Stj.mál

Fréttamynd

Bæjarstjóri Hornafjarðar lenti í 3. sæti í prófkjöri D-listans

Albert Eymundssyni, sitjandi bæjarstjóra á Hornafirði, var hafnað í prófkjöri sjálfstæðismanna í bænum í gær eftir því sem fram kemur á vefsíðunni hornafjörður.is. Það var Halldóra Bergljót Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar, sem bar sigur úr býtum en hún atti kappi við Albert um fyrsta sætið á listanum.

Innlent
Fréttamynd

Vill fleiri málaflokka til sveitarfélaganna

Samfylkingin vill að öldrunarþjónusta, heilsugæsla, málefni fatlaðra, löggæsla og framhaldsskólinn flytjist til sveitarfélaganna sem séu mun betur fallin til þess að annast þjónustu við íbúa en ríkið. Þetta kemur fram í yfirlýsingu flokkstjórnarfundar Samfylkingarinnar sem haldinn var á Nordica-hótelinu í dag.

Innlent
Fréttamynd

Verðbólguskeið framundan á Íslandi?

Formaður Samfylkingarinnar segir að framundan sé verðbólguskeið á Íslandi sem muni standa lengi. Ríkisstjórnin virðist hins vegar ekki ætla að takast á við þá vandasömu hagstjórn sem framundan sé.

Innlent
Fréttamynd

Hljótum að stefna að öryggissamfélagi með Evrópu

Ísland hlýtur að stefna að því að eiga öryggissamfélag með Evrópu í framtíðinni. Þetta er meðal þess sem kom fram í ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, á flokkstjórnarfundi Samfylkingar á Hótel Nordica í dag.

Innlent
Fréttamynd

Engin lagaúrræði til að takmarka fjölgun mengandi iðjuvera

Íslensk stjórnvöld hafa engin lagaleg úrræði til að takmarka fjölgun mengandi iðjuvera í landinu. Þetta segir Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylkingarinnar, en hann telur að það sé nú á ábyrgð íslenska ríkisins að tryggja mengunarkvóta og aðrar mótvægisaðgerðir til að mæta aukinni mengun.

Innlent
Fréttamynd

Kosið um sameiningu tveggja hreppa á Norðausturlandi

Kosið verður um sameiningu Þórshafnarhrepps og Skeggjastaðahrepps á Norðausturlandi í dag. Hugmyndin vaknaði meðal sveitarstjórnarmanna í hreppunum eftir sameiningarkosningar í haust þar sem íbúar í báðum sveitarfélögum samþykktu sameiningu við nágrannasveitarfélögin.

Innlent
Fréttamynd

A-listinn vill ekki einkavæða Keflavíkurflugvöll

A-listinn í Reykjanesbæ telur ekki koma til greina að einkavæða Keflavíkurflugvöll né Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. Þetta segir í tilkynningu frá listanum. Þar segir einnig að að Keflavíkurflugvöllur sé ein af meginstoðum atvinnulífs á Suðurnesjum og því séu hugmyndir um einkavæðingu flugvallarins mjög varhugaverðar, sérstaklega í ljósi þess atvinnuástands sem nú skapist við brotthvarf varnarliðsins.

Innlent
Fréttamynd

Hafa áhyggjur af þorskstofninum

Stjórnarandstæðingar lýstu miklum áhyggjum af stöðu þorsksins og gagnrýndu kvótakerfið harðlega við upphaf þingfundar í morgun. Sjávarútvegsráðherra sagði fréttir af togararalli Hafrannsóknastofnunar ekki góðar en hvatti menn til að bíða lokaniðurstaðna.

Innlent
Fréttamynd

Um 64% Akureyringa vilja nýjan meirihluta í bæjarstjórn

Rúmlega 64% Akureyringa vilja fá nýjan meirihluta í bæjarstjórn samkvæmt niðurstöðum í nýlegri Gallup könnun. Fréttavefurinn Dagur greinir frá niðurstöðum könnunarinnar en í henni var spurt um ánægju með meiri- eða minnihluta í bæjar- og sveitafélögum víða um land.

Innlent
Fréttamynd

Málsókn gegn Norðmönnum eina leiðin

Málsókn gegn Norðmönnum virðist eina leiðin til að binda endi á ofríki þeirra við Svalbarða sagði utanríkisráðherra á Alþingi í dag. Ekki er þó ljóst hvenær af málsókn verður.

Innlent
Fréttamynd

Hart deilt á utanríkisráðherra

Stjórnarandstæðingar deildu á utanríkisráðherra við upphaf þingfundar í dag fyrir að hafa ekki nægilegt samráð um gang mála í varnarviðræðum við Bandaríkin. Utanríkisráðherra sagði að það mætti ef til vill saka sig um margt en ekki þó það að hafa ekki nægilegt samráð við þingnefndir.

Innlent
Fréttamynd

Útlendingum í starfaleit þarf ekki að fjölga

Fólki frá Austur-Evrópu sem kemur hingað til lands að leita sér vinnu þarf ekki að fjölga þrátt fyrir að takmarkanir við för þeirra falla niður 1. maí. Þetta er mat félagsmálaráðherra og aðstoðarframkvæmdastjóra Alþýðusambands Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Saddam aftur fyrir rétt

Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, mætti aftur fyrir rétt í morgun. Hann sakaði innanríkisráðuneyti Íraks um að hafa myrt og pyntað þúsundir manna. Verið er að yfirheyra Saddam um morð á sjía-múslinum á níunda áratug síðustu aldar.

Erlent
Fréttamynd

Enn rætt um RÚV-frumvarp á þingi

Önnur umræða um frumvarp til nýrra laga um Ríkisútvarpið stendur enn á Alþingi en hún hófst um klukkan eitt í dag. Fimm manns hafa tekið til máls frá því að umræðan hófst en skömmu fyrir klukkan tíu voru tólf á mælendaskrá og því líklegt að þingfundur standi að minnsta kosti til miðnættis. Umræðunni lýkur þó varla í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Fundað með heilbrigðisráðherra vegna umönnunarstarfa

Forsvarsmenn Starfsgreinasambandsins funda á morgun með heilbrigðisráðherra meðal annars vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í kjarabaráttu ófaglærðra starfsmanna á elliheimilum á suðvesturhorninu. Starfsmennirnir hafa boðað setuverkfall í lok þessarar viku vegna óánægju með kjör sín, en þeir vilja sömu laun og fólk í sambærilegum störfum hjá sveitarfélögunum.

Innlent
Fréttamynd

Fyrsta sérhæfða geðdeildin fyrir aldraða

Geðdeild fyrir aldraða verður sett á laggirnar á Landakotsspítala, sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Þetta er meðal aðgerða sem heilbrigðisráðherra kynnti í dag sem ætlaðar eru til að bæta geðheilbrigðisþjónustu við aldraða hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Kannar hvort breyta þurfi jarðalögum vegna uppkaupa

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra ætlar að kanna hvort breyta þurfi jarðalögum og taka upp einhvers konar ábúðarskyldu til þess að koma í veg fyrir að efnamenn kaupi upp jarðir úti á landi sem dragi hugsanlega úr möguleikum bænda til búskapar. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Innlent
Fréttamynd

Ítrekaði að taka bæri upp atvinnuveiðar

Sjávarútvegsráðherra ítrekaði í dag þá skoðun sína að taka bæri upp hvalveiðar í atvinnuskyni. Hann sagði Íslendinga í samkeppni við hrefnuna um nytjastofna við landið og að hvalveiðar væru forsenda þess að hægt væri að byggja upp stofnana.

Innlent
Fréttamynd

Óttast ekki andstöðu við frumvarpið

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segist bjartsýn á að frumvarp hennar um stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar verði að lögum núna í vor. Þetta segir hún þrátt fyrir að allir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í iðnaðarnefnd Alþingis geri athugasemdir við frumvarpið.

Innlent
Fréttamynd

Bjartsýn á að frumvarpið verði að lögum

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segist bjartsýn á að frumvarp hennar um Nýsköpunarmiðstöð verði að lögum í vor. Þetta sagði hún í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Valgerður svaraði þá fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar, þingmanns Samfylkingar, sem taldi að hún hefði stefnt í voða samkomulagi sem hafi verið að myndast um byggðastefnu.

Innlent
Fréttamynd

Frumvarp Valgerðar varla afgreitt úr nefnd

Afar ólíklegt er að frumvarp iðnaðarráðherra um Nýsköpunarmiðstöð Íslands verði afgreitt úr iðnaðarnefnd Alþingis, segir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Allir sjálfstæðismennirnir í nefndinni gera athugasemdir við frumvarpið.

Innlent
Fréttamynd

Mál dómara gegn ríkinu þingfest í vikunni

Mál Guðjóns St. Marteinssonar héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur gegn íslenska ríkinu verður þingfest síðar í vikunni. Guðjón ákvað að höfða mál þegar úrskurður Kjaradóms um laun stjórnmála- og embættismanna var numinn úr gildi með lögum.

Innlent
Fréttamynd

Forseta Litháen afhent trúnaðarbréf

Hannes Heimisson, sendiherra, afhenti þann 23. mars Valdas Adamkus, forseta Litháen, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Litháen, með aðsetri í Helsinki.

Innlent
Fréttamynd

Rúmlega árslaun í hærri vaxtagreiðslur

Vaxtahækkanir Íbúðalánasjóðs að undanförnu hafa í för með sér að lántakendur þurfa að greiða rúmlega einum árslaunum meira í vexti á lánstímanum en fyrir fáeinum mánuðum síðan, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins.

Innlent
Fréttamynd

Nefnd sex ráðuneyta um Vatnsmýri

Forsætisráðherra hefur skipað nefnd til að samræma hugmyndir um framtíðarstaðsetningu háskóla- og rannsóknastofnana ríkisins á Vatnsmýrarsvæði. Meðal stofnana sem gætu fengið aðstöðu í Vatnsmýrinni eru Matvælarannsóknir og rannsóknahluti Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Deildi hart á gagnrýnendur innan flokks

Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, fór hörðum orðum um þá flokksmenn sem hafa gagnrýnt forystuna opinberlega, þegar hann ávarpaði vorfund miðstjórnarflokksins sem haldinn er í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Ekki tímabært að afnema verðtryggingu lána

Stefna ber að því til lengri tíma litið að afnema verðtryggingu lána hér á landi en það er ekki hægt nú vegna þeirra sveiflna sem eru í þjóðfélaginu. Þetta sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra við utandagskrárumræðu um aukningu á skuldum þjóðarbúsins í dag.

Innlent
Fréttamynd

Varnarmál rædd í sumarskóla Háskóla Íslands

Áhrif breytinga í varnarmálum á Ísland og önnur smáríki í Evrópu er meðal þess sem rætt verður í sumarskóla Smáríkjaseturs Háskóla Íslands, sem hefur nú hlotið styrk frá Evrópusambandinu. Nokkrir helstu fræðimenn á sviði Evrópufræða og smáríkjarannsókna miðla þar þekkingu sinni til íslenskra og erlendra nema.

Innlent