125 126 127 128 129 130 … 148 ›
Býst ekki við blaðamannafundi eftir fundinn með Pfizer Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að íslenskir vísindamenn muni funda með Pfizer í dag um mögulega fjórða fasa rannsókn lyfjafyrirtækisins hér á landi á bóluefni þess gegn Covid-19. Innlent 9.2.2021 08:51
Hyggja að stofnun Norðurslóðaseturs kennt við Ólaf Ragnar Ríkisstjórnin hefur ákveðið að skipa nefnd um undirbúning að stofnun og byggingu Norðurslóðaseturs í Reykjavík sem yrði kennt við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands. Innlent 5.2.2021 13:22
Vefverslun með áfengi ekki leyfð samkvæmt nýju frumvarpi dómsmálaráðherra Frumvarp Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra um breytingar á áfengislögum, var lagt fram á Alþingi í gær. Innlent 5.2.2021 07:16
Gjaldtaka fyrirhuguð á Sundabrú Samgönguráðherra leggur til að ráðist verði í lagningu Sundabrautar með brú frá Holtagörðum yfir í Gufunes. Heildarkostnaður yrði sextíu og níu milljarðar króna og mun hagkvæmari en lagning jarðgangna á þessari leið. Innlent 3.2.2021 19:21
Versnandi efnahagshorfur á þessu ári Horfur hafa versnað varðandi viðskiptakjör Íslands á þessu ári miðað við fyrri spá Seðlabankans og verðbólga er meiri en reiknað var með. Maginvextir bankans verða ábreyttir í 0,75 prósentum samkvæmt vaxtaákvörðun í morgun. Innlent 3.2.2021 12:14
Framsóknarmenn „hafi séð ljósið“ og hljóti nú að styðja frumvarp sitt um brugghús Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segist hljóta að líta á frumvarp þriggja þingmanna Framsóknarmanna um breytingar á áfengislögum, sem stuðning við sitt eigið frumvarp sama efnis. Áslaug segir sitt frumvarp ítrekað hafa mætt mótstöðu og gerðir við það fyrirvarar í ríkisstjórn og í þingflokkum samstarfsflokkanna og því skjóti skökku við að þingmenn Framsóknarflokksins, þeir sömu og sett hafi fyrirvara við hennar mál, leggi nú fram sambærilegt frumvarp í eigin nafni. Innlent 2.2.2021 22:24
Ríkissjóður aldrei fengið betri lánakjör Ríkissjóður hefur aldrei fengið hagstæðari kjör en vaxtalaust lán í nýlegu skuldabréfaútboði upp á 750 milljónir evra. Fjármálaráðherra segir markaðinn treysta Íslandi til að geyma þetta fé fyrir sig í sjö ár. Innlent 2.2.2021 19:21
Bjarni vonar að almenningur sýni hlutum í Íslandsbanka mikinn áhuga Fjármálaráðherra vonar að almenningur sýni hlutabréfakaupum í Íslandsbanka svipaðan áhuga og í hlutfjárútboði Icelandair í haust. Tryggt verði að ríkið fái viðunandi verð fyrir hlutinn og stærð hlutarins fari eftir áhuga markaðarins. Innlent 2.2.2021 12:11
Telur æskilegt að hægt verði að kaupa hlut í Íslandsbanka fyrir nokkra tugi þúsunda Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, telur æskilegt að hægt verði að kaupa hlut í Íslandsbanka fyrir nokkra tugi þúsunda. Viðskipti innlent 2.2.2021 08:06
„Orðræðan er mjög harkaleg og oft hatursfull“ „Ég fordæmi þessa árás og finnst hún alvarleg, því þarna er verið að beita skotvopnum fyrir utan heimili stjórnmálamanns. Ég lít þetta alvarlegum augum,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um skotárás á bíl borgarstjóra um liðna helgi sem lögregla hefur til skoðunar. Innlent 29.1.2021 12:33
Ýmis ákvæði sóttvarnalaga styrkt og skýrð nánar Annarri umræðu um breytingar á sóttvarnalögum lauk á Alþingi í gærkvöldi en þær fela í sér styrkingu alls konar heimilda sóttvarnayfirvalda til aðgerða í sóttvarnamálum. Varaformaður velferðarnefndar Alþingis segir brýnt að hefja þegar undirbúning að heildarendurskoðun laganna. Innlent 29.1.2021 12:06
Þörf á mun meiri inniviðafjárfestingum opinberra aðila en áætlað er Formaður Samtaka iðnaðarins segir þörf á mun meiri fjárfestingum í innviðum landsins en áætlanir opinberra aðila upp á 139 milljaðar kveða á um á þessu ári. Í kreppunni nú vegna kórónuveirufaraldurins sé rétti tíminn til að gefa verulega í. Innlent 27.1.2021 19:21
442 milljónir til bænda vegna kal- og girðingatjóns Greiddar hafa verið 442 milljónir króna í styrki úr Bjargráðasjóði vegna mikils kal- og girðingatjóns veturinn 2019-20. Innlent 27.1.2021 08:26
Söguleg skipun forstöðumanns Fjölmenningarseturs Nicole Leigh Mosty hefur verið skipuð í embætti forstöðumanns Fjölmenningarseturs til fimm ára. Hún tekur til starfa þann 1. mars. Greint er frá skipun Ásmundar Einar Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, á vef stjórnarráðsins. Innlent 26.1.2021 16:18
Átta milljónir til Árnastofnunar vegna heimkomuafmælis handrita Ríkisstjórnin ákvað í morgun að styrkja Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum um átta milljónir króna vegna heimkomuafmælis handritanna. 50 ár eru brátt liðin frá því fyrstu handritunum var skilað til Íslands frá Danmörku. Menning 26.1.2021 14:32
Róbert liggur undir feldi Róbert Marshall, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, íhugar nú að bjóða sig fram í forvali Vinstri grænna í Reykjavík fyrir þingkosningarnar sem fram fara næsta haust. Innlent 26.1.2021 12:18
Ferðaþjónustan bjartsýn en kallar eftir frekari aðgerðum stjórnvalda Mikillar bjartsýni gætir meðal ferðaþjónustufyrirtækja en stór meirihluti þeirra ætlar að halda sínu striki samkvæmt könnun KPMG sem unnin var fyrir Nýársmálstofu Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðaklasans og KPMG. Á málstofu klasans kom fram að flest ferðaþjónustufyrirtæki skorti fjármagn til fjárfestinga og að nauðsynlegt væri að byggja upp innviði landsins eins og vegakerfi. Innlent 26.1.2021 11:54
Fjörutíu prósent ánægð með störf ríkisstjórnarinnar Tæplega fjörutíu prósent landsmanna segjast ánægð með störf ríkisstjórnarinnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Prófessor í stjórnmálafræði segir eðlilegt að stuðningur dali nú þegar betur efnaghagskrísan eftir faraldurinn sé farin að bíta. Innlent 25.1.2021 12:58
Vill ekki hlýða kalli „nokkurra fjárfesta í vandræðum með peningana sína“ Óli Björn Kárason þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur óumdeilt að stefna að dreifðu eignarhaldi á fjármálafyrirtækjum til framtíðar. Umsvif ríkisins á fjármálamarkaði séu of mikil og ástandið eins og það er núna sé óheilbrigt. Oddný Harðardóttir þingmaður Samfylkingar segir ekkert ákall vera frá almenningi um söluferli og vill ekki hlýða kalli „nokkurra fjárfesta“ í peningavandræðum. Viðskipti innlent 24.1.2021 23:00
Vonast eftir aðkomu lífeyrissjóða að Sundabraut Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, mun kynna skýrslu um gerð Sundabrautar og hvernig hægt verði að fara í þær framkvæmdir. Þetta sagði Sigurður í Sprengisandi á Bylgjunni í dag þegar hann var spurður um mögulega aðkomu lífeyrissjóða að stórum samgönguframkvæmdum hér á landi. Innlent 24.1.2021 11:40
Segir löngu tímabært að afnema refsistefnuna Heilbrigðisráðherra boðar frumvarp um lögleiðingu neysluskammta fíkniefna og vill að litið verði á fíkniefnaneytendur sem sjúklinga fremur en afbrotamenn. Verkefnastýra Frú Ragnheiðar segir þetta skref í rétta átt enda sé löngu tímabært að afnema þá refsistefnu sem hafi ekki skilað árangri Innlent 23.1.2021 21:30
Óeining um stjórnarskrárfrumvarp Katrínar á Alþingi Frumvarp Katrínar Jakobsdóttur um breytingar á stjórnarskránni fékk dræmar undirtektir á Alþingi í dag. Ólíklegt er að það nái fram að ganga í heild sinni. Innlent 21.1.2021 19:21
Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar mælir með sölu á allt að 35 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis telur rétt að hefja sölu á allt að þrjátíu og fimm prósentum af eign ríkisins í Íslandsbanka. Setti verði takmörk á hvað hver og einn geti eignast stóran hlut í bankanum. Viðskipti innlent 21.1.2021 11:29
Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks hugsi yfir stjórnarskrárfrumvarpi Katrínar Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins hefur kallað eftir sérstakri umræðu um stöðu stjórnarskrármála á Alþingi á morgun. Hann segir nauðsynlegt að skýrt verði hvað réði áherslum forsætisráðherra í væntanlegu þingmannafrumvarpi hennar um breytingar á stjórnarskránni. Innlent 20.1.2021 16:52
Ofbeldi gegn fötluðum svartur blettur á samfélaginu Dómsmálaráðherra segir ofbeldi gegn fötluðum svartan blett á íslensku samfélagi. Aðgerðateymi gegn ofbeldi hefur skilað ráðherra úrbóttatillögum í málaflokknum. Innlent 20.1.2021 12:23
Áform um lögleiðingu neysluskammta fíkniefna í samráðsgátt Áform heilbriðisráðherra um að leggja fram frumvarp sem heimilar vörslu takmarkaðs magns ávana- og fíkniefna eru komin í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpinu yrði ætlað að stuðlað að því að taka skref í átt frá refsistefnu í málaflokknum. Innlent 19.1.2021 18:05
Ríkið styrkir Landsbjörgu til kaupa á björgunarskipum Ríkið styrkir Landsbjörgu um allt að 450 milljónir króna til kaupa á þremur björgunarskipum á árunum 2021-2023 samkvæmt samkomulagi sem var undirritað í dag. Auk þess var undirrituð viljayfirlýsing um kaup á sjö skipum til viðbótar á næstu tíu árum. Innlent 19.1.2021 16:45
63 prósent treysta Bjarna illa fyrir einkavæðingu Íslandsbanka Tæp 63 prósent þjóðarinnar treysta Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, mjög illa eða frekar illa til að leiða einkavæðingu Íslandsbanka. 23,5 prósent segjast treysta honum mjög eða frekar vel. Innlent 19.1.2021 10:56
Ísland hefur skuldbundið sig til að kaupa ekki bóluefni utan samnings Evrópusambandsins Sóttvarnalæknir segir að búið verði að bólusetja um 30 þúsund manns gegn kórónuveirunni í lok mars. Hann segir að Ísland hafi skuldbundið sig til að kaupa bóluefni samkvæmt samningum Evrópusambandsins. Því sé ekki hægt að kaupa bóluefni framhjá þeim samningum. Innlent 18.1.2021 20:22
Katrín telur stjórnarflokkana hafa unnið vel úr Ásmundarsalarmálinu Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segist hafa haft áhyggjur af því að Ásmundarsalarmálið svokallaða myndi hafa áhrif á traust á milli stjórnarflokkanna. Hún telur þó að vel hafi verið unnið úr því. Innlent 18.1.2021 16:07