Jörgen Ingimar Hansson

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, seinni grein
Þessi grein er framhald greinar sem birt var eftir mig hér á Vísi í gær þar sem fjallað var um rithandarrannsóknir í ákveðnu dómsmáli þangað til því var lokið fyrir héraðsdómi. Niðurstaða héraðsdóms var að ég hefði sjálfur undirritað greiðsluviðurkenningar sem ég hafði alls ekki gert.

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, fyrri grein
Í dómsmáli var dæmt meðal annars á grundvelli svokallaðra undirritaðra greiðsluviðurkenninga sem samt var sýnt fram á að væru á ýmsan hátt vafasamar en neitað að líta til raunverulegra bankagreiðsla.

Stjórnarskráin
Reynt hefur verið breyta stjórnarskránni allan þann tíma sem ég man eftir að hafa fylgst með landsmálum og reyndar miklu lengur. Eftir því sem ég best get séð hefur sú vinna alltaf strandað á neitunarvaldi þröngra hagsmunahópa innan Alþingis.

Dómskerfið reynir að þegja alla gagnrýni á sig í hel
Dómskerfið eða einstök mál í því eru sjaldan gagnrýnd. Sagt er að lögmenn forðist eins og heitan eldinn að gagnrýna dómara sem þeir eiga eftir að hitta í dómsal, jafnvel daginn eftir, þar sem þeir bera ábyrgð á hagsmunum skjólstæðings í óskyldu máli. Ég held að það sé út af fyrir sig rétt en að málið sé ekki svo einfalt.

Nauðgunarmál, 2. grein. Upplýsingar fást ekki
Í fyrri grein um þetta efni sem birt var hér í Vísi 13.11.2024, kom fram að mér hefði verið neitað um tölfræðilegar upplýsingar um niðurstöður kæra í nauðgunarmálum hjá Ríkissaksóknara.

Feður eiga undir högg að sækja í forsjármálum
Mörg hjónabönd enda með skilnaði sem leiðir til margra úrlausnarefna. Oft er sátt um hvernig leysa eigi úr þeim. Sum málanna, ekki síst forsjá barna, fara hins vegar fyrir dómstóla. Þar telja feður sem í þessu lenda að þeir eigi mjög undir högg að sækja.

Stúlkur eiga undir högg að sækja í nauðgunarmálum
Gjarnan er sagt að ekki megi dæma saklausan sekan en á hinn bóginn virðist litlu máli skipta hvort sá sem brotið er á nái rétti sínum, ekki einu sinni hvort hanngeti staðið almennilega uppréttur eftir. Í lögunum virðist stefnan að skárra sé að hundruðir kærenda fái ekki sanngjarna dómsniðurstöðu en að einn ákærðra fái rangan dóm.

Einstaklingur á undir högg að sækja í dómsmáli við svindlara
Svik í viðskiptum við einstaklinga og lítil fyrirtæki eru algeng hér á landi. Líklegt er að niðurstöðum þeirra svipi til nauðgunarmála hvað það varðar að fæst þeirra komi fyrir dómstóla og hinn svikni, það er kærandinn, tapi málinu fari það fyrir dómstóla.

Einstaklingur á undir högg að sækja í dómsmáli við hinn sterka
Það orð fer af þeim dómsmálum, þar sem einstaklingur úr röðum almennings á í deilum við sterkan aðila, að þar eigi einstaklingurinn á brattann að sækja. Margir segja að hann eigi í raun ekki möguleika. Sama gildir lítil fyrirtæki.

Er skárra að kasta upp um dómsniðurstöðuna en að dómarinn dæmi?
Það orð fer af nokkrum tegundum dómsmála að þau fari mjög á einn veg óháð réttlæti, sanngirni og heilbrigðri skynsemi. Þetta virðist ganga svo langt að jafnvel væri nær lagi að kasta upp um dómsniðurstöðuna en kveða upp dóm.

Dómskerfið, tillögugerð, Réttlæti hins sterka
Eins og rakið var í grein minni Úrelt dómskerfi, sem birt var hér á Vísi 18. ágúst síðastliðinn, erum við með dómskerfi sem miðast við þjóðfélagið eins og það var allavega fyrir árið 1970 það er að segja fyrir að minnsta kosti 50 árum síðan. Það er löngu fyrir tölvuöld eins og við þekkjum hana.

Lagasetningar gegn almenningi, Réttlæti hins sterka
Sumar lagasetningar Alþingis eru, eftir því sem ég best get séð, beinlínis til þess fallnar að gefa hinum best megandi í þjóðfélaginu tækifæri til að taka í lurginn á einstaklingum meðal almennings.

Tillögugerð um lagareglur, Réttlæti hins sterka
Tillögugerð mín í þessari grein um lagfæringar á nokkrum reglum dómsmálanna markast mikið af því að tekið verði upp betra skipulag í dómskerfinu, en þó einkum að hætt verði að halla á almenning í því og að þátttaka hans verði gerð auðveldari.

Vettvangur lyginnar, Réttlæti hins sterka
Kalla má dómsalinn vettvang lyginnar. Eins og réttarfarið er, getur verið varasamt að segja sannleikann í dómsal. Þannig er um hnúta búið í lögum og dómsvenjum að sannleikurinn kemur oft ekki að notum og er stundum til skaða vegna þess að allt sem aðili máls segir, sem er honum í óhag, er talinn sannleikur.

Málskostnaður, Réttlæti hins sterka
Sennilega voru málskostnaðargreiðslur í dómsmáli í upphafi hugsaðar sem skaðabætur fyrir sannanlega ómaklega lögsókn á hendur blásaklausu fólki. Nú eru þær notaðar, að því er virðist, sem tilviljanakenndar refsingar fyrir að tapa dómsmáli eða þætti þess. Þær eru greiddar gagnaðila í málinu.

Gjafsókn, Réttlæti hins sterka
Dómskerfið í landinu er svo dýrt og svo fjárhagslega áhættusamt og umfram allt vilhallt hinum sterka að það að reka einkamál fyrir dómstólum er almenningi yfirleitt ofviða. Það þýðir að mikill meirihluti landsmanna getur varla nýtt sér það til að rétta sinn hlut verði hann fyrir rangindum.

Skrýtin uppákoma í Hæstarétti, réttlæti hins sterka
Ég lenti í dómsmáli sem ég rak sjálfur að miklu leyti. Þegar það var komið fyrir Hæstarétt fékk ég ábendingu um að ég gæti sótt um að málflutningur yrði skriflegur sem ég gerði. Mér fannst Hæstiréttur taka á því máli á mjög sérkennilegan hátt.

Ólöglærður rekur dómsmál, réttlæti hins sterka
Leyfilegt er hér á landi að ólöglærður reki eigið dómsmál sjálfur. Nú virðist Alþingi hafa tekið þá stefnu að banna það alfarið. Eða hvað? Að minnsta kosti er búið að fara hálfa leið í þá átt. Mér hefur heyrst að það eigi sér talsmenn innan dómskerfisins.

Orðsendingar milli dómara. Réttlæti hins sterka
Í dómsmáli sem ég lenti í fannst mér ég sjá vísbendingar um og sýndist ég jafnvel hafa sannanir fyrir því að dómari sendi rithandarsérfræðingi sem átti að sjá um greiningu undirritana í dómsmálinu og dómurum á efra dómstigi orðsendingar beinlínis til þess að hafa áhrif á að niðurstöðu þeirra með illa duldum ábendingum um hvernig þeir ættu að haga sínum úrskurðum og dómum. Ég hef fengið það staðfest með viðtölum við lögmenn að þetta sé vel þekkt fyrirbæri.

Dómafordæmi: Réttlæti hins sterka
Mér var kennt það í barnaskóla að dómar Hæstaréttar ættu að vera fordæmisgefandi fyrir dómskerfið í heild. Samt sem áður leyfir Hæstiréttur sér að samþykkja og skila frá sér dómum þar sem einkum önnur hlið málsins er útskýrð, það er hlið þess sem dæmt er í vil, en því sleppt jafnvel alveg að minnast á hina hlið málsins.

Um matsmál: Réttlæti hins sterka
Í grein sem birtist eftir mig 4. ágúst síðastliðinn lýsti ég því hvernig unnt er að þenja dómsmál út og gera þau þannig margfalt dýrari, sem erfiðast væri fyrir þann aðila málsins sem hefur minna milli handanna. Ég held samt að enginn einn þáttur dómsmála geti verið eins undirlagður þenslu og þegar svokallað mat fer fram og er þó af nógu að taka.

Réttlæti hins sterka, gildrur í dómskerfinu
Margar gildrur eru til staðar í dómskerfinu sem Alþingi og lögskýrendur hafa sett upp og lögmenn geta nýtt sér á þann hátt sem kallað er að beita lagaklækjum. Sjálfsagt mætti skrifa heila bók um þær. Þegar þær leiða til dóma sem eru á skjön við réttlæti, sanngirni og heilbrigða skynsemi er allt of langt gengið.

Réttlæti hins sterka. Dómarar og dómar
Furðulega algengt er að í dómsforsendum í dómum hér á landi tilgreini dómari fyrst og fremst þau atriði sem eru dómnum í vil en fjalli lítt um meginrök þess sem hann dæmir í mót og sleppi þeim jafnvel alveg.

Réttlæti hins sterka, úrelt dómskerfi
Árið 1970 er mér sérstaklega minnisstætt vegna þess að þá var ég að hefja störf að loknu námi erlendis og var einmitt að átta mig á vinnumarkaðnum hér á landi. Þegar ég kom í dómsal fyrir nokkrum árum fannst mér dómarar og lögmenn haga sér eins og árið 1970 væri enn við lýði.