Besta deild karla

„Þetta er langþráður sigur“
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, var gríðarlega sáttur með frammistöðuna hjá sínum mönnum eftir 2-1 sigur á ÍBV í dag. Skagamenn komust yfir í fyrri hálfleik en ÍBV tókst að jafna í þeim seinni. Það var svo Skagamaðurinn ungi, Haukur Andri Haraldsson sem tryggði ÍA sigur með marki á 88. mínútu.

Davíð Þór sendir ákall til FH-inga: Vill snúa hlutum við eftir óvægna gagnrýni og þunga umræðu
Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá FH, sendi í dag opið bréf til stuðningsmanna FH og kallaði eftir stuðningi við liðið sem er í bráðri fallhættu í Bestu deild karla.

Umfjöllun og viðtöl: ÍA-ÍBV 2-1| Skagamenn með langþráðan sigur
ÍA vann langþráðan sigur á ÍBV í dag er liðin mættust í 18. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. ÍA sem hefur tapað sjö leikjum í röð mætti tvíeflt til leiks í dag og var það Skagamaðurinn ungi, Haukur Andri Haraldsson sem tryggði ÍA sigur á 88. mínútu. Lokatölur 2-1.

Engin uppgjöf á endurreisnarfundi FH-inga
FH-ingar voru með svokallaðan endurreisnarfund í Krikanum á fimmtudag en tilgangur fundarins var að þjappa stuðningsmönnum félagsins saman fyrir harða fallbaráttu sem blasir við liðinu.

Besti þátturinn: Tókst ekki að ná hinum fullkomna skoti eftir glæsilegt splitt
Þriðji þátturinn af Besta þættinum er kominn út en í þættinum eru leikmenn og stuðningsmenn liða í Bestu deildinni paraðir saman í keppni á móti öðru pari annars liðs.

Lætin í KA-heimilinu kostuðu Arnar einn leik í viðbót
Áfrýjunardómstóll KSÍ staðfesti í gær úrskurð aga- og úrskurðarnefndar um fimm leikja bann Arnars Grétarssonar, þjálfara KA, og sekt knattspyrnudeildar KA að upphæð 100.000 krónur.

Arnar Gunnlaugs var í KR-búningnum þegar KR sló Víking síðast út úr bikarnum
Bikarmeistarar Víkinga halda titilvörn sinni áfram í kvöld þegar þeir fá KR-inga í heimsókn í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Arnar um Akkilesarhælinn og Óskar Hrafn um léttari leið Víkinga
Víkingur og Breiðablik duttu bæði út úr þriðju umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar og það vantaði aðeins upp á að fara enn lengra. Þjálfarar liðanna tveggja nefna einbeitingarleysi annars vegar og léttari leið Íslandsmeistaranna hins vegar.

FH boðar til endurreisnarkvölds með Eiði Smára
FH-ingar ætla annað kvöld að halda stuðningsmannakvöld til að þjappa saman raðirnar fyrir komandi átök í Bestu-deild karla þar sem liðið er á ókunnum slóðum, í fallbaráttu.

„Svolítið leiðinlegt lífið þessa dagana þegar þú ert ekki í Evrópukeppninni“
Gunnlaugur Jónsson hitti þjálfara liða Breiðabliks og Víkings í Bestu deild karla fyrir innbyrðis leik liðanna í vikunni og ræddi meðal annars við þá um árangur liðanna í Evrópukeppninni í ár.

„Hafa hækkað rána ekki ósvipað og City og Liverpool hafa gert í Englandi“
Óskar Hrafn Þorvaldsson talaði aðeins varlegar en Arnar Gunnlaugsson þegar þeir voru spurðir að því hvort að lið þeirra væri að stinga önnur lið af hér á landi hvað varðar hugsjón, þjálfun og leikfræði.

Blikar missa þrjá leikmenn í leikbann
Breiðablik, topplið Bestu-deildar karla í knattspyrnu, verður án þriggja leikmanna sinna er liðið heimsækir Fram í 18. umferð deildarinnar næstkomandi mánudag.

Davíð Örn frá næstu vikurnar: „Nárinn fór“
Davíð Örn Atlason, leikmaður Víkings, þurfti að fara af velli í stórleik Bestu deildar karla í gærkvöld eftir að meiðast á nára í fyrri hálfleik. Hann bíður nú eftir að komast í ómskoðun til að fá nánari greiningu á meiðslunum.

Atli Viðar kallar eftir símtali í einn mann: Það lélegasta hjá FH í tuttugu ár
Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur Stúkunnar á Stöð 2 Sport, spilaði með FH-liðinu í næstum því tuttugu ár og er markahæsti og næstleikjahæsti leikmaður félagsins í efstu deild frá upphafi.

Formaður knattspyrnudeildar Víkings ósáttur: „Eins óíþróttamannslegt og það verður“
Það var töluverður hiti í leik Breiðabliks og Víkings í Bestu deild karla í gærkvöld enda um að ræða liðin sem börðust um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð. Alls fóru tíu gul spjöld á loft, sem og eitt rautt, en þá var frammistaða boltasækjara leiksins einnig til umræðu.

Sjáðu mörkin og rauða spjaldið úr stórleik Breiðabliks og Víkings
Breiðablik og Víkingur gerðu 1-1 jafntefli í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld, mánudag. Um er að ræða topplið deildarinnar og svo ríkjandi Íslands- og bikarmeistara. Þá fór rautt spjald á loft í síðari hálfleik. Mörkin og rauða spjaldið má sjá hér að neðan.

Pedersen kominn á ról: „Fyrsti leikurinn í sumar þar sem ég fann ekkert til“
Eftir þrennu Patricks Pedersen í 6-1 sigri Vals á Stjörnunni í fyrrakvöld er hann kominn með 86 mörk í efstu deild á Íslandi og er kominn á lista þeirra tíu markahæstu í sögu deildarinnar. Hann segir leikinn hafa verið sinn fyrsta í sumar þar sem vann var verkjalaus.

Sigurður Heiðar: „Skorti hugrekki og trú þegar á hólminn var komið"
Sigurður Heiðar Höskuldsson var missáttur við frammistöðu lærisveina sinna hjá Leikni Reykjavík þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Fram í Bestu deild karla í fótbolta í Úlfarsárdal í kvöld.

„Í hálfleik vorum við að missa titilinn úr höndunum á okkur“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var afar ósáttur við sína menn í fyrri hálfleiknum í jafnteflinu gegn Breiðabliki. Hann segir að þrátt fyrir Víkingar hafi ekki unnið séu þeir enn á fullu í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.

Jón Þórir: „Sáttur við jákvæð áhrif þeirra sem komu inná"
Jón Þórir Sveinsson var vitanlega ánægður með leik sinna manna þegar Fram vann sannfærandi sigur gegn Leikni í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Víkingur 1-1 | Jafnt í stórleiknum
Breiðablik og Víkingur skildu jöfn, 1-1, í stórleik 17. umferðar Bestu deildar karla í kvöld. Sölvi Snær Guðbjargarson kom Blikum yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks en Danijel Dean Djuric jafnaði fyrir Víkinga eftir rúman klukkutíma.

„Jafntefli er betra fyrir okkur en þá“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, sagði að jafnteflið gegn Víkingi, 1-1, kæmi sínum mönnum betur en Íslands- og bikarmeisturunum.

Umfjöllun og viðtöl: Fram-Leiknir R. 4-1 | Fram forðast fallsvæðið enn frekar
Fram hafði betur með fjórum mörkum gegn einu þegar liðið fékk Leikni Reykjavík í heimsókn í Úlfarsárdal í 17. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Fram er nú að gæla sterklega við að komast á efra skiltið á töflunni en Leiknir er enn í kjallaranum.

Umfjöllun: Keflavík-KR 0-0 | Bæði lið ósátt með jafntefli
Það var virkilega fallegt veður í Keflavík í kvöld þegar að heimamenn fengu KR í heimsókn á Nettóvöllinn. Sól og heiðsýrt en kólnaði talsvert þergar að líða tók á leikinn. Bæði liðin í hatramri baráttu um efstu sex sætin í Bestu deildinni. Fyrir leikinn var KR í sjötta sæti með 24 stig en Keflavík í því sjöunda með 21 og ljóst að bæði liðin myndu selja sig dýrt. Það er skemmst frá því að segja að þrátt fyrir skemmtilega takta og mörg færi lauk leiknum með markalausu jafntefli, 0-0.

„Mjög gott að fá stórleik eftir svona vonbrigði“
Risaleikur Breiðabliks og Víkings í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld kemur strax í kjölfarið á Evrópuævintýrum liðanna. Þjálfarar liðanna fagna því.

Búinn að eiga beinan þátt í tólf mörkum KA-liðsins í röð
Nökkvi Þeyr Þórisson var maðurinn á bak við öll þrjú mörk KA-manna í sigrinum á Skagamönnum í Bestu deildinni í gær og nú eru liðnir fimm heilir leikir og fjórar vikur síðan að KA-menn skoruðu án þátttöku hans.

Stórleikur sem bæði lið verða að vinna
Í kvöld mæta Íslands og bikarmeistarar Víkings á Kópavogsvöll og mæta þar toppliði Bestu deildar karla. Um er að ræða þau tvö lið sem börðust um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra og voru framan af tímabili talin líklegust til afreka í sumar. Nú er komið annað hljóð í landann og þurfa bæði lið á sigri að halda þar sem bæði KA og Valur virðast allt í einu ætla að blanda sér í toppbaráttuna.

Unglingar gerðu aðsúg að Gísla eftir upptökuleikinn en Óli Jó grínaðist í honum
Fjöldi þjóðþekktra knattspyrnumanna kemur við sögu í upptöku frá leik KR og FH frá árinu 1991, þar sem dómari leiksins var með hljóðnema. Börn og ungmenni gerðu aðsúg að dómara eftir leik og létu ljót orð falla.

Utan vallar: Hugur manns er hjá þeim sem halda bæði með FH og Man. United
Að vera bæði FH og Manchester United stuðningsmaður í dag er algjört kvalræði og þau hin sömu hljóta að þurfa á miklum og jákvæðum stuðningi að halda eftir enn eina martraðarhelgina.

Valsmenn í sjötta himni, Nökkvi Þeyr allt í öllu hjá KA og ÍBV sökkti FH
Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í gær, sunnudag. Alls litu 15 mörk dagsins ljós í þremur stórsigrum en mörkin má öll sjá hér að neðan.