

Breiðablik og Valur eigast við í dag í úrslitum Mjólkurbikars kvenna. Blikar eiga titili að verja og Natasha Moraa, leikmaður Breiðabliks, segir að liðið sé tilbúið í leikinn.
Fyrsta Íslandsmót kvenna í fótbolta hófst á þessum degi fyrir sléttum 50 árum, þann 26. ágúst 1972. Breiðablik og Fram komu fyrsta mótinu af stað.
„Leggst vel í mig, það er alltaf tilhlökkun fyrir þennan leik. Þetta er leikurinn sem allir vilja komast í, stærsti leikur ársins hverju sinni og eðlilega tilhlökkun fyrir slíkum leik,“ sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari bikarmeistara Breiðabliks. Lið hans getur varið titilinn er það mætir Íslandsmeisturum Vals á Laugardalsvelli á laugardag.
Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, segir mikla spennu í leikmannahópnum fyrir komandi úrslitaleik Mjólkurbikarsins þar sem Valur mætir ríkjandi meisturum Breiðabliks. Valur hefur enda ekki komist í úrslit í tíu ár.
Agla María Albertsdóttir varð fyrir meiðslum í 3-0 sigri liðsins á tékkneska liðinu Slovacko í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á sunnudag. Vel má vera að tímabili hennar sé lokið.
„Ég er mjög sáttur. Við vissum það að það væri erfitt verkefni að koma hérna og fara með þrjú stig héðan. Það er mjög gott og við erum á góðu skriði. Þeir eru auðvitað ósigraðir síðan að þeir komu hingað í Úlfarsárdal, þennan glæsilega heimavöll, þannig að ég er bara ánægður,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, eftir 2-0 sigur á Fram í kvöld.
Fram tók á móti Breiðabliki í 18. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Fram hafði ekki tapað leik á nýjum heimavelli sínum í Úlfarsárdal. Breiðabliki, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, tókst hinsvegar að breyta því og vann 2-0.
Helena Ósk Hálfdánardóttir skoraði öll þrjú mörk Breiðabliks sem vann 3-0 sigur á Slovacko frá Tékklandi í Þrándheimi í Noregi í morgun. Um er að ræða síðari leik Kópavogsliðsins í Meistaradeild Evrópu þetta árið. Tap fyrir Rosenborg í miðri viku gerði út um vonir Kópavogskvenna um áframhald í keppninni.
Katrín Ásbjörnsdóttir, framherji Stjörnunnar, sá um að hlúa að Damir Muminovic eftir sigur liðs hans Breiðabliks 1-0 á HK í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í gærkvöld.
Í leik HK og Breiðabliks sem fram fór í kvöld fóru nokkrir stuðningsmenn HK yfir strikið og sungu níðsöngva um Damir Muminovic, leikmann Breiðabliks. Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður Breiðabliks, sagði síðan frá því að hópur af HK-ingum hafi ráðist á sjö ára systur sína fyrir að vera í Breiðabliks treyju.
8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins lauk með Kópavogsslag í Kórnum. Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Omar Sowe Breiðabliki yfir á 55. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki og Breiðablik mætir Víkingi Reykjavík í undanúrslitum á Kópavogsvelli.
HK er úr leik í Mjólkurbikarnum eftir 0-1 tap gegn Breiðabliki í Kórnum. Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, bar höfuðið hátt eftir naumt tap gegn toppliði Bestu deildarinnar.
Nú rétt í þessu var dregið í undanúrslit Mjólkurbikars karla, en drátturinn fór fram í hálfleikshléi í leik HK og Breiðabliks í átta liða úrslitum keppninnar.
Breiðablik er úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu kvenna eftir 4-2 tap gegn norska liðinu Rosenborg í dag.
Víkingur og Breiðablik duttu bæði út úr þriðju umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar og það vantaði aðeins upp á að fara enn lengra. Þjálfarar liðanna tveggja nefna einbeitingarleysi annars vegar og léttari leið Íslandsmeistaranna hins vegar.
Gunnlaugur Jónsson hitti þjálfara liða Breiðabliks og Víkings í Bestu deild karla fyrir innbyrðis leik liðanna í vikunni og ræddi meðal annars við þá um árangur liðanna í Evrópukeppninni í ár.
Óskar Hrafn Þorvaldsson talaði aðeins varlegar en Arnar Gunnlaugsson þegar þeir voru spurðir að því hvort að lið þeirra væri að stinga önnur lið af hér á landi hvað varðar hugsjón, þjálfun og leikfræði.
Breiðablik, topplið Bestu-deildar karla í knattspyrnu, verður án þriggja leikmanna sinna er liðið heimsækir Fram í 18. umferð deildarinnar næstkomandi mánudag.
Það var töluverður hiti í leik Breiðabliks og Víkings í Bestu deild karla í gærkvöld enda um að ræða liðin sem börðust um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð. Alls fóru tíu gul spjöld á loft, sem og eitt rautt, en þá var frammistaða boltasækjara leiksins einnig til umræðu.
Breiðablik og Víkingur gerðu 1-1 jafntefli í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld, mánudag. Um er að ræða topplið deildarinnar og svo ríkjandi Íslands- og bikarmeistara. Þá fór rautt spjald á loft í síðari hálfleik. Mörkin og rauða spjaldið má sjá hér að neðan.
Breiðablik og Víkingur skildu jöfn, 1-1, í stórleik 17. umferðar Bestu deildar karla í kvöld. Sölvi Snær Guðbjargarson kom Blikum yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks en Danijel Dean Djuric jafnaði fyrir Víkinga eftir rúman klukkutíma.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, sagði að jafnteflið gegn Víkingi, 1-1, kæmi sínum mönnum betur en Íslands- og bikarmeisturunum.
Risaleikur Breiðabliks og Víkings í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld kemur strax í kjölfarið á Evrópuævintýrum liðanna. Þjálfarar liðanna fagna því.
Í kvöld mæta Íslands og bikarmeistarar Víkings á Kópavogsvöll og mæta þar toppliði Bestu deildar karla. Um er að ræða þau tvö lið sem börðust um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra og voru framan af tímabili talin líklegust til afreka í sumar. Nú er komið annað hljóð í landann og þurfa bæði lið á sigri að halda þar sem bæði KA og Valur virðast allt í einu ætla að blanda sér í toppbaráttuna.
Breiðablik er á leið í úrslit Mjólkurbikars kvenna eftir 0-2 útisigur gegn Selfyssingum. Blikar eru ríkjandi bikarmeistarar og munu freista þess að verja titilinn gegn Valskonum á Laugardalsvelli.
Ásmundur Arnarson, þjálfari Breiðabliks, var eðlilega kátur í leikslok eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitum Mjólkubikars kvenna með 0-2 útisigri gegn Selfyssingum á Jáverk-velinum á Selfossi í dag.
Góður árangur Víkings og Breiðabliks í Evrópukeppnum í ár skilaði sér á bankabók félaganna. Víkingar sönkuðu að sér yfir milljón evra.
Breiðablik laut í lægra haldi, 3-0, þegar liðið sótti Istanbul Basaksehir heim á Basaksehir Fatih Terim-leikvanginn í Istanbúl í seinni leik liðanna í þriðju umferð í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta karla í kvöld. Istanbul Basaksehir vann einvígið samanlagt 6-1 og fer þar af leiðandi áfram í umspil um laust sæti í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar.
Ísak Snær Þorvaldsson er ekki með Breiðablik er liðið mætir İstanbul Başakşehir F.K. í síðari leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Hann er að glíma við meiðsli.
Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Gyða Kristín Stjörnunni yfir. Gestirnir frá Kópavogi svöruðu með tveimur mörkum og benti allt til þess að Breiðablik myndi vinna leikinn þar til Aníta Ýr Þorvaldsdóttir jafnaði leikinn á 89. mínútu.