Spænski boltinn
253 254 255 256 257 258 259 260 261 … 268 ›
Fleiri spænsk lið inni í myndinni Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag að babb sé komið í bátinn í samningaviðræðum Chelsea og Barcelona varðandi hugsanleg kaup á fyrirliða íslenska landsliðsins og fullyrðir að Valencia og annað ónefnt lið sé komið inn í myndina. Sport 10.6.2006 13:59
Ætlar ekki að bjóða í Lampard Forráðamenn Evrópumeistara Barcelona hafa vísað fregnum dagsins í dag á bug og segja félagið ekki vera að undirbúa tilboð í miðjumanninn Frank Lampard. Sport 8.6.2006 18:25
Carlos í salti fram yfir kosningar Forráðamenn Real Madrid gáfu það upp í samtali við breska fjölmiðla í dag að brasilíski bakvörðurinn Roberto Carlos færi ekki frá félaginu fyrr en eftir forsetakosningarnar sem fyrirhugaðar eru þann 2. júlí næstkomandi. Carlos hefur verið orðaður sterklega við ensku meistarana í Chelsea, en nú verður einhver bið á því að lausn fáist í máli hans. Sport 6.6.2006 18:04
Baldasano ætlar að ráða Eriksson Arturo Baldasano, sem býður sig fram í embætti forseta Real Madrid í annað sinn, segist hafa gert munnlegt samkomulag við Sven-Göran Eriksson um að taka við knattspyrnustjórastöðunni hjá félaginu, nái kann kosningu. Sport 6.6.2006 14:50
Eiður Smári í Kuwait Flestir Íslendingar bíða nú spenntir eftir því að vita hver næsti áfangastaður knattspyrnuhetjunnar Eiðs Smára Guðjohnsen verður en búist er við að tilkynnt verði um vistaskipti hans frá Chelsea á allra næstu dögum. Athygli vekja tvær fréttagreinar um Eið Smára á fréttavefnum Vitalfootball en þar segir m.a. að Eiður Smári hafi hafnað boði sjónvarpsstöðvar á Íslandi um að lýsa leikjum á HM. Sport 2.6.2006 00:43
Barcelona talið líklegt til að hreppa Eið Smára Nú gerist sá orðrómur æ háværari á Englandi og á Spáni að landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen gangi í raðir Spánarmeistara Barcelona í sumar. Ekkert hefur fengist staðfest í þessum efnum enn sem komið er, en talið er að kaupverð og launakjör gætu orðið spænska liðinu fjötur um fót. Sport 31.5.2006 15:06
Morientes semur við Valencia Spænski framherjinn Fernando Morientes hefur náð samkomulagi um kaup og kjör við forráðamenn Valencia og er því formlega orðinn leikmaður liðsins. Morientes var keyptur frá Liverpool á dögunum og var kaupverðið sagt vera um 3 milljónir punda. Sport 27.5.2006 15:58
Morientes ekki orðinn leikmaður Valencia Yfirmaður knattspyrnumála hjá Valencia tók það fram í dag að þó félagið hefði náð samkomulagi við Liverpool um kaup á spænska framherjanum Fernando Morientes, sé hann ekki orðinn leikmaður Valencia ennþá, því enn sé nokkuð í land með að semja um kaup og kjör við leikmanninn sjálfan. Sport 26.5.2006 15:09
Pires semur við Villarreal Franski miðjumaðurinn Robert Pires hjá Arsenal hefur gert tveggja ára samning við spænska liðið Villarreal. Pires hefur verið hjá Arsenal í sex ár, en hann var með lausa samninga í sumar og komst ekki að samkomulagi við forráðamenn Arsenal um nýjan samning. Sport 25.5.2006 15:21
Ákveður sig eftir HM Bakvörðurinn magnaði Roberto Carlos hjá Real Madrid segist ekki ætla að taka ákvörðun um framtíð sína fyrr en að loknu heimsmeistaramóti í sumar, en hinn 33 ára gamli Carlos á í samningaviðræðum við Real Madrid um að framlengja samning sinn við félagið. Chelsea hefur þegar gert tilboð í kappann og segir hann fjárhagslegan ávinning ekki spila inn í ákvörðun sína, heldur ætli hann að skoða hve lengi hann vill spila í viðbót. Sport 24.5.2006 16:35
Laudrup hættir hjá Bröndby Danska knattspyrnugoðsögnin Michael Laudrup tilkynnti í dag að hann muni ekki framlengja samning sinn sem knattspyrnustjóri danska liðsins Bröndby. Þessi tíðindi hafa nú kynt undir þrálátan orðróm sem uppi hefur verið í Danmörku undanfarna mánuði þess efnis að Laudrup sé að fara að taka við spænska stórliðinu Real Madrid. Fótbolti 21.5.2006 21:31
Ég á meiri virðingu skilið en að komið sé fram við mig eins og skít Frönsku knattspyrnumennirnir Ludovic Giuly og Nicolas Anelka eru afar óhressir með framkomu franska landsliðsþjálfarans Raymond Domenech í sinn garð en hann valdi hvorugan þeirra í landsliðshópinn fyrir HM sem fer fram í Þýskalandi í næsta mánuði. Sport 21.5.2006 16:34
Etoo markakóngur á Spáni Kamerúninn Samúel Etoo varð markakóngurinn í spænska fótboltanum. Evrópu og Spánarmeistarar Barcelona máttu þola ósigur, 3-1 fyrir Athletic Bilbao í síðasta leiknum í spænsku úrvalsdeildinni. Sport 21.5.2006 14:31
Fer til Villarreal í næstu viku Fernando Roig, forseti spænska knattspyrnufélagsins Villarreal, hélt því fram í sjónvarpsviðtali að franski leikmaðurinn Robert Pires hjá Arsenal myndi ganga í raðir Villarreal í næstu viku. Sport 17.5.2006 14:23
Real hélt öðru sætinu þrátt fyrir tap Real Madrid tryggði sér í kvöld annað sætið í spænsku deildinni í knattspyrnu þrátt fyrir 4-3 tap fyrir Sevilla á útivelli í frábærum leik sem sýndur var beint á Sýn. Franski miðjumaðurinn Zinedine Zidane spilaði sinn síðasta leik fyrir Real í kvöld og skoraði mark, en það nægði liðinu ekki til sigurs. Sport 16.5.2006 21:16
Flugeldasýning í Sevilla Leikur Sevilla og Real Madrid í lokaumferð spænsku deildarinnar í kvöld hefur svo sannarlega staðið undir væntingum, en sex mörk eru þegar komin í fyrri hálfleik. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Sport 16.5.2006 19:38
Sevilla - Real Madrid í beinni Nú er ný hafinn leikur Sevilla og Real Madrid í lokaumferð spænsku deildarinnar og er hann í beinni útsendingu á Sýn. Real Madrid verður að vinna í kvöld til að tryggja sér annað sætið í deildinni og þar með öruggt sæti í meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Sport 16.5.2006 19:00
Nýr forseti kosinn 2. júlí Spænska knattspyrnufélagið Real Madrid tilkynnti í dag að nýr forseti yrði kjörinn þann 2. júlí næstkomandi, en mikil upplausn hefur verið í herbúðum liðsins á leiktíðinni. Real getur tryggt sér öruggt sæti í meistaradeildinni með sigri í lokaleik sínum í deildinni gegn Evrópumeisturum félagsliða í Sevilla. Real hefur nú ekki unnið titil í þrjú ár, sem er lengsta gúrkutíð í sögu félagsins. Sport 11.5.2006 20:44
Ronaldo sáttur við að vera áfram Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid segist vel geta hugsað sér að vera áfram í herbúðum félagsins á næsta tímabili, en talið var víst að hann yrði jafnvel seldur í sumar. Ronaldo segir hlutina væntanlega koma betur í ljóst eftir HM í sumar og þá þegar nýr forseti hefur verið kosinn hjá spænska liðinu. Sport 10.5.2006 22:32
Engar auglýsingar á búningum Barcelona Spænska knattspyrnustórveldið Barcelona ætlar að halda í gamlar hefðir sínar og bera ekki auglýsingu styrktaraðila framan á treyju sinni á næstu leiktíð. Barcelona er eina stórliðið í Evrópu sem ekki ber auglýsingar á treyjunum, en þó samningaviðræður við hugsanlega stuðningsaðila hafi staðið yfir undanfarið, var ákveðið að bakka út úr þeim. Sport 9.5.2006 15:01
Barcelona spænskur meistari Barcelona varð í kvöld spænskur meistari í knattspyrnu annað árið í röð eftir að helstu keppinautar liðsins, Valencia, tapaði óvænt 2-1 fyrir Real Mallorca á útivelli. Nú stendur yfir leikur Celta de Vigo og Barcelona og staðan í hálfleik er 0-0. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Sport 3.5.2006 19:58
Real Madrid lagði Osasuna Real Madrid styrkti stöðu sína í efri hluta spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið vann mikilvægan útisigur á Osasuna 1-0. Það var Brasilíumaðurinn Julio Baptista sem skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiksins, en Iker Casillas var vikið af leikvelli með sitt annað gula spjald 10 mínútum fyrir leikslok. Sport 30.4.2006 21:09
Reiknar með að Henry til Barcelona Ludovic Giuly, leikmaður Barcelona og fyrrum félagi Thierry Henry hjá Monaco í Frakklandi, segist viss um að Henry gangi til liðs við spænsku meistarana í sumar. Henry ætlar að tilkynna um ákvörðun sína áður en HM hefst í sumar, en Giuly segist oft tala við hann í síma og sagði í samtali við bresku pressuna að sér þætti afar líklegt að Henry færi til Spánar þar sem mikill áhugi væri fyrir að fá hann. Sport 30.4.2006 20:10
Barca verður að bíða lengur Liðsmenn Valencia voru ekki á þeim buxunum að gefa Barcelona færi á því að landa deildarmeistaratitlinum í dag og tryggðu það að sigurhátíð Katalóníumannanna verður ekki strax með öruggum 3-0 sigri á botnliði Alaves á heimavelli sínum Mestalla. Barcelona hefur nú 8 stiga forskot á toppnum þegar þrjár umferðir eru eftir og getur tryggt sér titilinn með sigri á Celta á miðvikudaginn. Sport 30.4.2006 20:03
Osasuna - Real Madrid í beinni Leikur Osasuna og Real Madrid verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn nú klukkan 18:50, en þar er baráttan um annað sætið í spænsku deildinni í hámarki. Real Madrid hefur valdið nokkrum vonbrigðum í vetur, á meðan Osasuna hefur verið spútniklið ársins. Sport 30.4.2006 18:41
Barcelona lagði Cadiz Barcelona vann í kvöld tilþrifalítinn 1-0 sigur á botnliði Cadiz í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og er nú aðeins hársbreidd frá því að tryggja sér annan meistaratitilinn í röð. Það var snillingurinn Ronaldinho sem skoraði eina mark Barcelona á 9. mínútu leiksins sem sýndur var í beinni útsendingu á Sýn og ef Valencia verður á í messunni á morgun er Barcelona orðið meistari. Sport 29.4.2006 22:07
Barcelona - Cadiz í beinni Nú klukkan 19:50 hefst leikur Barcelona og Cadiz í spænska boltanum og er hann sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Börsungar geta með sigri í kvöld farið ansi langt með að verja deildarmeistaratitil sinn, en eiga erfitt verkefni fyrir höndum gegn Cadiz sem er í fallbaráttunni og hefur ekki tapað í þremur leikjum í röð. Barcelona getur tryggt sér titilinn á morgun ef Valencia verður á í messunni í sinni viðureign við fallkandidata Alaves. Sport 29.4.2006 19:48
Forsetinn sagði af sér Fernando Martin sagði af sér sem forseti Real Madrid eftir stjórnarfund í gærkvöldi eftir að í ljós kom að hann naut ekki stuðnings stjórnarinnar. Martin tók við í lok febrúar þegar Florentino Perez sagði af sér og hefur aflað sér takmarkaðra vinsælda með störf sín síðan. Það verður hinn 83 ára gamli Luis Gomez-Montejano sem tekur við stöðunni í stað Martin fram í júní þegar kosið verður aftur. Sport 27.4.2006 04:45
Leggur skóna á hilluna eftir HM Franski miðjumaðurinn Zinedine Zidane hjá Real Madrid staðfesti í samtali við Canal+ í dag að hann ætli að leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir heimsmeistaramótið í Þýskalandi í sumar. Hinn 33ja ára gamli Zidane hefur átt við þrálát meiðsli að stríða í allan vetur og ætlar að láta HM verða sitt síðasta verkefni, þar sem hann fer fyrir sterku liði Frakka. Sport 25.4.2006 18:07
Leik Sevilla og Barcelona frestað Leik Sevilla og Barcelona í spænsku deildinni sem fram átti að fara í kvöld hefur verið frestað vegna vatnselgs á vellinum. Mikil rekistefna var á vellinum í Sevilla í meira en klukkutíma á meðan verið var að ákveða hvort leikurinn ætti að fara fram. Sport 23.4.2006 20:06