Varnargarðar á Reykjanesskaga
Lýstu áhyggjum af víðtækum undanþágum frá lögum vegna gjaldtöku
Minnihluti allsherjar- og menntamálanefndar lagði til að ákvæði frumvarps um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga er varða sértaka gjaldtöku vegna framkvæmda við varnargarða í nágrenni við Svartsengi yrðu felld á brott áður en frumvarpið yrði samþykkt.
Um þrjátíu vörubílar notaðir til að sækja efni úr Stapafelli
Rúmlega þrjátíu vörubílar voru notaðir við að flytja efni úr Stapafelli við Grindavíkurveg í gær og aftur í morgun að svæðinu þar sem til stendur að reisa varnargarða til verndar virkjuninni að Svartsengi og Bláa lóninu. Um fimmtán flutningabílar voru notaðir við flutningana í nótt.
Spyr hvers vegna HS Orka og Bláa lónið séu stikkfrí
Guðjón Friðriksson sagnfræðingur orðar þar sem margir hugsa þegar hann spyr hvers vegna einkafyrirtækin HS Orka og Bláa lónið sleppi frá því að leggja í púkkið við byggingu varnargarða?
Samþykkja frumvarp um vernd innviða
Alþingi samþykkti skömmu fyrir miðnætti frumvarp forsætisráðherra um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga. Greiddu 57 þingmenn atkvæði með frumvarpinu.
Landvernd styður Grindavík
Landvernd, umhverfissamtök sendu í gær sveitarstjóra Grindavíkur eftirfarandi bréf, sem er opið bréf til Grindvíkinga og stjórnvalda. Í bréfinu lýsa samtökin fullum stuðningi við nauðsynlegar framkvæmdir sem tryggja innviði og samfélag á hamfarasvæðum og bjóða fram aðstoð við vinnu í samræmi við markmið Landverndar um að verja og endurreisa náttúru og umhverfi eins og best hæfir náttúrulegum aðstæðum og búsetu í landinu.
„Tímabundin“ skattahækkun fylgir varnargarðafrumvarpi
Stjórnarfrumvarp forsætisráðherra um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga gerir ráð fyrir að nýr skattur verði lagður á alla húseigendur í landinu. Skattinum, sem kallast forvarnagjald, er ætlað að skila nærri einum milljarði króna í tekjur á næsta ári og tekið fram að hann verði lagður á „tímabundið í þrjú ár“.
Lágmark um tvær vikur í að Grindvíkingar geti flutt aftur heim
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, segir að sú staða sem sé nú uppi á Reykjanesinu sé algjör biðstaða. Beðið sé eftir því að það fari að gjósa, Þetta kom fram í Sprengisandi á Bylgjunni.
Ríkisstjórnin fundar í hádeginu
Ríkisstjórn Íslands mun funda í dag í Ráðherrabústaðnum klukkan 12:00. Þar verður farið yfir stöðuna á Reykjanesskaganum.
„Þunn lína á milli þess að fræða og hræða“
Almannatengill segir þunna línu á milli þess að fræða fólk og hræða á óvissutímum sem þessum. Hann telur suma jarðvísindamenn hafa farið yfir þá línu síðustu daga. Misvísandi skilaboð geti valdið fólki miklu hugarangri og skapað upplýsingaóreiðu.
Gerir ekki lítið úr alvarleikanum en segir alls ekki tímabært að rýma Grindavík
Magnús Tumi Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði segist ekki vilja gera lítið úr alvarleika þess sem á sér nú stað á Reykjanesi en að flestir vísindamenn telji að taka þurfi á þessum atburðum með ró og yfirvegun. Á þessari stundu sé ekkert sem bendi til þess að gjósi bráðlega.
Leggja fram frumvarp um byggingu varnargarða
Ríkisstjórn mun leggja fram frumvarp um byggingu varnargarða í Svartsengi. Frumvarpið er byggt á tillögu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Næst fer málið fyrir þing. Rætt verður við formenn allra flokka í dag.
„Íbúar í Grindavík geta verið rólegir“
HS orka undirbýr nú varnargarða vegna mögulegs eldgoss nærri Grindavík. Yfirlögregluþjónn almannavarna segir mjög litlar líkur á að gos sem hæfist núna hefði áhrif í Grindavík með stuttum fyrirvara, því geti íbúar Grindavíkur verið rólegir.
Vinna hafin við undirbúning varnargarða í Svartsengi
Ummerki eftir skjálftana í nótt sjást víða. Á Grindavíkurvegi eru sprungur í malbiki sem Vegagerðin vaktaði í dag og í orkuverinu í Svartsengi eru víða sprungur. Þar er hafin vinna við undirbúning varnargarða.
Bygging varnargarða bíði tillögu
„Er ekki orðið tímabært að fara að ráðum þessara sérfræðinga og að minnsta kosti, taka einhverja ákvörðun og helst þá að hefja framkvæmdir til að verja byggð og aðra innviði?“ spurði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma í dag.
Svona gætu varnargarðar við Svartsengi litið út
Starfshópur verkfræðinga og fræðimanna hefur gert greiningu á innviðum og skilað af sér tillögum að varnargörðum vegna mögulegs eldgoss á Reykjanesskaga.