Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024)
Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna
Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar sótti hart að Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra í ræðustól þingsins í óundirbúnum fyrirspurnum nú fyrir stundu.
Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur skipað Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur sem nýjan formann stjórnar Matvælasjóðs.
Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata beindi spurningu til Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum; hvort hann sæi ekki eftir því að hafa ekki tryggt nægilegt fjármagn 2020 til þess að vinna að andlegri líðan. Sigurður Ingi sagði vandann meðal annars þann að skortur væri á sálfræðingum.
Bjarkey ekki undir feldi
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til formanns Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs.
Svandís gefur kost á sér og vill kosningar í vor
Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur ákveðið að gefa kost á sér í formannssæti Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Núverandi formaður hefur þegar tilkynnt að hann taki ekki slaginn við Svandísi.
Erfið umræða sem fólk hafi veigrað sér við að taka
Heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið standa saman að málþingi um fóstur- og nýburaskimanir á morgun, þriðjudaginn 24. september. Í tilkynningu segir að málþinginu sé ætlað að vera samtalsvettvangur um fóstur- og nýburaskimanir og hvaða tækifæri og áskoranir fylgja tækniframframförum á þessu sviði, auk þess sem áleitnum siðferðilegum álitaefnum verður velt upp.
Jódís fer fram gegn Guðmundi Inga í varaformann VG
Jódís Skúladóttir þingkona Vinstri grænna gefur kost á sér í embætti varaformanns Vinstri grænna sem fer fram á landsfundi flokksins þarnæstu helgi. Jódís fer þannig fram gegn sitjandi formanni, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, sem tilkynnti fyrr í dag að hann ætli sér ekki að sækja eftir embætti formanns en vilji vera varaformaður, líkt og hann var.
Býður sig ekki fram til formanns og styður Svandísi
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra og starfandi formaður Vinstri grænna (VG) ætlar ekki að gefa kost á sér í formannssætið á komandi landsfundi. Í stað þess vill hann sjá Svandísi Svavarsdóttur innviðaráðherra og þingmann VG leiða flokkinn en hún hefur ekki tilkynnt framboð.
Guðrún skýst upp fyrir Katrínu
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra er sá ráðherra sem landsmenn telja hafa staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra er sá sem talinn er hafa staðið sig verst.
Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir fatlað fólk með NPA-samninga ekki geta beðið lengur eftir þjónustu en að það sé óásættanlegt að ríkið vísi málinu alfarið til sveitarfélaganna og á þá við ummæli félagsmálaráðherra frá í dag.
Bjarni fundaði með Guterres
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hitti í dag Antonio Guterres, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, í tengslum við Leiðtogafund um framtíðina sem stendur yfir í New York.
Ríkisstjórnin seilist í sjóði erfiðisvinnufólks
Fjárlagaumræðan undanfarna daga hefur afhjúpað algjört skeytingarleysi ríkisstjórnarflokkanna gagnvart kjörum og hagsmunum fólks sem hefur unnið slítandi störf um langa ævi.
Eftir hækkun Moody´s er lánshæfi Íslands einum flokki neðar en Bretlands
Náist samkomulag við lífeyrissjóðina um úrvinnslu skulda ÍL-sjóðs og salan á Íslandsbanka klárast ætti það að leiða til meiri lækkunar á skuldahlutfalli ríkissjóðs en núverandi áætlun Moody´s gerir ráð fyrir, en lánshæfismatsfyrirtækið hefur hækkað einkunn Íslands í A1, einum flokki neðar en hjá löndum á borð við Bretland og Írland. Vaxtabyrði íslenska ríkisins í hlutfalli af tekjum er umtalsvert meiri í samanburði við önnur ríki með sama lánshæfismat en Moody´s telur að það muni lækka nokkuð á komandi árum.
Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum
Ríkið uppfyllir allar sínar skyldur hvað varðar fjármögnun NPA-samninga að sögn félagsmálaráðherra. Hann vonast til þess að sveitarfélögin leysi úr vandanum sem blasir við þeim hvað varðar fjármögnun samninganna.
Fjárfesting í háskólum
Það hefur verið á vitorði stjórnvalda í áratugi að við vanfjárfestum í háskólamenntun. Ísland veitir mun minna fjármagni í þennan málaflokk en önnur Norðurlönd og aðrar þjóðir sem við viljum gjarnan bera okkur saman við. Það hefur lengi verið á stefnuskrá stjórnvalda að breyta þessu, en lítið hefur þokast í þá átt.
„Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“
Andri Snær Magnason gagnrýnir Viðskiptaráð fyrir afstöðu þess til loftslagsaðgerða. Vilji samtökin láta taka sig alvarlega þurfi þau að koma með plan í stað þess að einblína eingöngu á afkomu fyrirtækja. Eins og stendur sé ekki samfélagslega ábyrgt af fyrirtækjum að vera í Viðskiptaráði
Maður margra storma íhugar stöðu sína
Bjarni Benediktsson hefur í fyrsta sinn opinberlega greint frá því að hann íhugi nú stöðu sína eftir fimmtán ár í formannsstóli Sjálfstæðisflokksins. Hann geri sér grein fyrir að dagur ákvörðunar renni upp innan hálfs árs, eða fyrir landsfund flokksins sem fram fer um mánaðamótin febrúar-mars á næsta ári. Ef til vill væri kominn tími til að hleypa nýju blóði inn í forystu flokksins.
„Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“
Brynjar Níelsson sagði af sér varaþingmennsku í gær. Hann segir afsögn sína ekki tengjast stöðu Sjálfstæðisflokksins, ríkisstjórnarinnar eða máli Yazans Tamimi með neinum hætti. Hann er þó afar gagnrýninn á hvernig það fór fram. Ráðherrar Vinstri grænna hafi beitt dómsmálaráðherra óeðlilegum þrýstingi og hefði hann verið í stöðu Guðrúnar Hafsteinsdóttur hefði hann sagt af sér.
Viðskiptaþvinganir gegn Ísrael
Eftir heilt ár af linnulausum og grimmilegum hernaði Ísraels gagnvart Palestínumönnum getur alþjóðasamfélagið ekki setið hjá lengur. Brýnt er að ríki heims taki sig saman um aðgerðir sem setja raunverulegan þrýsting á ísraelsk stjórnvöld.
Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir það áhyggjuefni að ekki hafi tekist að halda uppi öflugra eftirliti á innri landamærunum eftir að Ísland gekk í Schengen-samstarfið. Mikið álag sé á lögreglu vegna fjölda frávísunarmála á Keflavíkurflugvelli.
Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu
Brynjar Níelsson hefur sagt af sér varaþingmennsku og mun að öllum líkindum taka sæti í stjórn Mannréttindastofnunar, gangi allt eftir. Þetta tvennt tengist þó ekki.
Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins segist vera velta eigin framtíð í stjórnmálum fyrir sér. Hann segist ekki vera búinn að ákveða hvað hann ætli að gera á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem fer fram í vor.
Brynjar segir af sér
Brynjar Níelsson hefur sagt af sér varaþingmennsku. Kjartan Magnússon leysir hann af.
Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins mætir fyrstur manna í Samtalið hjá Heimi Má Péturssyni fréttamanni í dag. Þátturinn verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 og sýndur á Stöð 2 í kvöld klukkan 19:10.
Sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa erlenda fanga
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segis sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa fanga með erlendan ríkisborgararétt, sérstaklega þá sem koma hingað til lands til þess eins að fremja afbrot.
Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum
Haraldur Ingi Þorleifsson, frumkvöðull og baráttumaður, lýsir þrautagöngu sinni við það að fá svör um notendastýrða persónulega aðstoð, eða NPA. Biðlistar eftir þjónustunni eru langir, þrátt fyrir að hún sé lögbundinn. Hann gagnrýnir stjórnvöld harðlega.
Höfuðstöðvar nýrrar ríkisstofnunar verða á Hvolsvelli
Mikil tilhlökkun og ánægja er á Hvolsvelli með þá staðreynd að höfuðstöðvar nýrrar ríkisstofnunar, Náttúruverndarstofnunar verði á staðnum og skapi þannig nokkur ný störf. Nýja stofnunin tekur til starfa um næstu áramót.
„Afleitt“ að sjá Yazan gerðan að leiksoppi í deilum ráðherra
Formaður Miðflokksins segir miður að Yazan Tamimi, ellefu ára palestínskur drengur með vöðvarýrnunarsjúkdóminn Duchenne, hafi orðið að bitbeini í pólistíkum deilum ráðherra í ríkisstjórninni. Hann telur hagsmuni hans hafa verið hafða að leiðarljósi við meðferð máls hans í stjórnkerfinu og furðar sig á misvísandi fullyrðingum ráðherra um hvort eðlileg stjórnsýsla hafi verið viðhöfð í málinu.
Skipuð forstjóri Náttúrufræðistofnunar
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, hefur skipað Eydísi Líndal Finnbogadóttur í embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar.
Tileinkuðu söng við heilbrigðisráðuneytið Yazan
Samstöðukór fyrir frjálsri Palestínu kom saman og söng fyrir utan Heilbrigðisráðuneytið í morgun. Kórinn vakti athygli á stöðu heilbrigðismála í Palestínu í yfirlýsingu sinni og tileinkaði sönginn Yazan Tamimi, ellefu ára langveika drengnum sem enn stendur til að vísa úr landi. Heilbrigðisráðherra hlýddi ekki á sönginn.