Bandaríkin
141 142 143 144 145 146 147 148 149 … 334 ›
Ár frá árásinni á þinghúsið: Tak Trumps á Repúblikanaflokknum hefur aldrei verið þéttara Ár er liðið frá því að stór hópur stuðningsmanna Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, ruddi sér leið í gegnum tálma lögreglunnar og reyndi að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna 2020. Kosninga sem Trump tapaði gegn Joe Biden. Erlent 6.1.2022 09:11
Alríkislögreglan líklega búin að ráða stóra ráðgátu innan bókmenntaheimsins Það kann að vera að ráðgáta sem hefur plagað bókmenntaheiminn í nokkur ár sé loks leyst en bandaríska alríkislögreglan hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa gabbað umboðsmenn og útgáfufyrirtæki til að senda sér handrit að óútgefnum bókum. Erlent 6.1.2022 08:12
Stjórnlaus rússnesk eldflaug á leið til jarðar Geimvísindamenn fylgjast nú grannt með rússneskri eldflaug sem er á hraðri leið til jarðar innan næsta sólarhrings. Erlent 5.1.2022 21:51
Derulo réðst á menn sem héldu hann vera Usher Tónlistarmaðurinn Jason Derulo réðst á menn í Las Vegas aðfaranótt þriðjudags eftir að mennirnir virtust ruglast á honum og tónlistarmanninum Usher. Atvikið átti sér stað á hóteli og réðst Derulo að mönnunum eftir að einn þeirra kallaði: „Hei Usher, farðu í rassgat“. Erlent 5.1.2022 08:57
Skutu enn einni eldflauginni á loft Eldflaug var skotið frá Norður-Kóreu í nótt og var það í fyrsta sinn í minnst tvo mánuði. Ekki liggur fyrir hvers konar eldflaug um er að ræða en henni var skotið frá sambærilegum stað og annarri eldflaug í fyrra sem ríkisstjórn einræðisríkisins sagði vera hljóðfráa eldflaug. Erlent 5.1.2022 08:24
Hin íslenska Alma Goodman samdi lag fyrir Katy Perry Tónlistarkonan og lagahöfundurinn Alma Goodman er enginn nýgræðingur í tónlistarheiminum en hún var meðal annars hluti af stelpu bandinu Nylon sem þróaðist síðar yfir í The Charlies. Tónlist 5.1.2022 07:30
Dómarinn á báðum áttum vegna samkomulagsins við Epstein Dómari í máli Virginiu Giuffre gegn Andrési prins virðist á báðum áttum þegar kemur að tilraun lögmanna Andrésar til að nýta sér gamalt samkomulag Giuffre við Jeffrey Epstein til að fá málinu vísað frá dómstólum. Dómarinn er þó sagður hafa virst efins um þessa túlkun lögmanna prinsins. Erlent 4.1.2022 22:21
Máli Nevermind-barnsins vísað frá dómi Dómstóll í Bandaríkjunum hefur vísað máli hins þrítuga Spencer Elden, sem var á umslagi Nevermind, plötu Nirvana frá árinu 1991, frá dómi. Elden hafði krafið meðlimi sveitarinnar um háar fjárhæðir þar sem hann sagði umslagið jafngilda barnaklámi. Erlent 4.1.2022 12:07
CES 2022: Nýjustu tæki og tól til sýnis Consumer Electronic Show eða CES, ein vinsælasta tæknisýning heimsins, hefst formlega í Las Vegas á fimmtudaginn. Sýningin virðist þó ætla að vera með nokkuð minna sniði en oft áður og mörg fyrirtæki kynna vörur sínar og tækni á netinu. Viðskipti erlent 4.1.2022 11:34
Tvíburar fæddust hvor á sínu árinu Fatima Madrigal fæddi dreng klukkan 23:45 á gamlárskvöld. Tvíburasystir drengsins mætti svo í heiminn á miðnætti en tvíburarnir fæddust því á sitthvoru árinu og eiga mismunandi afmælisdaga. Erlent 4.1.2022 09:25
Trump og tveimur börnum hans stefnt Ríkissaksóknari New York hefur stefnt Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og tveimur börnum hans Ivönku Trump og Donald Trump yngri. Saksóknarinn krefst þess að þau beri vitni í rannsókn á Trump Organization, fyrirtæki Trumps. Erlent 4.1.2022 08:52
Halda nöfnum gesta leyndum til að koma í veg fyrir mismunun Forsvarsmenn Airbnb hafa ákveðið að halda nöfnum gesta í Oregon í Bandaríkjunum leyndum þar til bókun þeirra hefur verið staðfest af gestgjafa. Þetta er gert til að tryggja að gestgjafar mismuni ekki gestum á grundvelli kynþáttar. Erlent 4.1.2022 08:46
Fyrsta fyrirtæki sögunnar til að vera metið á þrjár billjónir dollara Bandaríski tæknirisinn Apple varð í gær fyrsta fyrirtæki sögunnar til að vera metið á þrjár billjónir Bandaríkjadala. Hlutabréfaverð í fyrirtækinu hefur hækkað um heil 5.800 prósent síðan Steve Jobs, einn af stofnendum fyrirtækisins kynnti iPhone símann árið 2007. Viðskipti erlent 4.1.2022 07:42
Elizabeth Holmes fundin sek um fjársvik Dómstóll í Bandaríkjunum sakfelldi í gær Elizabeth Holmes, stofnanda Theranos, af ákæru um að hafa svikið fé út úr fjárfestum. Réttarhöld í máli Holmes hafa staðið yfir í Kaliforníu síðustu mánuði. Erlent 4.1.2022 07:42
Bandaríkjamenn setja heimsmet í greindum á sólarhring Yfir milljón manns greindust með Covid-19 í Bandaríkjunum í gær en um er að ræða nýtt heimsmet í fjölda greininga sjúkdómsins á einum degi. Þá er þetta næstum tvöföldun á fyrra meti, sem féll í Bandaríkjunum fyrir fjórum dögum, þegar 590 þúsund manns greindust með kórónuveiruna. Erlent 4.1.2022 07:13
Heimila örvunarskammt fyrir tólf til fimmtán ára Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna hefur heimilað notkun á bóluefni Pfizer sem örvunarskammt fyrir börn á aldrinum tólf til fimmtán ára, og lækkað tímann sem þarf að líða frá annari bólusetningu til þeirra þeirra þriðju úr sex mánuðum í fimm. Erlent 3.1.2022 22:27
Telja samning Giuffre við Epstein fría Andrés prins af ábyrgð Virgina Giuffre, sem kært hefur Andrés prins fyrir nauðgun, tók á móti greiðslu úr hendi Jeffrey Epstein árið 2009 gegn því að höfða ekki mál gegn „mögulegum sakborningum“ vegna kynferðisofbeldis. Erlent 3.1.2022 20:04
Íhugar að skikka borgarstarfsmenn til að þiggja örvunarskammt Eric Adams, borgarstjóri New York, sagðist í gær vera að íhuga að skylda starfsmenn borgarinnar til að þiggja örvunarskammt af bóluefnunum gegn Covid-19. Opinberir starfsmenn í New York hafa þegar verið skikkaðir til að þiggja bólusetningu. Erlent 3.1.2022 07:45
Umfangsmiklar refsiaðgerðir það eina sem geti komið í veg fyrir innrás Það verður að teljast afar líklegt að Rússland ráðist inn í Úkraínu og það eina sem gæti mögulega komið í veg fyrir það eru gríðarlega umfangsmiklar refsiaðgerðir. Þetta segir Adam Schiff, formaður leyniþjónustunefndar fulltrúadeildar bandaríska þingsins. Erlent 3.1.2022 06:48
Íhuga að breyta reglum um einangrun nokkrum dögum eftir styttingu Sóttvarnayfirvöld í Bandaríkjunum íhuga nú að breyta reglum um einangrun Covid-smitaðra, með því að setja neikvætt kórónuveirupróf sem skilyrði fyrir því að hægt sé að ljúka einangrun á fimm dögum. Einangrun í Bandaríkjunum var stytt úr tíu dögum í fimm í síðustu viku. Erlent 2.1.2022 23:50
Þingkona bönnuð á Twitter vegna rangra upplýsinga um Covid Bandaríska þingkonan Marjorie Taylor Greene hefur verið bönnuð á samfélagsmiðlinum Twitter, eftir að hafa ítrekað brotið reglur miðilsins um falsfréttir í tengslum við kórónuveirufaraldurinn. Greene hefur sagt bannið gegn sér til marks um að Twitter sé „óvinur Bandaríkjanna.“ Erlent 2.1.2022 23:30
Tveggja saknað eftir elda í Colorado Tveggja er saknað eftir gróðurelda sem skekið hafa úthverfi bandarísku borgarinnar Denver í Colorado-ríki í Bandaríkjunum. Hundruð heimila hafa orðið eldinum að bráð og þúsundir hafa þurft að flýja heimili sín vegna þeirra. Erlent 1.1.2022 20:31
Betty White er látin „Jafnvel þótt Betty væri að verða 100 ára hélt ég að hún myndi lifa að eilífu,“ segir Jeff Witjas, umboðsmaður og náin vinur leikkonunnar Betty White, sem lést fyrr í dag. Erlent 31.12.2021 20:48
Ekki augljós árangur af fundi Pútín og Biden Joe Biden forseti Bandaríkjanna og Vladimir Putin forseti Rússlands áttu fjarfund í gærkvöldi þar sem þeir ræddu þá spennu sem ríkir vegna málefna Úkraínu. Erlent 31.12.2021 08:53
Þúsundir flýja heimili sín vegna gróðurelda Rúmlega þrjátíu þúsund manns hafa flúið heimili sín í Colorado í Bandaríkjunum vegna gróðurelda. Þurrt hefur verið í ríkinu í haust og í vetur og mikill vindur er á svæðinu. Eldurinn breiðist því hratt út en talið er að eldsupptök megi rekja til rafmagnsmastra, sem féllu um koll í ofsaveðrinu. Erlent 31.12.2021 08:24
Lögreglan í New York fær heimild til að panta Mustang-Mach-E og Tesla Model 3 New York borg hefur ráðist í metnaðarfulla aðgerð sem snýst um að rafvæða lögreglubílaflota borgarinnar. Borgarstjórn New York borgar hefur nú veitt heimild fyrir kaupum á 184 Ford Mustang Mach-E rafbílum. Bílar 31.12.2021 07:02
Spítalainnlögnum barna fjölgar ört í Bandaríkjunum Spítalainnlögnum barna með Covid fjölgar nú ört í Bandaríkjunum. Innlagnir barna í Bandaríkjunum hafa nær aldrei verið fleiri í kórónuveirufaraldrinum en faraldurinn er í miklum vexti þar í landi. Erlent 30.12.2021 20:18
Texasbúi réttur eigandi lénsins Iceland Express Fyrirtækið Sólvellir, sem tengt er Ferðaskrifstofu Íslands, kvartaði nýlega til Neytendastofu yfir notkun erlends aðila á léninu icelandexpress.is. Sólvellir á sjálft vörumerkið Iceland Express og bar fyrir sig að erlendi aðilinn hefði engin tengsl við merkið. Viðskipti innlent 30.12.2021 17:44
Repúblikanar vilja stjórna hverjir kjósa og hvernig atkvæði eru talin Repúblikanar víðsvegar um Bandaríkin hafa gripið til aðgerða sem taka mið af því að gera flokksmeðlimum auðveldara að snúa niðurstöðum kosninga í Bandaríkjunum. Viðleitnin byggir á grunni ósanninda Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um að umfangsmikið svindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020 gegn Joe Biden. Erlent 30.12.2021 15:01
Tesla innkallar hálfa milljón bíla í Bandaríkjunum Bílaframleiðandinn Tesla hefur innkallað um 475 þúsund bíla í Bandaríkjunum vegna galla á afturmyndavél og farangursgeymslu sem gæti leitt til slysa. Um er að ræða allt að 356.309 bíla af gerðinni Model 3 sem seldir voru í Bandaríkjunum milli 2017 og 2020 og allt að 119.009 Model S bíla sem seldir voru eftir 2014. Bílar 30.12.2021 14:00