
HM karla í handbolta 2023

Segir að Haukur Þrastar geti gert mikið fyrir íslenska landsliðið á HM í janúar
Selfysski handboltamaðurinn Haukur Þrastarson er byrjaður að láta til sína taka með sínu nýja liði. Hann flutti sig frá Póllandi til Rúmeníu í sumar og spilar með Dinamo Búkarest í vetur.

HM í handbolta 2031 fer fram á Íslandi
Alþjóða handknattleikssambandið hefur ákveðið að heimsmeistaramót karla í handbolta eftir sjö ár fari fram á Norðurlöndunum.

Norðmenn fá úrslitaleik HM og Dagur vinnur ekki gullið á heimavelli
Dagur Sigurðsson fær ekki tækifæri til að vinna heimsmeistaratitilinn á heimavelli með króatíska landsliðinu í janúar á næsta ári. Króatar fá bara undanúrslitaleik en ekki sjálfan úrslitaleikinn.

Frakkar örugglega í úrslit
Ólympíumeistarar Frakklands tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitum heimsmeistaramóts kvenna með öruggum níu marka sigri gegn Svíum, 37-28.

Heimsmeistararnir í úrslit eftir dramatíska framlengingu
Noregur, undir stjórn Selfyssingsins Þóris Hergeirssonar, er á leið í úrslitaleik HM kvenna í handbolta eftir dramatískan eins marks sigur gegn Dönum í framlengdum spennutrylli í kvöld, 28-29.

Heimsmeistararnir komnir í undanúrslit
Þórir Hergeirsson og norska kvennalandsliðið í handbolta tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum HM með sjö marka sigri gegn Hollendingum, 30-23.

Frakkar fyrstir í undanúrslit
Frakkland varð í dag fyrsta þjóðin til að tryggja sér sæti í undanúrslitum heimameistaramóts kvenna í handbolta með öruggum ellefu marka sigri gegn Tékkum, 33-22.

Japan vann óvæntan sigur gegn Dönum
Japan vann óvæntan eins marks sigur er liðið mætti Dönum á HM kvenna í handbolta í kvöld, 26-27.

Þórir og Noregur fóru létt með Angóla
Noregur, sem Þórir Hergeirsson þjálfar, fór létt með Angóla á HM kvenna í handbolta í kvöld.

Þórir Hergeirs í feluleik eins lengi og reglurnar leyfa
Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta, ætlar að nýta sér gildandi reglur til að gefa mótherjunum sem minnstan tíma til að undirbúa sig fyrir næsta leik á HM í handbolta.

Svíar og Danir með fullt hús inn í milliriðlana
Svíar og Danir taka með sér fjögur stig inn í milliriðlana á HM kvenna í handbolta eftir sigra kvöldsins. Svíar unnu fimm marka sigur gegn Króötum og Danir fóru illa með Rúmena og unnu 16 marka sigur, 39-26.

Kína síðasti mótherji Íslands í Forsetabikarnum
Kínverjar verða með Íslendingum í riðli í Forsetabikarnum á HM kvenna í handbolta eftir að liðið tapaði með sjö marka mun gegn Senegal í kvöld, 22-15.

Skýrsla Vals: Særindi og stolt
Líkt og leikmenn eftir leik er ég eiginlega orðlaus. Þetta er ekkert eðlilega svekkjandi. En mikið er ég stoltur af þessu liði.

Afmælisbarnið þurfti að slökkva á símanum
Óhætt er að segja að Elín Jóna Þorsteinsdóttir, markvörður Íslands, hafi átt eftirminnilegan afmælisdag í gær er hún þreytti frumraun sína á heimsmeistaramóti.

„Auðvitað hefði maður bara viljað stela þessu“
Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, var eðlilega súr eftir sex marka tap liðsins gegn Slóvenum í fyrsta leik liðsins á HM í handbolta í kvöld. Íslenska liðið gaf því slóvenska hörkuleik og lokatölurnar gefa skakka mynd af leiknum.

HM í handbolta: Þýskaland marði Japan
Fjórum af leikjum dagsins á HM kvenna í handbolta er nú lokið. Ísland tapaði fyrir Slóveníu en á sama tíma vann Þýskaland eins marks sigur á Japan, Svartfjallaland rúllaði yfir Kamerún og Holland skoraði 41 mark gegn Argentínu.

Tap hjá Íslandi í lokaleik fyrir HM
Ísland mætti Angóla í dag í lokaleik sínum á Posten Cup mótinu sem haldið er í Noregi. Liðin eru saman í D-riðli á heimsmeistaramótinu og mætast þar einnig í lokaleik riðilsins.

Noregur hafði betur gegn Íslandi
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði fyrir Noregi í Posten Cup mótinu í Noregi í dag sem eru hluti af undirbúningi liðanna fyrir HM.

Þórir og „farandsirkusinn“ halda sínu striki
Þórir Hergeirsson, landsliðsþjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta heldur ákvörðun sinni ,um að takmarka samskipti leikmanna og þjálfara við stuðningsmenn liðsins á meðan á HM í handbolta stendur, til streitu.

Þórir vonast eftir því að nýja mamman verði klár í markið á HM
Bestu markverðir Norðmanna undanfarin ár eru báðar í kapphlaupi við tímann að ná heimsmeistaramótinu í handbolta sem hefst í næstu viku.

Sjokk að fá þessar fréttir
Íslenska landsliðskonan Elín Klara Þorkelsdóttir verður ekki með landsliðinu á HM í handbolta sem hefst í lok mánaðarins. Meiðsli urðu til þess að hún varð að gefa eftir sæti sitt í hópnum daginn áður en íslensku stelpurnar flugu út.

Hjólar í Þóri og sakar hann um móðursýki
Norski blaðamaðurinn Leif Welhaven er allt annað ánægður með þá stefnu sem Þórir Hergeirsson, landsliðsþjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta, hefur sett fyrir sitt lið í aðdraganda HM í handbolta sem hefst í næsta mánuði.

Umdeildi forsetinn sagður ráða því hvort Ísland fari á HM
Þrátt fyrir að aðeins rétt rúm vika sé í að dregið verði í riðla fyrir heimsmeistaramót kvenna í handbolta þá hefur IHF, alþjóða handknattleikssambandið, ekki enn gefið út hvort að Ísland fái sæti á mótinu.

Gaupi fékk morðhótanir á miðju heimsmeistaramóti
Guðjón Guðmundsson kláraði sína síðustu sjónvarpsvakt á Stöð 2 í gærkvöldi og eftir íþróttafréttirnar var Ísland í dag helgað honum og meira en þremur áratugum hans sem íþróttafréttamaður.

Skamma Olís vegna HM-afláttar sem gilti bara á sumum ÓB-stöðvum
Neytendastofa hefur slegið á fingur Olís vegna auglýsinga um afslátt á eldsneyti á völdum sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB. Félagið auglýsti þar afslátt af eldsneyti, sem tengdist úrslitum íslenska landsliðsins í handbolta á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Svíþjóð í janúar síðastliðinn, án þess að tekið var fram að afslátturinn gilti ekki á öllum sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB. Hefur félaginu verið bannað að viðhafa slíka viðskiptahætti.

Umfjöllun: Ungverjaland - Ísland 34-28 | Flott frammistaða dugði ekki til og Ísland fer ekki á HM
Ísland laut í lægra haldi, 34-28, þegar liðið sótti Ungverjaland heim í seinni leik liðanna í umspili um sæti á HM 2023 í dag. Þar með er ljóst að draumur íslenska liðsins um sæti í lokakeppni HM verður ekki að veruleika að þessu sinni.

Ísland þarf fjögurra marka sigur í dag og gæti endað í vító
Til þess að Ísland verði með á HM kvenna í handbolta í jólamánuðinum þurfa stelpurnar okkar að vinna að minnsta kosti fjögurra marka sigur gegn Ungverjalandi á útivelli í dag. Leikurinn gæti endað í vítakeppni.

Hópurinn sem Arnar treystir til að koma Íslandi á HM
Arnar Pétursson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í handbolta, hefur valið tuttugu leikmanna hóp fyrir umspilsleikina við Ungverjaland um sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer í desember.

Þórir kallar aftur á nýju mömmuna
Þórir Hergeirsson, þjálfari norsku heims- og Evrópumeistarana í handbolta kvenna, hefur kallað aftur á Kari Brattset Dale inn í norska landsliðið.

Segja að búningsklefi landsliðsins leki: „Ferð ekki í þennan skítadreifara sem menn fóru í“
Búningsklefi íslenska karlalandsliðsins í handbolta er lekur og upplýsingar virðast flæða þaðan óhindrað. Þetta var meðal þess sem var til umræðu í Handkastinu í gær.