Fjármálamarkaðir
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 11 ›
Á von á meiri erlendri fjárfestingu í ríkisbréf ef vaxtamunurinn „þrengist ekki“ Þrátt fyrir tugmilljarða innflæði fjármagns í íslensk ríkisskuldabréf síðustu mánuði þá hefði mátt reikna með að það yrði enn meira frá því að vaxtahækkunarferli Seðlabankans hófst, að sögn aðalhagfræðings Kviku banka, en fá dæmi eru um vestræn ríki þar sem skuldabréfafjárfestar geta komist í jafn háa vexti. Ef vaxtamunur Íslands við útlönd minnkar ekki að ráði er líklegt að fjárfesting erlendra sjóða í ríkisbréfum hér á landi, sem er umtalsvert minni borið saman við önnur þróuð hagkerfi, muni halda áfram að aukast. Innherji 20.2.2024 16:13
Fer úr fjármálaeftirlitsnefnd eftir að AGS varaði við hættu á pólitískum þrýstingi Skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, sem hefur setið í fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabankans allt frá því að hún tók fyrst til starfa fyrir meira en fjórum árum, hefur beðist lausnar en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerði á liðnu ári alvarlegar athugasemdir við að fulltrúi frá ráðuneytinu væri í hópi nefndarmanna. Ráðherra hefur núna skipað Ernu Hjaltested, yfirlögfræðing Isavia, í hennar stað í fjármálaeftirlitsnefndina. Innherji 19.2.2024 11:32
Vilja ekki að Kría fjárfesti í erlendum vísisjóðum Framvís, samtök engla og vísifjárfesta, gera alvarlegar athugasemdir við að samhliða sameiningu Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins og sjóðasjóðsins Kríu, fái hinn nýji opinberi sjóður heimild til að fjárfesta í erlendum vísisjóðum. Framvís leggur til að hinn nýji sjóður, Nýsköpunarsjóðurinn Kría, fái ekki heimild til að fjárfesta í einstaka sprotafyrirtækjum í samkeppni við vísisjóði. Innherji 16.2.2024 14:28
Hlutverk sameinaðs nýsköpunarsjóðs of víðtækt og vilja ekki ríkisforstjóra Á meðal gagnrýni á frumvarp um sameiningu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og sjóðasjóðsins Kríu er að ráðherra skipar forstjóra til fimm ára. Betur færi ef stjórn ráði forstjóra því hún hefur eftirlit með störfum hans. Eins er sagt að hlutverk hins nýja sjóðs sé of víðtækt. „Sögulega séð hafa sjóðir sem eiga að gera allt fyrir alla ekki verið langlífir.“ Innherji 15.2.2024 13:34
Rannsóknin snúi að upplýsingagjöf en ekki viðskiptum Forstjóri Play segir að rannsókn Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á mögulegum brotum félagsins á lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum snúi ekki neinum viðskiptum sem hafi verið gerð, heldur aðeins hvort félagið hefði átt að senda upplýsingar fyrr á markaðinn. Viðskipti innlent 13.2.2024 20:58
Innflæði í ríkisbréf knúði Seðlabankann í nærri tíu milljarða gjaldeyriskaup Á fyrstu vikum ársins hafa erlendir fjárfestar bætt við stöðu sína í löngum ríkisbréfum fyrir að lágmarki vel á annan tug milljarða króna. Seðlabankinn réðst í umfangsmikil gjaldeyriskaup síðastliðinn föstudag, þau fyrstu í meira en tuttugu mánuði, til að mæta miklu fjármagnsinnflæði þegar erlendur sjóður keypti stóran hluta alls útboðs ríkisins á óverðtryggðum bréfum. Innherji 11.2.2024 15:20
Bankinn mun vilja „bíða og sjá“ og heldur vöxtum óbreyttum þriðja fundinn í röð Margt hefur fallið með peningastefnunefnd Seðlabankans frá síðustu ákvörðun, sem endurspeglast í vísbendingum um hratt kólnandi hagkerfi og lækkandi verðbólgu- og verðbólguvæntingum, en vegna óvissu um lyktir kjarasamninga og áhrifin á ríkissjóð vegna jarðhræringana á Reykjanesi mun nefndin vilja „bíða og sjá“ og heldur því vöxtum óbreyttum í vikunni, að mati mikils meirihluta markaðsaðila og hagfræðinga í vaxtakönnun Innherja. Sumir telja hins vegar enga ástæðu til að bíða með að hefja vaxtalækkunarferlið enda sé raunvaxtastigið búið að hækka „verulega umfram“ það sem Seðlabankinn hafi reiknað með. Innherji 5.2.2024 11:59
Olíusjóðurinn stækkar stöðu sína í sértryggðum bréfum á íslensku bankanna Verðbréfaeign olíusjóðs Noregs, stærsti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu á heimsvísu, í íslenskum fyrirtækjum og ríkisskuldabréfum jókst nokkuð á liðnu ári þegar hann bætti enn frekar við sig með kaupum á sértryggðum skuldabréfum á bankanna. Á sama tíma hélt eign sjóðsins áfram að minnka í íslenskum ríkisbréfum. Innherji 1.2.2024 11:21
Gætum þurft að bíða „töluvert lengur“ eftir fyrstu vaxtalækkun Seðlabankans Aukin óvissa um niðurstöðu kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og hætta á þensluhvetjandi áhrifum vegna aðgerða stjórnvalda til að koma til móts við Grindvíkinga veldur því að talsverð bið gæti verið í að peningastefnunefnd Seðlabankans byrjar að lækka vexti, að mati skuldabréfamiðlara. Málefni Grindavíkur munu að líkindum vera í forgangi hjá ríkisstjórninni fremur en myndarleg aðkoma þeirra að kjarasamningum eins og verkalýðshreyfingin hefur gert kröfu um. Innherji 22.1.2024 09:54
LIVE fórnar ekki ávöxtun í sjóði sem starfar eftir heimsmarkmiðum SÞ Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LIVE) fjárfesti í fyrsta skipti í áhrifafjárfestingasjóði (e. impact fund) sem vinnur að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Sérfræðingur hjá lífeyrissjóðnum segir að sjóðurinn starfi eftir sömu markmiðum um ávöxtun og hefðbundnir framtakssjóðir. Það sé því ekki verið að gera minni kröfu um ávöxtun heldur hafi verið um áhugavert tækifæri að ræða. Sjóðurinn horfi til þess að fjárfesta vaxtarfyrirtækjum í meira mæli en hefðbundnir framtakssjóðir. Innherji 19.1.2024 13:53
Virkir sjóðstjórar lutu í lægra hald fyrir vísitölum í krefjandi aðstæðum Að baki er krefjandi ár fyrir stjórnendur hlutabréfasjóða í virkri stýringu. Slíkir sjóðir, fyrir utan einn, skiluðu lakari ávöxtun fyrir sjóðsfélaga sína í samanburði við Úrvalsvísitöluna. Kjarna má árið 2023 fyrir sjóðstjóra að landslagið hafi breyst nokkuð oft með fjölda stórra atburða og ýktum sveiflum á stöku hlutabréfum og markaðnum í heild. Innherji 17.1.2024 06:01
Spáir hækkun vaxta og segir samninga um hóflegar launahækkanir ekki nóg Það er ekki nóg að semja aðeins um hóflega launahækkanir í yfirstandandi kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði eigi að ná niður verðbólgunni heldur þarf sömuleiðis að fylgja með aðhald í opinberum fjármálum og peningastefnu Seðlabankans, að mati forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Hann er svartsýnn á að vextir gangi niður í bráð og spáir því að meginvextir Seðlabankans muni þess í stað hækka um tvær prósentur á árinu samhliða áframhaldandi aukningu í straumi ferðamanna til landsins. Innherji 15.1.2024 14:17
Viska hækkaði um 63 prósent á ári sem var rússíbanareið á rafmyntamörkuðum Rafmyntasjóðurinn Viska skilaði sjóðsfélögum sínum um 63 prósenta ávöxtun árinu 2023, sem var árið þegar rafmyntir urðu viðurkenndar sem „alvöru“ eignaflokkur, og má telja ósennilegt að nokkur annar íslenskur fjárfestingasjóður státi af viðlíka árangri, að sögn stjórnenda Visku en sjóðurinn hefur margfaldast að stærð frá stofnun sumarið 2022. Eftir samþykki bandaríska verðbréfaeftirlitsins í gær á Bitcoin kauphallarsjóðum er búist að lágmarki við tugmilljarða dala innflæði í slíka sjóði á allra næstu árum Innherji 11.1.2024 14:29
Kaup erlendra sjóða á ríkisbréfum jukust hröðum skrefum undir lok ársins Erlendir fjárfestar héldu áfram að bæta við stöðu sína í íslenskum ríkisskuldabréfum á síðasta mánuði ársins 2023 eftir að hafa sýnt þeim lítinn áhuga um nokkurt skeið þar á undan. Hlutfallsleg eign þeirra á útistandandi ríkisbréfum jókst þannig um meira en helming á fjórða ársfjórðungi samhliða því að gengi krónunnar hafði gefið nokkuð eftir. Innherji 10.1.2024 11:56
Ætlar að stórauka vægi erlendra skuldabréfa sem eru „álitlegri kostur“ en áður Einn stærsti lífeyrissjóður landsins hyggst bæta verulega við sig í erlendum skuldabréfum á árinu 2024 og telur að sá eignaflokkur sé orðin „mun meira aðlaðandi“ eftir langt tímabil af lágu vaxtastigi. Á móti áformar Lífeyrissjóður verslunarmanna að minnka vægi sitt í erlendum og innlendum hlutabréfum, samkvæmt nýrri fjárfestingastefnu sjóðsins, en hins vegar er útlit fyrir að Birta lífeyrissjóður muni auka lítillega við hlutfall sitt í hlutabréfum hérlendis frá núverandi stöðu. Innherji 9.1.2024 11:53
EpiEndo ætlar að sækja yfir 15 milljarða til að fjármagna frekari rannsóknir Íslenska lyfjafyrirtækið EpiEndo Pharmaceuticals, sem vinnur að þróun á lyfi í töfluformi gegn lungnaþembu, hefur samið við alþjóðlegan fjárfestingabanka til að sjá um stóra hlutafjáraukningu síðar á árinu þar sem félagið áformar að sækja sér fjármagn upp á vel á annan tug milljarða króna. Sú fjármögnun á að standa undir kostnaði við næsta fasa af klínískum rannsóknum fram til ársins 2028 en stjórnendur EpiEndo eru bjartsýnir á að félagið geti náð verulegri hlutdeild á markaði sem gæti verið verið árlega um 30 milljarðar Bandaríkjadala að stærð. Innherji 4.1.2024 15:07
Áforma að auka gjaldeyriseignir sínar um liðlega 150 milljarða á nýju ári Lífeyrissjóðir landsins setja stefnuna á að auka hlutfallslegt vægi erlendra fjárfestinga í eignasöfnum sínum um meira en tvær prósentur á þessu ári, samkvæmt þeim fjárfestingastefnum sem stjórnir sjóðanna hafa samþykkt, en á sama tíma búast þeir við að minnka hlutfall ríkisbréfa og innlendra hlutabréfa. Neikvæð raunávöxtun annað árið í röð þýðir að sumir sjóðir þurfa að óbreyttu að bregðast við halla á tryggingafræðilegri stöðu. Innherji 4.1.2024 08:00
Hlutabréf enn hátt verðlögð miðað við hagnað og áhættulausa kröfu Þetta er í síðasta skipti sem CAPE-hlutfallið er birt byggt á Úrvalsvísitölunni OMXI10 en frá og með 1. janúar 2024 mun hún bera heitið OMXI15 og innihalda fimmtán félög í stað tíu. Hagsveifluleiðrétt hlutfall verðs á móti raunhagnaði (CAPE) fyrir Úrvalsvísitöluna OMXI10 endaði síðasta ár í 28,1 samanborið við 29,1 árið áður. Innherji 3.1.2024 09:35
Fjárfestar selt í hlutabréfasjóðum fyrir meira en tíu milljarða á árinu Þrátt fyrir viðsnúning á mörkuðum undir lok síðasta mánaðar þegar fréttir af mögulegu yfirtökutilboði í Marel bárust þá var ekkert lát á áframhaldandi útflæði fjármagns úr hlutabréfasjóðum. Á fyrstu ellefu mánuðum ársins hafa fjárfestar minnkað stöðu sína í slíkum sjóðum umtalsvert meira en allt árið 2022 en í tilfelli skuldabréfasjóða hefur útflæðið nærri þrefaldast. Innherji 29.12.2023 11:19
Heilbrigðisvottorð á fjármálakerfið Öllum er okkur hollt að fá reglulega utanaðkomandi aðila til að kanna hvort hlutirnir gangi fyrir sig eins og þeir eiga að gera, enda gests augað glöggt. Nokkrar slíkar úttektir sem snúa að íslensku fjármálakerfi voru framkvæmdar á árinu. Rauði þráðurinn í niðurstöðum þeirra er að þær breytingar sem gerðar hafi verið á umgjörð fjármálastarfsemi hér á landi undanfarin ár hafi reynst heillavænlegar. Umræðan 23.12.2023 10:01
Fossaforstjórarnir veðsetja allt sitt í VÍS Haraldur I. Þórðarson, forstjóri samstæðu VÍS og fyrrverandi forstjóri Fossa, og Steingrímur Arnar Finnsson, forstjóri Fossa, hafa sett alla hluti sína í VÍS, sem þeir eignuðust í kjölfar sameiningar félaganna tveggja, að veði til tryggingar lánasamningum. Samanlagt virði hlutanna er tæplega 1,5 milljarðar króna. Viðskipti innlent 21.12.2023 11:23
Meiri áhættusækni kallar á stífari kröfur um starfsemi lífeyrissjóða Breyttar og áhættusamari áherslur í fjárfestingum lífeyrissjóðakerfisins, sem er að stækka ört, eru ekki „óeðlilegar“ en þær þýða að sama skapi að sjóðirnir þurfa að lúta stífari kröfum um meðal annars áhættustýringu, að sögn seðlabankastjóra. Hann telur gagnrýni á að rekstrarkostnaður sjóðanna sé of mikill um margt vera ósanngjörn. Innherji 19.12.2023 12:16
Setur áherslu á auknar fjárfestingar erlendis en minnkar vægi ríkisbréfa Einn stærsti lífeyrissjóður landsins boðar litlar breytingar á hlutfalli sínu í fjárfestingum í innlendum hlutabréfum á komandi ári á meðan stefnan er sett á að auka áfram nokkuð vægi erlendra eigna í eignasafninu. Útlit er fyrir töluverða endurfjárfestingarþörf hjá Gildi í náinni framtíð og á árinu 2024 er áætlað að hún verði vel yfir fimmtíu milljarðar króna. Innherji 18.12.2023 11:19
Bala safnar um 700 milljónum í vísisjóð Founders Ventures Management, sem stýrt er af Bala Kamallakharan, vinnur að því að stækka vísisjóð um um það bil fimm milljónir bandaríkjadala, jafnvirði um 700 milljónir króna. Sjóðurinn fjárfestir í fyrirtækjum á hugmyndastigi og við það yrði hann um 9,5 milljónir dala, jafnvirði um 1,3 milljarðar króna. Innherji 15.12.2023 07:19
Ísland eigi enn inni „töluvert mikið“ af hækkunum á lánshæfismati Nýleg hækkun á lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins hjá S&P ætti að hafa mikil jákvæð áhrif í för með sér fyrir þjóðarbúið, einkum fjármálakerfið, að sögn seðlabankastjóra sem telur Ísland eiga skilið enn meiri hækkun á lánshæfismatinu. Matsfyrirtækið hefur fram til þessa greint aukna hagræna áhættu hjá bönkunum sem hefur haft áhrif á áætlanir um mögulegt umfram eigið fé þeirra. Innherji 14.12.2023 07:01
Segir bók Þorvaldar rugl frá upphafi til enda Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, mætti í Bítið í morgun til að ræða bók Þorvaldar Logasonar Eimreiðarelítuna – spillingarsögu. Jón Steinar sagði ekki eitt einasta atriði sem þar er um sig skrifað, í bók ef bók skyldi kalla, halda vatni. Innlent 13.12.2023 13:35
Kaup á ríkisbréfum sýnir að háir vextir „eru á radarnum“ hjá erlendum sjóðum Eftir nánast ekkert innflæði í íslensk ríkisskuldabréf um nokkurt skeið hafa erlendir fjárfestar aukið talsvert við eign sína í slíkum bréfum á síðustu tveimur mánuðum. Kaupin koma á sama tíma og gengi krónunnar hafði veikst skarpt sem gefur til kynna að fjárfesting erlendra sjóða í ríkisbréfum getið virkað sem sveiflujafnari fyrir krónuna, að sögn hagfræðings. Innherji 13.12.2023 11:41
Mikill árangur að uppgangur síðustu ára hafi ekki valdið ofþenslu í bankakerfinu Það er eftirtektarverður árangur, sem má meðal annars þakka ströngu regluverki og góðri áhættustýringu bankanna, að þrátt fyrir mikinn uppgang í hagkerfinu þá hefur það ekki framkallað lánabólu eða ofþenslu í fjármálakerfinu. Til lengri tíma litið er hins vegar hætta á að háir vextir grafi undan eignagæðum í lánabókum bankanna, að sögn seðlabankastjóra, en erlendar fjármálastofnanir eru nú farnar að bjóða í suma af þeirra stærstu viðskiptavinum. Innherji 11.12.2023 11:45
Erlend markaðsfjármögnun bankanna í „góðum farvegi“ og staða þeirra sterk Þrátt fyrir að fjármálaskilyrði hafi farið versnandi eftir því sem hægt hefur á efnahagsumsvifum þá er skuldahlutfall bæði fyrirtækja og heimila hóflegt sem gefur þeim svigrúm til að mæta hækkandi greiðslubyrði, að sögn fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Hún brýnir sömuleiðis fyrir mikilvægi þess að koma á samskonar umgjörð og kröfum um starfsemi lífeyrissjóða eins og á við um aðra þátttakendur á fjármálamarkaði. Innherji 6.12.2023 09:10
Mestu þyngslin á íslenska markaðnum en tæknirisar tosað upp ávöxtun erlendis Íslenski hlutabréfamarkaðurinn hefur lækkað hvað mest á heimsvísu, ásamt markaðnum í Kólumbíu, á meðan ávöxtun hlutabréfa er með ágætum í mörgum kauphöllum erlendis. Viðmælendur Innherja benda á að ekki séu sambærileg félög í íslensku kauphöllinni og hafa verið að leiða hækkanir í Evrópu og Bandaríkjunum. Þá hafi starfsumhverfi á Íslandi verið krefjandi með miklum launahækkunum síðustu misseri ásamt mikilli verðbólgu og háu vaxtastigi, umfram það sem þekkist í öðrum löndum. Innherji 25.11.2023 08:35