Evrópudeild UEFA

Stuðningsmenn Frankfurt fyrirferðamiklir á Nývangi | Forseti Barcelona biðst afsökunar
Barcelona varð ekki aðeins undir innan vallar þegar liðið var slegið úr keppni í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gær.

„Risastórt sem við höfum gert á tveimur árum“
David Moyes, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins West Ham, var stoltur af sínum mönnum eftir 3-0 sigur liðsins gegn Lyon í átta liða úrslitum EVrópudeildarinnar í kvöld. Hann segir það ótrúlegt hvað liðið er komið langt síðan hann tók við stjórnartaumunum.

Frankfurt henti Börsungum úr leik | West Ham fór örugglega áfram
Barcelona er úr leik úr leik í Evrópudeildinni eftir 2-3 tap gegn Frankfurt á heimavelli í kvöld. Liðið lenti 0-3 undir og tvö mörk í uppbótartíma gátu ekki bjargað þeim. Á sama tíma vann West Ham öruggan 0-3 sigur gegn Lyon.

RB Leipzig fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum
RB Leipzig varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Evrópudeildarinnar með 0-2 útisigri gegn Atalanta.

Alfons og félagar í flokk með Real Madríd
Landsliðsmaðurinn Alfons Sampsted og liðsfélagar hans í norska meistaraliðinu Bodø/Glimt gerðu José Mourinho og lærisveinum hans í Róma enn einn grikkinn í gær er liðin mættust í 8-liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu.

Lögreglan ræddi við Mourinho og þjálfara Alfonsar eftir að upp úr sauð
Það var enn hiti í mönnum inni á búningsklefasvæðinu í Bodö í gærkvöld, eftir 2-1 sigur heimamanna gegn Roma í Sambandsdeildinni í fótbolta og var lögregla kölluð til. Mikill hefndarhugur er í fyrirliða Roma vegna málsins.

Hamrarnir héldu út á heimavelli
West Ham og Lyon skildu jöfn er liðin mættust í áttaliða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta í kvöld, en heimamenn í West Ham þurftu að leika allan síðari hálfleikinn manni færri.

Tíu leikmenn Frankfurt héldu út gegn Barcelona
Barcelona náði ekki að nýta sér liðsmuninn er liðið heimsótti Frankfurt í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta í kvöld. Lokatölur urðu 1-1, en liðin mætast á ný að viku liðinni á Spáni.

„Út í hött að bera mig saman við Messi“
Hver þarf Messi þegar þú ert með þennan strák? Það er aftur komin mikil bjartsýni í herbúðir Barcelona eftir dimma daga undanfarin misseri. Einn af sólargeislunum er Pedri.

Barcelona mætir Frankfurt og West Ham Lyon
Barcelona mætir Frankfurt í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar. West Ham United dróst gegn Lyon.

Úkraínumaðurinn kom West Ham í átta liða úrslit í framlengingu
West Ham er á leið í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir 2-0 sigur gegn Sevilla í framlengdum leik í kvöld, en það var Úkraínumaðurinn Andriy Yarmolenko sem skoraði sigurmark Hamranna.

Aubameyang skaut Börsungum í átta liða úrslit
Barcelona er á leið í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar í fótbolta eftir 2-1 sigur gegn Galatasaray í kvöld. Fyrri leikur liðanna endaði með markalausu jafntefli, en það var Pierre-Emerick Aubameyang sem skoraði sigurmark Börsunga í kvöld.

Hélt Ísaki utan hóps en fannst hann magnaður í gær
Ísak Bergmann Jóhannesson fékk hrós frá þjálfara FC Kaupmannahafnar eftir að hafa loksins í gær fengið að spila sinn fyrsta keppnisleik með liðinu á þessu ári.

Rikki G. í Heiðursstúkunni: „Ég má eiginlega ekki tapa fyrir honum“
Heiðursstúkan er þáttur sem verður einu sinni í viku á Vísi en fimmti þátturinn er nú kominn inn á vefinn.

Börsungar þurfa sigur í Tyrklandi | Atalanta hafði betur í fimm marka leik
Barcelona og Galatasaray gerðu markalaust jafntefli á Camp Nou í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta í kvöld. Á sama tíma vann Atalanta 3-2 heimasigur gegn Bayern Leverkusen.

Hamrarnir hafa verk að vinna á heimavelli
Sevilla vann góðan 1-0 sigur er liðið tók á móti West Ham í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta í kvöld.

Fjögur mörk skoruð í leikjum kvöldsins í Evrópudeildinni
Eintracht Frankfurt og Lyon eru í ágætri stöðu eftir sigur á útivelli í fyrri viðureign 16-liða úrslita Evrópudeildarinnar í fótbolta.

Skoraði með hendi guðs en þjálfarinn fékk hann til að viðurkenna svindlið
Hann hélt að hann hefði komist upp með því að skora með hendi guðs eins og Diego Maradona forðum en svo kom inngrip úr óvæntri átt.

Gerard Pique: Þessi sigur sýnir að Barcelona er að koma til baka
Barcelona leikmaðurinn Gerard Pique var kokhraustur eftir liðið sló ítalska félagið Napoli út úr Evrópudeildinni í gærkvöldi.

Hamrarnir til Spánar og Barcelona mætir Galatasaray
Austurríska liðið RB Leipzig dróst gegn Spartak Moskvu í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar og bíður þess því að vita hvar útileikurinn verður spilaður því UEFA hefur ákveðið að loka fyrir leiki í Rússlandi og Úkraínu vegna innrásar Rússa í Úkraínu.

Barcelona skoraði fjögur í Napoli | Framlengt í Íslendingaslagnum
Barcelona er komið áfram í Evrópudeildinni eftir frábæra heimsókn til Napoli í kvöld.

Þægilegt hjá Bodo/Glimt gegn Celtic | Lazio úr leik í Evrópudeildinni
Fyrri leikjalotu kvöldsins í Evrópudeildinni og Sambandsdeild Evrópu lauk nú rétt í þessu.

Atalanta og Porto unnu endurkomusigra | Sevilla í góðum málum fyrir seinni leikinn
Alls voru spilaðir átta leikir í Evrópudeildinni í fótbolta í kvöld, en seinni fjórum var að ljúka rétt í þessu. Atalanta og Porto unnu bæði 2-1 sigra eftir að hafa lent undir og Sevilla er í góðum málum eftir 3-1 sigur á Dinamo Zagreb.

Rangers í góðum málum eftir öruggan sigur gegn Dortmund
Skoska liðið Rangers vann heldur óvæntan 4-2 sigur gegn Dortmund í kvöld, en liðin áttust við í Evrópudeildinni á heimavelli Dortmund.

Torres tryggði Börsungum jafntefli
Ferran Torres skoraði jöfnunarmark Börsunga af vítapunktinum er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Napoli í stórleik kvöldsins í Evrópudeildinni í fótbolta.

Aubameyang og Traore kynntir hjá Barcelona og verða með í Evrópudeildinni
Spænska stórveldið Barcelona kynnti tvo nýjustu leikmenn sína með pompi og pragt á Nývangi í dag.

Maradona slagur í Evrópudeildinni
Verkefnið verður ekki mikið léttara fyrir Börsunga þótt að þeir séu að spila í Evrópudeildinni en ekki í Meistaradeildinni eftir áramót.

Brendan Rodgers: „Ég veit ekki einu sinni hvaða keppni þetta er“
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Leicester, var eðlilega ósáttur eftir 3-2 tap sinna manna gegn Napoli í lokaumferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í gær. Tapið þýðir að liðið fer í útsláttakeppni Sambandsdeildarinnar í staðin fyrir Evrópudeildarinnar.

Elías á bekknum er Midtjylland missti af sæti í 32-liða úrslitum
Elías Rafn Ólafsson þurfti að sætta sig við bekkjarsetu er Midtjylland gerði markalaust jafntefli gegn Ludogorets Razgrad og missti þar með af sæti í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Varsjá var hársbreidd frá því að skjóta Leicester í útsláttakeppnina
Af þeim 16 leikjum sem eru á dagskrá í Evrópudeildinni í fótbolta í kvöld er nú átt þeirra lokið. Legia Varsjáhefði getað komið Leicester til bjargar, en klikkuðu á vítaspyrnu í uppbótartíma.