Ólögleg hækkun lífeyrisréttinda yfirlögregluþjóna
Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar
Stjórn Lögreglustjórafélags Íslands varaði Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, þáverandi dómsmálaráðherra, við því að starfslokasamningar Haraldar Jóhannessen ríkislögreglustjóra við nokkra undirmenn væru líklega ólögmætir. Sömu sögu er að segja um ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytis og sérfræðinga innan fjármálaráðuneytis.
Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna
Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi nú rétt í þessu spurði Björn Leví Gunnarsson Pírati Bjarna Benediktsson forsætisráðherra hvernig honum liði með að bera óbeint ábyrgð á gjafagjörningi Haraldar Johannessen fyrrverandi ríkislögreglustjóra.
Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Pírati sótti að Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra á þingi nú fyrir stundu og spurði hana hvort hún ætlaði að beita sér fyrir því að rannsókn yrði gerð á örlætisgjörningi Haraldar Johannessen, þáverandi ríkislögreglustjóra.
Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf?
Hæstaréttarlögmaður veltir því fyrir sér hvernig ríkið ætli að endurheimta fé sem fyrrverandi Ríkislögreglustjóri gaf undirmönnum sínum rétt fyrir eigin starfslok. Hann segir háttsemi Ríkislögreglustjóra líklega bótaskylda og jafnvel refsiverða.
Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau
Embætti ríkislögreglustjóra þarf að greiða fjórum yfirlögregluþjónum laun í takti við samkomulag sem þáverandi ríkislögreglustjóri, Haraldur Johannessen, gerði við þá um endurskoðun launakjara árið 2019. Hæstiréttur telur Harald hafa skort heimild til að hækka laun lögregluþjónanna en þeir hafi tekið við hækkun í góðri trú og því mætti ekki lækka launin á ný.
Hæstiréttur samþykkir að taka fyrir launaákvörðun ríkislögreglustjóra
Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál embættis ríkislögreglustjóra og íslenska ríkisins gegn fjórum lögreglumönnum. Málið varðar samkomulag sem þáverandi ríkislögreglustjóri gerði við lögreglumennina árið 2019 en nýr ríkislögreglustjóri hefur freistað þess að fá hnekkt.
Umdeildir launasamningar Haraldar standa
Embætti ríkislögreglustjóra þarf að greiða fjórum lögregluþjónum laun í takti við samkomulag sem þáverandi ríkislögreglustjóri, Haraldur Johannessen, gerði við þá um endurskoðun launakjara árið 2019.
Gert að standa við umdeilda launasamninga Haraldar við yfirlögregluþjóna
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt embætti ríkislögreglustjóra til að greiða fjórum yfirlögregluþjónum laun í takti við samkomulag sem Haraldur Johannessen, þáverandi ríkislögreglustjóri, gerði við þá um endurskoðun launakjara sumarið 2019.
Yfirlögregluþjónar stefna vegna umdeildra kjarabóta
Hópur yfirlögregluþjóna og aðstoðaryfirlögregluþjóna hefur stefnt ríkislögreglustjóra og ríkinu vegna ákvörðunar um að afturkalla samninga sem Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri, gerði við þá og bætti launakjör þeirra og lífeyrirsgreiðslur.
Segir afstöðu ríkislögreglustjóra lið í valdabaráttu innan lögreglunnar
Yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra segir að áform Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra um, að vinda ofan af launasamningum sem forveri hennar í embætti gerði við fámennan hóp lögreglumanna, snúist ekki bara um fjármuni.
Nánari svör hafi ekki fengist frá Ríkislögreglustjóra
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir að eftir að umsögn frá Kjara- og mannnauðssýslu ríkisins hafi fengist um kjarasamning sem Haraldur Johannessen gerði við undirmenn sína hafi ekki fengist nánari svör frá ríkislögreglustjóra.
Áliti ríkislögreglustjóra verður andmælt
Lögmaður Landssambands lögreglumanna telur lögfræðiálit sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hefur aflað ekki standast. Hann vinnur að lögfræðiáliti þar sem sjónarmiðum þess er andmælt.
Haraldur hafði ekki heimild til að semja um kjarabætur nokkurra lögregluþjóna
Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri hafði ekki heimild til að semja við yfirlögregluþjóna og aðstoðaryfirlögregluþjóna um kjarabætur.
Laun yfirmanna hjá lögreglunni hækkuðu um 48% með samkomulagi Haraldar
Föst mánaðarlaun tveggja yfirlögregluþjóna og sjö aðstoðaryfirlögregluþjóna hækkuðu um 48% að meðaltali með samningi sem Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri, gerði við umrædda starfsmenn embættisins.